Morgunblaðið - 12.11.1997, Page 10
10 MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 1997
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Lagafmmvarp tveggja þingmanna Alþýðubandalags
Umhverfisráðuneytið
ákvarði heildarafia-
mark ár hvert
KRISTINN H. Gunnarsson og
Hjörleifur Guttormsson, þingmenn
Alþýðubandalags og óháðra, hafa
lagt fram á Alþingi frumvarp til
laga um breytingu á lögum um
rannsóknir í þágu atvinnuveganna.
Með frumvarpinu er lögð til sú
breyting að nokkur verkefni sem
nú falla undir sjávarútvegsráðu-
neyti og landbúnaðarráðuneyti
verði flutt til umhverfisráðuneytis.
Er þar um að ræða hafrannsóknir,
friðun og ákvörðun um heildarafla-
mark úr einstökum fiskstofnum,
svo og almennar rannsóknir og til-
raunir er snerta gróðurvemd og
skipulag landnýtingar. Jafnframt
er gert ráð fyrir því að yfirstjórn
Hafrannsóknastofnunarinnar og
Rannsóknastofnunar landbúnaðar-
ins verði færð frá atvinnuvega-
ráðuneytum til umhverfisráðu-
neytis.
I greinargerð segir að nái þetta
frumvarp fram að ganga muni
umhverfisráðuneyti ákvarða heild-
araflamark ár hver, hafa umsjón
með rannsóknum og gera tillögur
varðandi almennt skipulag veiða
innan efnahagslögsögunnar, ekki
síst þær er tengjast hafsbotninum.
„Þá mun ráðuneytið veita ráðgjöf
um friðunaraðgerðir og notkun
veiðarfæra, jafnframt því að setja
almennar reglur um notkun veiðar-
færa. Sjávarútvegsráðuneytið mun
eftir sem áður annast stjóm veið-
anna innan framangreindra marka
og hafa yfirumsjón með eftirliti
með veiðum og mat á sjávarafurð-
um,“ segir í greinargerð.
Ríkari áhersla á
umhverfisþætti
Flutningsmenn segja í greinargerð
að nauðsynlegt þyki að gera um-
rædda breytingu og leggja þannig
ríkari áherslu en verið hefur á
umhverfisþátt rannsókna og stjórn
á álagi við hagnýtingu auðlind-
anna. „Þetta er ítrekað með því
að færa mikilvægar ákvarðanir og
Sími 555-1500
Garðabær
Stórás
Rúmgóð ca 70 fm 2—3 herb. íb. á
neðri hæð í tvíb. Ný eldinnr. Nýtt gler.
Parket.
iBoðahleinl
Höfum fengið til sölu fyrir aldraða við
Hrafnistu í Hf„ gott endaraðh., ca 90
fm auk bílsk. Áhv. ca 1,5 millj.
Verð 11,5 millj.
Hafnarfjörður
Óttarstaðir
Til sölu ca 5—6 hektara landspilda úr
landi Óttarstaða I. Liggur að sjó. Verð:
Tilboð.
Reykjavíkurvegur
Gott skrifstofuhúsnæði ca 120 fm á 2.
hæð. Verð 5,2 millj.
Breiðvangur
Sérlega glæsileg ca 190 fm neðri sérh.
í tvíb. auk bílskúrs. 5 svefnh. Áhv.
byggsj. ca 2,7 millj. Verð 13,2 millj.
Gunnarssund
Til sölu er góð 3ja herb. íb. á jarðh.
Álfaskeið
Einbýlishús á tveimur hæðum með
hálfum kj„ samtals 204 fm. Mikið end-
urn. Ath. skipti á lítilli íb.
Vantar
ca 100 fm íb. nærri miðbæ Hafnar-
fjarðar.
Vantar eignir á skrá
Fasteignasala,
Strandgötu 25, Hfj.
Árni Grétar Finnsson, hrl.
Stefán Bj. Gunnlaugsson, hdl.
tillögugerð úr
höndum beinna
hagsmunaaðila
til umhverfis-
ráðuneytis.
Ekki er eðlilegt
að hagsmuna-
aðilar geti ráðið
miklu um
ákvörðun sem
þá varðar miklu
fjárhagslega
þegar í húfi eru náttúruauðlindir
sem þjóðin byggir afkomu sína á
í svo ríkum mæli sem raun ber
vitni. Reynslan sýnir okkur hversu
alvarlegar afleiðingar það hafði
fyrir þjóðina að mikilvægir nytja-
stofnar sjávarins voru ofnýttir í
þágu skammtímahagsmuna og ber
að varast að slíkt geti endurtekið
sig. Það skiptir
því miklu máli að
við ákvarðanir um
hagnýtingu auð-
lindar sé litið til
langs tíma og
þjóðarhags,“ seg-
ir í greinargerð.
Að því er varð-
ar gróður og jarð-
veg, segir enn-
fremur í greinar-
gerð, að nauðsynlegt sé að með
rannsóknum verði aflað hlutlægra
upplýsinga sem hægt sé að leggja
til grundvallar við skipulag land-
notkunar og hagnýtingu einstakra
þátta. „Því þykir rétt að færa al-
mennar rannsóknir er þetta snertir
til umhverfisráðuneytisins sem
jafnframt fer með skipulagsmál."
-•'>>
j|§ 8 If i J8 l! i 1®
ALÞINGI
Fréttir í Sjónvarpi
verði textaðar
LAGT hefur verið fram á Alþingi
frumvarp til laga um breytingu á
útvarpslögum. í frumvarpinu er
lagt til að fréttir, sem fluttar eru í
aðalfréttatíma Sjónvarps, skuli
jafnan vera textaðar á íslensku og
textinn gerður aðgengilegur þeim
sem svo kjósa. Þetta skuli þó ekki
eiga við þegar fluttir eru erlendir
söngtextar, þegar dreift er við-
stöðulaust um fjarskiptahnött eða
móttökustöð fréttum eða frétta-
tengdu efni sem gerist í sömu andrá
eða þegar slíku efni er sjónvarpað
í beinni útsendingu.
Fyrsti flutningsmaður frum-
varpsins er Sighvatur Björgvins-
son, þingmaður þingflokks jafn-
aðarmanna, en meðflutningsmenn
eru Tómas Ingi Olrich, þingmaður
Sjálfstæðisflokks og Svanfríður
Jónasdóttir, þingflokki jafnaðar-
manna. Leggja flutningsmenn til
að frumvarpið, ef samþykkt verð-
ur, öðlist lagagildi 1. janúar árið
1999, þannig að Ríkisútvarpinu
gefist gott svigrúm til undirbún-
ings.
I greinargerð með frumvarpinu
segir m.a. að tillaga þessi sé ekki
síður gerð vegna þess hve þýðingar-
mikið það sé fyrir þá sem ekki geti
notið talaðs máls að fylgjast sem
best með atburðum líðandi stundar
sem einatt varði umhverfi fólks og
daglegt líf. „Ríkisútvarpið, Sjón-
varp hefur m.a. komið til móts við
þennan hóp áhorfenda með frétta-
yfirliti á táknmáli og er það virðing-
arvert. Hins vegar nær það fréttayf-
irlit engan veginn því umfangi sem
reglulegir fréttatímar sjónvarpsins
miðla, í öðru lagi er nokkur hópur
heyrnarlausra og heyrnardaufra
sem ekki getur nýtt sér táknmálið,
einkum eldra fólk, og í þriðja lagi
geta heyrnarlausir og heymardauf-
ir ekki notið þess að fylgjast með
fréttaútsendingum sjónvarps á líð-
andi stundu á sama hátt og aðrir
sjónvarpsáhorfendur,“ segir m.a. í
greinargerðinni.
Ofanleiti 23
Til sölu 3ja herb. íbúð á 1. hæð með sérgarði. Glæsilegar
innréttingar. íbúð í sérflokki á vinsælum stað. Laus strax.
Góð lán áhvílandi. Verð kr. 8.900.000.
Upplýsingar í síma 581 1223 og hjá Fasteignamiðlun
Vesturlands, sími 431 4144.
Alþingi
Stutt
Staða kynjanna höfð í
huga við afgreiðslu mála
KRISTÍN Halldórsdóttir, þingmaður Kvennalista, mælti fyrir
frumarpi til laga á Alþingi í gær um breytingu á lögum um
þingsköp Alþingis. Er með frumvarpinu lögð til sú breyting á
30. grein laganna að fastanefndum Alþingis sé gert skylt að
hafa stöðu kynjanna í huga við afgreiðslu mála á sama hátt
og þeim sé gert skylt að leggja mat á kostnað vegna fram-
kvæmdar nýrrar lagasetningar eða ályktana.
„Við viljum með öðrum orðum gera jöfnum rétti og jafnri
stöðu kynjanna jafnhátt undir
höfði eins og stöðu sjálfs ríkis-
sjóðs,“ sagi Kristín í gær. „A síð-
ustu árum hefur sú stefna rutt sé
æ meira til rúms víða um lönd að
flétta þurfi jafnréttisbaráttuna
sem mest inn í alla aðra þætti
mannlegra samskipta, sljórnunar
og hvers konar starfsemi í stað
þess að afgreiða hana sem ein-
hvers konar sérfyrirbæri eins og
mörgum hættir til,“ sagði Kristín.
„Umræðan þarf að vera sívak-
andi, sífellt þarf að meta stöðu
kynjanna á öllum sviðum og leita
leiða til að jafna hana. Alþingi og
framkvæmdavaldið hljóta að
ganga á undan með góðu fordæmi
og sýna þann vilja sinn í verki sem
lýst er í lögum um jafna stöðu og
jafnan rétt kvenna og karla,“ sagði Kristín.
Meðflutningsmenn Kristínar eru Ásta R. Jóhannesdóttir,
Gísli S. Einarsson og Lúðvík Bergvinsson, þingflokki jafnaðar-
manna. Drífa Hjartardóttir og Pétur H. Blöndal þingmenn Sjálf-
stæðisflokks. Kristjana Bergsdóttir og Siv Friðleifsdóttir, þing-
menn Framsóknarflokks. Margrét Frímannsdóttir og Stein-
grímur J. Sigfússon, þingmenn Alþýðubandalags og óháðra,
og Guðný Guðbjörnsdóttir og Kristín Ástgeirsdóttir, þingmenn
Kvennalista.
Eldri skráningarmerki bifreiða
verði leyfð áfram
GUÐMUNDUR Hallvarðsson og Einar K. Guðfinnsson, þing-
menn Sjálfstæðisflokks hafa Iagt fram á Alþingi þingsálykt-
unartillögu þess efnis að Alþingi feli dómsmálaráðherra að
breyta núgildandi reglum um eldri skráningarmerki bifreiða,
þannig að eigendum bifreiða með eldri skráningarmerki verði
heimilt að hafa slík merki áfram á bifreiðum sínum.
í greinargerð flutningsmanna er vísað til reglugerðar um
notkun eldri bifreiðaþar sem segir m.a. að bifhjól og eftirvagn-
ar megi ekki bera skráningarmerki af eldri gerð lengur en til
31. desember 1997 og önnur ökutæki ekki lengur en til 31.
desember 1998. Ökutæki sem skráð voru fyrir 1. janúar 1989
megi hins vegar bera áfram skráningarmerki af eldri gerð,
enda séu merkin heil og vel læsileg.
í greinargerð segir jafnframt að samkvæmt upplýsingum
frá Skráningarstofunni hf. séu nú 44.752 fólksbifreiðar, 427
hópferðabifreiðar og 2.770 vörubifreiðar með skráningarnúm-
er af eldri gerð eða alls 47.949 ökutæki. „Láta mun nærri að
kostnaður eigenda framangreindra ökutækja vegna númera-
skipta verði um 132 milljónir króna, sé eingöngu talinn kostnað-
ur vegna númeraspjalda," segir í greinargerð. Þar segir enn-
fremur að þingályktunartillagan hafi umtalsverðan sparnað í
för með sér fyrir bifreiðaeigendur.
Alþ'mgi
ÞINGFUNDUR Alþingis hefst
kl. 13.30 í dag. Fyrst verða
lagðar fram fyrirspurnir til
ráðherra:
1. Til iðnaðarráðherra. Fyr-
irspurn um markaðshlutdeild
fyrirtækja.
2. Til viðskiptaráðherra.
Fyrirspurn um markaðshlut-
deild fyrirtækja.
3. Til samgönguráðherra.
Fyrirspurn um ljósleiðara.
4. Til menntamálaráðherra.
Fyrirspurn um aðgerðir í jafn-
réttismálum.
5. Til menntamálaráðherra.
Fyrirspurn um móttökuskil-
yrði útvarps og sjónvarps á
Suðurnesjum.
Þá eru eftirfarandi mál á
dagskrá:
1. Þingvallaurriðinn. Frh.
Fyrri umr. (Atkvgr.)
2. Aukin hlutdeild almenn-
ings í atvinnurekstri. Frh.
fyrri umr. (Atkvgr.)
3. Stefnumótun í málefnum
langsjúkra barna. Frh. fyrri
umr. (Atkvgr.)
4. Orka fallvatna. Frh. 1.
umr. (Atkvgr.)
5. Jarðhitaréttindi. Frh. 1.
umr. (Atkvgr.)
6. Áætlanir sveitarfélaga um
sjálfbæra þróun. Frh. fyrri
umr. (Atkvgr.)
7. Lífsiðfræðiráð. Frh. fyrri
umr. (Atkvgr.)
8. Þingsköp Alþingis. Frh.
1. umr. (Atkvgr.)
9. Úttekt á hávaða- og hljóð-
mengun. Frh. fyrri umr.
(Atkvgr.)
10. Tekjuskattur og eignar-
skattur. Frh. 1. umr. (Atkvgr.)
11. Umboðsmaður jafn-
réttismála. Frh. 1. umr.
(Atkvgr.)
12. Sveitarstjórnarlög. Frh.
1. umr. (Atkvgr.)
13. Tekjuskattur og eignar-
skattur. Frh. 1. umr. (Atkvgr.)
14. Tilraunaveiður á ref og
mink. Frh. Fyrri umr.
(Atkvgr.)
15. Aukatekjur ríkissjóðs.
Frh. fyrri umr. (Atkvgr.)
16 Þingsköp Alþingis. Frh.
1. umr. (Atkvgr.)
17 Aðgerðir til að mæta
mismunandi þörfum drengja
og stúlkna í grunnskólum. Frh.
fyrri umr. (Atkvgr.)
18. Úrbætur á Norðaustur-
vegi frá Húsavík til Þórshafn-
ar. Frh. fyrri umr. (Atkvgr.)