Morgunblaðið - 12.11.1997, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 12.11.1997, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ AÐSEÍMDAR GREINAR MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 1997 25 Kröfur okkar í Kyoto Umhverfi og nýting orkulinda Á SÍÐUSTU miss- erum hefur það glögglega komið í ljós að það sýnist sitt hverjum þegar kemur að nýtingu orkulind- anna til atvinnuupp- byggingar. Ég hef áður lagt á það áherslu en sé ástæðu til að ítreka það að í þeirri umræðu er mikilvægt að menn hafi sannleikann að leiðarljósi en byggi ekki málflutning sinn á sleggjudómum og upphrópunum. Finnur Ingólfsson hefur verið bent á er losun gróðurhúsaloft- tegunda hnattrænt vandamál. Þannig skiptir ekki máli hvar losunin á sér stað, held- ur hversu mikil hún er. í Ijósi þessa, loka- markmiðs loftslags- samningsins og þess hve brennsla jarðefna- eldsneytis á stóran þátt í losun gróðurhúsaloft- tegunda í heiminum, ber að stuðla að því að orkufrek framleiðsla iðnaðarvöru fari fram í ríkjum þar sem hrein orka er nýtt til fram- leiðslunnar. Annað væri rökleysa. Niðurstaðan í Kyoto „Ríósamningarnir" í „Dagskrá 21. Aldarinnar", sem er eitt þeirra skjala sem sam- þykkt voru á Ríóráðstefnu Sam- einuðu þjóðanna um umhverfi og þróun árið 1992, var sérstök áhersla lögð á; • að hlutur endurnýjanlegra orkulinda verði aukinn í orkubú- skap heimsins, • að ríki heims vinni saman að lausn á hnattrænum vandamálum, og • að ríki sem hafa yfir end- urnýjaniegum orkulindum að ráða miðli henni til ríkja sem ekki ráða yfir slíkum orkulindum. Á sömu ráðstefnu var ramma- samningur Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar samþykkt- ur. Lokamarkmið þess samnings er að koma í veg fyrir hættulegar breytingar á loftslaginu af manna- völdum. Það er í fullu samræmi við ákvæði samningsins að stuðla að því að orkufrek framleiðsla iðn- varnings fari fram þar sem losun gróðurhúsalofttegunda er minnst. Hér á landi, þar sem vatnsafl er nýtt til raforkuvinnslu, er losun gróðurhúsalofttegunda við álfram- leiðslu í lágmarki, en eins og oft „Gætirðu nokkuð fært þig örlítið?“ á m\ ndbaridi TI1J30Ð £ýMmynda>tafa Cjutuianð 3itgimwíð » onwi Suðurveri, sími 553 4852 Hugmyndir ýmissa ríkja og ríkjasamtaka um landsbundin út- blástursmörk mega ekki einar og sér verða ráðandi um samning- sniðurstöðu í Kyoto í Japan. Slíkar hugmyndir geta takmarkað mögu- leika til alþjóðlegs árangurs, nái þær fram að ganga. Undirbúningur fyrir ráðstefn- una í Kyoto er nú í fullum gangi og fyrir fáeinum dögum lauk langri fundatörn í Bonn, vegna hennar. Það er ljóst að þjóðir heims eru mjög langt í frá samstíga þeg- ar kemur að ákvörðunum um með hvaða hætti skuli unnið gegn lofts- lagsbreytingum af mannavöldum. Það er mat ýmissa að erfitt verði, ef ekki útilokað, að ná samkomu- Skynsamleg nýting orkulinda okkar til at- vinnuuppbyggingar hér á landi og alþjóðleg markmið í lofbslagsmál- um fara saman, segir Finnur Ingólfsson og undirstrika að efna- hagsmál og umhverfis- mál eru nátengd. lagi um þessi mál í Kyoto, til þess eru enn of mörg deilumál óleyst - því miður. Kröfur íslands Kröfur íslands í þessum efnum eru skýrar. Okkar meginkrafa er að þegar ákvörðun verður tekin skuli hún gera ráð fyrir minnk- andi losun á öllum þeim efnum sem teljast til gróðurhúsalofttegunda og að áætlanir taki til allra landa jarðarinnar. Að þessu tilskildu eru það einkum þrjár kröfur sem ís- lendingar setja á oddinn: 1. Við krefjumst þess að viður- kenndar verði breytilegar aðstæð- ur einstakra ríkja og skuldbinding- ar verði mismunandi þegar mark- mið eru sett. Þannig verði t.d. tek- ið tillit til þeirra aðgerða sem þeg- ar hefur verið gripið til við að draga úr útblæstri gróðurhúsaloft- tegunda. Þá verði sérstaklega viðurkennd sérstaða tengd mögu- leikum ríkja til nýtingar endurnýj- anlegra orkulinda, sem komið geta í stað orkuframleiðslu annars stað- ar, byggðrar á jarðefnaeldsneyti s.s. kolum og olíu. 2. Við krefjumst þess að heim- ilt verði að mæta skuldbindingum með aukinni bindingu gróðurhúsa- lofttegunda í gróðri, t.d. með stór- felldri tijárækt eða annarri rækt- un, sem viðurkennt er að hefur alþjóðleg áhrif í þessu sambandi. Slíkar heimildir liggja ekki fyrir nú. 3. Að lokum er okkar krafa sú að litið verði til notkunar á öllum þeim gastegundum sem teljast til gróðurhúsalofttegunda en ekki einungis hluta þeirra. (Með því er átt við C02, CH4, N20, HFCs, PFCs og SF6 en ekki einungis C02, CH4, N20 eins og t.d. þjóðir ESB vilja gera.) Allt annað teljum við hráskinnaleik, sem ekki muni skila tilætluðum árangri. Eins og fyrr sagði er það mitt mat að langur vegur sé í að sam- komulag náist meðal þjóða um markmið við minnkun útblásturs á gróðurhúsalofttegundum, hvað þá heldur aðferðirnar. Það er okk- ur mikið kappsmál að skynsamleg niðurstaða fáist í Kyoto og að all- ar þjóðir leggi sitt af mörkum. Það er hins vegar alls óljóst hvort tak- ast muni að ná samkomiulagi í Kyoto í desember en mikil ábyrgð hvílir á stjórnvöldum ríkja heims í þessum efnum. Virðing fyrir ólíkum sjónarmiðum Að nýta sér rammasamning Sameinuðu þjóðanna til að vinna gegn nýtingu endurnýjanlegra orkulinda væri misnotkun á samn- ingnum og markmiðum hans. Það hlýtur að vera krafa okkar sem þjóðar að um umhverfismál sé á alþjóðavettvangi fjallað af virð- ingu fyrir öllum íbúum jarðarinn- ar. Vandamálið er hnattrænt, það er ekki bundið landamærum ein- stakra ríkja. Mikilvægt er að hvert ríki geti lagt sitt af mörkum og í því sam- bandi er aukin nýting hreinna ís- lenskra orkulinda mikilvægur þáttur. Okkar markmið ætti jú að vera að skila næstu kynslóð jörð- inni í jafngóðu eða betra ásig- komulagi en hún var þegar við tókum við henni. Við höfum hins vegar einnig ríkum skyldum að gegna gagnvart afkomendum okk- ar hvað varðar efnahagslegt ör- yggi og lífsgæði. í þessum efnum verður því að ríkja nokkurt jafn- vægi, hvorug áherslan má bera hina ofurliði. Það er með slík sjónarmið í for- grunni sem íslensk stjórnvöld hafa mótað sér stefnu sína í þeim al- þjóðlegu samningaviðræðum sem nú fara fram og lúta ab sam- drætti á útblæstri gróðurhúsaloft- tegunda. Niðurstaða þeirra samningavið- ræðna, sem fram fóru í Bonn á dögunum og á að ljúka í Kyoto í desember, á ekki, og má ekki, koma í veg fyrir að endurnýjanleg- ar orkulindir séu nýttar til efna- hagslegra framfara, hvorki á ís- landi né í öðrum löndum. Skyn- samleg nýting orkulinda okkar til atvinnuuppbyggingar hér á landi og alþjóðleg markmið í loftslags- málum fara saman og undirstrika það enn og aftur að efnahagsmál og umhverfismál eru nátengd. Höfundur er iðnaðar- og viðskiptaráðherra. ,«"'****% ""41 . *m % flL Jólavörur á tilboðsverði T' 'yH Matar&tell á góðu verði QýCðimsJ/és Suðurlandsbraut 54 (Bláu húsin), sími 568 9511. Kærustu • • ponn í Heimsljósi Nú er rétti tíminn til að fá sér ný linífapör. Glæsileg knífapör, með eða án gfyllingfar, með vegflegfum jólaafslætti í Heimsljósi. I. 20% Ö11 hnífapör meS 20% afslœtti fessa viku.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.