Morgunblaðið - 12.11.1997, Page 6

Morgunblaðið - 12.11.1997, Page 6
6 MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Laugavegi 18 • Sími 515 2500 • Síðumúla 7 • Síml 510 2500 10-20 manns rann- sakaðir vegna inn- flutnings 500 bfla EMBÆTTI skattrannsóknarstjóra vinnur enn að rannsókn á innflutn- ingi á notuðum og nýjum bifreiðum til landsins. Alls nær rannsóknin til innflutnings á ríflega 500 bílum og tengjast þessum innflutningi 10-20 einstaklingar og lögaðilar, að sögn Garðars Gíslasonar, forstöðumanns hjá embætti skattrannsóknarstjóra. Hluti þessara mála hefur komið til kasta efnahagsbrotadeildar embættis ríkislögreglustjóra, vegna gruns um brot á tollalögum. Eins og Morgunblaðið hefur skýrt frá leikur grunur á að tekjur af við- skiptum með bifreiðarnar hafí verið vantaldar. Rannsókn skattrannsókn- arstjóra hófst í ágúst og hefur m.a. beinst að því að afla upplýsinga um kaupverð bifreiðanna erlendis. Þá hefur verið rætt við kaupendur hér á landi um hve hátt verð þeir greiddu fyrir bifreiðarnar. Talið er að mis- munurinn geti numið tugum milljóna og að af þeirri upphæð hafí ekki verið greidd lögboðin, opinber gjöld. Garðar Gíslason sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að rannsókn embættis skattrannsóknarstjóra væri ekki lokið. „Við erum búnir að marka málunum ákveðinn farveg, en það er enn töluvert í að rannsókninni Ijúki að fullu. Hún er umfangsmikil, enda snýst hún um kaup og sölu á ríf- lega 500 bifreiðum. Við höfum ekki rannsakað hlut kaupenda, en höfum hins vegar haft samband við þá til að fá nánari upplýsingar um viðskiptin." Lögregla rannsakar meint tollalagabrot Einu málanna, sem embætti skatt- rannsóknarstjóra hefur rannsakað, var vísað til embættis ríkislögreglu- stjóra, vegna meints tollalagabrots starfsmanns tollstjórans i Reykjavík. Samkvæmt upplýsingum Morgun- blaðsins eru fleiri slík mál til rann- sóknar hjá efnahagsbrotadeild, sem bæði hafa komið upp við rannsókn þar og verið vísað þangað frá tollayf- irvöldum. Nýtt mál gegn Halim A1 Kringlan stækk- uð til suðurs FRAMKVÆMDIR við 8.500 fermetra stækkun Kringlunnar til suðurs heQast snemma á næsta ári og er fyrirhugað að hluti húsnæðisins verði tekinn í notkun næsta haust. Fram- kvæmdum við Kringluna á að ljúka að fullu haustið 1999, en þá verður búið að reisa tveggja hæða bílapalla við Kringlutorg. Kynning á stækkuninni hef- ur undanfarið verið í sal borg- arskipulags og byggingarfull- trúa í Borgartúni 3, vegna breytinga á deiliskipulagi Kr- inglureits. Nú hefur kynningin einnig verið sett upp á 2. hæð í Kringlunni og lýkur henni á báðum þessum stöðum 21. nóv- ember. I Kringlunni gefur að líta teikningar af nýbygging- unni, sem verður á þremur hæðum, alls 8.500 fermetrar. I byggingunni verður rúm fyrir 30 nýjar verslanir, þjónustufyr- irtæki og veitingastaði. Bfla- pallarnir rúma 410 bfla í stæði. Á teikningunum sjást einnig fyrirhugaðar breytingar á Kr- inglugötu og Listabraut og um- hverfísmótun á Kringlutorgi og svæðinu meðfram Kringlu- götu. Nýbyggingin sem stækkar Kringluna til suðurs og tengir Kringluna og fyrrverandi Borgarkringlu, sést fyrir miðju á meðfylgjandi tölvu- gerðri mynd teiknistofu Hall- dórs Guðmundssonar arki- tekts. Hægra megin er eldra verslunarhús Kringlunnar, en vinstra megin á myndinni er Borgarleikhúsið. Ný bflastæði á tveimur hæðum eru í for- grunni. LÖGMAÐUR Sophiu Hansen hef- ur höfðað nýtt forræðismál fyrir undirrétti í Istanbúl og er málið höfðað í framhaldi af umgengnis- réttarbroti Halims A1 í ágúst sl. þegar Sophia átti umgengnisrétt við dætur sínar í tvo mánuði. Kraf- an í þessu nýja forræðismáli er sú að Halim A1 verði sviptur forræð- inu yfír dætrum sínum þar sem hann hafí brotið forsendur fyrir dómi. Næstu réttarhöld í sakadómi yfír Halim A1 vegna umgengnisbrota hans verða mánudaginn 24. nóvem- ber næstkomandi. Fimm mál hafa verið höfðuð gegn Halim A1 í saka- dómi og er reiknað með dómi í fjórða málinu 4. desember. í fyrsta málinu var Halim A1 dæmdur í þriggja bandaríkjadala sekt, í öðu málinu til þiggja mánaða og 26 daga fangelsisvistar og í þiðja málinu var hann sýknaður. Öðru málinu var áfrýjað til hæstaréttar og er það til meðferðar þar. Bókin lýsir sársaukafullri reynslu konu þegar höll ástarinnar hrynur. Fyrsta Ijóðabók Önnu Valdimarsdóttur sem er sálfræðingur að m'ennt. „... læsilegt verk og á sinn hátt óður til frelsunar sjálfsins, ástarinnar og bjartsýninnar." Morgunblaðið 4> FORLAGIÐ Lagðir af stað á suðurpólinn SUÐURSKAUTSFARARNIR íslensku, Ólafur Örn Haraldsson, Haraldur Örn Ólafsson og Ing- þór Bjarnason, eru nú komnir á Suðurskautslandið og ætluðu að hefja för sína í átt að suðurpóln- um í gær. Morgunblaðið náði sambandi við Ólaf Örn Haraldsson í búðun- um í Patriot Hills á Suðurskauts- landinu í gær. Þangað höfðu þeir komið með Hercules-flugvél frá Chile í fyrrinótt. Ferðalagið tók 6,5 tíma og var lent á íshellunni. Það var fyrst í þriðju tilraun sem flugvélin komst á áfangastað frá Punta Arenas í Chile. Upphaf- lega ætluðu þremenningarnir að komast á Suðurskautslandið á laugardag. Vegna veðurs gat ekki orðið af því fyrr en í fyrra- kvöld. Heillandi tilfínning „Fegurðin hér er enn meiri en ég átti von á,“ sagði Ólafur Örn. Hann sagði að úr búðunum blasi við á aðra hönd Patriot Hills- fjallið og mikill fjallgarður og á hina höndina ótakmörkuð víð- átta. „Þetta gefur tilfínningu sem er mjög heillandi og ég hef vart t'undið áður,“ segir Ölafur Öm. Þegar þeir lentu í búðunum var um 20 stiga frost og 4-5 vind- stig en í fyrrinótt skall á stormur með 10 vindstigum og fauk tjald franskra fjallgöngumanna í búð- unum en tjald íslendinganna haggaðist ekki og sváfu þre- menningarnir af sér bylinn. Auk Frakkanna og íslendinganna eru í búðunum Bandaríkjamenn sem ætla að skoða sig um á Suður- skautslandinu úr lofti. Á leið sinni á pólinn búast íslending- amir við að verða varir við tvo aðra leiðangra í sömu erinda- gjörðum, annan skipaðan Áströl- um og hinn Nýsjálendingum. Þegar Morgunblaðið hringdi til Suðurskautslandsins í gær vom þremenningarnir að yfír- fara fjarskiptamál og búnaðinn og leggja lokahönd á undirbún- inginn. Allur búnaður var kom- inn óskemmdur á sinn stað og Ólafur sagði að þýskir sleðar sem þeir hafi pantað kæmu mjög vel út og virtist sem 120 kg hlassið, sem hver þeirra mun draga á eft- ir sér, verði léttara í taumi en bú- ist hafði verið við. Suðurskautsfaramir verða með talstöð á sér og verða í sam- bandi við búðirnar í Patriot Hills á tveggja daga fresti. Auk þess era þeir með Argos-senditæki, og senda frá sér boð um stað- setningu og ástand sem berast heim til Flugbjörgunarsveitar- innar í Reykjavík og til Land- helgisgæslunnar. Kalt en þurrt Ólafur sagði að strax væri komið í ljós að reynsla þremenn- inganna frá göngu þeirra yfir Grænlandsjökul mundi skila sér vel í þessu ferðalagi. Þrátt fyrir mikinn kulda og vinda á Suður- skautslandinu er loftið þurrt og kuldinn ekki óbærilegur. Ólafur segir þó að varast verði kal í and- liti. „Okkur líst alveg feikilega vel á þetta, vináttan og samstaðan í hópnum hefur aldrei verið betri og það liggur vel á okkur og mik- il tilhlökkun hjá okkur að takast á við þetta verkefni. Við munum fara varlega og eftir því sem sleðarnir léttast og þolið vex og við venjumst aðstæðum þá auk- um við hraðann en við förum mjög varlega og tökum enga óþarfa áhættu til þess að ná þessu marki skref fyrir skref,“ sagði Ólafur Öm Haraldsson. Fínn mið- ill hefur keypt Sígilt FM FINN miðill, sameinað fyrir- tæki FM 95,7 og Aflvaka sem rekur Aðalstöðina, X-ið og Klassík FM, keypti í gær tækjabúnað útvarpsstöðvar- innar Sígilt FM 94.3 af Mynd- bæ hf. sem rekið hefur út- varpsstöðina frá stofnun fyrir þremur árum. Að sögn Jó- hanns Briem, framkvæmda- stjóra Myndbæjar, mun Fínn miðill halda áfram að útvarpa svipaðri dagskrá og verið hef- ur á Sígildu FM, og sagði hann að starfsmenn stöðvarinnar myndu flytjast til Fíns miðils. Sígilt FM útvarpaði í fyrstu eingöngu klassískri tónlist en hefur undanfarin misseri sér- hæft sig í þægilegri og léttri tónlist. Jóhann sagði að ástæða þess að útvarpsstöðin hefði verið seld væri sú að erfitt væri að reka útvarp nema að vera með nokkrar rásir og ná þannig til sem dreifðasts hlust- endahóps. Því hefði annaðhvort þurft að flytja starfsemi stöðv- arinnar úr húsnæði Myndbæj- ar og auka við hana á öðram stað með tilheyrandi fjárfest- ingum eða selja hana. Fjórir hefðu sýnt áhuga á að kaupa stöðina og ákveðið hefði verið að selja Fínum miðli búnaðinn. „Rekstur útvarpsstöðvarinn- ar hefur verið ákveðið þróunar- verkefni hjá okkur og hann passar einfaldlega ekki lengur við aðra starfsemi Myndbæjar sem sérhæfir sig í myndfram- leiðslu, en sá þáttur starfsem- innar hefur verið rúmlega 90% af umsvifum fyrirtækisins,“ sagði Jóhann Briem.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.