Morgunblaðið - 12.11.1997, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 12.11.1997, Qupperneq 2
2 MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Danir vilja selja sement hér á landi DANSKT fyrirtaaki, sem ætlar að selja sement til íslands í samkeppni við innlenda framleiðslu, hefur sótt um lóð á hafnarsvæðinu í Þorláks- höfn. Þar hyggst fyrirtækið reisa tvo 7.000 tonna sementsturna. Guðmundur Hermannsson, sveit- arstjóri í Þorlákshöfn, segir að um- sóknin verði tekin fyrir á fundi hafnarstjómar fjórða desember næstkomandi Sement frá fyrirtæk- inu er selt á um 60% lægra verði í Danmörku en verð á islensku sem- enti er hérlendis, að sögn Guð- mundar. Þreifmgar um þetta mál hófust síðastliðið vor en formleg umsókn barst hafnarstjórninni nýlega. Guðmundur segir að umboðs- menn fyrirtækisins hafí undanfarin tvö ár verið að kanna sementsmark- aðinn hér á landi. Þeir hafa sótt um lóð á hafnarsvæðinu til þess að reisa sementsturnana tvo en sementið yrði flutt laust í sérstökum tank- Sótt um lóð fyrir tvo sementsturna í Þorlákshöfn skipum til Þorlákshafnar og því skipað þar upp. Sement á verulega lægra verði „Danimir telja sig geta selt sem- entið á verulega lægra verði en inn- lent sement. Menn vita að þessi inn- flutningur er orðinn frjáls og benda má á að virkjanir á landinu em byggðar úr dönsku sementi," sagði Guðmundur. Þorlákshöfn varð fyrir valinu því siglingaleiðin frá Danmörku þangað er níu klukkustundum styttri en til Reykjavíkur. Þannig yrði skip 18 klukkustundum lengur í förum milli Reykjavíkur og Danmerkur en Þor- lákshafnar og Danmerkur. Guð- mundur segir að staðurinn liggi auk þess vel við helstu mörkuðum. Rúmlega klukkustundar akstur er í virkjanirnar í Búrfelli og Sultar- tanga. Hann kveðst telja að að inn- koma danska fyrirtækisins á sem- entsmarkaðinn geti hugsanlega leitt til lækkunar byggingakostnaðar í landinu. Sigurður Bjarnason, formaður hafnarstjómar í Þorlákshöfn, segir að beðið hafi verið um frekari upp- lýsingar frá danska fyrirtækinu og umsóknin verði afgreidd á næsta fundi hafnarstjómar. Fyrirtækið ætlar að hefja undirbúning að starf- seminni um næstu áramót og hefja sölu á sementi næsta vor. Indriði Kristinsson hafnarstjóri segir að steypa þm-fi plötur undir sementstumana en að öðru leyti þurfi ekki að ráðast í miklar fram- kvæmdir. Hann sagði að vilji væri fyrir því innan hafnarstjórnar að samþykkja umsókn danska fyrir- tældsins. Morgunblaðið/RAX SIGURÐUR Bjarnason, formaður hafnarstjórnar, t.v., og Indriði Kristinsson hafnarsfjóri á nýjum viðlegu- kanti í Þorlákshöfn en á athafnasvæðinu þar hefur danskt fyrirtæki sótt um lóð til að reisa tvo sementsturna. Gerhard Schröder væntanlegur til íslands GERHARD Schröder, forsætisráðherra Neðra-Saxlands, kemur í opinbera heimsókn til íslands í boði íslenzkra stjóm- valda dagana 19.-21. þessa mánaðar. Schröder hefur heimsóknina á Akur- eyri næstkomandi miðvikudag, þar sem Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra mun taka á móti hon- um. Auk viðræðna við Halldór mun Schröder eiga við- ræður við fulltrúa viðskiptalífsins norðan heiða og heimsækja út- gerðarfyrirtækin Samherja og ÚA. Fimmtudaginn 20. nóvember fer Schröder að Bessastöðum á fund Ólafs Ragnars Grfmssonar, forseta íslands, og hittir í Reykja- vík Davíð Oddsson forsætisráð- herra og Þorstein Pálsson sjávar- útvegsráðherra. í hádeginu föstudaginn 21. er áformað að Schröder tali á opnum fundi á vegum Þýzk-íslenzka verzlunaríelagsins. Gerhard Schröder er einn af áhrifa- mestu forystumönn- um þýzka jafnaðar- mannaflokksins, SPD. Líklegt kanzlara- efni SPD Hann er af mörg- um talinn líklegur til að verða kanzlaraefni flokksins er Þjóðverj- ar ganga til þing- kosninga í september á næsta ári. Sam- kvæmt skoðanakönn- unum nýtur Schröder nú þegar meira fylgis kjósenda en kanzlarinn Helmut Kohl. Schröder er lögfræðingur að mennt. Hann sat á Sambandsþing- inu í Bonn, neðri deild þýzka þingsins, 1980-1986, en frá 1986 hefur hann setið á þingi Neðra- Saxlands og hann hefur jafnlengi átt sæti í flokkssljórn SPD. Hann varð forsætisráðherra Neðra- Saxlands 1990.1 sfðasta mánuði tók Schröder við forsæti í Sam- bandsráðinu, efri deild þýzka þingsins, þar sem fulltrúar allra sambandslandanna 16 eiga sæti. Schröder Rúmenum ekki veitt atvinnuleyfí BEIÐNI Norðuráls fyrir hönd eins undirverktaka þess við fram- kvæmdimar á Grundartanga, ABB, um dvalar- og atvinnuleyfi fyrir 60 málmiðnaðarmenn frá Rúmeníu hefur verið hafnað af félagsmála- ráðuneytinu. Óttast Þórður S. Óskarsson, starfsmannastjóri Norð- uráls, að þetta geti tafið fram- kvæmdir. Félagsmálaráðuneytið hafnaði þessari umsókn með bréfi sem barst Norðuráli í gær eftir að hafa fengið umsagnir Samtaka iðnaðar- ins og stéttarfélaga á svæðinu sem töldu nógan íslenskan starfskraft fyrir hendi. „Við óttumst svolítið að það verði erfitt að útvega þann mannafla sem þarf,“ segir Þórður S. Óskarsson. „Framkvæmdimar em að komast á vaxandi skrið og verk- takar sem eru að vinna samhliða þurfa marga málmiðnaðarmenn. Þar fyrir utan má minna á að Norð- urál mun upp úr áramótum, kannski í janúar-febrúar, ráða í fóst störf, þar á meðal um 20 málmiðn- aðarmenn, þannig að við óttumst að þetta geti haft áhrif á gang mála ef ekki verður unnt að manna þessar stöður.“ ------------- Arangurs- laus leit LEIT að Sölva Levi Péturssyni, 24 ára Reykvíkingi, sem hófst á mánu- dag, hefur ekki enn borið árangur. Henni verður haldið áfram í dag. Frumvarp til laga um skyldutryggingu lífeyrissjóða og starfsemi lífeyrissjóða lagt fram á Alþingi í gær Akvæði kjarasamn- ings ráða sjóðsaðild SAMKVÆMT frumvarpi til laga um skyldutryggingu lífeyrisrétt- inda og starfsemi lífeyrissjóða, sem lagt var fram á Aiþingi í gær, er öllum launamönnum og þeim sem stunda atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi gert rétt og skylt að eiga aðild að lífeyrissjóði frá 16 til 70 ára aldurs og lagt fyrir ríkisskattstjóra að fylgjast með því að iðgjöld séu innt af hendi. Komi í ljós að iðgjald hafi ekki verið greitt er ríkisskattstjóra heimilt að ákvarða iðgjald sem nemi 10% af útsvarsstofni hjá launamanni og rennur það til Söfnunarsjóðs líf- eyrisréttinda sé sjóðsaðild ekki ákvörðuð með öðrum hætti. í frumvarpinu og athugasemd- um við það kemur íram að lífeyris- iðgjald skal vera 10% af heildar- fjárhæð greiddra launa. Um aðild að lífeyrissjóði og skiptingu ið- gjaldsins milli launamanns og launagreiðanda fer eftir ákvæðum kjarasamninga eða sérlögum ef við á. Taki kjarasamningur ekki til viðkomandi starfsviðs eða séu ráðninoabundin starfskiör ekki byggð á kjarasamningi velur við- komandi sér lífeyrissjóð eftir því sem reglur einstakra lífeyrissjóða leyfa. Iðgjaldið standi undir lág- markstryggingavernd Lífeyrisiðgjaldið gengur annars vegar til að standa undir lág- markstryggingavernd sem skil- greind er í lögunum og greiðist til lífeyrissjóðs og viðbótartrygginga- vemd, sem bankar og sparisjóðir, líftryggingarfélög og verðbréfafyr- irtæki geta veitt, auk lífeyrissjóða. Lágmarkstryggingaverndin miðað við 40 ára inngreiðslutíma skal nema 56% af þeim mánaðarlaun- um sem greitt er af í ævilangan elli- og örorkulífeyri. Ennfremur felur lágmarkstryggingaverndin í sér að jafna skal á milli sjóðfélaga kostnaði vegna maka- og barnalíf- eyris. Lífeyrissjóður tilgreinir það iðgjald sem þarf til að standa und- ir lágmarkstryggingaverndinni og getur ákveðið hana þannig að hún felist að hluta í öflun lífeyrisrétt- inda í séreign. Ef um það er að ræða getur sjóðfélagi ákveðið að ráðstafa því til annars aðila sem hefur rétt til að taka við lífeyrisið- gjöldum og það gildir einnig um þann hluta iðgjalds sem er um- fram lágmarkstryggingavemd og gengur til að afla sér viðbótar- tryggingavemdar. Þá er að finna í lögunum lág- marksskilyrði um rétt til örorku-, barna- og makalífeyris og taka þau mið af þeim réttindum sem al- mennt eru í gildi hjá stærstu líf- eyrissjóðunum. Einnig er hjúskap- araðilum veitt heimild til að skipta lífeyrisréttindum á milli sín með gagnkvæmum hætti. Lágmarksfjöldi í sjóði verði 800 félagar í frumvarpinu er kveðið á um lágmarksstærð lífeyrissjóða og skal það miðast við 800 sjóðfélaga að lágmarki nema að sjóðurinn tryggi áhættudreifíngu með öðrum hætti til dæmis með kaupum á trygginu hjá vátryggingafélögum eða með samstarfi við aðra lífeyr- issjóði. Árleg tryggingarfræðileg athugun skal gerð á fjárhag sjóða. Sé meiri en 10% munur á miH' eigna og skuldbindinga sjóðsins er honum skylt að gera nauðsynlegar breytingar á samþykktum sjóðsins til að sá munur hverfi. Sama gildir muni meira en 5% á eignum og skuldbindingum samfellt í fimW ár. Þá eru í frumvarpinu ákvæði um að stjórn lífeyrissjóðs skuli fyrh' lok júní ár hvert boða til ársfundar sjóðsins, þar sem allir sjóðfélagar eiga rétt til setu með umræðu- og tillögurétti. Um atkvæðisrétt fer eftir samþykktum hlutaðeigandi lífeyrissjóðs. Loks að finna í frumvarpinu ákvæði um almenn skilyrði lífeyris- sjóðsrekstrar, starfsleyfi lífeyris- sjóða, lífeyrissparnað og lífeyris- réttindi, rekstur og innra eftirlit fjárfestingarstefnu, ársreikninga og endurskoðun, eftirlit, ákvaeð) um slit og samruna þeirra og fleira:

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.