Morgunblaðið - 12.11.1997, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 12.11.1997, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 1997 21 Utgáfu- samningur við Arsis Classics SIGURÐUR Bragason söngvari og Vovka Ashkenazy píanóleikari hafa gert samning við útgáfufyrirtækið Arsis Classics í Hollandi um end- urútgáfu og dreif- ingu á geisla- disknum Songs of the Master Pi- a nists en hann kom út undir heit- inu Ljóðakvöld á íslandi 1995. Sigurður Disknum verður Bragason dreift í Bandaríkj- unum, Kanada, Japan, Ástralíu og Evrópu. Einnig verður þessi nýja útgáfa til sölu í helstu hljómplötuversl- unum á íslandi. Á geisladiskn- um eru þrjú sönglög eftir Fryderyk Chopin, þrjár Petraka sonnettur eftir Franz Liszt, fimm sönglög eftir Serge Rachmaninoff, ljóðaflokkurinn Don Quichotte a Dulcinée eftir Maurice Ravel og „Persneskur ástarsöngur“ eftir Anton Rubinstein. SELMA Guðmundsdóttir og Gunnar Kvaran halda tónleika á Austurlandi. Gunnar og Selma á tón- leikaferðalagi GUNNAR Kvaran sellóleikari og Selma Guðmundsdóttir píanóleikari halda þrenna tónleika á Austurlandi dagana 13.-15. nóvember. Fyrstu tónleikarnir verða í Seyðisfjarðar- kirkju fimmtudagskvöldið 13. nóvember kl. 20, aðrir tónleikarnir verða í Félagsheimilinu Hnitbjörg- um á Raufarhöfn föstudaginn 14. nóvember kl. 20.30 en þeir þriðju og síðustu í Félagsheimilinu Mikla- garði á Vopnafírði laugardag kl. 17. Flutt verða þekkt lög eins og Ave Maria eftir Bach-Gounod, Vókalísu eftir Rachmaninoff og Svanurinn eftir Saint-Saéns. Auk þess leika þau sónötu í e-moll eftir Ántonio Vi- valdi og Sónötu „Arpeggione" eftir Franz Schubert. Gunnar og Selma hafa nú starfað saman um nokkurra ára skeið. í fyrra kom m.a. út hljómplatan „E- legía“ með leik þeirra. Tónleikar þessir eru styrktir af Félagi ís- lenskra tónlistarmanna. ---------------- Sýning í Skotinu í SKOTINU, sýningaraðstöðu í Fé- lagsmiðstöð aldraðra, Hæðargarði 31, stendur yfir sýning Hjartar Guðmundssonar. Verkin eru úr ýmsum efnum og náttúruefnum s.s. hvalbeini, góðmálmum, eðalviði, skeljum og fl. List sína stundaði Hjörtur í kyrrþey í óratugi þar til hann var hvattur til að sýna í Nýlistasafninu í vor. Áður hafði hann tekið þátt í nokkrum samsýningum félagsstarfs aldraðra. Sýningin er opin á afgreiðslutíma félagsmiðstöðvarinnar í Hæðar- garði mánudaga til föstudaga kl. 9-17 og lýkur henni 21. nóvember. Beethoven í brennidepli EGAR nöfnin Jónas Ingi- mundarson og Gerrit Schuil ber á góma dettur eflaust mörgum í hug pí- anó. Það verður aftur á móti ekk- ert píanó á sviðinu á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Islands í Háskólabíói annað kvöld, þar sem þessir ágætu herrar verða í sviðsljósinu. Gerrit mun stjórna hljómsveitinni en Jónas kynna efn- isskrá kvöldsins. Tónleikarnir eru þeir fyrri af tvennum í Bláu tónleikaröðinni á þessu starfsári en sú röð tók á sig nýja mynd í fyrra þegar Jónasi var falið að sjá um röð kynntra tónleika að hætti bandaríska hlj ómsveitar stj órans Leonards Bernsteins. Þá var efnisskrá tónleikanna haldið leyndri en nú verður væntanlegum tónleikagestum gefin vísbending um hana. Þannig er yfirskrift tónleikanna annað kvöld Kvöldstund með Beethoven. Tveir leynigestir munu koma fram með hljómsveitinni, hverra nöfn eru á huldu. „Eg held að þetta hafi gengið vel í fyrra, þótt ég sé auðvitað ekki rétti maðurinn til að svara því. í það minnsta fékk ég mikil viðbrögð,“ segir Jónas. „Með þessu er ekki verið að gefa hinu hefðbundna tónleikahaldi langt nef - betta eru bara ég þurfti alltaf að vera að sanna mig! Stutt frí á Islandi, fjarri skarkala umheimsins, var því kærkomið.“ En fríið dróst á langinn. „Það gerðist eitthvað við komuna til Islands - landið heillaði mig. Ég hringdi því í umboðsmann minn í Hollandi og sagði henni að aflýsa öllum verkefnum mínum næsta hálfa árið. Brást hún ókvæða við - spurði hvort ég væri genginn af göflunum - en lét sig hafa það.“ Undrun umboðsmannsins varð víst síst minni þegar Gerrit sneri aftur að hálfu ári liðnu - í þeim til- gangi að sækja sitt hafurtask. „Þegar maður er ungur verður maður að láta sig hafa það að gera Evrópu annað slagið en kveðst alltaf ánægðastur að koma heim - til Islands! Gerrit segir það hafa komið sér í opna skjöldu á sínum tíma hversu blómlegt tónlistarlífið er á íslandi - og í raun menningin í heild sinni. „Þegar allt kemur til alls búa ekki nema um 260 þúsund manns hér!“ Er hann þegar farinn að nýta sér sambönd sín í Evrópu til að koma íslenskum tónlistarmönnum á framfæri enda „myndu fjölmargir þeirra sóma sér vel á alþjóðavett- vangi“. Allir til íslands! Þá kveðst Gerrit nýta öll tækifæri sem gefast til að kynna Island erlendis, þó ekki sé nema fyrir þá einfóldu staðreynd að „allir erlendir tónlist- armenn hefðu gott af að sækja landið heim til að drekka í sig menninguna, kynnast stórbrotinni náttúrunni - og veðrinu"! Að áliti Gerrits eru gæði Sinfóníu- hljómsveitar Islands mikil. Þá sé einstak- lega gaman að vinna með hljómsveitinni, hún sé svo metnaðargjöm, ein- beitt og áhugasöm. „Þetta viðhorf skiptir ekki svo litlu máli en ein af ástæðunum fyr- ir því að ég dró mig í hlé á sínum tíma var sú að ég var aftur og aftur farinn að standa frammi fyrir hljómsveitum, mörg- um hverjum góðum, sem höfðu ekki allt sem maður er beðinn um - mikið af því að minnsta kosti. Núna er ég aftur á móti búinn að vera svo lengi í þessum bransa að ég get orðið leyft mér að gera eingöngu það sem mig langar til og hef trú á. Þess vegna ákvað ég að flytjast búferlum til íslands." Gerrit hafði hægt um sig fyrsta árið hér á landi - fékkst við kennslu og sitthvað smávægilegt að auki. Fljótlega færðist hann hins vegar í aukana og hefur hin síðari misseri verið afar virkur í ís- lensku tónlistarlífi. Er skemmst að minnast Schubert-hátíðarinnar sem hann gekkst fyrir í Garðabæ fyrr á þessu ári. Hann tekur enn að sér verkefni víðsvegar um Kvöldstund með Beethoven er yfirskrif tón- leika Sinfóníuhljómsveitar íslands í Háskóla- _______bíói annað kvöld. Að öðru leyti fæst_____ ekkert upp gefíð um efnisskrána, sem Jónas Ingimundarson mun kynna jafnóðum þegar á hólminn er komið. Þó er ljóst að fram munu koma tveir leynigestir. Orri Páll Ormarsson ræddi við Jónas og Gerrit Schuil hljómsveitarstjóra. Morgunblaðið/Arni Sæberg GERRIT Schuil og Jónas Ingimundarson verða í sviðsljósinu á sinfóníutónleikum annað kvöld. öðruvisi tónleikar. Ég hef orðið var við að fastagestir á tónleikum hljómsveitarinnar hafa haft gaman af þessu en formið ætti ekki síður að henta fólki sem alla jafna fer ekki á sinfóníutónleika." Stutt frí á íslandi í janúar næstkomandi verða fimm ár síðan hollenski hljómsveitarstjórinn og píanóleik- arinn Gerrit Schuil kom í „stutta heimsókn“ til Islands. Er hann hér enn. „Ég var búinn að starfa við tónlist í meira en tuttugu ár, búa vítt og breitt um Evrópu, stjórna hljómsveitum og óperum og var einfaldlega farinn að lýjast. Líf mitt var orðin ein stöðug keppni - minnsta áhuga á að „músisera“.“ Það eina sem stendur Sinfóníu- hljómsveit Islands fyrir þrifum er, að mati Gerrits, starfsaðstaðan - Háskólabíó sé henni ekki sam- boðið. „SÍ hefúr verið í mikilli framför undanfarin ár og til þess að ná enn lengra þarf að byggja fyrir hana tónlistarhús. Málið er ekki flóknara en það. Ég tala af reynslu, því þegar Fílharmóníu- hljómsveit Rotterdam, sem er um margt sambærileg hljómsveit, fékk sitt eigið tónlistarhús skipti það sköpum. Ekki það að hljómsveitin færi ósjálfrátt að leika betur, heldur gjörbreyttist hugarfarið þegar hún fór að heyra hvað hún hljómaði vel!“ Af daðri og draugum TÓJVLIST Listasafn Kópavogs „VIÐ SLAGHÖRPUNA" Sönglög eftir Felix og Fanny Mendelssohn, Liszt, Schubert, Clöru og Róbert Schumann og Richard Strauss. Þóra Einarsdóttir sópran, Björn Jónsson tenór; Jónas Ingi- mundarson, pianó. Inngangsorð: Eysteinn Þorvaldsson. Upplestur: Arthúr Björgvin Bollason. Listasafni Kópavogs, mánudaginn 10. nóvember kl. 20.30. ÞAÐ var sannkallaður „soirée“- svipur yfir tónleikunum í Gerðarsafni sl. mánudagskvöld, svo notað sé orð miðevrópskrar góðborgarastéttar fyrri tíma yfir menningarlegar kvöldvökur á betri bæjum við söng, spil og upp- lestur. Tilefnið var 200 ára afmæli Heinrichs Heine og störfuðu sam- an að samkomunni Kópavogur, Germanía og Goethe-stofnunin. Efnisskráin var löng og fjölbreytt. Að inngangssöng lokn- um, Auf Flúgeln des Gesanges eft- ir Mendelssohn í meðfórum Þóru Einarsdóttur, flutti Eysteinn Þor- valdsson prófessor stutt en fróðlegt erindi um Heine og áhrif hans á íslenzk skáld allt frá Fjöln- ismönnum til Steins Steinarr, einkum þó um „Heine-bragarhátt- inn“ er hann nefndi svo, sem menn munu þekkja frá Die Lorelei, einu af 16 sönglögum kvöldsins en hér í fremur sjaldheyrðri tónsetningu Franz Liszts. Þau Þóra og Björn Jónsson skiptust síðan á að flytja hin lögin 15 við píanóundii-leik Jónasar Ingimundarsonar. Þóra söng m.a. Die Lotusblume eftir Schumann, Schlechtes Wetter e. Strauss, er virtist eiga mjög vel við rödd hennar, og hina dramatískt uppsettu útfærslu Liszts á'Lorelei, er Þóra söng með miklum glæsi- brag við glimrandi útfærðan pí- anóleik Jónasar. Meðal sönglaga Bjarnar Jóns- sonar voru Schumann-perlur eins og Im wunderschönen Monat Mai, Wenn ich in deine Augen sehe og hið „þríþætta" Der arme Peter, öll sungin fallega og með skýrum framburði, en að vísu hvorki á lýtalausri þýzku né af ýkja mikilli fjölbreytni í túlkun. Þó færðist ögn meiri kraftur í Ich grolle nicht (Schumann) og Der Atlas (Schubert), þó að heildarsvipurinn væri svolítið þvingaður, enda sungið upp úr nótnabók. Segja má að Arthúr Björgvin Bollason hafi nærri því stolið sen- unni með völdum upplestrarbrot- um á mOli söngatriða úr endur- minningum Heinrichs Heine, er gáfu skemmtilega innsýn í hótfyndni skáldsins og hnyttnar hugmyndir þess um konur og þann bruna er þær kveikja körlum og sveiflast milli óþols og yndis, sútar og sælu. Náði ágætur upplestur Arthúrs hámarki með bráðskemmtilegri lýsingu Heines á „dulrænni reynslu" er hann varð fyrir niðdimma nótt eina í keisara- borginni fornu Goslar, og var þar lesið með tilþrifum við draugalegt kertaljós og almennan hlátur tónleikagesta. Þetta var óneitanlega öðruvísi form á ljóðasöngskvöldi en menn hafa átt að venjast. En eftir undir- tektum að dæma var ekki annað að sjá en að áheyrendur kynnu vel að meta þessa „nýbreytni" aftan úr samfélagsháttum 19. aldar, og væri vel athugandi að gera meira af þvi tagi, því ekki virðist vanþörf á tilbreytingu í gífurlegu og ört vaxandi söngtónleikaframboði höfuðborgarsvæðisins. Ríkarður Ö. Pálsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.