Morgunblaðið - 12.11.1997, Side 32

Morgunblaðið - 12.11.1997, Side 32
32 MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR NÝLEGA birti um- boðsmaður barna skýrsluna Heggur sá er hlífa skyldi, skýrslu um kynferðisbrot gegn börnum og ungmenn- «n og tillögur um úr- bætur á réttarstöðu ís- lenskra barna sem beitt eru kynferðisofbeldi. í þessari ítarlegu skýrslu er að finna lög- fræðilegan samanburð á ákvæðum ísienskra hegningarlaga um kyn- ferðisbrot gegn börn- um, meðferð og fram- kvæmd slíkra mála hjá lögreglu og dómstólum við réttarstöðu barna í þessum málaflokki á hinum Norður- löndunum. Niðurstöður skýrslunnar eru að brýn þörf sé á að breyta nokkrum ákvæðum almennra hegn- —íngarlaga, laga um meðferð opin- berra mála, skaðabótalaga og laga um greiðslu ríkissjóðs á bótum til þolenda afbrota eigi íslensk börn að búa við svipað réttaröryggi og önnur börn á Norðurlöndum. Ég tel að allar breytingatillögur umboðsmanns barna á ofangreind- um lögum séu til mikilla bóta og tryggi betur réttarstöðu barna sem beitt eru kynferðisofbeldi en núgild- andi löggjöf gerir. Ég vil í þessu greinarkorni gera nokkrar af breyt- ingatillögunum að umræðuefni og vekja á þeim sérstaka athygli. I skýrslu umboðsmanns er gerð tillaga um eins árs lámarksrefsingu við kynferðisbrotum gegn börnum almennt. Þessi tillaga er afar mikils virði einkum í ljósi þess að mjög margir dómar í kynferðisbrotamál- um gegn börnum hafa verið afar vægir, eða nokkurra mánaða fang- elsi. Þessir vægu kynferðisbrota- dómar hafa sært réttarvitund al- mennings og þeir taka ekki mið af þeim mikla andlega skaða sem barn sem beitt er kynferðisofbeldi verður fyrir við slíkan verknað. Auk þess er eðliiegt að samræmi sé í ákvæðum hegningarlaga hvað lágmarksrefs- ingu snertir milli mis- munandi forms kyn- ferðisofbeldis, en sé kynferðisofbeldi kært sem nauðgun kveða hegningarlög á um eins árs lágmarksrefsingu. Að mínu mati mætti tillaga umboðsmanns í þessu efni ganga lengra, þ.e. að hún tæki líka til kynferðisbrota gegn eigin börnum eða öðrum niðjum, hvort heldur um blóðtengsl eða fósturbarn, kjör- bam, stjúpbam, sam- búðarbarn eða barn sem aðila hefur verið trúað fyrir til kennslu eða uppeldis er að ræða. Þá tel ég afar mikilsverða tiliögu umboðsmanns um að kynferðisbrot gegn börnum fymist ekki. Það kemur mörgum á óvart í þessum málum þegar þeir uppgötva að þessi brota- mál fyrnast á nokkmm árum eða lengst 10 árum. Það er sjaldnast Ég vil í þessu greinar- korni, segir Guðrún Jónsdóttir, gera nokkr- ar af breytingatillögun- um að umræðuefni og vekja á þeim sérstaka athygli. þannig að börn segi frá séu þau beitt kynferðisofbeldi. Kynferðisofbeldið verður oft best geymda leyndarmálið árum saman eða þar til afleiðingar þess em orðnar nánast óbærilegar fyrir brotaþolann og vilji hann þá kæra álið getur hann ekki einu sinni komið fram kæm vegna þess að málið er fyrnt. Breyting á fyrningará- kvæðum hegningarlaga hvað þetta snertir er því mikið réttlætismál. í skýrslu umboðsmanns barna er einnig að finna mikilsverðar tillögur um breytingar á málsmeðferð kyn- ferðisbrotamála í réttarkerfinu þeg- ar börn eiga hlut að máli. Megintil- lagan felst í því að rannsókn slíkra mála fari fram undir stjórn dómara. Markmiðið með slíkri breytingu á málsmeðferð er að barn þurfí ekki að koma fyrir dóm við aðalmeðferð máls. Þegar kynferðisbrotamál em kærð skapar það að sjálfsögðu mik- ið tilfmningalegt álag fyrir barnið, sem er í raun aðalvitni ákæruvalds- ins. Ofangreindar breytingar, verði þær að veruleika, eru viðurkenning réttarkerfisins á sérstöðu barna í þessum málum og tilraun til að draga úr tilfinningalegu álagi þeirra. í tillögum umboðsmanns varðandi breytingar á málsmeðferð kynferðis- brotamála í réttarkerfinu er einnig að finna mikilsverða tillögu um að börn eigi að eiga rétt á að fá aðstoð lögmanns, sér og aðstandendum að kostnaðarlausu, til að gæta hags- muna sinna strax á rannsóknarstigi. Hér er_ um mikilsverða tillögu að ræða. Óhætt er að fullyrða að það er almenn reynsla brotaþola í kyn- ferðisbrotamálum að það að standa einn og óstuddur frammi fyrir réttar- kerfinu, sem flestum brotaþolum er afar framandi, er meiriháttar raun. Hægt á að vera að komast hjá eða draga mjög úr þessu með því að hafa sér við hlið lögfræðing sem gæti hagsmuna brotaþola, t.d. varð- andi miskabætur, og fylgist með gangi málsins í kerfinu og útskýri hvernig mál ganga þar fyrir sig. Loks er að finna í skýrslu umboðs- manns ábendingar til ráðherra fé- lagsmála um að hvergi nærri sé tryggt að börn sem beitt hafa verið kynferðisofbeldi fái viðeigandi að- stoð og stuðning við að vinna úr til- finningalegum afleiðingum ofbeldis- ins, þó réttur þeirra til slíkrar aðstoð- ar sé ótvíræður samkvæmt barna- verndarlögum og barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Nú hafa dómsmála- og félags- málaráðherra haft þessa umræddu skýrslu umboðsmanns barna til um- fjöllunar í nokkrar vikur. Ég skora á þessa ágætu ráðherra að láta nú hendur standa fram úr ermum í þessum málum og tryggja að laga- frumvörp, sem byggi á tillögum umboðsmanns barna, sjái dagsins ljós hið fyrsta og að tryggt verði að barnaverndarnefndir um land allt geti sinnt sínu hlutverki í kynferðis- brotamálum gegn börnum þannig að viðunandi verði. Höfundur er doktor í félagsráðgjöf og starfar á Stígamótum. Kynferðisof- beldi og réttar- staða barna Guðrún Jónsdóttir Vangaveltur um stöðu innflytj- enda og flóttafólks á Islandi DAGURINN í dag, 12. nóvember, hefur verið valinn af félags- ráðgjöfum í Evrópu til að draga athygli al- mennings að málefn- um sem snerta félags- lega útilokun ákveð- inna hópa, svokallaðra minnihlutahópa. -•Vinna félagsráðgjafa beinist oft að ýmiskon- ar minnihlutahópum, og er þá hlutverk fé- lagsráðgjafans að gæta réttar skjólstæð- inga sinna, veita þeim ráðgjöf og leiðbeina í gegnum frumskóga kerfisins. Sú sem þetta ritar er félagsráð- gjafi að mennt og starfar sem for- stöðumaður Upplýsinga- og menn- ingarmiðstöðvar nýbúa sem rekin »er af Reykjavíkurborg, nánar til- tekið íþrótta- og tómstundaráði Reykjavíkur. Tilgangur skrifa minna er sá, að vekja athygli al- mennings á þeim minnihlutahópi sem Miðstöð nýbúa þjónar en það eru innflytjendur og flóttafólk á íslandi og fjölskyldur þeirra. Á undanförnum árum hefur innflytjendum og flóttafólki fjölgað á íslandi. Einstaklingar frá löndum í Norður- Evrópu og frá Norð- ur-Ameríku hafa í gegnum árin sest að hér á landi. Uppruni þessa fólks er í meg- indráttum ekki svo ólíkur okkar eigin og tungumál þeirra er í flestum tilvikum af germönskum upp- runa. Þessir einstakl- ingar hafa margir orðið virkir þátttak- endur í íslensku sam- félagi án sérstakra vandkvæða. í lok áttunda áratugarins og á níunda áratugnum sérstaklega hefur nokkur breyting orðið á sam- setningu hóps innflytjenda og flóttamanna hér á landi. ísland hefur tekið á móti nokkrum hópum flóttamanna frá Víetnam á þessum tíma og íslenskt atvinnulíf hefur tímabundið sóst eftir erlendu vinnuafli. Einnig hefur það aukist að íslendingar hafa gifst einstakl- ingum sem koma frá framandi menningarsvæðum eins og t.d. Laugardaginn 15. nóvember verður opið hús í Háskólabíói, segir Kristín Njálsdóttir, þar sem kynnt verður margbreytilegt starf félagsráðgjafa. Filipseyjum og Tælandi. Þó að ekki sé hér um að ræða stóra hópa, hafa þeir óneitanlega sett svip sinn á samfélagið og auðgað það á margvíslegan hátt. En það hafa einnig komið upp ýmis vandamál sem einkum má rekja til þess að ólíkir menningar- heimar mætast. Margir einstakl- ingar koma frá mismunandi mál- svæðum í Afríku, Austur-Evrópu og Asíu. Allir hafa þeir verið hluti af menningarlegri heild í sínu hei- malandi sem skilur þá og viður- kennir. Þar ríkir t.d. annað verð- mætamat, önnur trúarbrögð, aðrir siðir, látbragð og merkjamál er öðruvísi og síðast en ekki síst tungumálið, aðal tjáningarform mannsins. Allt þetta og meira til Kristín Njálsdóttir Lífslíkur stjúp- fj ölskyldunnar ÞEGAR stjúpforeldri kemur inn í fjölskylduna og börnin taka því ekki vel er oftast litið svo á að um byijunarörðugleika sé að ræða, en vandinn hleður oft upp á sig í stað þess að lagast. Fjölskyldur einstæðra foreldra eru í flestum tilvikum tímabundið fjölskylduform. Bandarískar rann- sóknir sýna að um 70-75% fráskil- inna giftast aftur eða fara í sam- búð. Um 60% þeirra eru með börn úr fyrri sambúð. Þegar foreldri fer í sambúð að nýju verður til stjúp- fjölskylda. Einnig sýna bandarísk- ar rannsóknir að skilnaðir í stjúp- fjölskyldum eru algengari en í fyrsta hjónabandi, einkum á tveimur fyrstu árunum. Um 60% þeirra sem giftast aftur skilja og helmingur þeirra innan sex ára. Par sem stofnar stjúpfjölskyldu gerir það venjulega með bjartsýni og góðum vilja. Fljótlega koma þó Stjúpfjölskyldan þarfnast skilnings og viðurkenningar, segja þær Eydís Dóra Sverr- isdóttir, María Gunn- arsdóttir og Valgerð- ur Halldórsdóttir, svo hún megi dafna og þroskast. oft upp óvænt vandamál sökum þekkingarleysis á eðli stjúpfjöl- skyldunnar og óraunhæfra vænt- inga. Nýleg íslensk rannsókn á högum skilnaðarbarna sýnir að foreldri sem fer með forræði barns hindrar í mörgum tilvikum eðlileg samskipti þess við hitt kynforeldr- ið. Um leið og skortir á eðlileg tengsl við það foreldri sem ekki hefur forræðið eru settar óraun- hæfar kröfur um tengsl milli stjúp- foreldris og stjúpbarns. Gert er ráð fyrir að stjúpforeldrið elski stjúp- barn sitt sem sitt eigið en á sama tíma hefur það í mörgum tilfellum lítið um hagi barnsins að segja. er ríkur þáttur í vitund manneskj- unnar og það er eðlilegt að fólk komi til með að reyna eftir bestu getu að varðveita það. Það er með öllu óraunhæft að ætlast til þess að þessir nýju íbúar á íslandi kasti frá sér sínum verðmætum og menningararfi og aðlagist gagn- rýnislaust því lífi sem Islendingar hafa þróað með sér. Þá er einnig vert að hafa í huga að sumir af okkar nýju þjóðfélagsþegnum er fólk sem kemur frá stríðshijáðum löndum og hafa margir hveijir, fullorðnir og börn, upplifað hörm- ungar því tengdu. Islenskt þjóðfélag hefur á marg- an hátt ekki verið undir það búið að taka á þeim mörgu verkefnum sem hafa skapast vegna þróunar síðustu ára. Engin stefna hefur verið mörkuð um það á hvern hátt allir, óháð uppruna, eiga að geta tekið virkan þátt í samfélaginu. Vegna þessa er orðið mikilvægt að stuðla að aukinni umræðu um stöðu innflytjenda og flóttamanna á íslandi því nauðsynlegt er að laga ýmislegt í íslensku samfélagi að breyttum aðstæðum. í lokin vil ég vekja athygli á því að laugardaginn 15. nóvember, verður opið hús í Háskólabíói frá kl. 14:00-16:00. Þar gefst gestum og gangandi tækifæri á því að kynna sér margbreytilegt starf félagsráðgjafa. Höfundur er félagsrá ðgjufi og forstöðumaður Miðstöðvar nýbúa. Jafnframt er búist við að Stjúpbörn hlýði stjúpforeldrum sínum áður en tilfinningatengsl ná að mynd- ast. Hlutverk stjúpforeldra eru fremur óljós og stjúpbörn vita oft ekki hvers má vænta af stjúpfor- eldri sínu. Hegðun barna verður því stundum sérkennileg meðan þau eru að prófa sig áfram og skapar það tíðan samskiptavanda innan fjölskyldunnar. Milli þessara aðila fjölskyldunnar myndast þannig oft vítahringur sem líf- fræðilegt foreldri barns dregst óhjákvæmilega inn í og lendir milli steins og sleggju. Þessi vítahring- ur er algengur í stjúpfjölskyldum og er stundum erfitt fyrir fjöl- skylduna að finna leið út úr hon- um. Mörgum nýtist vel að lesa sér til, aðrir kjósa aðstoð hjá félags- ráðgjafa eða sækja námskeið. Stjúpfjölskyldur langar að vera „venjuleg fjölskylda" Áætlað er að 85% þeirra sem eru í stjúpfjölskyldu skilgreini fjöl- skyldu sína ekki sem slíka og þau vandamál sem tengjast fjölskyldu- gerðinni eru oft á tíðum túlkuð sem hjónabandsörðugleikar, ungl- ingavandamál eða óþekkt í börn- um. Skýringin er ef til vill sú að fyrirmyndir vantar fyrir stjúpfjöl- skylduna og þær hugmyndir eru við lýði að kjarnafjölskyldur og stjúpfjölskyldur séu mjög svipað- ar. Stjúpfjölskyldan reynir því stundum að taka upp hlutverk og þróa tengsl eins og ríkja innan kjarnafjölskyldunnar. Er það einn meginvandi hennar og brýnt að fólk viðurkenni að það sé eðlilegt að tengsl og hlutverk innan stjúp- fjölskyldu séu öðruvísi, vandasam- ari og oft viðkvæmari en í kjarna- fjölskyldu. Verkefni stjúpfjölskyldunnar eru fjölþættari og venjulega flókn- ari en kjarnafjölskyldunnar, og í því felst bæði styrkur hennar og veikleiki. Best er að gera sér strax grein fyrir því að hún verði að mörgu leyti ólík kjarnafjölskyld- unni. En með raunhæfar vænting- ar og markmið að leiðarljósi á nýja fjölskyldan alla möguleika á velgengni. Fólk sem hyggst stofna stjúpfjölskyldu þarf að vera reiðu- búið að vinna ötullega að þvl að henni farnist vel. Upp geta komið vandamál sem hún getur þurft aðstoðar við að leysa. Félagsráð- gjafar vinna m.a. með stjúpfjöl- skyldum. í þeirri vinnu hafa þeir heildarsýn að leiðarljósi og horfa á einstaklingana í aðstæðum sín- um, þar sem aðstæðurnar skapa vandann fremur en einstakling- arnir. Stjúpfjölskyldan á alla möguleika á velgengni Stjúpfjölskyldan þarfnast skilnings, viðurkenningar og já- kvæðs stuðnings þannig að henni sé skapað vænlegt umhverfi til að dafna og þroskast. Hún þarf að eiga kost á fjölskylduráðgjöf, fræðslu og aðstoð við að líta á viðfangsefni sín á raunhæfan og jákvæðan hátt. Þannig styrkist líka staða hennar í samfélaginu. Fjölskyldan getur þurft aðstoð við að þróa ástrík og trygg tengsl. Þannig má styrkja parasamband- ið og um leið skapa umhyggju- samt andrúmsloft fyrir börnin svo þau geti myndað óþvinguð tengsl bæði við líffræðilega foreldra sína ogstjúpforeldra. I tilefni af degi félagsráðgjafa í Evrópu verður opið hús á vegum stéttarfélags íslenskra félagsráð- gjafa og námsbraut í félagsráðgjöf við HÍ 15. nóv. nk. í Háskólabíói kl. 14-16. Höfundar eru nemendurá 4. ári ífélagsráðgjöf við Háskóla íslands.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.