Morgunblaðið - 12.11.1997, Side 22

Morgunblaðið - 12.11.1997, Side 22
22 MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR ,NÓTT á sjónum", olía á léreft, 161 x 211cm 1949, ,1 SMID.ni' vatnslitir, 26.5 x 36 cm. Ekkert ártal, MYJVPLIST Lislasutii fslands HLUTI LISTAVERKAGJAFAR GUNNLAUGURSCHEVING Opið þriðjudaga til sunnudaga frá 12-17. Lokað mánudaga. Til 18. desember. Aðgangur 300 krónur. Sýningarskrá 600 krónur. ÞAÐ var ekki vonum fyrr, að Listasafn íslands legði öll húsakynni sín undir hluta viðamikillar gjafar Gunnlaugs Schevings. Nefnist framkvæmdin „Ur smiðju lista- mannsins", frá frumdrögum til fullunnins verks. Er í góðu samræmi við meginhluta hennar, sem eru vinnuriss, teikni- og dagbækur listamannsins, sundurgreinist í 841 blek- og blýantsriss, 256 túsk- og vatns- litaskissur, 329 túsk- og blekteikningar, 36 lit- krítarmyndir, 33 litkrítarskissur 3 grafík- myndir, 2 samklippur og 50 teiknibækur og dagbækur. Auk þess 12 olíumálverk flest í yf- irstærðum og 306 vatnslitamyndir, samtals um 1800 verk. Þetta er að hluta til nokkurs konar könnun á þróunarferli, frá hugmynd og til þess augnabliks er listamaðurinn leggur frá sér penslana og snýr sér að nýju verkefni. Fullgert myndlistarverk er þó ekki til, samræðunni aldrei loldð. Það eru rúm tuttugu ár síðan safnið sýndi fyrst hluta gjafarinnar í húsakynnum sínum í Þjóðminjasafnsbygging- unni, sem var eftirminnileg framkvæmd, byggðist öðru fremur á frumrissum og vatns- litamyndum. Er næsta rökrétt að álykta, að rannsóknir á list Schevings hafí yfír sér nokkum huliðsblæ og hæglæti, ekki síður en dánargjöf Ásgríms Jónssonar, eftir að kjama- konan Bjamveig Bjamadóttir féll frá. í öllu falli veit ég ekki tiltæka aðra greinargerð um rannsóknir á gjöf Schevings, en greinda upp- talningu, skráningu og sundurliðun hennar. Hér er átt við almennar rannsóknir og krufn- ingu á list og lífsferli, en síður kynningar á hluta gjafarinnar við ýmis tækifæri, svo sem fínheit og uppslátt í einstökum listhúsum, og listhátíðum í landsbyggðinni. Má enn einu sinni árétta, að slíkar gjafir fela í sér drjúga ábyrgð fyrir þá sem taka við þeim, svo viðamikla að afar markaðar og strangar regl- ur em hvarvetna um móttöku þeirra. Hinar veigamestu, að húsnæði fjármagn og mannafli sé fyrir hendi frá upphafi til kynningar og rannsókna og þær njóti afmarkaðra fjárveit- inga. Verði ekki ný byrði á fjárvana stofnun né hemill á ræktun annarra og starfandi lista- manna. Enginn skyldi ætla, að hér sé verið að amast við gjöfinni, né gjöfum almennt sem oftar en ekki era undirstaða stórsafna, en hér þarf markaðan ramma á sama hátt og það þarf beinagrind tU að halda mannslíkamanum uppréttum, um leið þarf hver beinflís að vera á réttum stað. Fyrsta mikilsháttar ritgerð í tímarit sem mér var falið að skrifa um íslenzkan lista- mann sérstaklega, var um Gunnlaug Schev- ing. Hún birtist í Iceland Review, fyrsta hefti 1969, undir fyrirsögninni; „Hvítt hús og úfinn sjór“. Tilvitnunina má rekja til listdóms sem birtist í dagblaði í Stokkhólmi 1946 og lyfti mjög undir álit landa hans á málaranum sem satt að segja var ekki tiltakanlega mikið fyrir. Málverk með þessu heiti á samnorænni sýningu fékk mikið lof hins sænska rýnis. Lof sem endurómaði í íslenzkum fjölmiðlum og oft var vitnað til á næstu árum. Þá vora vel að merkja örfá ár síðan sjálfur Kjarval hlaut fyrst almenna viðurkenningu, og til þess þurfti heil risasýning í Listamannaskálanum Fært í við Kirkjustræti að seijast upp við opnun (1942), sem skóp honum alheimsfrægð á Islandi. Jón Stefánsson og Júlíana Sveinsdóttir vora enn fjarlægar stærðir og takmarkaður markaður fyrir myndir þeirra. Asgrímur einn naut almennrar hylli sem um margt má þakka Bjamveigu. Má koma fram, að helstur stuðningsmaður Gunn- laugs var nafni hans Þórðarson lögmaður, og gegndi hér miklu hlut- verki um velferð og frama listamannsins. Uppörvun og stuðningur hefur ómet- anlega þýðingu í lífi lista- manna eins og flestir vita, og kemur óvíða fagurlegar fram en í bréfi Karenar Bjölstad til Edvards Munchs á baráttuáram hans, er gagnrýnin á verk hans var hvað hatrömust; „Like sterkt som jeg tror pá Gud, tror jeg pá deg som maler“ (Jafn mjög og ég trúi á guð, trúi ég á þig sem málara). Karen var móðursystir hans, sem tók að sér heimili Munchs læknis við fráfall systur sinnar, var Edvard þá fimm ára. Þessi sérstaki vettvangur skrifa um myndlistar- menn í ritinu var nýr á íslandi, og man ég hve langan tíma það tók mig að semja greinina, hún útheimti miklar yfirlegur og heilabrot þótt ekki væri hún ýkja löng. Taldi mig þurfa að kynnast listamanninum, sem ég þekkti ein- ungis úr fjarlægð, einna helst sem reglulegs gests á sýningar mínar. Á áranum í Handíða- og myndlistaskólanum fóram við skólabróðir minn stundum á kaffistofu róttæklinga að Þórsgötu 1, helst í því augnmiði að hitta kannski á málarahópinn sem vandi komur sín- ar þangað og við báram óttablandna virðingu fyrir, blimskökkuðum augum til úr fjarlægð. Voru það höfuðpaurar Septembersýninganna, og iðulega sat Gunnlaugur við borð þeirra, en hann heiðraði jafnan liðið umdeilda með þátttöku á sýningum þeirra. Gunnlaugur tók mér afar vel og bauð meira að segja til minnistæðrar veislu á heimili sínu með Orlygi Sigurðssyni og fjölskyldu í þann mund sem ég lauk við greinina. Hitti ég hann eftir þörfum í sambandi við skrifin og með okkur tókst góður kunnskapur sem var smám saman að þróast í vináttu er hann féll frá. Þótti mikil forréttindi og munaður að hafa kynnst þessum hægláta trausta manni, eink- um vegna þess að í ljós kom, að með honum bjuggu aðrar og mýkri hliðar og að hann var sögumaður frábær, en var vissulega ekki allra. Trúlega hefur mér aldrei verið betur umbunað fyrir skrif, þar sem var viðkynning- in við listamanninn, og jafnframt jók þetta til muna áhugann á greinaskrifum. Að baki lífs- verks þessa mikilhæfa málara var afar traust akademískt grannnám, sem gengið var að á þann veg að Gunnlaugur hafði yfirburði yfir alla hérlenda sem leituðu á lík mið að myndefnum. Þetta kemur helst fram í teikn- ingunni og myndbyggingunni, hæfni til að skynja liti og þjálfuðu hugsæi á ólík myndefni. stílinn Slíkir geta leyft sér ýmis tæknileg frávik, sem sýnast þó fullkomlega eðlileg, vegna þess að skynjunin á heildina er svo markviss, en verður að grannristu klúðri hjá öðrum. Þetta undir- stöðunám, sem byggðist á virkjun hugar og handa á sígildum og fomum granni opnaði Gunnlaugi að sjálfsögðu sýn til höfuðmeistara málaralist- arinnar. Þó má ætla að hann hafi orðið fyrir sterkustu áhrifum í næsta umhverfi, svo sem Skagen málurunum og þá helst Miehael Ancher og hinum norska Christian Krogh, sem kom þar einnig við sögu. Að ógleymdum franska málaranum Bastien-Lepage. Átök fiski- manna við sjávaröflin við Skagen voru hrikaleg og bátamir af nokkuð öðrum stærðargráðum en hér á landi og til þess ber einnig að líta, að Danir vora ósparir á stór verkefni til handa myndlistarmönnuni sínum og áttu aldahefð í minnisvarðalist. Að vera móttækilegur fyrir áhrifum skiptir miklu, en til úrslita hvemig viðkomandi vinnur úr þeim, brýtur undir persónueinkenni sín og menntunarlega bak- grann. Og hér er kominn kjaminn í sjálf- sprottinni listsköpun Gunnlaugs Scheving, einkenni listar hans era ótvíræð. Þó ekki fyrir svipmikinn frásagnarháttinn einan og sér, heldur það sem inni fyrir býr og þá sögu sem hann leggur til sjálfur, allt samanlagt vinnu- lagið. Hann er skýrt dæmi um að rismikil list verður ekki kennd, hver og einn verður að leggja hana til,°því traustari bakgrannur þeim meiri möguleikar til fjölþættra athafna. Viðfangsefni heimaslóða voru Gunnlaugi ein- faldlega hugleikin, að tákngera og skjalfesta það sem í næsta sjónmáli var er hann óx úr grasi og var hluti af eðli hans, hér vildi hann vera virkur með öllum þeim meðölum sem hann hafði tileinkað sér og réði yfir. Hann var jarðtengdur listamaður fyrir vinnuferlið og jafnframt alla tíð sjónrænn skrásetjari tím- anna sem hann lifði á. Engar Ijósmyndir geta komið í stað þessarar mikilfenglegu stílfærðu tjáningar á óvæginni baráttu sjómanna við hafið og náttúruöflin, vinnulagið að mestu liðin tíð. Á sama hátt gefur hann okkur innsýn inn í heim eldsmiðja fortíðar og stílhreinna timburhúsa í Grindavík og Hafnarfirði, sem einnig era að mestu horfin. Samanburður við hina tæknivæddu og kaldhömraðu nútíð er næsta fáránlegur hvernig sem litið er yfir sviðið. Fyrir framan sig hafa menn mestu andstæðu hátækninnar, sem er skynjunin og innsæið, ásamt þeim yfirburðum mannsins yf- ir aðrar lífverar að geta horft til baka, skynjað fortíðina á vitrænan hátt. Yfirburðum sem seinni tímar hafa snúið í löst á ýmsar lundir, menn ekki taldir í takt við kviku núsins, en lestir orðið dyggð þá svo ber undir. Hvort Gunnlaugur hafi gert sér grein fyrir hinum miklu breytingum sem örfáum á fáum áratugum yrðu á högum landsmanna og um- hverfí öllu verður mjög að draga í efa, líkast til var hann einungis að bregða upp mynd af því sem fyrir augu bar og í minni sat líkt og myndlistarmenn fyrri alda. Þeir voru hvorki að kortleggja né eftirgera heldur skjalfesta ákveðna hlutvakta lifun og um leið samtíð sína, meðvitað sem ómeðvitað. Þetta sem hann hafði í kringum sig var einstaklega myndrænt eins og svo margt í íslenzkum þjóðháttum sem telst helstur sjónrænn arfur fortíðar og niðurrif siðaskipta höfðu ekki með öllu afmáð frekar en sagnaarfinn. Þennan sjónræna arf hafa myndlistarmenn hvorki al- veg uppgötvað né ræktað sem skyldi, en hann leyndist í sjálfum hvunndeginum, atferli og verkháttum landsmanna. Meinbugur framkvæmdarinnar í listasafn- inu er helstur, að hún hefur svip af því að rannsóknir á listaverkagjöfinni stjómist frek- ar af skyldurækni en eldmóð. Ekki er nóg að afgreiða gjöfina með slíkri risaframkvæmd á rúmlega tuttugu ára fresti hve vel sem að henni er staðið, heldur þarf almenningur að hafa aðgang að hluta hennar allan ársins hring. Sýningarskráin telst öðra fremur kynningarrit og greinarnar tvær á köflum lík- astar skólabókaritgerðum þar sem lesandinn er föðurlega leiddur í allan sannleika. Afar framstætt og neyðarlegt telst að hafa enskan texta jafnréttháan íslenzkum á síðunum og er norræn minnimáttarkend í síðmódernískum anda. Hvorki Halldór Bjöm Runólfsson né Júlíana Gottskálksdóttir skila nægilegan sjálfstæðum rannsóknum og á stundum eru forsendumar sem þau gefa sér afar veikar. Miðað við ummæli listamannsins sjálfs um heimslistina er hæpið að hann hafi sótt í smiðju ýmissa þeirra sem nefndir era í grein Halldórs Bjöms, né haft tiltakanlegan áhuga á list þeirra. Þá er tillegg Júlíönu á köflum líkast skýrslu um það sem hver maður getur séð, hefur svip af að verið sé að tala við óþroskaða skólanemendur í heimsókn á safnið; „Málverkið (Hákarlinn tekinn inn) sýnir tvo menn á báti. Er báturinn í forgrunni og hallast fram þannig að sést ofan í hann. Annar sjómannanna, í brúnum stakk, er neðst í forgrunni vinstra megin og snýr baki við áhorfandanum. Hinn, i gulum stakk, stendur uppréttur í miðju myndar og snýr fram. Hann heldur á kaðal og athygli hans beinist að há- karlinum sem kemur inn í myndina efst til vinstri. Myndin sýnir þá stund, er þessi stórfiskur kemur úr sjó og á ríður að maður- inn ráði skjótt niðurlögum hans.“ Allir viti bomir menn ættu að geta uppgötvað þetta af eigin rammleik í einni sjónhendingu, og svo er erfitt að sjá að það komi myndinni par við, að annar kennari Gunnlaugs á Akademíunni í Kaupmannahöfn hafi verið eldheitur sósí- alisti! Þá vitna þau bæði óspart til framúrskarandi viðtalsbókar Matthíasar Jo- hannessen frá 1976, sem ber naumast vott um djúptækar og sjálfstæðar rannsóknir. Kannski hefði verið farsælast í stöðunni að endurútgefa bók góðskáldsins í stærra formi og ríkulega myndskreytta. Sjálf skráin er hins vegar mjög vel úr garði gerð hvað prent- un og litgreiningu snertir, en uppsetning dá- lítið markaðshyggjuleg í lokin, kommercial. Hér hefði verið möguleiki að þjappa hlutum betur saman og koma að fleiri upplýsingum, hefði að auld verið mögulegt að koma að þýðingum á textum í smærra letri á dönsku og ensku. Framkvæmd sjálfrar sýningarinnar og niðurröðun hennar í salina er mjög lifandi og skilvirk í alla staði og drjúgur fengur að myndbandinu í kjallara. (Meira verður fjallað um einstakar myndir síðar) Bragi Ásgeirsson Ljósmynd/Leifur Þorsteinsson Gunnlaugur Scheving, 1970.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.