Morgunblaðið - 12.11.1997, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 1997 13
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Árni Sæberg
,ÉG ER svona stór, en er ennþá barn inni í mér,“ sagði Ami Ragnar Georgsson, sem er með asperger-heilkenni.
Þekking og skilningur á
einhverfu hefur aukist
YFIRSKRIFT málþings um ein-
hverfu sem haldið var í Ráðhúsi
Reykjavíkur á sunnudaginn var
„Hér leynist fólk.“ Þátttaka var góð,
um 400 manns, að sögn Astrósar
Sverrisdóttur, formanns Umsjónar-
félags einhverfra.
„Fólk hafði á orði að það hefði ver-
ið sterkt andrúmsloft í Ráðhúsinu á
sunnudaginn," segir Ástrós. „Það er
alveg á hreinu að þekking á ein-
hverfu hefur aukist og þar með
skilnmgurinn, svo fordómarnir eru
að minnka. Enda eru fordómar ekk-
ert annað en vanþekking. Mér finnst
mjög ánægjulegt að fmna að fólk
hefur áhuga á að vita hvað einhverfa
er, en hún er afar flókin og sérstök
fotlun. Þess vegna hefur umsjónarfé-
lagið lagt svo mikla áherslu á
fræðslu. Eg á t.d. strák sem er að
verða níu ára og ég er enn að kynn-
ast einhverfunni og sjá einhverfuna í
honum.“
Þurfa að læra félagsleg
samskipti
Astrós segir það hafa verið mjög
áhrifaríkt að hlýða á systkini ein-
hverfra segja frá og einnig foreldra
einhverfra bama. Þá hafi Arni Ragn-
ar Georgsson, ungur maður með
asperger-heilkenni, sem er fótlun
nátengd einhverfu, haft mikil áhrif á
viðstadda. „Hann taiaði um áhuga-
mál sín, sem eru vitar og stjörnu-
kort. Hann er sérfræðingur í að gera
stjömukort og hann þekkir alla vita
á Islandi og hefur teiknað þá í ná-
kvæmum hlutföllum. Eins hefur
hann kynnt sér vita í Noregi og í
Færeyjum. flann endaði á því að
segja: „Sjáið þið, ég er svona stór _ í
þessum stóra líkama. En ég er enn-
þá bara barn inni í mér. Mig langar
til að eiga vini en ég á enga vini, því
að ég kann ekki félagsleg samskipti,
ég þarf að læra þau.“„
Sérstakir gestir málþingsins voru
mæðginin Judy og Sean Barron frá
Bandaríkjunum, en Sean er ungur
maður með einhverfu. Hann skrifaði
ásamt móður sinni bókina „Hér leyn-
ist drengm-," þar sem þau lýsa bar-
áttunni við fótlunina, sem hann telur
sig hafa fengið fullan bata af. Astrós
segir það vissulega hafa verið stór-
kostlegt að kynnast honum og sögu
hans en segir þó nauðsynlegt að hafa
í huga að þetta sé einstakt tilfelli.
„Ég les bókina með því hugarfari að
skilja einhverfuna betur, en ekki að
barnið mitt hætti að vera einhverft."
Kjörinn formaður
samtaka norrænna
blaðalj ósmyndara
KJARTAN Þorbjömsson, Golli, ljós-
myndari á Morgunblaðinu, var nýlega
kjörinn formaður samtaka norrænna
blaðaljósmyndara.
KJARTAN Þorbjömsson,
ljósmyndari á Morgun-
blaðinu, Golli, var sl.
laugardag kjörinn for-
maður samtaka nor-
rænna blaðaljósmyndara.
Innan samtakanna starfa
um 2.500 blaðaljósmynd-
arar á Norðurlöndum,
þar af um 45 á íslandi.
Flestir eru í Svíþjóð eða
um 900, 680 í Danmörku,
600 í Finnlaudi og 440 í
Noregi.
Á ársfundi samtak-
anna, sem haldinn var í
Finnlandi um síðustu
helgi, var að sögn Kjart-
ans rætt um margvíslegt
norrænt samstarf, m.a.
sýningarhaid og hvernig
styrkja má og tryggja
höfundarétt blaðaijós-
myndara. Fram kom á
fundinum hörð andstaða
við þá kröfu sem tón-
leikahaldarar víða á
Norðurlöndunum hafa
sett fram um að blaða-
ljósmyndarar afsali höf-
undarétti sínum á filmum, sem
þeir taka á tónleikum, til tón-
leikahaldara eftir að myndir hafa
verið birtar í viðkomandi blöð-
um. Segir Kjartan slíkt ekki
koma til greina af hálfu ljós-
myndara. Um það sé algjör sam-
staða meðal norrænna ljósmynd-
ara að gefa ekki eftir í þessu
réttindamáli.
Næsti aðalfundur norrænu
samtakanna verður haldinn á ís-
landi að ári. Kjartan er einnig
formaður Blaðaljósmyndarafé-
lags Íslands. Þriðjudaginn 18.
nóvember gangast blaðaljós-
myndarar fyrir pallborðsumræð-
um um íslenska fréttaljósmyndun
á Sólon íslandus í Reykjavík. Er
það í tengslum við 100 ára af- _
mælishald Blaðamannafélags Is-
lands.
Ræðir um-
hverfísálag
byggingar-
mannvirkja
MÁLSTOFA verður í umhverf-
is- og byggingarverkfræðiskor
fimmtudaginn 13. nóvember, kl.
16.15. Þar mun prófessor Júlíus
Sólnes kynna bók- sína
Stochastic Processes and
Random Vibrations í erindi
sem hann nefnir Hönnun og
hegðun byggingarmannvirkja í
tilviljunarkenndum heimi.
Bókin, sem kom út fyrr á ár-
inu, er gefin út af virtu alþjóð-
legu forlagi, John Wiley & Sons.
Þar fjallar Júlíus um umhverfis-
áraun byggingarmannvirkja
sem ekki er auðvelt að lýsa og
meta með hefðbundnum aðferð-
um vegna þess hversu óregluleg
hún er. Það er meðal annars af
völdum jarðskjálfta og vindá-
lags sem þessi óvenjulega áraun
á byggingar kemur til sögunnar.
Hér nýtist vel áratuga reynsla
Júlíusar sem kennara, fræði-
manns og hönnuðar, en Júlíus
er einn af frumkvöðlum á þessu
sviði, ekki aðeins hérlendis held-
ur einnig á alþjóðavettvangi,
segir í fréttatilkynningu.
Fyrirlesturinn verður hald-
inn í stofu 157 í VRII, húsi
raunvísinda- og verkfræðideild-
ar við Hjarðarhaga 2-6. Öllum
er heimill aðgangur. I lok fyrir-
lestrar mun Júlíus svara fyrir-
spurnum.
and\
Frá Reykjavík
til Akureyrar
alla virka daga kl. 17
Vörur sem fara frá afgreiðslunni í Skútuvogi 8
í Reykjavík kl. 17 eru komnar til viðtakanda á
Norðurlandi strax næsta dag. Hlutverk okkar
er að hjálpa viðskiptavinunum — við leggjum
metnað okkar í skjóta, persónulega þjónustu
og góða vörumeðferð.