Morgunblaðið - 12.11.1997, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 12.11.1997, Qupperneq 18
18 MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Breyttur dómur í máli bresku barnfóstrunnar kom foreldrum látna drengsins í opna skjöldu „Það er ekkert vit í þessu“ Breskir fjölmiðlar fara fögrum orðum um bandarískt réttarkerfí LOUISE Woodward yfirgefur réttarsal í Massachusetts frjáls ferða sinna. FORELDRAR Matthews Eappens, sem lést af völdum höfuðáverka ní- unda febrúar sl., voru furðu lostnir er dómari í máli bresku barnfóstr- unnar, sem sakfelld var fyrir að hafa orðið Matthew að bana, dæmdi hana í 279 daga fangelsi, sem hún hafði þegar afplánað, og leyfði henni því að fara frjálsri ferða sinna innan Massaehusettsríkis. Kviðdómur úrskurðaði 30. októ- ber að barnfóstran, Louise Wood- ward, 19 ára, væri sek um að hafa myrt Matthew að yfirlögðu ráði. Saksóknari hélt því fram að Matt- hew hefði verið hristur harkalega og höfði hans slegið við harðan flöt 4. febrúar sl., er hann var í umsjá Louise. Hann lést á sjúkrahúsi fimm dögum síðar. Við réttarhöldin viðurkenndi hún að hafa „kannski verið dálítið harðhent" við Matthew. Verjendur Louise héldu því fram að hann hefði látist af völdum áverka er hann hefði hlotið fyrir 4. febrúar. Sakfellingu um morð að yf- irlögðu ráði fylgdi sjálfkrafa dómur í ævilangt fangelsi með möguleika á náðun eftir 15 ár. Sunil og Deborah Eappen sættu sig við að úrskurði kviðdóms væri breytt í sekt um manndráp af gá- leysi. En dómur Hillers B. Zobels, dómara í málinu, kom þeim í opna skjöldu. Meint tvöfeldni dómarans „Hann nefndi í úrskurði sínum að hann eigi barnaböi-n," sagði Sunii Eappen, faðir Matthews, við The Boston Globe í gær. „Hvað ef Matt- hew hefði verið sonarsonur hans? Skilur hann þetta ekki? Einhver myrti Matthew. [Dómarinn] viður- kennir annarsvegar að einhver hafi myrt Matthew, en hinsvegar lætur hann hana lausa. Það er ekkert vit í þessu.“ „Eg ber virðingu fyrir dómaran- um,“ sagði Deborah Eappen, móðir Matthews, við The Boston Globe. „En ég held að það búi í honum, og okkur öllum, eitthvað sem vill ekki trúa þvi að fólk sem lítur út eins og Louise geti gert það sem Louise gerði. Við viljum trúa því að fólk sem myrðir lítil börn sé ekkert líkt okkur, en sannleikurinn er sá að það er alveg eins og við. Louise myrti Matthew og Zobel dómari bæði viðurkennir það og lætur hana ekki axla ábyrgð á því sem hún gerði. Hefði hann gert þetta fyrir fátækan, svartan eða rómanskan sakborning?“ Eappen-hjónin, sem bæði eru læknar, óttast líka að mál Wood- wards muni gera að engu þann ár- angur sem náðst hafi á undanfómum áratug við að fá almenna viðurkenn- ingu á því hversu algengt er að böm- um sé misþyrmt. „Einu sinni töldum við okkur trú um að bamamisþyrm- ingar væra einungis vandamál meðal hinna fátæku," segir Sunil. „Svo er ekki. Þær eiga sér stað í öllum stétt- um þjóðfélagsins." Bjóst við 10 ára fangelsi Stuðningsfólk Woodwards fagn- aði dómnum fram á rauða nótt. Systir hennar, Vicky, tjáði frétta- stofu Reuters að Louise hefði búist við því að verða dæmd í 10 ára fang- elsi. Kvaðst Vicky hafa talað við systur sína örfáum mínútum eftir að dómurinn féll. „Hún er afskap- lega ánægð. Hún trúir þessu varla,“ sagði Vicky. Breskir fjölmiðlar, sem fyrir viku áttu vart tii nógu sterk orð til þess að lýsa fyrirlitningu sinni á banda- rísku réttarkerfi, kepptust í gær við að hlaða þetta sama réttarkerfi lofi, og þá ekM síst Zobel dómara. „Nafn Hillers Zobels mun seint gleymast héma megin Atlantshafsins, að minnsta kosti ekki á meðan við mun- um og metum að verðleikum hug- rakka og sanngjama menn,“ sagði götublaðið Daily Express í leiðara. Flest blöð viðurkenndu að banda- rískt réttarkerfi hefði reynst vaxið þeim vanda sem svo oft hefði orðið breska kerfinu ofraun. The Guardi- an benti á, að bandarísk lög hefðu gert dómara kleift að leiðrétta aug- ljós mistök innan fárra daga. Hins vegar hafi tekið allt að 15 árum að leiðrétta alræmd réttarbrot í Bret- landi, til dæmis er tíu menn voru ranglega dæmdir fyrir þátttöku í hermdai’verkum á írlandi. „Geðþóttaákvörðun“ Saksóknarar í málinu sögðu, er dómurinn var fallinn, að ákvörðun dómarans væri „stórfurðuleg“, byggð á „geðþótta" og bæri vott um hræsni. Tom Reilly, aðalsak- sóknari í Middlesexsýslu í Massachusettsríki, sagði á frétta- mannafundi: „Eg veit ekki hvað gerðist. Eg hef aldrei séð neitt í líkingu við þá hröðu atburðarás sem varð hér í dag. Eg er furðu lostinn ... Réttlætinu var ekki full- nægt fyrir hönd Matthews Eapp- ens í dag,“ sagði Reilly með tárin í augunum. Reilly sagði að saksóknaraemb- ættið myndi áfrýja dómi Zobels, en afgreiðsla málsins gæti tekið að minnsta kosti eitt ár, ef ekki tvö ár. Reilly og samstarfsfólk hans kvaðst ekki geta komið því heim og saman að Zobel hefði látið Louise lausa eft- ir að hafa sagt í úrskurði sínum að hann teldi hana hafa orðið valda að höfuðáverkum sem leitt hefðu Matt- hew til dauða. Áður en Zobel kvað upp dóm sinn á mánudagskvöld fóru saksóknarar fram á að hann tæki til greina að hún vildi ekki enn axla ábyrgð á glæp sem dómarinn hefði sagst telja hana seka um. „Hann trúði greinilega ekki framburði hennar, og hann ákvað að sér væri sama,“ sagði Reilly. Martha Coakley, aðstoðarsak- sóknari, sagðist telja að ákvörðun Zobels væri ógn við öll fórnarlömb barnamisþyrminga. The Boston Globe hefur eftir henni að dómar- inn, og margir þeirra er studdu Louise, hafi ekki gert sér grein fyr- ir því hvað ofbeldi gegn börnum sé alvarlegur hlutur, og gætu ekki skilið að kurteis og sjálfsörugg 19 ára stúlka af góðu fólki gæti verið sek um slíkt. Áfrýjun tímafrek I úrskurði sínum sagði Zobel að það hefði ekki verið misráðið af sak- sóknara að hefja málssókn á grund- velli ákæru um fyrstu gráðu morð að yfirlögðu ráði. Sagði dómarinn að vísbendingar hefðu verið, „að vísu naumar", um að grundvöllur væri fyrir ákæru um skelfileg voðaverk, sem er forsenda ákæru um fyrstu gráðu morð. Saksóknarar munu fyrst fara þess á leit við dómara í áfrýjunar- rétti Massachusettsríkis að Louise verði gert að sæta varðhaldi áfram uns ákvörðun hefði verið tekin um frekari áfrýjun. Farið verður fram á að úrskurður kviðdóms um að Lou- ise sé sek um annarrar gráðu morð að yfirlögðu ráði verði látinn standa. Afgreiðsla þeirrar áfrýjunar gæti tekið nokkra mánuði, ef ekki ár, að því er lögskýrandi The Boston Globe segir. Barry Scheck, einn verjenda Louise, tjáði fréttamönnum að verj- endur myndu einnig áfrýja úrskurð- inum því Louise sitji enn undir því að hafa verið fundin sek um mann- dráp. „Við teljum að með fleiri vís- indalegum sönnunargögnum og rannsókn og vinnu getum við gert meira til þess að hreinsa mannorð skjólstæðings okkar og sýnt að hún er ekki sek um þennan glæp,“ sagði Scheck. Hann sagði að verjendur Louise bæru mikla virðingu fyiúr dómaran- um og því hugrekki sem hann hefði sýnt með því að breyta úrskurðin- um og kveða upp nýjan dóm. Scheck sagði ennfremur að varnar- aðferð lögmannanna í málinu og vitnisburður sérfróðra ráðgjafa þeirra í læknisfræði muni verða for- dæmi öðrum sem eigi eftir að verða ranglega ákærðir um misþyrmingar á börnum. Opinber heimsókn Jeltsíns til Kína Gagnrýna lítil viðskipti landanna Harbin. Moskvu. Reuters. BORÍS Jeltsín Rússlandsforseti heimsótti í gær kínversku borgina Harbin á þriðja degi heimsóknar sinnar til Kína en borgin er miðstöð viðskipta milli Rússlands og Kína. Jeltsín lagði blómsveig að minnis- varða um sovéska hermenn sem féllu í átökum á svæðinu á lokadög- um síðari heimsstyrjaldarinnar. Fjöldi manna af rússneskum upp- runa, afkomendur fólks sem flýði til Harbin í rússnesku byltingunni, fagnaði Rússlandsforseta við minn- isvarðann. Rússneskir fjölmiðlar lögðu mikið rými undir 5. leiðtogafund þeirra Ji- angs Zemins Kínaforseta í fyrra- dag. Sögðu fjölmiðlar augljósan vin- skap, þéttingsföst faðmlög leiðtog- anna og pólitískan ávinning af fund- um þeirra ekki draga athyglina frá hörmulegri stöðu viðskipta land- anna. Reuters Boris Jeltsin Rússlandsforseti umkringdur öryggisvörðum. Áætlað er að viðskipti ríkjanna nemi jafnvirði sjö milljarða dollara, 490 milljarða króna, á árinu. Að mati rússneskra fjölmiðla er það lít- ið í samanburði við stærð ríkjanna tveggja. Sömuleiðis sé það langt undir 20 milljarða markinu sem þau höfðu sett sér að viðskiptin næmu fyrir aldamót. Helsti efnahagslegur ávinningur Jeltsíns af förinni er samningur um smíði gasleiðslu frá Síberíu til Kyrrahafsstrandar Kína en hann er jafnvirði 12 milljarða dollara. Um leiðsluna mun gas flæða í 30 ár til Kína, Japans og Suður-Kóreu. Norska stjórnin vill . frekara samstarf Helsinki. Morpunblaðið. KJELL Magne Bondevik, hinn ný- kjömi forsætisráðherra Norð- manna, segir stjóm sína hafa fullan hug á góðu samstarfi við íslend- inga um tengslin við Evrópusam- bandið og vonast eftir að Rússar náist að samningaborðinu um Smuguna. Þetta kom fram í viðtali við Morgunblaðið á 49. þingi Norð- urlandaráðs í Helsinki. Bondevik hefur þótt koma vel fyrir í forsæt- isráðherrahlutverkinu og hvorki sýnt fum né fát. Á norrænum vett- vangi er forsætisráðherrann á heimavelli, því hann hefur um ára- bil verið ákafur þátttakandi í Norð- urlandaráði, nú síðast sem formað- ur í einni aðalnefnd ráðsins og er því öllum hnútum kunnugur í því. Þegar það er borið undir Bondevik að Islendingum hefði fundist eins og það andaði köldu frá Noregi eftir að nýja stjórnin tók við og það vakið áhyggjur á Is- landi um harðari afstöðu í þeirra garð en áður er hann fljótur til svars: „Nei, ég held það sé engin ástæða til að segja það. Utanríkis- ráðherra okkar hafði strax sam- band við íslenska starfsbróður sinn um að hefja samninga við íslend- inga, meðal annars um Smuguveið- arnar. En það mál snertir þrjár þjóðir, því Rússar koma þar líka við sögu. Um leið og þjóðirnar þrjár setjast að samningaborðinu, held ég að við eigum ekki langt, í land með að ná samningum." - Geturðu tiltekið einhver tíma- mörk varðandi hugsanlega Smugu- samninga? „Nei, um það þori ég ekkert að fullyrða, því þejr era ekki aðeins mál Noregs og Islands, heldur líka Rússa. Ég veit þvl hvorki hvenær hægt verður að ná þeim að samn- ingaborðinu né hvað samningavið- ræður muni taka langan tíma.“ . - Það hefur ekki verið sérlega * mikil samvinna milli norsku og ís- y lensku stjórnarinnar varðandi k samskiptin við ESB. Mun verða einhver breyting á því? „Það má vera að sú samvinna geti verið meiri. Ég þori ekki að segja til um hvernig sambandið var áður, en ég hef þegar rætt við Dav- íð Oddsson forsætisráðherra og Halldór Ásgrímsson utanríkisráð- herra. Við höfum allir þekkst lengi, k meðal annars gegnum samvinnu í Norðurlandaráði og höfum allir » áhuga á að efla samvinnuna. Bæði y löndin geta öragglega haft gagn af því, þar sem bæði era utan ESB, en aðilar að EES.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.