Morgunblaðið - 30.10.1997, Síða 56
56 FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
TILKYNNINGAR í skemmtana-
rammann þurfa að berast í síðasta
lagi á þriðjudögum. Skila skai til-
kynningum til Kolbrúnar, á fax
569 1181 eða á netfang frett@mbl.is
■ CAFÉ AMSTERDAM Á fimmtudags-
kvöld er Hootch-kvöld. Þrír á 990 kr.
Hljómsveitm Vcstanhafs leikur fimmtu-
dags-, fostudags- og Iaugardagskvöld.
■ FEITI DVERGURINN Á fóstudags- og
laugardagskvöld leikur Halli Reynis. Halli
kynnir m.a. lög af nýútkomnum geisladisk
sínum. Allar konur fá óvæntan gtaðning
með fyrsta drykk íyrir kl. 24.
■ KAFFI REYKJAVÍK Fimmtudags-,
fóstudag- og laugardagskvöld leikur Hálft
í hvoru. Föstudagskvöld er konukvöld til
kl. 23.30. Sunnudagskvöld leikur Eyjólfur
Kristjánsson. Mánudagskvöld Sigrún Eva
og Stefán Jökuls. Þriðjudagskvöld Helga
Möllcr og Birgir Birgisson.
■ CATALÍNA, Kópavogi. Á laugardags-
kvöld leikur hljómsveitin Einn + ein fyrir
gesti. Hljómsveitina skipa Anton Kröyer
og Elín Hekia Klemenzdóttir.
■ SKÍTAMÓRALL leikur fímmtudags-
kvöld á Hard Rock Café á Hrekkja-
kvöldsvöku frá kl. 21-23.30. Á laugar-
dagskvöld leikur hljómsveitin á Inghóli,
Selfossi.
■ TÚN-TÓNLEIKAR verða haldnir í
Norðurkjallara MH föstudagskvöld. Tón-
leikar þessir kallast TUN en það stendur
fyrir Tónleikaupptökur ú Norðurkjallara
en það eru einungis hljómsveitir skipaðir
nemendum úr MH sem koma þar fram.
Meðal flytjenda föstudagskvöld verða
Andhéri, Stjörnukisi, Hugli Jazz, Mikey,
Plastic, MITH, Kórinn Hans og Nuance.
Tónleikarnir hefjast kl. 21 og lýkur kl. 1.
Miðaverð er 500 kr. fyrir almenning en
’v- 400 kr. fyrir félaga í Nemendafélagi MH.
■ NÆTURGALINN, Smiðjuvegi 14. Kóp.
Hljómsveit Önnu Vilhjálms leikur föstu-
dags- og laugardagskvöid. Sunnudags-
kvöldið leikur hljómsveit Hjördísar Geirs
gömlu og nýju dansana frá kl. 22-1.
Kraftmeiri, nú með 1400W mótor.
Fislétt, aðeins 6.5 kg.
Biðstöðufesting fyrir rör og slöngu.
Og hinn frábaeri Nilfisk AirCare'
síunarbúnaður með HEPA H13 síu.
Komdu og skoðaðu nýju
Nilfisk GM-400 ryksugurnar
jFOnix
HÁTÚNI6A REYKJAVÍK SÍMI 552 4420
Skemmtanir
■ GOS leikur laugardagskvöld á Langa-
sandi, Akranesi.
■ VEGAMÓT, Vegamótastíg Á fóstu-
dagskvöld verður haldið upp á hrekkja-
vöku með meðlimum Club FM. Skemmt-
unin hefst kl. 21 þar sem Jose Cuervo og
kona hans Margaríta verða gestgjafar
kvöldsins. Sýrupolkahljómsveitin Hringir
og DJ Árni E sjá um tónlistina. Á laugar-
dagskvöld verða diskótekaramir Herb &
Alfred og leika lög úr ýmsum
áttum. Einnig kemur fram
breski fjöllistamaðurinn Her-
bert en hann er vel þekktur
fyrir tónleika sína þar sem
hann notar mikið úrval undar-
legra hluta til tónsköpunar.
■ GLÓÐIN, Keflavík, og
Poppminjasafn Islands Popp-
minjasafnið 2. hæð er lokað
eftir kl. 17 fóstudags- og laug-
ardagskvöld vegna einkasam-
kvæmis. Glóðin 1. hæð er opin
fyrir matargesti. Sýningar um
poppminjar Keflavíkur er opin
almenningi alla daga frá kl.
14-17.
■ CAFÉ MENNING, DAL-
VÍK Á fimmtudagskvöid leikur
Blues Express. Aðgangseyrir
700 kr. Á föstudagskvöld verða tónleikar
með Bubba Morthens á efri hæð frá kl. 21.
Aðgangseyrir 1.000 kr. Eftir tónleika
Bubba verður írsk stemmning með PKK á
neðri hæðinni. Á laugardagskvöld verða
síðan tónleikar með gleðisveitinni Tvöfóld
áhrif. Frítt inn til kl. 00.30.
■ SÓL DÖGG leikur fimmtudagskvöld á
Gauki á Stöng og geta gestir átt von á að
heyra efni af væntanlegum geisladisk
hljómsveitarinnar sem Skífan gefur út fyr-
ir jólin. Á fóstudagskvöld leikur hljóm-
sveitin á Pizza 67, Dalvík en á laugardags-
kvöld á Mælifeili, Sauðárkróki.
■ INGÓLFSCAFÉ Á fóstudagskvöld
verða gestgjafar kvöldsins hljómsveitin
Casino. Um kvöldið kemur fram hljóm-
sveitin Milljónamæringarnir ásamt Páli
Oskari og Bjarna Ara og flytja brot af því
besta frá kl. 24-2 en eftir það verður
dúndrandi diskótek til kl. 3. Á laugardags-
kvöld leikur hljómsveitin Casino á efri
hæðinni og DJ Tommi á neðri hæð. Ald-
urstakmark 23 ár.
■ HÓTEL ÍSLAND Á laugardagskvöid
verður stórdansleikur frá kl. 24 með
Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar.
Spariklæðnaður.
■ KRINGLUKRÁIN Hljómsveitin SÍN
leikur fimmtudags-, fóstudags-, laugar-
dags- og sunnudagskvöld. I Leikstofunni
um helgina verður Viðar Jónsson trúba-
dor.
■ NAUSTKJALLARINN er opinn föstu-
dags- og laugardagskvöld. Lifandi tónlist
bæði kvöldin, hinn góðkunni Hilmar
Sverrisson ásamt félögum sjá um Qörið.
■ REYKJAVÍKURSTOFA (áður Geirs-
búð). Opið fóstudags- og laugardagskvöld
til kl. 3.
■ NAUSTIÐ Opið frá fimmtudegi til
sunnudagskvölds til kl. 1 og fóstudags- og
laugardagskvöld til kl. 3. Eldhúsið opnað
kl. 19. Marion Herrera frá Frakklandi
leikur matartónlist á hörpu.
■ CAFÉ ROMANCE Breski píanóleikar-
inn Liz Gammon leikur þriðjudags- til
sunnudagskvöld frá kl. 22 fyrir gesti veit-
ingahússins. I tilkynningu frá Romance
segir að Liz þyki ein af þeim bestu í sínu
fagi í dag.
■ GRAND HÓTEL v/Sigtún Á fimmtu-
dags-, fóstudags- og laugardagskvöld leik-
ur Gunnar Páll fyrir matargesti frá kl.
Í9-23.
■ FJÖRUGARÐURINN er opinn um
helgina. Veislur haldnar að hætti víkinga.
Víkingasveitin leikur fyrir dansi. Veit-
ingahúsið Fjaran er opið öll kvöld og í há-
deginu fimmtudag til sunnudags. Jón
Möller leikur Ijúfa píanótónlist fóstudags-
og laugardagskvöld.
■ HÓTEL SAGA Fimmtudags- og sunnu-
dagskvöld er Mímisbar opinn frá kl. 19-1.
Föstudags- og laugardagskvöld opið frá
kl. 19-3. Raggi Bjarna og Stefán Jökuls-
son sem komnir eru aftur leika fyrir gesti.
í Súlnasal á laugardagskvöld er dansleik-
ur með hljómsveitinni Saga Klass frá kl.
23.30-3.
■ GULLÖLDIN, Grafarvogi Gömlu brýn-
in Svensen & Hallfunkel Ieika fóstudags-
og laugardagskvöld.
■ BUTTERCUP leikur laugardagskvöld á
Knudscn í Stykkishólmi. Hljómsveitina
skipa: Valur Sævarsson, Davíð Þór Hlina-
son, Ilciðar Kristinsson og Sírnon Jakobs-
son.
■ KAFFI AKUREYRI Á fimmtudags-
kvöld leikur Hey Joe ljúfa tónlist frá kl.
22-1. Á föstudagskvöld er villibráðar-
veisla og skemmtikvöld skotveiðimanna.
Laddi og Stefán frá Utistöðum mæta og
Gulli og Maggi sjá um danstónlistina. Á
laugardagskvöld verður villibráðarveisla
og dansleikur með Stjórninni. Manna-
breytingar hafa orðið í Stjórninni. Auk
Siggu og Grétars eru nú í hljómsveitinni
þeir Eiður Arnarsson, bassi, Sigfús Ótt-
arsson, trommur, Kristján Grétarsson,
gitar, og Davíð Jónsson sem leikur á
hljómborð og saxófón.
■ BLUES EXPRESS leikur fimmtudags-
kvöld á Café Menningu, Dalvik. Á fóstu-
dagskvöld leikur hljómsveitin á Kaffi
Krók, Sauðárkróki, og á laugardagskvöld
á Hótel Læk, Siglufirði.
■ ÁRTÚN Á fóstudagskvöld verða gömlu
dansamir með hljómsveitinni Stuðbanda-
laginu og á laugardagskvöldið verður leik-
in blönduð tónlist.
HLJÓMSVEITIN Stjörnukisi leikur á TÚN- SÝRUPOLKAHLJÓMSVEITIN Hringir
tónleikum í Norðurkjallara MH fostu- leikur á Vegamótum fostudagskvöld.
dagskvöld ásamt fleiri hijómsveitum.
ORLANE
Sérhannaðar
vörur
fyrir
viðkvæma
og
ofnæmisgjarna
húð
((
(AklFli
»
Þessi fljótvirku, fíngerðu og léttu krem,
sem öll innihalda samstæðuna eru
sérstaklega hönnuð fyrir viðkvæma
húð, gefa henni jafnvægi og nýtt
f a x. t r' æskubjart yfirbragð.
UKLAN t
B21
Oligo
Vit-A-Min
P A R I S
Hygea Kringlunni, Hygca Austurstræti, Brá Laugavegi, Nana Hólagarði, Snyrtivöruverslunin Glæsibæ,
Evita Kringlan 6, Laugavegsapótek, Sandra Reykjavíkurvegi, Spes Háaleitisbraut, Amaro Akureyri,
Hilma Húsavík.
■ CAFÉ AUSTURSTRÆTI Á fóstudags-
kvöld mun Bjarni Tryggva dónast við
gesti kaffihússins á sérstöku dónakvöldi.
Bjami leikur einnig laugardagskvöld frá
kl. 23-3.
■ LEIKIIÚSKJALLARINN Á fimmtu-
dagskvöld verður Spor með útgáfutón-
leika þar sem fram koma hinar ýmsu
hljómsveitir. Húsið opnað kl. 22. Á fóstu-
dagskvöld verður Stjórnin með stórdans-
leik og á laugardagskvöld verður Siggi
Hlö í búrinu. A mánudag verða tónleikar
fyrir tvær hörpur. Sophie Marie Schoon-
jans og Marion Herrera leika verk eftir
J.S. Bach, C. Groot o.fl.
■ LUNDINN, EYJUM Á fóstudags- og
laugardagskvöld leikur hljómsveitin Haf-
rót.
■ GAUKUR Á STÖNG Á fimmtudags-
kvöld er „Miller Time-kvöld“ með hljóm-
sveitinni Sól Dögg í beinni útsendingu á
Bylgjunni. Á fóstudags- og laugardags-
kvöld leikur síðan hljómsveitin Papar og á
sunnudags- og mánudagskvöid leikur
blús-rokksveit Andreu Gylfadóttur, Blús-
menn Andreu. Auk Andreu eru í hljóm-
sveitinni þeir Guðmundur Pétursson, gít-
ar, Jóliann Hjörleifsson, trommur, Har-
aldur Þorsteinsson, bassi, og Einar Rún-
arsson, orgel. Tónleikar þessir munu
verða hljóðritaðir. Á þriðjudagskvöld
verður síðan útgáfupartý hjá Hljóðhamri
(Rabba) með hljómsveitunum Woofer og
Stolíu.
■ FÓGETINN Á fimmtudagskvöld leikur
dúettinn Irish Flashback Duo og á fóstu-
dags- og laugardagskvöld leikur gleði- og
skemmtisveitin frá Þorlákshöfn, Snæfríð-
ur og Stubbarnir.
■ TÓNABÆR Skólakeppni Tónabæjar
1997 lýkur á fóstudaginn með körfubolta-
keppni. Um kvöldið verður slegið upp
skólaballi í Tónabæ þar sem verðlaunaf-
hending fer fram og Skólameistarar Tóna-
bæjar 1997 verða krýndir. Hljómsveitim-
ar Quarashi og Stjörnukisi leika fyrir
dansi.
■ HERRAFATAVESLUN Kormáks og
Skjaldar, Skólavörðustíg 15. Á laugardag
milli kl. 11 og 17 verður leikin létt kok-
teiltónlist í umsjá Kokteilpinnanna. Simba
og Sissa birtast á klst. fresti og dansa.
■ ÁRSHÁTÍÐ DÝRFIRÐINGA-
FÉLAGSINS verður haldin í Kiwanishús-
inu við Engjateig laugardagskvöld og
hefst hún kl. 20 með kvöldverði. Ýmis
skemmtiatriði verða í boði og verður dans
stiginn fram eftir nóttu við ljúfa tóna Evu
Ásrúnar og hljómsveitarinnar KOS.
Johnny
Cash með
Parkinson-
veiki
► KÁNTRÝSÖNGVARINN
Johnny Cash hefur verið greindur
með Parkinsonveiki og hefur í
kjölfarið aflýst kynnningarferða-
lagi sínu um Bandaríkin vegna út-
komu ævisögunnar „Cash: The
Autobiography". Cash er 65 ára
og hefur sjúk-
dómurinn
ágerst undan-
farið og því var
ákveðið að
fresta einnig
tónleikahaldi
vegna útkomu
nýs geisladisks
sem kallast
„Unchained".
Að sögn um-
boðsmanns söngvarans er Cash
vongóður um að snúa aftur til
vinnu þegar læknismeðferð er lok-
ið. Johnny Cash er þekktur sem
„svartklæddi maðurinn" og hefur
gefið út um 1.500 lög og verið á
um 500 plötum á ferli sínum.
Hann liefur unnið átta Grammy-
verðlaun þar á meðal fyrir plöt-
una „American Recordings" sem
kom út árið 1994.
Ferill Johnny Cash sem kántrý-
söngvara hófst snemma á sjötta
áratugnum en árið 1955 prufu-
söng hann hjá hinu fræga Sun út-
gáfufyrirtæki í Memphis, Tenn-
essee. I kjölfarið fylgdi fyrsti
smellurinn, „Hey Porter“, „Fol-
som Prison Blues" og fleiri góð-
kunn lög. Johnny Cash hefur ætíð
verið iðinn við að spila á tónleik-
um og á sínuin tíma hélt hann um
200 tónleika á ári. Hann var vígð-
ur inn í „Rock and Roll Ilall of
Fame“ árið 1992 en þá hafði unnið
til næstum allra tónlistarverð-
launa sem hægt er.