Morgunblaðið - 12.11.1997, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 12.11.1997, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 1997 11 FRÉTTIR Island, Grænland og Noregur semja um lögsögumörk Helsinki. Morgfunblaðið. HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis- ráðherra, Niels Helveg Petersen, utanríkisráðherra Dana, og Jon- athan Motzfeldt, formaður græn- lensku landstjórnarinnar, undirrit- uðu í gær í Helsinki samning um afmörkun hafsvæðisins milli ís- lands og Grænlands. Um leið und- iiTÍtuðu Halldór, Knut Vollebæk, utanríkisráðherra Noregs, og Hel- veg Petersen tvíhliða bókanir land- anna um endanlega afmörkun haf- svæðisins þar sem lögsögumörk ís- lands, Grænlands og Jan Mayen skerast. Island á nú ekki í neinum deilum við nágrannalöndin um mörk fiskveiðilögsögu nema við Færeyjar, sem ekki viðurkenna Hvalbak sem grunnpunkt íslensku lögsögunnar. Island annars vegar og Danmörk og Grænland hins vegar náðu síð- astliðið sumar samkomulagi í grundvallaratriðum um afmörkun umdeilds hafsvæðis norður af Kol- beinsey. Við afmörkun nýrrar mið- línu var tekið tillit til allra þátta, sem áhrif höfðu á afmörkunina, t.d. grunnlína, viðmiðunarpunkta, því að hve miklu leyti löndin eru háð fiskveiðum, lengd viðkomandi stranda og nauðsyn stöðugleika og varanleika. Semja þurfti við Noreg vegna dóms um lögsögumörk Samkomulagið tekur bæði til fiskveiðilögsögu og landgrunns og bindur enda á deilur ríkjanna í eitt skipti fyrir öll. Samkvæmt því fær Island 30% hins umdeilda svæðis í sinn hlut en Grænland 70%. Samn- ingurinn, sem nú var undirritaður, er formleg útfærsla þessa sam- komulags og tekur ekíd aðeins til svæðisins norður af Kolbeinsey, heldur allrar miðlínunnar milli ís- lands og Grænlands, sem hefur verið yfirfarin rækilega af sérfræð- ingum landanna. I samningnum er tekið fram að stjórnvöld í löndun- um þremur óski þess að „viðhalda og styrkja hið góða nágrannasam- band milli Islands og Danmerk- ur/Grænlands.“ Samkomulagið við Noreg er til komið vegna dóms Alþjóðadóm- stólsins, sem fyrir fjórum árum úr- skurðaði í deilu Grænlands og Nor- egs um lögsögumörk. Dómstóllinn dæmdi Grænlandi í hag og færði miðlínu nær Jan Mayen. Um syðsta hluta línunnar, næst íslensku lög- sögunni, úrskurðaði dómstóllinn hins vegar ekki, þar sem endanleg lega hennar hlaut að verða samn- ingsatriði við ísland. Lega lögsögu- marka á tæplega 2.000 ferkílómetra hafsvæði hefur því verið í óvissu þar til nú. Samkvæmt samkomulaginu við Noreg færast lögsögumörk Is- lands eilítið til norðurs á nokkurra mílna kafla. Jonathan Motzfeldt, fomaður grænlensku landstjórnarinnar, hafði orð fyrir ráðherrunum við undirskriftina og sagðist glaður yfír árangi-inum, þó hann hefði aldrei litið svo á að hann ætti í neinu stríði við Islendinga vegna deilunnar um lögsögumörkin. Góð kynni nágrann- anna héldu áfram eftir sem áður og myndu enn styrkjast, þegar Davíð NTB HALLDÓR Ásgrímsson, Niels Helveg Petersen og Jonathan Motzfeldt undirrita samning Islands, Danmerkur og Græn- lands. Lengst til vinstri stend- ur Tómas H. Heiðar, aðstoðar- þjóðréttarfræðingur í utanrík- isráðuneytinu og samninga- maður Islands í viðræðunum um lögsögumörkin. Oddsson forsætisráðherra kæmi í opinbera heimsókn til Grænlands á næsta ári. Eini vandinn væri nú að fiskurinn hefði sporð og synti yfir öll mörk. Þar væri þó til bóta að löndin ynnu vel saman að hafrann- sóknum og öðrum skyldum málum. Halldór Ásgrímsson sagði að ekki hefðu staðið átök um línurnar, en ánægjulegt væri að þetta gamla deilumál væri nú leyst án þess að þurft hefði að bera það undir dóm- stól. Allir aðilar hefðu þurft að slá af kröfum sínum. Lausnin sýndi að löndin gætu komið sér saman og nú væru orðin fá óleyst deilumál milli landanna. Lofar góðu um Smuguviðræður í samtali við Morgunblaðið sagði Knut Vollebæk að undirritun samn- inganna nú lofaði góðu um önnur deilumál eins og Smugudeiluna og hefði hann fullvissað íslenskan starfsbróður sinn um að Norðmenn hygðust ekki taka sér réttindi, sem þeir ekki hefðu. Rétt eins og Norð- menn ættu Islendingar mikilla hagsmuna að gæta á sviði sjávarút- vegs og bæði löndin reyndu auðvit- að að gæta þeirra af fremsta megni. Norska stjómin hefði ekki hug á öðru en að fara í öllu eftir alþjóðleg- um reglum og samningum. Stjórnin hefði áhuga á að kanna hvort grundvöllur væri fyrir að færa fisk- veiðilögsögu sína út í 250 sjómílur innan gildandi reglna, en hefði að sjálfsögðu ekki hug á að lýsa yfir slíkri lögsögu. Aðspurður hvort sjávarútvegsmálaráðherrann hefði fullan skilning á þessari afstöðu fullyrti Vollebæk að svo væri. Kreditkort fyrir áskrifendur Stöðvar 2 Hljóðfæraleikurum SÍ boðin 20% launahækkun ÍSLENSKA útvarpsfélagið og Kreditkort hf. hafa samið um út- gáfu á nýju kreditkorti, Sérkorti Stöðvar 2. Um er að ræða svo- nefnt tryggðar- og fríðindakort, þ.e. alþjóðlegt Eurocard kredit- kort, sem korthafar fá sér að kostnaðarlausu. Um 25 fyrirtæki taka þátt í samstarfi um kortið og veita handhöfum afslátt. Að sögn Bergsveins Samsted, markaðssljóra Kreditkorts hf., búa nokkuð flóknir útreikningar að baki ákvörðun um fríðindin sem þessi kort veita. Ávinningur korthafa kemur fram á yfirliti þeirra um hver mánaðamót og kemur til frádráttar á áskriftar- gjaldi Stöðvar 2, Sýnar og Fjölvarps. Ef afsláttur nemur hærri upphæð en áskriftargjald- inu dregst mismunurinn frá öðr- um liðum á kortreikningnum. Meðal þeirra fyrirtækja sem eru í samstarfi vegna Sérkorts Stöðvar 2 eru Nóatún, Olís, Essó, Skífan, Samvinnuferðir-Landsýn og Gúmmívinnustofan. Berg- sveinn segir að 0,65% afsláttur sé veittur af matvöru, 1,25% af bensíni. 5-10% er algengur af- sláttur í sérverslunum. Berg- sveinn segir að viðskiptavini sem verslar fyrir 60 þúsund krónur hjá aðildarfyrirtækjunum 25 sé tryggður 1.100 kr. afsláttur af áskriftargjaldi Stöðvar 2. Það nýtist þeim best sein nota kort sitt til að kaupa mat og bensín. Það séu þó fáir. Meðalkorthafinn noti 25% upphæðarinnar á reikn- ingi sínum í stórmörkuðum, 13% á bensínstöðvum, 7% í fataversl- unum, 6,3% í sérverslunum, 5% til að kaupa gjafavöru, 6% á veit- ingastöðum, 11% í viðskipti við flugfélög, 6% í húsgagnaverslun- um og 13% eru óflokkuð útgjöld, þar á meðal boðgreiðslur. Sá sem kaupir t.d. heimilistæki fyrir 65 þúsund krónur og fær 8% afslátt með Sérkorti Stöðvar 2, fær 5.200 króna afslátt af þeim viðskiptum einum. Bergsveinn segir að miðað við algengustu blöndun viðskipta hjá venjulegum korthafa láti nærri að sá sem hefur 90 þúsund króna kortareikning og verslar fyrir þá upphæð hjá aðildarfyrirtækjum kortsins einum fái ókeypis áskrift að Stöð 2. RUNÓLFUR Birgir Leifsson, framkvæmdastjóri Sinfóníuhljóm- sveitar íslands, segir að samninga- nefnd ríkisins hafi lagt fram skrif- legt tilboð sem feli í sér um 20% launahækkun til handa hljóðfæra- leikurum SI í kjaradeilu þessara aðila. Því hljóti að vera um ein- hvern misskilning að ræða hjá Hlíf Sigurjónsdóttur, formanni Starfs- mannafélags SI, í Morgunblaðinu í gær þar sem hún sagði að hljóð- færaleikurunum hefðu ekki verið boðnar launahækkanir. Boðuð vinnustöðvun hjá Sinfón- íuhljómsveit Islands kemur ekki til framkvæmda 25. til 27. nóvem- ber eins og ráðgert hafði verið heldur fimmtudag og fóstudag 27. og 28. nóvember. Stafar þessi breyting af tæknilegum göllum við boðunina. Björn Th. Árnason, for- maður Félags íslenskra hljóðfæra- leikara, segir að verði af vinnu- stöðvuninni komi hún niður á upp- tökum sem fyrirhugaðar eru þessa dagan. I máli Hlífar Sigurjónsdóttur kom fram að samninganefndin vilji hafa tvenna tónleika í viku innan vinnu- skyldu hljómsveitarinnar og að all- ir laugardagar verði vinnudagar. Segir Runólfur þetta á misskilningi byggt. „í dag má, samkvæmt kjarasamningi, nýta vinnutímann, 22 stundir á viku, eftir því sem hentar best, í tónleika eða æfingai-, eins og tíðkast hjá öllum sinfóníu- hljómsveitum, þar sem við þekkj- um til, í löndunum í kringum okk- ur. Hljóðfæraleikarar Sí hafa hins vegar viljað breyta þessu og var samninganefndin reiðubúin að ræða þau mál og nefndi sem hugs- anlegan möguleika að heimildin yrði bundin við einungis tvenna tónleika í viku.“ Varðandi laugardagsvinnuna segir Runólfur, að samkvæmt gild- andi kjarasamningi sé heimilt að efna til tónleika sex laugardaga á ári sem hluta af vinnuskyldunni. Greitt sé vaktaálag í slíkum tilvik- um. Vildu ekki ræða hugmyndirnar Hlíf gat þess einnig að samn- inganefndin vildi minnka vægi tón- leika, það er greiða hljóðfæraleik- urunum þrjár vinnustundir í stað þriggja og hálfrar nú. Runólfur segir rétt að þessi hugmynd hafi komið fram í viðræðunum. Hún hafi á hinn bóginn verið sett fram í samhengi við hugmyndina um tvenna tónleika í viku, því með þessum hætti yrði auðveldara að greiða hljóðfæraleikurunum yfir- vinnu fyrir aukatónleika ef til þeirra þyrfti að koma. Runólfur tekur fram að þetta hafi allt verið hugmyndir en hljóð- færaleikararnir hafi ekki verið reiðubúnir að ræða þær. Runólfur segir tímasetningu vinnustöðvun- arinnar koma SÍ illa, því mikið sé í húfi en vonandi muni samstarf SÍ og Naxos ekki bíða skaða af. Þrátt fyrir þetta ítrekar Runólf- ur samúð sína með launabaráttu hljóðfæraleikaranna, laun þeirra þui-fi að hækka. „Meðaldagvinnu- laun hljóðfæraleikara í SÍ eru 110- 120 þúsund krónur á mánuði sem er svipað og hjá framhaldsskóla- kennurum en flestir eru sammála um að það séu lág laun. Miðað við tilboð samninganefndarinnar færu dagvinnulaunin upp í 130-145 þús- und krónur.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.