Morgunblaðið - 12.11.1997, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 12.11.1997, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 1997 23 LISTIR Góður gestur í Dómkirkjunni TOIVLIST Tónl istardagar Dómki rkj unnar EINLEIKSTÓNLEIKAR Orgelleikari: Dr. Orthulf Prunner. Viðfangsefni eftir J.S. Bach. 9. nóvember kl. 17. MARGIR hafa vafalaust saknað Prunners þegar hann flutti sig um set til heimalands síns, Austuníkis, eftir margra ára dvöl á Islandi og heillaríkt starf í Háteigskirkju og víðar. Anægjulegt var því að sjá hann, eftir nokkurra ára fjarveru, lítið breyttan að öðru leyti en því að hrokkni makkinn hafði vaxið til muna og synd var að enginn myndasmiður var nærstaddur þeg- ar undii-ritaður, með sinn ijósa tímabundna hýjung á höfðinu, þakkaði Orthulfi fyrir tónleikana, slík mynd hefði getað skemmt ein- hverjum. Pi-unner minnti á heimsókn sína nú á þann máta sem orgelleikurum er nærtækastur, nefnilega með orgeltónleikum og til þess valdi hann ekki auðvelda efnisskrá, það var heldur ekki háttur Prunners hér áður fyrr, t.d. þegar hann lék allar sex orgelsónötur Bachs í Dómkirkjunni, sem í minnum er haft. Orthulf valdi að nokki-u verk- efni sem tengja má því tímabili kirkjuársins sem við erum að ganga í gegnum, þ.e. allra heilagi-a og allra sálna messu. Fyrsta verk- efnið á efnisskránni var e-moll prelúdían og fúgan (BWV-548), þar sem báðir þættirnir, prelúdían og fúgan, eru langir og tyrfnir. Ort- hulf valdi verkinu sterkar raddir, m.a. fagottrödd í pedal, og með þessari raddskipan lék hann báða hlutana og án þess að breyta nokkurn tíma um nótnaborð. Víst er þetta skilningur sem sumir leggja í Bach-spil. Margir staðir eru þó, bæði í prelúdíunni og fúgunni, þar sem auðveldlega má flytja sig milli nótnaborða og ein- falda áheyrandanum kannske hlustunina, því dálítið þreytandi getur orðið að heyra báða hlutana þrumaða með nær því sama radda- vali á eitt og sama nótnaborðið út í gegn. Síðasta orgelsónata Bachs, sú í G-dúr, kom næst og nú var öllu raddavali haldið í skefjum, þótt í síðasta þættinum íyndist mér hann tefla dálítið djarft og var sónatan fallega leikin. Fantasían og fúgan í c-moll (BWV-537) fékk sömu meðferð og fyrsta verkið, allt á sama nótnaborð og jafn sterkt raddaval. Kannske hefur Prunner ætlað að gera Dómkirkjuna að hljómmiklum „cathedrale“, en slíkt er vonlaust, kirkjan er takmarkað tónleikahús og á það verður að spila. Forvitnilegt var að heyra alla sex „Schubler-forleikina“ og segja má að allir sálmforleikir Bachs eigi erindi til allra heilagra og allra sálna. Orthulf Pranner lauk tónleikunum með stóra Es-dúr prelúdíunni og „trippel“-fúgunni. Ymislegt fór úrskeiðis, tæknilega, á leiðinni í þessu erfíða verki og skaut þeirri hugsun upp hjá mér að Orthulf hafí ætlað sér í gegnum verkið á „rútínunni" en á slíku skyldi maður vara sig. Orthulf Pranner er duglegur og metnaðar- gjarn orgelleikari en ég sakna stundum hjá honum fallegs, bund- ins spils og tæknilegs öryggis, en leikur hans er alltaf forvitnilegur og forvitnin helst alltaf þangað til næst. Mætti hann koma í heimsókn aftur áður en langt um líður. Ragnar Björnsson Stríð og friður KVIKMYNDIR Háskðlabfó/ Laugarásbío „THE PEACEMAKER" Leikstjóri: Mimi Leder. Handrit: Michael Schiffer. Kvikmyndataka: Dietrich Lohmann. Aðalhlutverk: George Clooney, Nicole Kidinan, Armin Mueller-Stahl, Alexander Baluev og Marcel Iures. 123 mín. Bandarísk. DreamWorks. 1997. „The Peacemaker" er að mörgu leyti rennileg hasarmynd með vel útfærðum eltingarleik og laglegum hetjum. Akkilesarhæll hennar era tilraunir til að höndla flókin siðferðileg og pólitísk vandamál á milli þess sem skotið er á allt sem hreyfist og spreng- ingar þeyta fólki í loft upp. Myndin má þó eiga það að móralski útgangspunkturinn leyfir aðalhryðjuverkamanninum að vera mannlegum en ekki sál- arlausum satanista eins og er dæmigert fyi'ir hlutverk illra manna sem ógna lífi bandarískra borgara í bandarískum afþrey- ingarmyndum. Þó að angurvær píanóleikur bosníska hryðju- verkamannsins Dusan Gavrich sé stundum einum of mikið af því góða má þó segja það um Marcel Iures að hann nýtir hlutverkið vel til að gefa myndinni vigt. Að sjálfsögðu þarf einhver að vera hið illa afl til að skapa mótvægi við góðu gæjana frá Hollywood og sú standard ralla fellur í hlut peningagráðugs rússnesks herforingja, Alexand- ers Kodoroffs (Alexander Balu- ev), sem okkar maður, Thomas Devoe ofursti (George Clooney), fær að berja á til þess að fá útrás fyrir fóðurlandsástina. Tónlistin í myndinni var á köflum svo há- stemmd að ég bjóst við að næst myndi bandaríski þjóðsöngurinn óma. Hvað um það, Clooney er rosalega myndarlegur í her- mannabúningi og getur hoppað og skoppað af mikilli list, þannig að hlutverkið verður að teljast hans skásta á hvíta tjaldinu til þessa. Clooney er samt alltaf voðalega innantómur og það sama verður að segja í þetta skipti um Nicole Kidman sem er í hlutverki hinn- ar hámenntuðu og fallegu Juliu Kelly. Bandarískar hasannyndir era ekki ennþá búnar að finna al- mennilegan farveg fyrir týpur eins og Kelly en eftir vandræðal- ega kynningu þar sem karl- mennið Devoe slær hana út af laginu tekst Kidman að koma sinni konu nokkuð vel á strik. Margar misfellur og hnökrar era á framvindu „The Peacema- ker“. Sem dæmi má nefna að í upphafi springur kjarnorku: sprengja sem síðan gleymist. I ljósi þess að hún ógnar ekki bandarískum borgurum og ekki virðist nein hætta á að geislavirk ský eða aðrar afleiðingar slíkrar sprengju ógni hetjunum á þvælingi þeirra um Austur- Evrópu þá er gleymskan líklega lógísk í mynd af þessu tagi. The Peaeemaker" er engu að síður virðingai-verð tilraun til þess að víkka út möguleika hasarmynda og leikstjórinn, Mimi Leder, afgreiðir þrjú lykil- atriði, eltingarleik í Vín (góð auglýsing fyrir Mercedez Benz), skotbardaga við landamæri Irans og lokaeltingarleikinn í New York, af miklum myndar- skap. Útkoman er því fín skemmtun. Anna Sveinbjarnardóttir Siemens 1150 ar ITILEFN1150 ARA AFMÆLIS SIEMENS NU IAR bjóðum við í nóvemberýmis Siemens heimilistæki á sérstöku afmælisverði meðan birgðir endast. Þú lendir sannarlega í afmælisveislu ef þú kemurtil okkar eða umboðsmanna okkar og kaupir þértæki. Gríptu gæsina meðan hún gefst! SIEMENS UMBOÐSMENN OKKAR A LANDSBYGGÐINNI ERU: Akranos: Rafþjónusta Sigurdórs Síglufjorour: Torgiö Akureyri: Ljósgjafinn Húsavik: Öryggi Vopnofjörður: Rarmagnsv. Arna M Noskaupstaður: Rafalda Vík í Mýrdal: Klakkur Borgnrnos: Glitnir Vostmannaeyjar: Tróverk SMITH & NORLAND Snœfollsbœr: Blómsturvellir Grundarfjöröur: Guöni Hallgrímsson Hvolsvöllur: Rafmagnsverkst. KR Holla: Gilsá Stykkishólmur Skipavík Solfoss Árvirkini Arvirkinn Grindavík: Rafborg Garður: Raftækjav. Sig Ingvarss. Kaflavík: Ljósboginn Hafnarfiörður: Rafbúö Skúla, Álfaskeiöi uðardalur: subúö Royöarfjöröur: Rafvólaverkst. Árna E Isafjörður: Póllinn Noatum 4 • Simi 5113000 www.tv.is/sminor Egilsstaðir: Sveinn Guömundsson Breiðdalsvík: Stefán N. Stofónsson Höfn í Hornafirði: Króm og hvítt Hvammstangi: Skjanni Sauðárkrókur: Rafsjá IVAR Örn Sverrisson og íris María Stefánsdóttir í hlutverkum sínum. í herbergi ofan við bilskúrinn LEIKLIST llulíOai'saIiir Verzlun- arskula íslands ALGJÖRT RUGL Leikstjóri: Bjarni Haukur Þórsson. Leikarar: Ivar Orn Sverrisson, Rebekka Árnadóttir, íris María Stef- ánsdóttir, Kari Guðlaugsson, Jóhann- es Ásbjörnsson, Snævar Darri Ingólfsson. Þýðandi: Birgir Sig- urðsson. Nemendafélag Verzlunar- skóla íslands. Föstudagur 7. nóv. ALLT milli himins og jarðar, leikfélag Verzlunarskóla íslands, frumsýndi föstudaginn 7. nóvember leikritið Algjört rugl eftir Christopher Durang. Bara til að koma í veg fyrir allan misskilning, áður en hann kemur upp, ætla ég að segja að nafnið lýsir leikritinu ekk- ert, það var alls ekkert rugl. Reynd- ar var söguþráður þess hálfgert rugl, og persónurnar voru líka allar meira og minna kolruglaðar, en lengra náði ruglið ekki. Verkið fjallar um samband, og sambandsleysi fólks, en ekki síður um sambandsmyndanir og -slit. Þess má geta að tvær af sex persónum verksins era sjálfstætt starfandi sálfræðingar, Klara Dís (Iris María Stefánsdóttir) og Stefán (Kári Guðlaugsson). Þau nálgast fag sitt, og sjúklinga, eftir ólíkum leiðum. Jakob Smári (Ivar Öm Sverrisson) og Auðbjörg (Rebekka Ái-nadóttir) eru í meðferð hjá sínum sálfræðingnum hvort, í raun með ósköp svipuð vandamál. Þau finna bót sinna mála hvort hjá öðru, enda sálfræðingar þeirra vart hæfir til að hjálpa sjálfum sér, hvað þá öðrum. Jakob Smári vill ganga í hjónaband, með konu. Helzta hindr- unin er Þór (Jóhannes Asbjörns- son), sambýlismaður hans og elsk- hugi. I öllum framtíðaráformum Jakobs gerir hann ráð fyrir Þór. Einsog gefur að skilja á Auðbjörg frekar erfitt með að sætta sig við þá tilhögun. Af þessu hlýst hin skemmtilegasta flækja sem leysist á veitingastaðnum sem leikritið byrjaði á. Þar skýtur allt í einu upp kollinum þjónn (Snævar Darri Ingólfsson) sem var aldrei til staðar áður (hans er reyndar ekki getið heldur í leikskránni) og málin leys- ast. Allt fer vel að lokum, býst ég við, í það minnsta eina kvöldstund. Leikarar náðu vel saman svo verkið rann átakalaust áfram. Þar tel ég þátt leikstjórans, Bjarna Hauks Þórssonar, ekki hvað minnstan. Leikarar áttu þó allir sína „einleiksspretti", ef ég mætti nota það orð. Sviðið var með eindæmum breitt og vægast sagt grunnt. Þar sem leikurinn fór fram á fjórum stöðum var sviðinu fjórskipt, þ.e. aldrei var skipt um svið, heldur aðeins skipt um stað á sviðinu. Það kom nokkuð vel út, nema kannski fyrir þá sem sátu utarlega á fremstu bekkjunum; „ónotuð“ sviðsmynd skyggði þá ögn á þá sem var í notkun. Mikið var lagt í leikmuni, svo allt væri sem eðlilegast. Þar sem sviðin voru fjögur gæti ég vel trúað að heldur lítið pláss sé í leikmuna- geymslunni. Búningar og förðun voru virkilega góð, allt frá toppi Stefáns til táa Þórs. Eg hef í raun fáu við þetta að bæta, nema því að núna og fram til sunnudagsins 16. nóvember er frábær sýning í há- tíðarsal Verzlunarskóla Islands. Heimir Viðarsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.