Morgunblaðið - 12.11.1997, Síða 33

Morgunblaðið - 12.11.1997, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 1997 -L AÐSEIMDAR GREIIMAR Rangfærslur og bókhaldsblekkingar FYRIR nokkru var tilkynnt um raforku- sölusamning Lands- virkjunar til álvers á Grundartanga. Þessi samningur var sagður mundu gefa Lands- virkjun 1 milljarð króna í ágóða á samn- ingstímabilinu. Það er ekki mikill ágóði miðað við t.d. að Landsvirkj- un hefur þegar eytt hálfum öðrum milljarði í undirbúning að álveri á Keilisnesi sem ekkert hefur orðið _úr. Skipt milli allra íslendinga nægir hinn árlegi ágóði af þessum samningi aðeins fyrir ein- um strætómiða handa hveijum. En það er reyndar ekkert að marka þessar uppjýsingar. Það verður enginn ágóði. íslenskir skatt- greiðendur og raforkunotendur verða látnir greiða rafmagnið handa álverinu eins og hingað til því fram- leiðslukostnaður Landsvirkjunar á rafmagni er helmingi hærri en sölu- verðið til álversins. Taflan sýnir niðurstöðutölur Landsvirkjunar síðustu 6 árin. Af- skriftir eru hér eins og í ársskýrsl- unum innifaldar í rekstrarkostnaði og íjárfesting miðast við afskrifaðar eignir Landsvirlq'unar. Nýjar virkjanir eru um 80% dýrari þ.e. um 25 krónur á kílówatt- stund/ári miðað við að raforkuframleiðsla Landsvirkjunar sé nú heil Blönduvirkjun um- fram raforkusölu. í töflunni er miðað við 5% vexti og arðsemis- kröfu. Minna getur það nú alls ekki verið. Það má vera að það sé dýrara að framleiða rafmagn fyrir almenn- ingsveiturnar en stór- iðjuna vegna styttri nýtingartíma en það er alls ekki sá 40% munur sem Lands- virkjun staðhæfír enda virðist hún reikna þar með alls engri vatnsmiðl- un og að stóriðjan nýti nýjustu virkj- unina að fullu en almenningur að- eins að hálfu leyti. Sú staðreynd að Blönduvirkjun hefur staðið alveg ónýtt alian tímann sem hún var nýjasta virkjunin sýnir best hversu fráleit sú seinni forsenda er. Séu miðlunarlónin nægilega stór ætti vatnsrennslið eitt að takmarka ork- una og framleiðslukostnaður að vera svipaður til stóriðju og almennings. 20% munur væri því nær sanni, eða minni. Kostnaður til stóriðjunnar Landsvirkjun hefur aldrei greitt eiganda auðlindarinnar krónu fyrir hana, segir Einar Júlíusson í þessari síð- ari grein af tveimur, en valdið honum ómældum skaða í náttúruspjöllum. væri þá 10% minni en meðalkostn- aðurinn sem taflan sýnir og til al- menningsveitnanna að sama skapi 10% hærri. Taflan sýnir raunverulegan fram- leiðslukostnað eins og hann er eða hefur verið á undanförnum árum og ijóst er að Landsvirkjun hefur alltaf selt stóriðjunni rafmagnið á minna en hálfvirði en almenningur borgað brúsann. Meðalkostnaðar- verð er rúmar 2 krónur (um 2.50 og 2.05 eftir því hvort framleitt er fyrir almenningsveitur eða stóriðju) og rafmagnið sem allur almenning- ur kaupir á yfir 8 krónur fær stóriðj- an á innan við eina krónu eða 40% af meðalkostnaðarverði! Taflan sýn- ir samt að Landsvirkjun hefur ekki Einar Júlíusson Ár 1991 1992 1993 1994 1995 1996 V erðbreytingarstuðull 1.156 1.132 1.115 1.095 1.061 1.000 Raforkusala (Gwh) 3904 4015 4188 4257 4449 4550 Rekstrarkostnaður. (Mkr) 5124 5155 5678 5812 5614 5358 Eignir (Gkr) 81.3 83.9 90.6 86.4 81.2 77.1 ‘ Piárfesting (kr/kWh) 20.8 20.9 21.6 20.3 18.3 17.0 Rekstur á kWh (kr/kWh) 1.31 1.28 1.36 1.37 1.26 1.18 Pjármagnskostn. (kr/kWh) 1.04 1.04 1.08 1.01 0.91 0.85 Heildarkostn. (kr/kWh) 2.35 2.32 2.44 2.38 2.17 2.03 Verð til veitna (kr/kWh) 2.60 2.63 2.72 2.80 2.62 2.51 - til stóriðju (kr/kWh) . 0.91 0.82 0.82 0.89 1.12 0.99 selt almenningsveitunum rafmagnið neitt hátt yfír kostnaðarverði, þ.e. ekki síðan verðið til þeirra lækkaði fyrir rúmum áratug. Það er því Landsvirkjun sjálf sem mest hefur greitt með stóriðjurafmagninu á þessum tíma og miðað við 6% vexti hefur núvirt eigið fé hennar minnk- að um heila 40 milljarða síðan 1984. Til að rétta við reksturinn og bæta það tap upp þyrfti Landsvirkjun næstum að tvöfalda strax og um aila framtíð verðið til almennings- veitnanna. Segja má að Landsvirkj- unin hafi gefið stóriðjunni 40 millj- arða króna á þessum 13 árum og einhveija milljarða hafa almennir rafmagnsnotendur og skattgreið- endur gefið til viðbótar. Það eru takmörk fyrir því hvað Landsvirkjun getur gefið svo nú verður Hitaveitan að virkja fyrir Grundartanga og rætt er um í fúlustu alvöru að Norsk Hydro verði gefinn rétturinn til að virkja árnar á Austurlandi. Austfirð- ingar fengju í staðinn afnot af jarð- göngunum sem þyrfti þá að gera þar, fyrir utan þau forréttindi að fá að vinna á vinnustað sem er „óvinn- andi í sökum hita, loftmengunar og óþrifnaðar" eins og segir um nýja Straumsvíkurálverið í kvörtun verkamannafélagsins Hlífar til vinnueftirlitsins. Aldrei hefur Landsvirkjun greitt eiganda auðlindarinnar krónu fyrir hana en valdið honum miklum skaða með náttúruspjöllum og sjónmengst un, útrýmt stærsta og merkasta urriðastofninum og heimtað að nátt- úruperlur eins og Þjórsárver og Eyjabakkar, aðalheimkynni heiðar- gæsarinnar í heiminum, verði sökkt undir vatn. Aðeins hatrömm barátta erlendra náttúruunnenda gat bjarg- að því sem bjargað varð af Þjórsár- verum og óvíst er enn hvort ein- hveiju verður bjargað af Eyjabökk- um. Samningar Landsvirkjunar hljóta að teljast svik, ekki aðeins við hinn almenna rafmagnsnotanda heldur líka við umhverfið og aðrar þjóðir. Þótt þær reyndu ekki að þvinga umhverfísspellvirkjana með olíu,- hafnbanni til að standa við samningU ana sem þeir skrifuðu undir í Ríó er ljóst að strætómiðinn frá Grund- artanga verður dýru verði keyptur. Höfundur er eðlisfræðingur. Á SÍÐUSTU miss- erum hefur samkeppn- isaðstaða sendibíl- stjóra breyst mikið til hins verra fyrir stétt- ina. Ein af ástæðum fyrir þessu er sú að ríkisvaldið hefur ekki samið reglugerð með núgildandi lögum og því má segja að hálf- gert stjómleysi ríki í greininni. Sífellt fleiri bílstjórar stunda það sem við köllum „sjó- ræningj astarfsemi“ en þá bjóða þeir þjónustu sína án þess að hafa til þess tilskilin leyfi. Ef þessi þróun heldur áfram óáreitt mun fátt geta komið í veg fyrir að sendibílstjórastéttin líði undir lok eins og hún er í dag og eftir verði óskipulagðir hópar sem fara hvorki að lögum né reglum. Af hverju að panta sendibíl af stöð? í mars 1995 tóku gildi ný lög um leigubifreiðar. Þau kveða.á um að þar sem viðurkenndar bifreiða- stöðvar eru starfandi er öllum sem aka utan þessara stöðva bannað að taka að sér eða stunda leigu- akstur á viðkomandi sviði. Sendi- bifreiðastöðvum eru lagðar þær skyldur á herðar að fylgjast með því að ökumenn, sem þar hafa afgreiðslu, fari eftir fyrirmælum laga og reglugerða. í því felst að ökumenn þeirra hafi óflekkað mannorð, fullnægjandi heilbrigðis- vottorð og fjárhagsstöðu. Auk þess eiga þær, í samráði við félög sendi- bifreiðastjóra, að skipuleggja starfsemi sína með þeim hætti að almenningi sé veitt góð og örugg þjónusta. í lögunum er kveðið á um að samgönguráðherra myndi setja reglugerð um framkvæmd laganna en hún hefur enn ekki lit- ið dagsins ljós. Sendibifreiðastöðvamar sinna þessari skyldu sinni af samviskusemi að því ég best veit. Vanda- málið er að þar sem reglugerðin hefur ekki enn tekið gildi er ekki hægt að taka á þeim aðilum sem keyra sendibifreiðar án þess að vera á stöð. Þessir „sjóræningjar" sendi- bílstjórastéttarinnar keyra vörur fyrir gjald án þess að vera eig- endur, seljendur eða kaupendur hennar og eru þar með fyrir utan lög og rétt. Enginn fylgist með því að „sjó- ræningjarnir“ hafi óflekkað mann- orð eða fullnægjandi fjárhagsstöðu þar sem þeir eru ólöglegir. Ef við- Félag sendibifreiða- stjóra er orðið lang- þreytt, segir Eyrún Ingadóttir, á seina- gangi í reglugerðar- smíð í samgöngu- ráðuneytinu. skiptavinur er ósáttur við þjónustu þeirra eru engar leiðir færar til fá Íeiðréttingu sinna mála. Ef við- skiptavinur er hins vegar ósáttur við sendibílstjóra á stöð þá getur hann kvartað þangað. Stöðvarnar reyna eftir fremsta megni að leysa slík vandamál og eru með siða- nefndir sem taka málin fyrir. Trausta, félagi sendibifreiðastjóra, berast öðru hvoru kvartanir frá óánægðum viðskiptavinum en flestar þeirra eru vegna „sjóræn- ingja“ og því lítið hægt að gera. Það er ástæða til að vara almenn- ing við að nýta sér þjónustu „sjó- ræningja“ því þetta eru oft aðilar sem hafa ekki samlagast reglum sendibifreiðastöðva eða ekki kom- ist þar að vegna þeirra skilyrða sem lög kveða á um og fyrr er getið. Af fleiri sjóræningjum „Sjóræningjar“ eru ekki ein- göngu einstaklingar sem eru fyrir utan lög og rétt. Trausta hafa ítrek- að borist kvartanir um að stórfyrir- tæki í Reykjavík reki ólöglega sendibifreiðastöð. Fyrirtækið er með a.m.k. tvær eigin sendibifreið- ar í þessari starfsemi auk þess sem nokkrir „sjóræningjar“ starfa hjá þeim. Fyrirtækið er búið að opna vöruhótel og býður nú öðrum fyrir- tækjum upp á vörudreifingu. Þar sem þetta fyrirtæki er hvorki eig- andi, seljandi né kaupandi vörunnar sem flutt er gegn gjaldi flokkast þessi flutningur undir leiguakstur sendibifreiða. Þetta er því klárlega lögbrot sem sendibflstjórar standa berskjaldaðir gagnvart. Aðgerða er þörf Sjálfsagt velta lesendur því fyrir sér hvernig standi á því að málum sé svo háttað í sendibílstjórastétt- inni í dag. Sem fyrr segir er ástæð- an m.a. sú að reglugerð með lögun- um frá 1995 hefur enn ekki litið dagsins ljós. Vegna þessa hafa „sjóræningjar" getað stundað sín ólöglegu viðskipti óáreittir þar sem engin kæruleið hefur verið fær. Þar sem málum er svo háttað ákvað félag sendibifreiðastjóra að kvarta yfir „sjóræningjum“ til samgönguráðuneytisins. Við von- umst til þess að tekið verði með festu á málinu þar. Á meðan þetta ástand ríkir er ekkert yfirvald sem fylgist með því hvort menn eru í löglegum rekstri. Félag sendibifreiðastjóra er orðið langþreytt á seinagangi í reglu- gerðarsmíð í samgönguráðuneyt- inu. Við erum búin að bíða hátt á þriðja ár eftir reglugerð og er nú sagt að bíða enn um sinn þar sem breyta eigi lögunum frá 1995. Það segir sig sjálft að það er erfitt fyrir heila stétt manna að bíða eftir því að lög og reglur gildi um starfsemi þeirra. Höfundur er framkvæmdasijóri Trausta, félags sendibifreiðastjóra. Sendibílstjórar á tímamótum Eyrún Ingadóttir Umrétt launafólks FIMMTUDAGINN 6. nóvember birtist í Morgunblaðinu grein eftir Guðbjörn Jónsson, starfsmann Félags starfsfólks í veitinga- húsum. Þar fer hann mikinn og fjallar um réttleysi launafólks á vinnumarkaði og tiltek- ur sérstaklega veit- inga- og skemmtistaði. Ekki hef ég hug á því að skattyrðast við Guðbjörn Jónsson á síð- um dagblaðanna, en get þó ekki látið hjá líða að koma nokkrum athuga- semdum á framfæri. Ekki veit ég hvernig Guðbirni dettur í hug að tala um réttleysi. Bæði starfsfólk og vinnuveitendur þeirra eiga réttindi og hafa skyldur skv. kjarasamningum svo og ráðn- Þorri veitingastaða er rekinn af fagmennsku, segir Erna Hauksdótt- ir, en tekur undir að- fínnslur um „slælega framgöngu þeirra sem sinna leyfísveitingum“. ingarsamningum sem aðilum er skylt að gera þegar ráðning á sér stað. Brýnt er að verkalýðsfélögin komi þeim boðum til starfsfólks. Ég kannast ekki við þessar lýsing- ar Guðbjöms hjá félagsmönnum Sambands veitinga- og gistihúsa (SVG), enda gerir SVG kjarasamn- inga við verkalýðsfélögin og era fé- lagsmenn SVG vel upplýstir um bæði ákvæði kjarasamninga svo og lög og reglugerðir sem um þennan rekstur gilda. Allur þorri félags- manna sækir námskeið og fræðslu- fundi um kjaramál auk þess sem mikið er leitað ráðgjafar bæði hjá okkur og lögfræðingum okkar hjá Vinnuveitendasam- bandi íslands. Utanfé- lagsmenn njóta ekki þessarar þjónustu og má vera að einhveijir þeirra séu fákunnandi um kjarasamninga og aðrar reglur sem gilda um samskipti á vinnu- markaði. Það sem hrell- ir mig mest við þessa grein er að Guðbjöm dæmir þama heila at- vinnugrein vegnlf meintra brota einhverra fyrirtækja sem ekki era tiltekin. Veitingamenn eru að vísu vanir illu umtali, en Iengi má manninn reyna. Það era hundrað veitingastaða starfandi á Stór- Reykjavíkursvæðinu, umráðasvæði FSV. Allur þorri þessara veitinga- staða er rekinn af fagmennsku og skv. lögum og reglum og farið að kjarasamningum og oft gott betur. Veitingareksturinn veitir þúsundum manna atvinnu og veitir ekki aðeins íslendingum þjónustu heldur færir mikinn gjaldeyri í þjóðarbúið vegna viðskipta við erlenda ferðamenn. Auk þess greiða fáar atvinnugrein&' jafnmikið í skatta og alls kyns sér- gjöld sem greininni fylgja. Það má lesa greinar í tímaritum um allan heim um hve matargerð á íslandi stendur framarlega. Það er því óþol- andi hvað þessi atvinnugrein má þola af aðdróttunum vegna einhverra sem ekki eiga samleið með fjöldan- um. Ég get verið sammála Guðbimi um slælega framgöngu þeirra sem sinna leyfisveitingum enda hefur SVG margoft beðið um að haldið sé uppi aga af hálfu þeirra aðila. Enn- fremur er SVG að vinna að því ajfc, herða reglur um skilyrði til leyfa. En það breytir þvi ekki að greinar sem þessi, sem geta átt við einhvern tiltekinn fjölda fyrirtælq'a, setja blett á heila atvinnugrein sem á það ekki skilið. Höfundur er framkvæmdastjóri Sambands veitinga- og gistihúsa.* Erna Hauksdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.