Morgunblaðið - 12.11.1997, Side 29

Morgunblaðið - 12.11.1997, Side 29
28 MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 1997 29 STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. VIRÐA BER LÖG- MÆLTA FRESTI YFIRSKATTANEFND hefur lögsögu í landinu öllu. Nefndinni ber að úrskurða um ágreining um ákvörðun skatta, gjalda og gjaldstofna. Henni ber að afgreiða mál, sem til hennar koma, innan þriggja mán- aða frá því að gögn þau varðandi berast. Á þessu eru alvarlegir og óviðunandi misbrestir. í frétt Morgunblaðs- ins í gær segir að nefndin hafi um 700 mál til meðferð- ar, þar af um 100 eldri en ársgömul, og framundan séu þeir mánuðir, nóvember og desember, sem langflest mál berast nefndinni. í frétt blaðsins er einnig greint frá áliti umboðsmanns Alþingis, þess efnis, að stjórn- völdum beri að haga meðferð mála þessara með þeim hætti, að tryggt sé að lögmæltir frestir til afgreiðslu séu haldnir. Auga leið gefur að það er mjög bagalegt fyrir skatt- þegn, sem skotið hefur ágreiningsefni til yfirskatta- nefndar, að bíða úrskurðar mánuðum og misserum sam- an. Á sama tíma heldur gjaldheimtan áfram að inn- heimta þau álögðu gjöld, sem ágreiningurinn stendur um. Mergurinn málsins er sá, eins og fram kemur í áliti umboðsmanns Alþingis, að þegar löggjafinn hefur sett ákveðnar reglur um meðferð mála af þessu tagi, ber honum og/eða framkvæmdavaldinu að sjá svo um að þeim sé hægt að framfylgja. Ef Yfirskattanefnd hefur ekki starfsmenn eða starfsaðstöðu til að fram- fylgja skyldum sínum að lögum ber snarlega úr að bæta. Bæði almenningur og fyrirtæki gera mun meiri kröf- ur til þjónustu opinberra aðila á borð við skattayfirvöld en áður tíðkaðist. Fyrr á árum tók fólk því þegjandi, sem að því var rétt og þ.á m. þótt langan tíma tæki að afgreiða álitamál i sambandi við skattaálagningu. Þetta er hins vegar liðin tíð. Nú gera fólk og fyrirtæki kröfur til opinberra aðila, eins og dæmin sanna og ætlast til þess að fá viðunandi þjónustu fyrir skattpen- inga sína. Þess vegna m.a. er nauðsynlegt að þeir, sem hafa sett lög, sem skylda aðila á borð við Yfirskatta- nefnd til að afgreiða mál á tilteknum tíma, sjái svo um, að það sé framkvæmanlegt. RÁÐNING í HÁSKÓLASTÖÐUR ISLENZKUR stærðfræðingur og lektor við Lundarhá- skóla hefur hafið baráttu gegn leynd, sem oft hefur hvílt yfir ráðningum í stöður fræðimanna við norræna háskóla. Þetta er dr. Sigmundur Guðmundsson, sem safnað hefur upplýsingum um lausar stöður við háskóla á Norðurlöndum og víðar og auglýst þær á veraldarvefn- um, á sérstakri heimasíðu, sem hann hefur komið sér upp. Evrópusamband stærðfræðinga hefur svo tekið upp hugmynd Sigmunds og fengið hann til þess að sjá um sams konar síðu fyrir alla Evrópu. í framhaldi af þessu framtaki hans er nú svo komið að fleiri umsóknir ber- ast nú um hverja auglýsta stöðu en áður. Dr. Sigmundur Guðmundsson sagði í samtali við Morgunblaðið, sem birt var í gær, að á Norðurlöndum hafi verið í gildi lög um að auglýsa bæri allar háskóla- stöður, en hinn „mannlegi veikleiki að hygla sínu eigin fólki“ hafi verið þar sýnilegri, a.m.k. hafi meira verið um það að „vinir og fyrrverandi nemendur" hafi verið ráðnir til deildanna. Ráðning í mikilvægar háskólastöð- ur hafi oft farið þannig fram, að fyrst komi valdhafar skóla sér saman um hver eigi að fá stöðuna, en síðan er „klæðskerasaumuð" auglýsing birt með skilyrðum, sem aðeins einn maður geti uppfyllt. Þetta eru athyglisverðar athugasemdir og umhugsun- arefni fyrir forráðamenn háskóla. Það skiptir miklu máli fyrir vísinda- og rannsóknarstofnanir á borð við háskóla, að þeim takist að laða að hæfasta fólk á hverju sviði. Það tekst því aðeins að þeir hinir sömu séu sann- færðir um að fullkomins jafnræðis sé gætt við stöðuveit- ingar. Tvö fyrirtæki keppa um Laugardalshöllina vegna sjávarútvegssýningar haustið 1999 Morgunblaðið/Ámi Sæberg TVÖ FYRIRTÆKI keppa nú um að fá Laugardalshöllina til að halda þar sjávarútvegssýningu haustið 1999. Það er alþjóðlega fyrirtækið Nexus Media, sem stendur fyrir íslensku sjávarútvegssýningunni og Sýningar ehf. sem hyggjast halda sýninguna FishTech. Lausn virðist ekki í sjónmáli en enginn grundvöllur er talinn fyrir því að halda tvær alþjóðlegar sjávarútvegssýningar hér á landi. Samkeppn- in snýst um sýnendur Þrátt fyrír samdóma álit sýningahaldara og sýnenda um að aðeins sé rými fyrir eina sjávar- útvegssýningu hér á landi á þriggja ára fresti, ríkir enn fullkomin óvissa um hvor sýningin hafí vinninginn. Jóhanna Ingvarsdóttir komst að því að sú hugmynd hefur m.a. skot- ið upp kollinum að sýnendur sjálfir greiði at- kvæði um hvor sýningin verði ofan á og yrði þá minnihluti að lúta vilja meirihluta. 49. þing Norðurlandaráðs í Helsinki Norrænn ágreining- ur í stað samstöðu Helsinki. Morgunblaðið. FORSVARSMENN þeirra tveggja sýningafyrirtækja, sem nú skipuleggja sjávar- útvegssýningar í Reykjavík, eru á einu máli um að hér á landi sé aðeins rými fyrir eina„alvöru“ sjávar- útvegssýningu á þriggja ára fresti. Engu að síður hefur nú mikið kapp færst í samkeppnina um sýnendur enda eru menn sammála um að þeir einir komi á endanum til með að kveða upp úr með það hvor sýninganna fær að iifa og dafna þar sem greinin hafn- ar tveimur sýningum. Fyrirtækin tvö sem bítast nú um að halda sjávarútvegssýningu í Laug- ardalshöllinni haustið 1999 eru alþjóð- lega fyrirtækið Nexus Media, sem stendur fyrir íslensku sjávarútvegs- sýningunni og Sýningar ehf. sem hyggjast halda sýninguna FishTech. Biðlað til borgarstjóra Umsóknir frá báðum aðilum um afnot af Höllinni fyrstu helgina í sept- ember 1999 bárust íþrótta- og tóm- stundaráði Reykjavíkur um miðjan október eftir að bæði fyrirtækin höfðu gert skoðanakannanir meðal sýnenda um hvaða tími þeim þætti heppilegast- ur til sýningahaldsins. Stjórn ITR hefur enn ekki tekið afstöðu til nýju umsóknanna, en næsti stjórnarfundur verður haldinn 17. nóvember. Efasemdaraddir eru uppi um það að stjóm ÍTR verði sett í þá aðstöðu að velja á milli sýningafyrirtækjanna tveggja. Eiginleg ákvörðun yrði vænt- anlega tekin ofar í „valdapýramída" borgarinnar, en bæði fyrirtækin hafa falast eftir stuðningi borgarstjóra. Til að leysa þann hnút, sem málið er kom- ið í, hefur það sömuleiðis komið til tals í hópi sýnenda að þeir hreinlega greiði atkvæði um hvor sýningin verður hald- in og sú lýðræðislega meginregla höfð að leiðarljósi að minnihluti fylgi vilja meirihluta að atkvæðagreiðslu lokinni. Bókarnir „streyma" inn Talsmenn beggja sýningafyrirtækj- anna fullyrða að bókanir frá sýnend- um streymi inn. Á fimmta tug ís- lenskra fyrirtækja hafa nú þegar lýst yfir stuðningi við íslensku sjávarút- vegssýninguna og aðra ekki og segja forsvarsmenn sýningarinnar enga leynd hvíla yfir nafnalistanum. Fyrir- tækin eru: Marel, J. Hinriksson, Hampiðjan, Baader ísland, Sæplast, Póls, Eltak, Frigg, Vélaverkstæði Sig- urðar, Stjörnusteinn, Bátasmiðja Guð- mundar, Bílanaust, Ásgeir Hjörleifsson, _ Netasalan, Plastprent, ísfell, Stikla, Ellingsen, Verbúðin, Ismar, ístel, Fálkinn, FTC fram- leiðslutækni, Hagtæki, Veiðarfærasalan Dímon, Kerfi, Plast- os, Skeljungur, Rafver, Vélsmiðjan Nonni, G.S. Maríasson, Fást, Geiri, ísaga, Bræðurnir Ormsson, Hafsýn, Jón Bergsson, Gólflagnir, Trefjar, Hekla, A.M. Sigurðsson, Smith & Norland og Króli. Að sögn forsvarsmanna FishTech ’99 hafa yfir 40 íslensk fyrirtæki bók- að sig á sýninguna, en vegna sam- keppninnar vildu þeir ekki gefa upp hvaða fyrirtæki um væri að ræða. Hótelin frátekin Ferðaskrifstofan Úrval-Útsýn hef- ur yfir 600 hótelherbergjum í Reykja- vík að ráða þessa fyrstu helgi í sept- ember. Að sögn Úlfars Antonssonar, deildarstjóra, hafa þessi herbergi ver- ið tekin frá fyrir íslensku sjávarút- vegssýninguna, sem ferðaskrifstofan hefur átt gott samstarf við lengi. Verði niðurstaðan hinsvegar á þann veg að hin sýningin verði ofan á, væru vonir bundnar við að þeir aðil- ar, sem að henni standa, beindu við- skiptum sínum til skrifstofunnar enda væri hér um nánast allt hótelrými í Reykjavík að ræða. „Við erum auðvitað ekki í neinni aðstöðu til að taka afstöðu með ann- arri hvorri sýningunni. Það skiptir á hinn bóginn gríðarlega miklu máli að sjávarútvegssýning á borð við þá sem hér hefur verið haldin fái að halda áfram að dafna enda gefur slíkur stór- viðburður af sér gríðarlegan virðis- auka inn í íslenska ferðaþjónustu. Það má ekki glutra þessu niður vegna ein- hvers missættis," segir Úlfar. Sýningar ehf. er fyrir- tæki, sem stofnað var að frumkvæði Jóns Hákons Magnússonar, fram- kvæmdastjóra Kynningar og markaðar ehf., fyrr á þessu ári til að standa að ýmsu sýn- ingahaldi. Hlutafé nemur fimm milljón- um króna og er heimild til að auka það. 60% hlutur er ennþá á hendi KOM, 20% hjá Samtökum iðnaðarins og 20% hlutur er í eigu breska sjávar- útvegsblaðsins Fishing News Intern- ational, sem er ætlað að sjá um erlend samskipti og kynningar. Áð sögn Jóns Hákons er nú verið að skoða eignarað- ild nokkurra íslenskra fyrirtækja, sem telja mjög mikilvægt að vera hluti af Sýningum ehf. Misjafnir hagsmunir Ilagsmunir sýnenda eru á vissan hátt misjafnir og skipta má þeim í tvo hópa. Annars vegar eru stóru fyrir- tækin, sem taka þátt í mörgum erlend- um sýningum og hins vegar hin, sem nær eingöngu sýna heima fyrir. Fyrir þau stóru skiptir miklu máli að vera í samstarfi við einn aðila, sem skipu- leggur fleiri sýningar erlendis, sem fyrirtækin taka þátt í. Með því móti næst betra samstarf milli sýnenda og skipuleggjenda. Sýnendur sem halda tryggð við sömu sýningarnar ár eftir ár, eiga kost á betri kjörum en hinir og betri staðsetningu á sýningarsvæð- inu. Þannig viðist ljóst að stóru fyrir- tækin, sem sýna bæði erlendis og heima, hafi meiri hag að því að halda sig við Nexus Media, sem reglulega heldur sýningar á íslandi og erlendis. Það skiptir hina, sem síður eða ekki sækja sýningar erlendis, minna máli hvort um er að ræða sýningu einskorðaða við Island eða fjölþjóðlega sýningu. Fyrir þá skiptir mestu máli á hér á landi sé velskipulögð og vel- sótt sýning og kostnaður við hana sé sem minnstur. Geti tveir aðilar boðið upp á nokkurn veginn það sama, ræður þjóðernishyggjan eðlilega úr- slitum. Það virðist alveg ljóst að stjórn Samtaka iðnaðarins hefur verið full fljót að taka afstöðu án þess að ræða við stærstu fyrirtækin innan samtak- anna og jafnframt þau, sem mesta reynslu hafa af þátttöku í sýningum, bæði heima og erlendis. Hefði það verið gert í upphafi er ekki víst að staðan væri eins vandræðaleg fyrir alla aðila og nú. Lítið um samráð Töluverðrar óánægju hefur gætt innan Samtaka iðnaðarins vegna þeirrar ákvörðunar stjórnarinnar að gerast aðilar að Sýningum ehf. Geir A. Gunnlaugsson, forstjóri Marel hf. og stjórnarmaður í Samtökum iðnað- arins, hefur gagnrýnt þessa ákvörðun, en hann hefur sjálfur lýst yfir stuðn- ingi við íslensku sjávarútvegssýning- una ásamt Hampiðjunni og Sæplasti, sem ásamt Marel eru með stærstu fyrirtækjunum innan SI. „Við hjá Samtökum iðnaðarins höf- um verið að skoða okkar sýningamál og meðal annars gerðum við um það efni könnun meðal félagsmanna. Nið- urstaðan er sú að tími stóru blönduðu iðnsýninganna sé liðinn. Nú vilja menn stuttar og markvissar sérsýningar. Meðal annars af þessum sökum þótti stjórn Samtaka iðnaðarins tilvalið þegar eftir því var leitað að þau gengju til samstarfs um stofnun á íslensku fyrirtæki, sem hefði það að markmiði að standa fyrir sérhæfðum sýningum. Það er rétt að undirstrika að Sýningum ehf. er ekki eingöngu ætlað að standa fyrir sjávarútvegs- sýningu. Við erum t.d. mjög alvarlega að skoða möguleika á að halda hér hugbúnaðar- og tölvusýningu haustið 1998. Við teljum æskilegt að íslensk- ir aðilar séu ráðandi um slíkt sýninga- hald hér á landi enda er sýningahald af þessu tagi víðast hvar í heiminum á hendi heimamanna," segir Sveinn Hannesson, framkvæmdastjóri SI. „Samtök iðnaðarins hafa lagt tals- vert af mörkum við að aðstoða félags- menn sína við þátttöku í þeim sjávar- útvegssýningum, sem haldnar hafa verið hér á undanförnum árum. Það sýningahald hefur raunar gengið kaupum og sölum en er nú í eigu breska fyrirtækisins Nexus Media. Eftir því sem þessu sýningahaldi hef- ur vaxið fiskur um hrygg, hefur það að sama skapi fjarlægst okkur. Menn hafa kvartað yfir verðlagningu og því að lítið samráð sé haft við sýnendur. Úr þessu vildum við bæta og það er önnur meginforsendan fyrir aðild okk- ar að Sýningum ehf. Það má því segja að við höfum fengið tilboð, sem okkur leist betur á en áframhaldandi sam- starf við þá aðila, sem við höfum ver- ið að vinna með undanfarin ár,“ segir Sveinn. Afstaðan kom á óvart „Okkur þykir það hinsvegar leitt að ekki skuli ríkja einhugur um aðild- ina innan okkar raða. Því er hinsveg- ar til að svara að mál þetta var til umræðu á tveimur stjórnarfundum og í hvorugt skiptið var Geir A. Gunn- laugsson viðstaddur. Það má hinsveg- ar segja að afstaða hans síðar hafi komið okkur verulega á óvart. Mikill fjöldi fyrirtækja innan okk- ar raða hefur nú þegar pantað pláss á okkar sýn- ingu. Okkur þykir leitt að Marel skuli ekki vera í þeim hópi,“ segir Sveinn aðspurður um klofning í stjórninni vegna þessa máls. í miklu uppnámi „Þetta er orðið þvílíkt klúður allt saman að ég vil sem fæst orð hafa um þetta,“ segir Guðmundur Gunnars- son, sölustjóri hjá Hampiðjunni. „Það kom okkur hinsvegar afskaplega mikið á óvart þegar forsvarsmenn Islensku sjávarútvegssýningarinnar tilkynntu í sumar að sýningin yrði færð fram til haustsins 1998 án þess að samráð væri haft við sýnendur. Þessi ákvörðun setti allt úr jafnvægi hjá okkur enda hefur þetta verið sú sýning, sem við höfum lagt hvað mest í og við viljum hafa sýninguna á þriggja ára fresti. Sem slík hefur hún notið virðingar og gefist vel. Nexus Media gerði mistök með því að hafa ekki samband við sína viðskiptavini og gleymdi þar með fyrstu reglu markaðsfræðinnar. Þetta mál hefur verið í miklu uppnámi og í það verið sóað miklum tíma og pening- um. Eins og staðan er nú, myndi ég vilja að haldinn yrði fundur, þar sem bæði sýningafyrirtækin kynntu sig fyrir sýnendum, sem síðan myndu kjósa um það í leynilegri. kosningu hvor sýningin yrði valin,“ segir Guð- mundur. Borgaryfirvöld taki af skarið fyrir okkur „Við erum einfaldlega að vonast til þess að borgaryfirvöld taki af skarið fyrir okkur þannig að sýnendur verði ekki settir í þá aðstöðu að velja á milli fyrirtækjanna. í sjálfu sér treyst- um við báðum aðilum til þess að halda sýninguna þó sitt sýnist hveijum hvor kosturinn sé æskilegri," segir Reynir Guðjónsson, framkvæmdastjóri ísmar hf. og stjórnarmaður í Samtökum seljenda skipatækja sem í eru níu fyrirtæki. „Þegar það kom upp í sumar að stofnað var annað sýningafyrirtæki, tókum við í samtökunum þá ákvörðun að greiða atkvæði um það þann 26. nóvember nk. hvorri sýningunni við myndum fylgja og yrði minnihluti að lúta vilja meirihluta. Hinsvegar eru líkur á því að atkvæðagreiðslu þess- ari verði frestað þar sem sú staða er komin upp að bæði fyrirtækin eru að sækja um sama tíma og erum við því að vonast til að við þurfum ekki að standa í slíku vali, heldur verði það gert fyrir okkur, hvort sem það fellur í hlut stjórnar ÍTR eða ofar í kerfinu. Hinsvegar ef borgaryfirvöld taka ekki af skarið, gerum við það fyrr en seinna," segir Reynir og bætir við að persónulega sjái hann enga ástæðu til að breyta fyrirkomulagi sjávarút- vegssýningarinnar frá því sem verið hefur þar sem Bretarnir hafi hingað til staðið mjög fagmannlega að verki. Samstarf nánast útilokað eins og er Eins og staðan er nú, útilokar hvor- ugur sýningaaðilinn samstarf við hinn. Aftur á móti virðast forsendur samstarfs beggja aðila vera með þeim hætti að það sé nánast útilokað. John Legate, forstjóri íslensku sjávarút- vegssýningarinnar, og Jón Hákon Magnússon, skipuleggjandi FishTech '99, áttu saman fund þann 14. októ- ber sl. þar sem þeir skýrðu afstöðu fyrirtækja sinna hvor fyrir öðrum. John Legate segist ekki hafa hugs- að sér að láta nýjum aðila eftir að annast um sitt eigið afkvæmi, sem hann hafi persónulega leitt til vits og þroska með þeim afleiðingum að sýn- ingin væri nú orðin mjög virt sem slík. Óski hinn nýi keppinautur, sem að sögn fróðra manna er mjög flinkur í ráðstefnuhaldi, eftir samstarfi væri mjög eðlilegt að hann stæði t.d. að myndarlegri ráðstefnu við hlið sjávar- útvegssýningarinnar, sem yrði eftir sem áður haldin alfarið á vegum Nex- us Media. Jón Hákon Magnússon, skipuleggj- andi FishTech ’99, segir að nauðsyn- legt sé að íslensk sjávarútvegssýning sé í eigu íslendinga vegna íslenskra hagsmuna. Aftur á móti stæði ekkert í veginum fyrir því að er- lendir aðilar gætu komið inn til að aðstoða við skipu- lagningu sýningarinnar. „John Legate á allt gott skilið fyrir það sem hann hefur gert enda er þetta ekki spurning um menn, heldur um hagsmuni heildarinnar." Faglega að málum staðið Skipuleggjendur íslensku sjávar- útvegssýningarinnar hafa gefið það út að verð fyrir sýningarými verði óbreytt frá árinu 1996 í íslenskum krónum berist bókanir fyrir áramót eða 14 þúsund krónur fermetrinn án sýningarkerfis og 17.500 kr. fermetr- inn með sýningarkerfi, teppum og merkingum. Skipuleggjendur Fis- hTech ’99 hafa hinsvegar, skv. upp- lýsingum Morgunblaðsins, boðið 10% lægra verð en sem þessu nemur. AÐ BAR meira á norrænum ágreiningi í meginmálum eins og afstöðunni til Evr- ópusambandsins, ESB, og Efnahags- og myntbandalags Evrópu, EMU en eindrægni og samstöðu á þingi Norðurlandaráðs í Helsinki. Og það var einnig áberandi að það voru Evrópumálin, sem voru efst á baugi í almennum umræðum þingsins í gærmorgun, þegar forsætisráðherr- amir voru viðstaddir. Sama var seinni hluta dagsins, þegar varnar- og ör- yggismálin voru á dagskrá. Davíð Oddsson forsætisráðherra segir að ergelsi yfir að sjálfstæði land- anna hafí verið að skerðast undanfar- in ár móti umræðuna að hluta og engu líkara en að það virðist koma fólki á óvart. Halldór Ásgrímsson ut- anríkisráðherra segir eðlilegt að það séu Evrópumálin, sem setji mestan svip á umræðuna, þar sem þau skipti löndin svo miklu máli. Það gildir í Norðurlandaráði líkt og víðar að það er ESB, sem leggur línurnar þar. Paavo Lipponen forsæt- isráðherra Finna var einna afdráttar- lausastur þegar hann kvað Finna hafa valið hina evrópsku leið, þar sem þeir stefndu nú meðal annars á að vera með í Efnahags- og myntbandalagi Evróu, EMU, frá upphafi. Það örlaði einnig á þeirri togstreitu, sem er milli finnsku og sænsku stjórnarinnar vegna ólíkrar afstöðu þeirra til EMU- aðildar. Lipponen hafði á orði að Finnar hefðu ekki áhuga á að flytja út vanda sinn til annarra landa. og var það ótvíræð sneið til sænsku stjórnarinnar fyrir að ætla að standa utan EMU og geta því fræðilega séð NORRÆN samvinna verður stöð- ugt pólitískari og hin alþjóðlega vídd verður æ skýrari. Þetta benti Davíð Oddsson forsætisráðherra á í ræðu sinni á Norðurlandaráðs- þingi í Helsinki í gær. í ræðunni drap hann einnig á endurskipu- lagningu norrænnar samvinnu og hvernig hún væri nú farin að taka til nýrra sviða. Sem dæmi um breytingarnar nefndi Davíð ráðstefnu um örygg- ismál, sem Norðurlandaráð hélt í Helsinki í sumar, auk þriggja til- lagna um þessi mál, sem liggja fyr- ir þinginu. Það væri einnig nýlunda að sænska stjórnin hyggðist beita notað gengisfellingar áfram, sem Finnar óttast mjög vegna þess hve atvinnuvegir Iandanna tveggja keppa á svipuðum mörkuðum. Sundrungin undirstrikuð Carl Bildt, leiðtogi sænska Hægri- flokksins, Iagði áherslu á þá sundrung, sem nú ríkti meðal landanna varðandi ESB. í umræðunum harmaði hann hve lin tök stjóm sænskra jafnaðarmanna hefði á því máli, miðað við finnsku stjórnina. Umræðumar endurspegluðu því ekki aðeins skoðanamun landanna, heldur þær pólitísku umræður, sem uppi em í hveiju landi, eins og var mjög skýrt, þegar urðu skoðanaskipti í Danmörku um Amsterdamsáttmál- ann og komandi þjóðaratkvæða- greiðslu um hann. í viðtali við blaðamenn á eftir hnykkti Bildt á að þegar Svíþjóð og Finnland gengu í ESB hefði mikið verið rætt um að ESB-löndin þijú myndu geta starfað saman á vettvangi ESB og haft þannig meiri áhrif en hvert fyrir sig. Það hefði þó ekki orð- ið, því þó forsætisráðherrar landanna gerðu mikið úr því að þeir hefðu í Amsterdam-sáttmálanum náð að koma norrænum málum á blað eins og at- vinnusköpun, umhverfismálum, neyt- endavernd og þetta væri góðra gjalda vert, hefðu löndin þó ekki áhrif á kjamamál eins og EMU, því þar skildi leiðir. En það var einnig afstaðan til stækkunar ESB, sem dró skýrar markalínur milli landanna. Lipponen varði afstöðu fínnsku stjómarinnar um að styðja tillögu framkvæmdastjómar ESB í þá átt að aðeins fímm lönd sér fyrir átaki í atvinnusköpun, þegar hún fer með formennsku í Norðurlandasamstarfinu á næsta ári. Samstarf við grannsvæðin er orðið eitt af kjarnasviðum nor- rænnar samvinnu og lið í því sagði Davíð vera opnun upplýsingaskrif- stofu í Pétursborg og stuðning við atvinnulif grannsvæðanna, þar sem íslensk fyrirtæki væru þegar komin á vettvang. Davíð nefndi einnig ákvörðun leiðtogafundar NATO í Madríd í sumar og aðild Eystrasaltsríkjanna að ESB, sem hvort tveggja væri mikilvægur Iiður i öryggi, stöðug- geti hafíð aðildarviðræður, meðan sænska og danska stjómin hamra enn á að reynt verði að koma öllum um- sóknarlöndunum að í einu. Geir H. Haarde þingmaður hafði framsögu síðdegis i gær fyrir tiilögu forsætisnefndar ráðsins í öryggismál- um, sem er studd af fulltrúum íhalds- manna, jafnaðarmanna og miðju- manna í ráðinu, svo sósíalistar em þeir einu, sem eru á móti. Það segir nokkuð um hinn pólitíska vemleika á Norðurlöndum að þessir þrír flokka- hópar skuli geta sameinast um ályktun í þessum efnum. Endurskipulagning Norðurlandaráðs skilar sér Davíð Oddsson forsætisráðherra sagðist í viðtali við Morgunblaðið bæri- lega ánægður með umræður á þing- inu. Ef ekki hefðu komið til þær breyt- ingar, sem gerðar hafa verið, væri samstarfið vísast enn brotakenndara en raun bæri vitni og engin ástæða til að láta sér þykja lítið til þess koma. Þetta væri mikilvægur vettvangur^. til að ræða norræn mál og aldrei stað- ið til að þaðan væri rekið alþjóðlegt samstarf. Það væri heldur ekkert nýtt að löndin væm ekki sammála, saman- ber hvemig þau hefðu tengst NATO þegar það var stofnað. Áður hefði hins vegar ekki mátt tala um skoðanamun á þessu sviði. Halldór Ásgrímsson utanríkisráð- herra sagði í viðtali við Morgunblaðið að eðlilegt væri að á þinginu væm rædd þau mál, sem skiptu löndin mestu máli og því væri umræðan um Evrópu- málin skiljanleg, en einnig umræða um stækkun ESB og NATO. leika og vexti þessara svæða. Það hvernig tekið yrði á aðildarum- sóknum þessara landa væri grund- vallaratriði varðandi mótun breyttrar Evrópu. Forsætisráð- herra nefndi einnig hve alþjóðlegt samstarf væri litlum löndum mikil- vægt og nefndi mikilvægt framlag ,s Sameinuðu þjóðanna á því sviði. Því hefðu allir norrænu forsætis- ráðherrarnir lýst yfir stuðningi sín- um við umbótaviðleitni Kofi Ann- ans framkvæmdastjóra SÞ. Sam- einuðu þjóðirnar skorti ekki verk- efni og því skipti miklu máli að bæta og breyta skipulagningu og vinnulag samtakanna. Engin ástæða til að breyta til íslenskir hagsmunir skipta miklu vik, forsætisráðherra, Noregs á þingi Norðurlandaráðs. Davíð Oddsson á þingi Norðurlandaráðs Norræn samvinna pólitískari Helsinki. Morgrmblaðið.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.