Morgunblaðið - 12.11.1997, Page 34

Morgunblaðið - 12.11.1997, Page 34
34 MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 1997 *------------------------------ MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ALFHEIÐUR ÁSTMARSDÓTTIR + Álfheiður Ástmarsdóttir fæddist í Reykjavík 7. mars 1985. Hún lést á heimili sínu, Hraunteigi 19 í Reykjavík, 5. nóv- ember síðastliðinn. Foreldrar hennar eru Ástmar Orn Arnarson, f. 29.10. 1957, húsasmíða- meistari, og Guð- ^rún Björg Sigur- björnsdóttir, f. 24.3. 1958, yfirljós- móðir og hjúkrun- arforstjóri á kvennadeild Land- spítaians. Bróðir hennar er Björn Ástmarsson, f. 20.1.1987, og hálfbróðir Ingólfur Ást- marsson, f. 5.3. 1980. Föður- amma: Sólbjört Gestsdóttir, f. 11.2. 1934, gift Svavari Fann- dal, f. 25.9. 1933. Foreldrar hennar Jakobína Jakobsdóttir, f. 5.3. 1902, d. 24.9. 1987, og Gestur Sólbjartsson, f. 6.6. 1901, d. 13.4. 1991. Föðurafi: Orn Ing- ólfsson, f. 7.7. 1935, foreldrar Rósa B. Blöndals, f. 20.7. 1913, og séra Ing- ólfur Ástmarsson, f. 3.11. 1911, d. 3.06 1994. Móðuramma: Björg Lilja Guð- jónsdóttir, f. 11.1. 1935, foreldrar Guðjón Gislason, f. 15.6. 1902, d. 24.7. 1983, og Guðrún Þorsteinsdóttir, f. 1.6. 1901, d. 12.3. 1981. Móðurafi: Sigurbjörn Guðmundsson, f. 2.3. 1933, kvæntur Hönnu Sigríði Anto- níusdóttur, f. 8.3. 1937. For- eldrar hans Guðmundur Guð- mundsson, f. 29.6. 1898, d. 20.6. 1973, og Kristín Kristjánsdótt- ir, f. 20.6. 1904, d. 23.8. 1986. Útför Álfheiðar fer fram frá Hallgrímskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Álfheiður mín. Æviskeiði þínu er lokið og þú lögð af stað í hina löngu eilífðar- göngu. Við sem eftir stöndum á landi lifenda skiljum ekki þá ráð- stöfun almættisins að taka þig svo fljótt frá okkur. En eigi má sköpum renna. Minningar leita á hugann, minn- ingar um litla stúlku sem brosti móti lífinu, brosti móti hveijum þeim sem hún kynntist. Það ríkti gleði hjá foreldrum þínum, gleði og eftirvænting eftir að sjá þig vaxa _£!g dafna, verða fulltíða stúlku. Svipuð gleði og eftirvænting ríkti hjá öfum og ömmum og öðrum skyldmennum þínum. Þú stækkaðir. Þú kynntist meiru af heiminum. Margar minningar eru frá stundum þegar þú varst í heimsókn i Álftamýrinni hjá afa og ömmu. Glettin tilsvör. Lítill lófi lagður í lófa, kinn að kinn. Þú þurft- ir þína athygli, þína umhyggju og huggun ef eitthvað bjátaði á. En ríkari er minningin um gleðina og þakklætið, ástúðina, þessa umbun bamsins sem lætur allt annað hverfa í skuggann, gjöfina sem er öllum gjöfum æðri og mun ylja okkur og öðrum þeim sem þér /ypnntust um langa framtíð. Við minnumst líka ferða sem þú fórst með okkur um landið. Oft minntir þú okkur á það þegar við komum í Ásbyrgi og að Dettifossi, hinn tröllaukni foss hafði fest þér í minni, og ýmislegt fleira úr þeirri ferð. Einnig dvölin í Berunesi. Þess- ar endurminningar urðu oft tilefni til bollalegginga um fleiri ferðir, framtíðaráform. Framtíðin var þín. Eitt er það orð sem varð þér oft á munni og mun lifa lengi í endur- minningunni, stundum stutt og hvellt, Bjöm, stundum lítið eitt langdregnara, Bjö-öm, allt eftir þeim skilaboðum sem þú þurftir að koma til bróður þíns. Stundum var (tíð móðurleg umvöndun eða um- hyggja sem bjó að baki. Stundum varstu að vekja athygli bróður þíns á einhverju í umhverfinu, kalla hann til leiks eða vara hann við. Sam- band ykkar systkinanna var náið og gagnkvæmt. Þið höfðuð mikinn styrk hvort af öðru í starfi og leik. Og víst er að Björn mun sakna þín engu síður en foreldrar þínir. Þar sem þú varst stendur eftir autt skarð. En í öllu þessu bar á skugga, fyrst veikindi þín er þú varst fimm Ara. Þá setti að okkur óhug, en hann virtist óþarfur. Þú virtist hafa fengið fullan bata, lífið blasti við þér. Og svo kom reiðarslagið nú í sumar er sjúkdómurinn tók sig upp á ný, þessi sjúkdómur sem engum eirir. En þú barst þitt ok með æðru- leysi. í því getur þú verið fyrirmynd margra sem eldri eru. , Ef þú mættir enn mæla, er vís- ast að orð þín til okkar sem eftir lifum, og þá einkum til foreldra þinna og bróður, væru þessi: Grátið ekki. Við tökum undir þau orð með þér þótt við vitum að á stundu sorg- arinnar verða öll orð fátækleg. Guð veiti foreldrum þínum og bræðrum styrk til að takast á við lífið fram- undan án þín. Afi og amma í Álftamýrinni. „Því að ég er Drottinn Guð þinn, held í hægri hönd þina og segi við þig: „Óttast þú eigi, ég hjálpa þér!“ (Jes. 41. kap. 13. v.) Þessi orð dró ég fyrir elsku Álf- heiði litlu þegar hún veiktist í sum- ar, þau hughreystu okkur og glöddu í von um líf. Eg efast ekki um að Drottinn hefur leitt hana inn i hið eilifa ríki sitt. „Menn færðu börn til Jesú, að hann mætti snerta þau, en læri- sveinamir átöldu þá. Þegar Jesús sá það, sárnaði honum og hann mælti við þá: „Leyfið börnunum að koma til mín og bannið þeim það, eigi, því að slíkra er Guðsríkið. Sannlega segi ég yður: „Hver sem tekur ekki við Guðsríki, eins og barn, mun aldrei inn í það koma.“ Og hann tók þau sér í faðm, lagði hendur yfir þau og blessaði þau.“ Síra Hallgrímur Pétursson var mik- ill trúmaður. Hann missti dóttur á fimmta ári. Sorg hans, og þeirra beggja hjóna, var djúp og sár. Síra Hallgrímur orti sálm eftir Steinunni litlu. Nú ertu leidd mín ljúfa listigarð Drottins í. Það er engum vafa undirorpið að sálmurinn, sem hann orti síðar og byijar Allt eins og blómstrið eina upp vex á sléttri grund er í raun erfiljóð eftir Steinunni litlu. Hann hefur síðan staðið við hlið allra syrgjenda með blómstrið eina og harminn djúpa. Álfheiður var afar þroskað barn og hjálpsöm, ótrúlega hugulsöm og sinnug. Hún var falleg og vel gefin, hafði blá augu og mikið rauðbrúnt hár. Hún bar veikindin af hugprýði. Ég kallaði hana litlu hjúkrunar- konuna, því að hún vildi alltaf leiða mig og passa vel úti, frá því hún var fjögurra eða fimm ára. Hún lánaði mér herbergið sitt, þegar ég var lasin um tíma. Hún var alltaf að leiða mig, kyssa mig og jgleðja. Alfheiður mín: Ég sakna er ég vakna og ég minnist þín. Móðir Álfheiðar er ljósmóðir og hjúkrunarfræðingur. Litla stúlkan fékk því að vera mikið heima og foreldrar hennar voru hjá henni heima, þegar hún kvaddi þetta líf. Tveir lærisveinar Jesú voru hryggir á leið til þorpsins Emmaus, þegar Jesús slóst í för með þeim. Augu þeirra voru haldin, svo að þeir þekktu hann ekki eftir uppris- una. Hann fór að útleggja fýrir þeim ritningarnar. Þeir báðu í sorg sinni þennan förunaut sem þeim leið svo vel hjá: „Vertu hjá okkur, þvi að kvelda tekur og degi hallar.“ Og hann kom inn til að vera hjá þeim. Þú Jesús blessar bömin smá og býður þér að vera hjá. Þau hana sjá er syrgja nú er sjálfum eilífð veitir þú. Hún vildi hjálp og huggun ljá og hjúkra þeim er veika sá. Við englasöng og lífsins ljós nú lifir þessi fagra rós. Ástar- og samúðarkveðjur frá Rósu ömmu. Elsku Álfheiður, Það var mikð áfall þegar í ljós kom í ágúst að veikindi þín höfðu tekið sig upp að nýju. í okkar huga tilheyrðu þau hinu liðna og þín beið björt framtíð. En lífíð er ekki alltaf eins og við viljum hafa það. Nú þegar þú ert farin frá okkur lifir áfram minningin um þær góðu stundir sem við frændsystkinin átt- um saman. Þær eru margar útileg- urnar og sumarbústaðarferðirnar sem við fórum með afa þínum og ömmu. Þá var einatt sungið í bílnum og svo farið í leiki eða spilað á spil þegar á áfangastað var komið. Þau eru einnig ófá spilin sem spiluð hafa verið í heimsóknum ykkar Björns í Álftamýrina. Þá var einnig oft setið og rætt saman um Iífíð og tilveruna. Svona mætti lengi áfram telja því samverustundirnar eru svo margar. Þú hafðir alltaf gaman af fólki og fylgdist vel með öllum í kringum þig. Þú þekktir til dæmis alla okkar vini og vissir hvað þeir voru að starfa. Ef halda átti boð varst þú ávallt tilbúin að rétta fram hjálpar- hönd við skipulagningu og fram- kvæmd, þú fylgdist vel með öllu sem fram fór og sást um að passa smá- fólkið. Það er sárt að þurfa að kveðja góða frænku og við vonum að þér líði vel þar sem þú ert núna. Við biðjum guð að styrkja foreldra þína og bróður í þeirra miklu sorg. Kær kveðja. Þórunn Björk og Börkur. Við erum þrumu lostin yfir að frétta af láti Álfheiðar. Við vorum einmitt farin að sakna þess að hún kæmi í heimsókn. Við höfum nefni- lega verið svo heppin að vera næstu nágrannar hennar í 7 ár og hún heimsóttþ okkur alltaf öðru hvoru. En að Álfheiður hefði veikst og væri dáin hafði okkur alls ekki grun- að. Það er eiginlega of ótrúlegt til þess að vera satt! Hún sem var svo ung og efnileg og í blóma lífsins. Þegar við fjölskyldan setjumst niður og hugsum um hana hrannast minningarnar upp. Öll munum við eftir svo mörgu skemmtilegu og góðu að tilhugsunin um að hún sé dáin verður óhugsandi. Við skiljum ekki af hveiju svona indæl stúlka er tekin svona fljótt frá okkur. Veg- ir lífsins eru svo sannarlega órann- sakanlegir! Stundum kom Álfheiður í heimsókn til okkar til þess að fá að passa Röskvu, stundum að leika við Emblu eða Ými og oft á tíðum bara til að spjalla við okkur full- orðna fólkið. Þetta lýsir Álfheiði mjög vel. Hún átti svo auðvelt með að laga sig að öllu fólki, aldur eða kyn skiptu engu máli. Hún var svo þægileg í umgengni við alla, alltaf svo blíð og yfírveguð. Hún var óvenju þroskuð í öllum samskiptum. Hún kunni svo vel að hlusta, tjá sig og skilja. Hún var líka alltaf einlæg og jákvæð. Það var ekki hægt annað en að líða vel í návist hennar jafnt fyrir litla sem stóra. Bömunum fannst alltaf eins og góður félagi væri komin í heimsókn og okkur fullorðna fólkinu líka. Álfheiður var einnig uppfinninga- söm og sniðug stúlka. Embla gleym- ir því aldrei þegar nokkrar stelpur í götunni voru á kóngulóarveiðum. Þær fundu eina svo ógeðslega stóra og ljóta að þær urðu að hlaupa heim og biðja Ými að setja hana í kassann. Á nýársdag var það orðið hefð að Álfheiður og Björn, Ýmir og Embla gerðu smá leyndó saman. Þau tíndu upp rakettur í nágrenninu og löbbuðu svo með þær í brennuna frá því deginum áður. Þar var síðan blásið og blásið í glæðurnar þangað til það birtist smá ljósgeisli. Þá nutu þau þess að geta aftur fengið gínulítið áramótabál út af fyrir sig. Álfheiður átti oft frumkvæði að því að fá alla krakkana í götunni til þess að koma út og leika á fallegum sumarkvöldum. Hún bankaði upp hjá krökkunum jafnt stelpum sem strákum og myndaðist oft dágóður hópur. Síðan var farið í leiki eins og hollý hú og stórt skip og lítið skip. Við dáðumst oft að Álfheiði fyrir þetta frumkvæði þar sem hún á þroskandi og uppbyggilegan hátt sameinaði krakkana í götunni. Þetta voru yndisleg kvöld hjá börn- unum sem seint munu gleymast. Álfheiður var stundum að selja ein- hveija hluti fyrir ýmis konar félög. Einhvern tíma fékk hún nokkra krakka með sér til að halda tom- bolu niðri við Kveldúlf. Þetta var heljarinnar lærdómur fyrir þau yngstu. En við vorum alltaf örugg með að allt færi vej þegar Álfheiður var í fararbroddi. Ágóðinn rann svo óskiptur til Rauða krossins. Það var í eðli Álfheiðar að vera sífellt að gera eitthvað gott fyrir aðra. Það er því alveg í hennar anda að við sem viljum minnast hennar sendum styrk til barnadeildar Hringsins. Við erum afar þakklát að hafa fengið að kynnast og umgangast Álfheiði. Við fengum að kynnast góðri og heilsteypri stúlku sem var tekin allt of snemma frá okkur. Stúlku sem hafði svo margt til brunns að bera, að miklu fleiri hefðu þurft að fá að kynnast kostum hennar. Þegar við almennilega átt- um okkur á því, að við fáum ekki að sjá Áfheiði aftur, þá munum við minnast hennar með gleði og hlý- hug. Við munum sakna hennar sárt. Elsku Guðrún Björg, Ástmar og Björn, söknuður ykkar hlýtur að vera óbærilegur. Þið voruð henni svo nátengd og lögðuð ykkur alltaf svo mikið fram. Við vottum ykkur okkar dýpstu samúð og biðjum þess að þið fínnið styrk til að halda áfram. Sigurlaug, Vigfús, Ýmir, Embla og Röskva. Lítil vinkona er farin frá okkur. Álfheiður, sem reyndar mátti aldrei vera að því að vera lítil og virtist alltaf eldri en árin sögðu til um. Hún var ekki há í loftinu þegar hún fór að spjalla um lífsins gagn og nauðsynjar við fullorðna fólkið, allt- af tilbúin til að ráðleggja og að- stoða ef það var á hennar færi. Hún var einstaklega athugul og setningar eins og : „Ertu í nýjum skóm ?“, „Varstu nú að láta klippa þig ?“ eða „Þú þarft að fara að endurnýja bílinn þinn“ og svipaðar athugasemdir þekkjum við sem umgengumst hana. Alfheiður var mjög félagslynd og gestrisin og hélt sínu striki undan- farnar vikur þrátt fyrir mjög erfið veikindi. Við sem komum í heim- sókn döpur og kvíðin fórum frá henni með bros á vör. Hún hug- hreysti okkur með skemmtilegum athugasemdum, kjarki sínum og þrautseigju. Hún var ábyrg og umhyggjusöm stóra systir og Bimi bróður sínum góður félagi. Óðrum börnum sýndi hún Iíka hlýju og umhyggju eins og henni hefði verið falið að sjá um þau og hjálpa þeim. Þá reynslu höfum við meðal annars síðan í sumar þegar hún færði okkur gjaf- ir frá útlöndum handa nýfæddu barni okkar. Það reyndist vera það eina sem hún keypti í þeirri ferð. Við vonum innilega að minningin um góða og hjálpsama stúlku hjálpi Birni, Guðrúnu Björgu, Ástmari, öðrum ættingjum og vinum, að tak- ast á við söknuðinn og sorgina. Elsku Álfheiður, þú varst lítill ljósberi hér í okkar heimi og við þökkum fyrir að hafa átt þig að í gegnum árin. Ragna, Valgeir, Harpa Ósk, Ragnheiður Ásta og Hulda Maria. Það er ótrúlegt að hugsa til þess að hún Álfheiður sé dáin eftir stutt veikindi og að hún eigi ekki eftir taka á móti okkur fagnandi á Hraunteignum. Álfheiður var óvenju þroskað barn og hafa fyrri veikindi hennai- eflaust sett þann svip á hana. Álfheiður ólst upp í mikilli hlýju hjá foreldrum sínum og var gaman að sjá hve samrýnd fjölskyldan var og hve mikið börnin tóku þátt bæði leik og störfum for- eldranna. Þau systkinin voru mjög náin enda einungis tveggja ára ald- ursmunur á þeim. Margar minningar koma upp í hugann þegar við hugsum um Álf- heiði. Við sjáum fyrir okkur barnið með rauða hárið, blíð og með ólíkind- um dugleg. Hún var alltaf tilbúin að hjálpa, sérstaklega þeim sem voru minni máttar. Hún hefur ábyggilega erft þetta frá móður sinni; hjúkrunarfræðingnum og ljós- móðurinni. Þegar við litum við á Hraunteignum passaði Álfheiður alltaf upp á að við fengjum kaffí eða te. Álfheiður varð snemma mjög sjálfstæð og fór ferða sinna um bæinn með bróður sínum. Dæmi um þetta var heimsókn þeirra systkina til okkar, þegar Árbæjarsundlaugin var nýopnuð, en þau gátu ekki látið hjá líða að líta við hjá okkur þar sem þau voru í hverfínu okkar. Á sumrin fórum við oft í sumarbústað með Álfheiði, Birni, Ástmari og Guðrúnu og þá var alltaf þeirri daglegu skyldu sinnt að fara í sund, spila og ferð- ast um landið og skoða það betur. Við minnumst þessara stunda með hlýju. Um hver jól var hún þátttakandi í uppfærslum sem þau frændsystk- inin settu upp fyrir fjölskylduna í jólaboðinu hjá ömmu og afa í Garðabæ. Þetta voru alltaf viðmikl- ir viðburðir í lífí barnanna. Og við sem fullorðin erum sáum þau þrosk- ast og dafna. Álfheiður naut þess að hafa fjölskylduna sína, eins og hún kallaði hana, í kringum sig og þá átti hún við allt skyldfólk sitt. Hún var mjög hænd að smábörnum og naut hún þess að sinna minni frændsystkinum sínum. I sumar var Álfheiður glöð og heilsuhraust. Hún æfði fótbolta hjá Þrótti og naut þess að fara á pæju- mótið í Vestmannaeyjum en lið hennar var valið prúðasta liðið og var hún stolt af því. Hún hafði gaman af slíkum samkomum og þegar Jónsmessuhlaupið var i hverfinu hjá henni í sumar fékk hún okkur til að koma með sér og mömmu sinni í hlaupið. Hún ætlaði síðan að taka þátt í Reykjavíkur- maraþoninu en gat það ekki vegna veikinda sinna. En hún leitaði uppi árangurinn í blöðunum og næst þegar við hittumst kom hún fagn- andi og óskaði mér til hamingju með hlaupið. Það bjóst enginn við að með haustinu ætti allt eftir að breytast. Við biðjum góðan Guð að blessa og vernda hana Álfheiði frænku okkar. Með söknuði kveðjum við hana og biðjum Guð að styrkja Ástmar, Guðrúnu og Björn. Rósa, Jón, Svavar og Erna Dís. Ég er harmi slegin. Við hittumst síðast í Paris í sept- ember síðasliðnum. Þrátt fyrir að mér hafi verið sagt að það gæti orðið okkar síðasta stund saman, þá vildi ég ekki trúa því. Hvernig mátti það vera þú sem varst aðeins barn, tólf ára gömul. Ég var farin að hlakka til jólanna því þá ætlaði ég að koma heim og hitta þig. Málin hafa þróast á annan veg en ég ætlaði og för minni verður flýtt og mun hafa annan tilgang en í upphafi til stóð.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.