Morgunblaðið - 30.10.1997, Page 50
50 FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329
<7-/7
I $/irr4£> 5EGT4.
I t>A ER. Ée 7ERMÍT/!
. ***$!>'*,
Grettir
Tommi og Jenni
/THE WAS' I SEE ItA l VOU HAVE TUIO ) \CHOICES.. YOU CAN HELP ME IUITH MV 5PELLIN6 WORD5.. /S^\\ x r *> \) /o-i OR YOU CAN TAKE THE BLAME FORTHE INK I SPILLEP DOIUN THE C0LLAR 0FTHE KIP WHO SIT5 IN FRONT OF ME.. __ 01997 United Feature Syndicate. Inc. okatlets/tou 5EE IUHAT /ALUJAVS THEFIRST/TAKETHE 5PELLIN6 EA5YWAY W0RPIS.. \ OUT, PON'T vt) 0)1
Eftir því sem Þú getur hjálpað Eða þú getur tekið á Jæja þá, lítum þá
mér sýnist þá mér með þig sökina fyrir blekið á það, hvert er
áttu um tvennt stafsetninguna... sem ég hellti niður um fyrsta orðið ...
að velja... hálsmálið á krakkan- þú velur alltaf
um sem situr fyrir auðveldustu Ieiðina,
framan mig... er það ekki?
Myndatökumaður-
inn skrifar
Frá Hrafnhildi Gunnarsdóttur:
UNDANFARNA daga hefur spunn-
ist nokkur umræða um sýningu
mynda frá uppskurði á Landspítal-
anum þar sem leg var fjarlægt úr
konu. Þar sem ég myndaði upp-
skurðinn langar mig að leggja
nokkur orð í belg í þessari annars
einhliða neikvæðu umræðu. Fram
hefur komið gagnrýni á útsendingu
myndanna rétt um matartíma
vegna augsýnilegra blóðugra atriða
og á kannski rétt á sér en taka
skal fram að umsjónarmaður þátt-
arins varaði fólk við áður en mynd-
imar fóru í loftið. Áhorfandinn
hafði valið, annað hvort gat hann
haldið áfram að horfa eða litið und-
an.
Um helgina birtist síðan lesanda-
bréf í Morgunblaðinu þar sem Sif
Jónsdóttir tekur í sama streng og
gengur svo langt að finnast vegið
að heiðri kvenna með sýningu
myndanna. Mér þykir leitt að svona
lagað geti misskilist, en ég er henni
allsendis ósammála um að þama
sé vegið að heiðri kvenna. Ég skil
viðkvæmnina yfir blóðinu, en að
þarna sé vegið að heiðri kvenna er
eins langt frá sannleikanum og
komist verður. Spurt er: þegar ís-
land í dag sýndi myndir frá hjarta-
uppskurði á miðaldra karlmanni,
var þar með vegið að heiðri karl-
manna? Nei, það tel ég ekki. Hvað
finnst Sif um sýningu mynda frá
sláturgerð? Mér persónulega finnst
ógeðfellt að horfa upp á fólk hrær-
andi í blóði upp að öxlum og er ég
viss um að mörgum grænmetisæt-
um hafi verið misboðið. Það að
hugsanlega einhverjum verði mis-
boðið með sýningu á myndum eru
ekki nægileg rök til þess að krefj-
ast ritskoðunar. Krafan á hins veg-
ar að vera sú að umföllun í fjölmiðl-
um sé heiðarleg og sönn og gefi
rétta mynd af því sem er að gerast
í það og það skiptið. Ég persónu-
lega fylgi ákveðnu siðgæði þegar
ég tek myndir fyrir fréttir og frétta-
tengt efni, en það siðgæði á ekki
við um innihald myndanna sem ég
tel málinu óviðkomandi. í fýrsta
lagi reyni ég að hafa ekki áhrif á
það sem ég mynda. Sömuleiðis bý
ég myndefnið ekki til eða bæti hlut-
um inn í rammann, heldur mynda
ég aðeins það sem fyrir augu ber.
Ég er reyndar meðvituð um það að
ég get aldrei verið algerlega hlut-
laus í myndatöku minni, en sanna
má að smá hreyfing eða breyting
á sjónarhorni hefur í raun áhrif á
hvemig viðfangsefnið kemur áhorf-
andanum fyrir sjónir. Nú, einnig tek
ég ekki myndir af fólki sem ekki
gefur leyfi til þess og svo mætti
lengi telja. ísland í dag er frétta-
tengdur þáttur og þar af leiðandi
skrifum við ekki handrit að sjón-
varpsefninu, að blessuninni honum
Marteini Mosdal undanskildum.
Markmið okkar er einfaldlega það
að sýna það sem er að gerast á
heiðarlegan og tilgerðarlausan hátt.
Sif finnst einnig að Pétri og Páli
komi þessar aðgerðir ekki við. Aft-
ur erum við ósammála. Umfjöllun
af þessu tagi á fullan rétt á sér,
enda hefur mér verið sagt, að fyrir
margar konur sem gangast undir
leguppskurð sé því tengd nokkur
blygðun og niðurlæging, og ekki
bætir þögn úr skák. Mér fínnst
kominn tími til að dulúðinni sé svipt
af þessu líffæri sem fýrr á öldum
var jafnvel talið valda geðrænum
sjúkdómum. Af þessu eimir enn
þann dag í dag í okkar ástkæra
ylhýra, saman ber orðatiltækið
„hún er hysterísk" sem notað er
um „móðursjúkar" konur og er
dregið af enska orðinu yfir leg
„hyster" (sem á rætur í latínu) og
fjarlægingu legs, „hysterectomy".
Éftir vill hefur sýning efnis af þessu
tagi áhrif á lækna framtíðarinnar
en spurningin sem brann á mínum
vörum eftir myndatökuna var þessi:
Af hvetju í ósköpunum er legið
numið brott ef það lætur eitthvað
á sér kræla? Eru aðgerðir af þessu
tagi eftir vill að úreldast eins og
t.d. óhóflegt brottnám hálskirtia
fyrir árið 1980? Efni af þessu tagi
vekur mig til umhugsunar og það
er jákvætt, ritskoðun er það ekki.
HRAFNHILDUR
GUNNARSDÓTTIR
myndatökumaður.
Niðurstaða prófkjörs
sj álfstæðismanna
í Reykjavík
Frá Rannveigu Tryggvadóttur:
ÉG FÆ ekki séð að nein ástæða
sé til að breyta niðurstöðum próf-
kjörs sjálfstæð-
ismanna í
Reykjavík. Átta
þeir efstu hafa
afgeraridi meira
fylgi en þeir sem
á eftir koma.
Kjartan Magn-
ússon sem er í
8. sæti hefur
51,21% fylgi en
fylgi Eyþórs
Árnalds í því
níunda var 35,43%. Þar er mikill
munur á.
Fleiri konur, sagði einhver. Til
hvers? Við þurfum ekki fleiri konur
en þær tvær sem eru meðal átta
efstu til að_ ná fram því markmiði
sem bæði Árni og Inga Jóna hafa
heitið að ná, þ.e. að heimaumönnun
bama verði metin til fjár svo um
muni.
Látið ungu konuna í friði þau
ár sem hún er upptekin við heim-
ilishald, barneignir og barnaupp-
eldi. Áhugi á stjórnmálum vaknar
síðar, ef hann þá vaknar. Verum
þess minnug að hjón þurfa að eign-
ast minnst þrjú böm, svo þjóðin fái
lifað áfram í landinu.
RANNVEIG TRYGGVADÓTTIR,
Bjarmalandi 7, Reykjavík.
Rannveig
Tryggvadóttir
Allt efni sem birtist í Morgunbiaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.