Morgunblaðið - 12.11.1997, Blaðsíða 36
36 MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 1997
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
+ Halldóra Guðrún
Ólafsdóttir fædd-
ist í Stakkadal á
Rauðasandi 12. febr-
úar 1929. Hún and-
aðist á Landspítalan-
um aðfarandtt 3.
nóvember síðastlið-
ins. Foreldrar henn-
ar voru Anna Guð-
rún Torfadóttir, f. 6.
desember 1894, d.
21. mars 1965, fædd
•a, °S uppalin í Kollsvík,
og Olafur Hermann
Einarsson, f. 27.
september 1891, d.
25. maí 1936, fæddur og uppalinn
í Stakkadal á Rauðasandi. For-
eldrar Halldóru bjuggu í Stakka-
dal þar til Ólafur faðir hennar
lést langt um aldur fram 1936,
eftir það bjó Anna móðir hennar
áfram í Stakkadal og síðan í
Saurbæ á Rauðasandi með barna-
hópinn sinn. Systkini Halldóru
eru Torfí, f. 26. maí 1919, Guð-
björg, f. 28. desember 1921, Elín,
f. 11. desember 1925, María, f. 27.
nóvember 1931, Kristín, f. 26.
júní 1933, og Valgerður, f. 21.
júní 1935.
Elsku frænka, þegar kemur að
kveðjustund hrannast upp hafsjór
minninga um þig sem hefur verið
hluti af lífí okkar systurbarna þinna
allt frá því við munum fyrst eftir
okkur og til þessa dags.
Við munum þig unga og fríska
með okkur norður á Vindhæli þar
sem þú eyddir stórum hluta af sum-
arfríinu þínu á hverju ári svo lengi
sem við munum og tókst þátt í öllu
því sem við vorum að gera hverju
«*-'sinni hvort sem það var að mjólka
kýrnar, rifja hey eða fara í útreiðar-
túra. Þegar við vorum lítil voni þeir
dagar sem von var á þér í sveitina
eins hátíðlegir og jólin, þá vorum við
komin í sparifótin um hádegið og
biðum við gluggann því allir vildu
verða fyrstir til að sjá til ferða bílsins
hans Núma, sem bar þig til okkar.
Þegar þú komst var alltaf svo gam-
an, stundum komu önnur
frændsystkini líka með þér og voru á
Vindhæli meðan þú dvaldir þar. Þú
töfraðir fram fínustu föt úr gömlum,
slitnum fötum og afgöngum og eitt
sumarið saumaðir þú fyrir okkur al-
vöru tjald úr hveitipokum. Þú sást
um að sauma á okkur jólafötin og
það voru fínustu jólafótin sem
^krakkar á okkar reki áttu á þeim
tíma, þegar ekki voru barnafatabúð-
ir út um allt, seinna komu svo ferm-
ingarfötin, sem báru af öðram fötum
og einhver okkar vora skírð í skírn-
arkjólum sem þú saumaðir.
Elsku frænka, þú varðir allri ævi
þinni í það að hjálpa öðram og gera
eitthvað fyrir aðra og hugsaðir aldrei
um sjálfa þig. Samheldnari systkina-
hópur en systkinin frá Stakkadal er
ti'úlega ekki til. Því verða viðbrigðin
svo mikil þegar eitt af ykkur er ekki
lengur til staðar og ekki er hægt að
koma við á Grettisgötunni og fá sér
kaffisopa eða matarbita í bæjarferð-
um framtíðarinnar.
A bernsku- og unglingsárum þín-
„'jurn vestur á Rauðasandi hjálpuðust
þið systkinin og amma að við það að
sjá ykkur farborða eftir andlát afa.
Ekki er það að efa að oft hefur verið
erfítt að framfleyta barnahópnum af
búskapnum í Stakkadal, þar lærðuð
þið systkinin nægjusemi og hvað það
er mikilvægt að bera umhyggju
hvert fyrir velferð annars í lífínu. Þið
fenguð gott veganesti úr móðurgarði
þar sem amma varð að vera ykkur
bæði móðir og faðir í senn. Einhvern
veginn hefur það svo orðið að við
höfum öll leitað til Dóru frænku ef
eitthvað hefur bjátað á á lífsgöng-
• unni. Þú varst alltaf sú sterkasta
sem við gátum leitað til. Þú áttir líka
svo stórt hjarta. Þú talaðir aldrei illa
um nokkurn mann. Kenndir okkur
að meta það góða í mannseskjunni,
sjá björtu hliðamar á lífinu, þrátt
fyrir að lífið hafí ekki farið mjúkum
höndum um þig sjálfa. Bamið þitt dó
nýfætt, þú horfðir upp á þriggja
- jnánaða dauðastríð móður þinnar og
Halldóra var alla
tíð ógift, en eignaðist
son 15. febrúar 1961,
sem andaðist á fyrsta
sólarhring eftir fæð-
ingu.
Halldóra ólst upp
við leik og störf með
systkinum sínum á
Rauðasandi, en flutti
1949 með móður
sinni og yngri systr-
um til Reykjavíkur.
Hún var einn vetur
við nám við Kvenna-
skólann Hverabakka
í Hveragerði. Eftir
að hún flutti til Reykjavíkur vann
hún lengst af við saumaskap á
Saumastofu Andrésar, Sauma-
stofunni Karítas, Saumastofu
Steinars Júlíussonar, Saumastofu
Sláturfélags Suðurlands og síð-
asta áratuginn rak hún sauma-
stofuna Saunmálina sf. á Grettis-
götu í félagi við fyrrum vinnufé-
laga sinn. Síðustu þrjá áratugina
hefur Halldóra búið á Grettis-
götu 33, Reykjavík.
Útför Halldóru fer fram frá
Fossvogskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.30.
tvær bestu vinkonur þínar dóu á
besta aldri.
Við systkinin á Vindhæli erum alin
upp við sögur af paradís vestur á
Rauðasandi og ekkert okkar varð
fyrir vonbrigðum þegar við komum
þangað loksins öll með mömmu og
þér sumarið 1981 og gengum um
æskuslóðir þínar á Stekkadalstún-
inu, niður á sandrifið og víðar á
Rauðasandi. Þá lærðum við að
þekkja helstu kennileiti, þar sem þið
áttuð ótal minningar um hvern stein
og hverja þúfu.
Fyrstu árin í Reykjavík bjóstu
með móður þinni og systrum. Síðan
fórstu að leigja með Dísu bestu vin-
konu þinni og síðar fjölskyldu henn-
ar. Gísli sonur Dísu er eins og eitt af
systkinabörnunum. Síðustu þrjátíu
árin bjóstu á Grettisgötunni í litla
fallega húsinu þínu, sem þú lagfærð-
ir smátt og smátt eftir því sem efni
og aðstæðui' þínai’ leyfðu. Þar var
alltaf nóg pláss til að koma eða gista
fyrir okkur öll, hvort sem um langan
eða stuttan tíma var að ræða. Einnig
lánaðir þú húsið þitt undir próflest-
ur, ef svo bar undir og okkur systk-
inabörnin vantaði næði.
Systurdótth þín, Halldóra Sigrún,
dvaldi hjá þér tvo fyrstu vetuma í
Reykjavík og frænka þín, Sigrún
María, átti einnig húsaskjól hjá þér
fyrstu mánuðina í höfuðborginni. Með
þér áttu þær stundir sem þær munu
aldrei gleyma. Þar sem hjartarúmið
er nægt er húsrýmið einnig nægt.
Síðasta ár hefur verið þér afar
erfítt og við höfum horft harmi sleg-
in á hvemig lífsþróttur þinn fjaraði
út smátt og smátt í baráttu þinni við
krabbamein án þess að nokkuð væri
hægt að gera til þess að lina þjáning-
ar þínar og koma í veg fyrir ótíma-
bært andlát.
Elsku Dóra frænka við kveðjum
þig með ástarþökk fyrir samfylgdina
og þökkum fyrir að hafa fengið að
eiga þig fyrir frænku. Við erum
miklu ríkari vegna þess og minning-
arnar um þig munu lýsa okkur um
ókomin ár. Við vottum systkinum
þínum okkar dýpstu samúð.
Vindhælissystkinin
og fjölskyldur.
í dag kveðjum við frænku okkar,
Halldóru G. Ólafsdóttur. Við minn-
umst hennar sem okkar besta og
traustasta vinar í gegnum alla okkar
ævi.
Hún hefur verið hluti af lífí okkar
alla tíð, svo að það er erfítt að sætta
sig við að hún sé horfín frá okkur.
Við vitum samt að nú eru kvalir
hennar og veikindi að baki, hún dvel-
ur nú í faðmi löngu látinna vina.
Með þessum fáu orðum viljum við
kveðja frænku okkar og þakka henni
allar samverustundir í þessu lífí.
Hennar skarð verður ekki fyllt, en
tíminn kennir okkur að lifa við það.
Legg ég nú bæði líf og önd,
ljúfí Jesú, í þína hönd,
síðast þegar ég sofna fer
sitji Guðs englar yfir mér.
(Hallgrímur Pétursson.)
Blessuð sé minning hennar.
Guðmundur, Ólafur, Kristín
og fjölskyldur.
Dóra hefur verið mér sem önnur
móðir alla tíð.
Þegar foreldrar mínir kynntust þá
bjuggu þær mamma saman í Hátún-
inu. Efth að mamma og pabbi giftust
og stofnuðu heimili á Kleppsveginum
þá leigði Dóra hjá þeim fyrst um
sinn áður en hún flutti aftur í Hátún-
ið og síðan á Grettisgötu 33 þar sem
hún bjó alla tíð síðan.
Dóra var heimagangur á heimili
foreldra minna og ein af fjölskyld-
unni. Hún kom alltaf til okkar á að-
fangadagskvöld þó að heimili systk-
ina hennar stæðu henni opin og á
hverju sunnudagskvöldi í mörg ár
var hún hjá okkur og oft bauð hún til
höfðinglegrar veislu á Grettisgöt-
unni. Hún var okkur stoð og stytta í
veikindum móður minnai- og síðar
föður míns. Eftir að mamma dó og
pabbi flutti á hjúkranardeild Elli- og
hjúkrunarheimilisns Grund þá var
hún honum alveg einstaklega góð og
heimsótti hann reglulega þar og kom
stundum með honum til okkar Heið-
bjartar á Hávallagötuna. Þegar ég
kynnti hana fyrir kærustunni minni
henni Heiðbjörtu, þá tók hún henni
sem tengdadóttur og veitti henni þá
ást og hlýju sem hún alla tíð hefur
veitt fjölskyldu minni í blíðu og
stríðu. Síðustu árin hefur hún verið
hjá okkur á aðfangadagskvöld og
það verður tómlegt án hennar á því
næsta.
Heimili Dóru var hennar fólki opið
og oft var þar margt skyldmenna
hennar utan af landi, sem fékk hjá
henni skjól þegar það var í bænum.
Fjölskyldan og rækt við hana var
henni mikið hjartans mál sem og vel-
ferð allra þeirra er henni stóðu
nærri, s.s. systkini, þeirra börn og
svo barnabörn. Öllum þótti vænt um
Dóru.
Dóra hafði gaman af lestri góðra
bóka og að hlusta á tónlist ásamt því
að spjalla við fólk um allt mögulegt
og vai' hún víðlesin. Ferðalögum
hafði hún gaman af og ég á góðar
minningar frá samverustundum í
Austumki og Mexíkó, sérstaklega
frá Punta Bete í Mexíkó þar sem við
Heiðbjört leigðum með henni lítið
strandhús í nokkra daga. Þar naut
Dóra sín sérstaklega vel. Hún vann
alla tíð við saumaskap af mikilli elju-
semi og síðasta áratuginn eða svo
rak hún saumastofu í félagi við aðra
konu.
Hún var morgungestur í Sundhöll-
inni í áratugi.
Meðan á veikindum hennar stóð
birtist ljóslega sá styrkur og sam-
staða systkina hennar með henni,
sem hún svo oft áður hafði sýnt öðr-
um og vottum við Heiðbjört öllum
ættingjum hennar okkar dýpstu
samúð vegna ótímabærs fráfalls
hennai-.
Elsku Dóra, ég þakka Guði fyrir
að hafa kynnst þér og átt samleið
með þér, minningin um þig mun lifa
hjá mér alla mína æfí.
Þinn vinur að eilífu
Gísli.
Halldóra föðursystir okkar, eða
Dóra eins og hún var jafnan kölluð,
hafði sérstöðu í hópi frændfólksins
og var jafnan ofarlega í huga. Hún
var miðbai'nið í sjö systkina hópi, en
líka eins og miðlæg í stórfjölskyld-
unni, einkar frændi-ækin og fylgdist
vel með gengi ungra sem aldinna.
Hún reyndist okkur systkinum sér-
stök hjálparhella þegar þær aðstæð-
ur komu upp að hún taldi réttilega
að liðsinni kæmi sér vel.
Systkinin í Stakkadal á Rauða-
sandi misstu fóður sinn vorið 1936,
þegar Dóra var á áttunda árinu, og
sextán ára yfirgaf hún fæðingar-
sveitina ásamt móður sinni og fjór-
um systrum, en elstu systkinin tvö
höfðu áður haldið að heiman. En
Dóra var aldrei alkomin í þéttbýlið,
hugur hennar einatt bundinn við
æskustöðvarnar, mannlíf og um-
hverfí. A töfrateppi frásagnar sinnar
sveif hún með okkur um sveitir, inn í
horfna bæi og hópa, benti á og út-
skýrði. Hún var ómissandi tengiliður
við fortíðina. Þegar haldin voru ætt-
armót og þurfti að miðla fróðleik um
einstaklinga og liðinn tíma vai' hægt
að sækja í upplýsingabrunn Dóru.
Ekki aðeins hafði hún ættfræðina á
reiðum höndum heldur gat dregið
upp ljóslifandi svipmyndir af fólki,
aðstæðum og umhverfí fyrir vestan
og skaut oft inn í frásögnina spaugi-
legum eða sérstæðum atriðum, enda
með góða kímnigáfu og smitandi frá-
sagnargáfu. Það jók enn á áhrifin að
hún hélt ýmsum blæbrigðum úr
vestfirskum framburði.
Dóra var fíngerð kona, hlýleg,
hæversk og prúð í framgöngu, en
hafði til að bera bæði stolt og festu,
enda höfðingi í lund. Hún fylgdist vei
með atburðum og tíðaranda, hafði
skoðanir á mönnum og málefnum,
var tilgerðarlaus og hreinskilin,
fundvís á ummæli sem hittu í mark.
Mótlæti mætti hún og vonbrigðum
en fékkst ekki um slíkt. I fasi hennai'
ríkti jafnaðargeð. Ekki fannst á
henni yfirlæti heldur fágað umburð-
arlyndi og víðsýni.
Dóra hafði unun af því að ferðast
og kynnast nýjum aðstæðum og við-
horfum. Hún var þá ekki andvaralít-
ill skoðandi heldur dugleg að tileinka
sér fi’óðleik, nýtti reynsluna til að
skapa sér hærri sjónarhól og víðara
svið, með gagnrýni sem bar vott um
vakandi auga og skarpan hug.
Dóra starfaði við saumaskap nær
allan starfsferil sinn. Hún erfði og
ræktaði einkenni móður sinnai', sem
var annáluð hannyrðakona og einnig
tónlistarunnandi. Sú fyi'h’hyggja og
það formskyn sem saumaskapurinn
krefst og ræktar samsvaraði sér í
eðlisþáttum Dóru á öðrum sviðum.
Það var hún sem rakti þræði, lag-
færði, fyllti upp í, bjargaði, samein-
aði, gerði heild úr brotum og lagði
sanngjarnt gæðamat á fyrh'bærin.
Hún kunni jafnvel að meta gott
handverk og traustan málflutning.
Alltaf var gaman að ræða við Dóru
og ætíð fór maður ríkari af hennar
fundi. I bendu og óreiðu hversdags-
ins var hún föst viðmiðun, gagnvart
kerfisbundinni grámósku var hún
lipur endumýjandi.
Það er með djúpri virðingu og
miklum söknuði sem við kveðjum
þessa uppáhaldsfrænku okkar og
velgjörðamann, blessuð sé minning
hennar.
Anna G. Torfadóttir, Helgi
Torfason, Ólafur H. Torfason.
Ástkær móðursystir okkar er lát-
in, eftir hetjulega baráttu við illvígan
sjúkdóm.
Dóra frænka var eiginlega „ætt-
móðirin" í okkar fjölskyldu. Til
hennai' leituðu mörg okkar systkina-
barnanna til að gleðjast með henni
eða þiggja ráð hennar. Heimili henn-
ar stóð okkur alltaf opið, hún fylgdist
vel með okkur og bar mikla um-
hyggju fyrir okkur. Dóra var ekki
bara systir móður okkar, heldur líka
besti vinur og félagi og um tíma bjó
móðir okkar hjá henni í litla húsinu á
Grettisgötunni.
Dóra frænka ýtti úr vör hugmynd-
inni um að þau systkinin hittust
ásamt afkomendum við rústir „ætt-
aróðals" þein-a í Stakkadal á Rauða-
sandi. Þetta var fyrir nær tuttugu
áram, áður en það komst í tísku að
halda ættarmót. Síðan höfum við
frændsystkinin oft komið saman á
sumrin, nú síðast vestur á Rauða-
sandi, en því miður komst Dóra ekki
með í þá ferð vegna veikinda sinna.
Við minnumst góðrar konu með fal-
legt bros og ornum okkur við ljúfar
minningar.
Blessuð sé minning hennar.
Magnús, Anna, Sigríður,
Halldór og Esther.
Elsku Dóra frænka.
Okkur langar til að kveðja þig
með þakklæti fyrir ljúfu og yndis-
legu stundirnar og minningar okkar
um þig. Þegar þú komst alltaf á
laugardögum inn á Hofteig með
Guggu systur þinni þar sem aðrar
systur þínar bjuggu, Valla og Stína,
var oft glatt á hjalla enda ófá systk-
inabörnin þar samankomin. Ferða-
lögin sem þú komst með okkur í
bæði hér heima og erlendis. Kjól-
arnir og kápurnar og öll fötin sem
HALLDÓRA GUÐRÚN
, ÓLAFSDÓTTIR
þú saumaðir á okkur systinabörnin
þín, vandað og vel gert. Það var
alltaf jafngaman og yndislegt að
koma í heimsókn til þín á Grettisgöt-
una. Þú tókst vel á móti okkur og þú
varst svo hress, ræðin og kát. Hjá
þér leið okkur vel í heimilislega og
hlýlega húsinu þínu. Jóladagskvöld-
in sem þú varst hjá okkur fjplskyldu
Stínu systur þinnar. Við eigum
margar fleiri minningai' um þig en
við geymum þær hjá okkur. Þakka
þér fyrir allt, elsku Dóra okkar.
Hver minning dýrmæt perla að liðnum
lífsins degi,
hinljúfu og góðu kynni af alhug þökkum hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem
gleymist eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að
kynnast þér.
(Ingibj. Sig.)
Systurbörn þín,
Bára og Ágúst.
Elsku Dóra frænka, nú er lífi þínu
lokið. Þær þjáningar sem þú leiðst
seinustu vikurnar og mánuðina
sætta okkur aðstandendui' þína við
ótímabæran dauða þinn og það að
sjá á bak þér. Þú varst, það veit ég,
engan veginn tilbúin til þess að fara
frá okkur nú, þér fannst þú eiga svo
margt eftir að gera núna, þegar þú,
sem hafðir unnið hörðum höndum
alla ævi, varst farin að hugsa til þess
að hætta að vinna og lifa lífinu og
ferðast til staða sem þig hafði lengi
langað að koma til.
Dóru frænku minnai' minnist ég
sem systur og vinkonu móður minn-
ar, en hún var fjórða systkinið sem
lifði í stórum barnahópi ömmu minn-
ar og afa sem bjuggu í Stakkadal á
Rauðasandi, V-Barðasti'andarsýslu, í
byi'jun aldarinnar. Afi dó frá stórum
barnahópi 1936 og amma stóð ein
uppi með 7 börn, yngsta barnið tæp-
lega 1 árs. En með hjálp góðra
manna tókst ömmu að komast hjá að
tvístra hópnum sínum, og á Rauða-
sandi ólust þessi systkini upp og
urðu mjög tengdur og samhentur
hópur. Því veit ég að sorg þeirra og
söknuður sem eftir lifa er mikill og
bið góðan guð um að gefa þeim
styi'k.
Fyi'stu minningar mínar um Dóru
eru tengdar heimsóknum hennar á
heimili foreldra minna í æsku minni.
Það var alltaf ægilega gaman hjá
okkur systkinunum, þetta var
stundum á páskum, þá komu líka
aðrir úr móðurfjölskyldunni. Það
var oft glatt á hjalla heima á þessum
dögum. Dóra gaf okkur systkinun-
um fyrstu páskaeggin sem við feng-
um um ævina. Dóra fékk alltaf stórt
páskaegg frá saumastofu sem hún
vann hjá um árabil, á meðan hún
vann þar. Eftir að ég var farin að
heiman til náms í Reykjavík, bauð
hún mér í páskaeggjaát heim til sín,
svona hafði hún lag á að halda
tengslum við okkur systkinabörn sín
og skildi aldrei neinn útundan. Dóra
frænka var líka mjög flink sauma-
kona en það var ævistarf hennar. Ef
mikið átti að vanda til klæðnaðar á
mínum æskuárum, var leitað til
Dóru sem alltaf brást ljúfmannlega
við og gerði hlutina af mikilli
ánægju.
En núna sé ég það fyrir mér,
Dóra, að þú hefur fengið góðar mót-
tökur hinum megin, því amma og afi,
systirin sem þau misstu og litli
drengurinn þinn sem þú fékkst
aldrei að njóta, hafa vafalaust tekið
fagnandi á móti þér.
Hvfl þú í friði, kæra frænka. Kær-
ar kveðjur frá börnum Elínar Ernu
systur þinnar.
Anna María Jónsdóttir.
Dóra, fyrrverandi mágkona mín,
er dáin eftir erfiða legu á sjúki-ahúsi.
Með þessum línum vil ég þakka
henni þá samfylgd, sem við höfum
átt um 45 ára skeið. Hún var einhver
sú ósérhlífnasta manneskja sem ég
hefí þekkt og alltaf tilbúin að hjálpa
ef eitthvað bjátaði á. Hún hafði stórt
hjarta sem rúmaði ómældan kær-
leika við náungann og þá er leituðu
til hennar. Það er sárt að fínna hana
horfna, en um leið samgleðst ég
henni að vera frjáls frá kvölum þessa
lífs og vera komin á veg Ijóss og frið-
ar hjá fóður okkar á himnum.
Sigurður Magnússon.