Morgunblaðið - 12.11.1997, Side 50

Morgunblaðið - 12.11.1997, Side 50
50 MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM Morgunblaðið/Þórdís Ágústsdóttir BJÖRK Guðmundsdóttir á tónleikum í París á mánudag. Viðbrögðin ólík eftir löndum Tónleikar Bjarkar í París á mánudag voru bjartari, ef aðeins er talað um sjónræna þáttinn, en í Brussel fyrir rúmri viku. Þórunn Þórsdóttir fylgdist með þeim og heyrði að Frakkar kunnu betur að meta rólegu lögin en sumir grannar þeirra. VIÐ forum batnandi með hverjum tónleikum, vinnum betur og betur saman. Auðvitað erum við svolítið þreytt en aðallega ánægð held ég,“ sagði raftónlistarmaðurinn Riehard Brown eftir tónleika Bjarkar í París á mánudagskvöld. Þetta voru sjöttu tónleikamir til að fylgja eftir plöt- unni Homogenic. Söngkonan, átta manna íslensk strengjasveit, tækni- menn og fleira fólk, hefur ferðast borg úr borg frá byrjun mánaðar- ins og heldur því áfram fram í miðjan desember. Eftir Evrópuleiðangur sem endar í Stokkhólmi 22. nóvember verður þó tekin hvfld en svo farið eins og eldur í sinu um Bandaríkin í desember. í kvöld og annað kvöld verða tónleikar í London, þar sem Björk hefur bæki- stöðvar. Miðar á tónleikana í Mutualité, gamalgrónum sal í 5. hverfi Parísar, seldust upp á tveim tímum eftir því sem blöð sögðu. Þannig var húsið fullt, en ekki troðið, af fólki sem margt virtist kunna texta laganna utan að og vera hið glaðasta. Eins og á fyrstu tónleikum ferðarinnar, í Brussel, voru gestir margir á svip- -.uðum aldri og söngkonan, kringum þrítugt, komnir til að hlusta á tón- list sem er með vissum hætti rólegri en fyrr. Brown sagði athyglisvert hvernig brugðist væri ólíkt við lög- unum eftir löndum, í París hefðu áheyrendur einmitt tekið rólegri eða mýkri lögum mjög vel. Blaða- maður sá samt að því var fagnað; með sælubrosi, tappi og veifí; þegar aukinn kraftur komst í músíkina. Tónleikarnir stóðu rúma klukku- stund eins og jafnan og eitt aukalag var spilað, eftir hæfileg blístur og köll úr salnum. Það reyndist snúið að fá miða í bæði skiptin sem minnst var á og ekki möguleiki á viðtali við Björk. Reglan er um klukkustund á dag fyrir fjölmiðla og ljósmyndatök- ur hjá Karli Lagerfeld voru á dagskrá mánudagsins í París. Til þess að fá að fara á tónleik- ana þurfti mörg símtöl og meiri þolinmæði en blaðamaður, skipulagsfólk og söngkona hefur. En tónlistin er það sem máli skiptir, kannski hið mannlega í henni: Gamla lagið Human Behaviour hreyfði sýnilega við mannskapnum í París á mánudag og menn í námunda við blaðamann virtust rétta úr sér þegar sungið var „don’t get angry with yourself‘, ekki reiðast sjálfum þér, í laginu All neon like af nýju plötunni. Lennon í samstarf við Oasis BRÆÐURNIR Noel og Liam Gallag- her í Oasis eru sagðir vera að íhuga samstarf við Julian Lennon, son Johns Lennons og Yoko ’ Ono, í frétt New York’s Daily News. Þeir hafa aldrei far- ið dult með hrifningu sína á tónlist Bítl- anna og myndi samstarfið fela í sér ný lög og og upptöku á sígildu lagi Bítl- anna. Enn hefur ekld verið gefið upp hvaða lag það yrði. Samstarfið myndi líklega koma Lennon til góða, en ferill hans hefur gengið heldur skrykkjótt undanfarin ár. Hins vegar er ekki víst að Bítlamir George Harrison og Paul McCartney verði jafn hrifnir af sam- starfinu. Þeir hafa gagnrýnt Oasis fyrir að stæla Bítlana. ÓKEYPIS HÚÐGREINING Kynning á Dermophil húðsnyrtivörum í Breiðholtsapóteki, Mjódd, í dag og á morgun kl. 13-18. Við bjóðum þér ókeypis húðgreiningu og ráðgjöf þar sem við mælum með einföldum hætti húðfítu og rakastig í andliti. 20% kynningarafsláttur. Sjá nánari upplýsingar á http://www.centrum.is/dermophil Gæða náttúruefni frá POWER HEiLLTH Umboðsaðíli: CBtllS, Skiplioll 50c, sími 551 7733 Myndasaga um Díönu „SÍÐASTA ævintýraprinsessan" stendur á kápu nýrrar teikni- myndasögu sem fjallar um ævi lafði Díönu, prinsessu af Wales. Bókin kom út í Frankfurt í gær og eru austurríski rithöfundurinn Robert Menasse og austurríski teiknarinn Gerhard Haderer höfundar að henni. I sögunni er dregin upp háðsk mynd af ævi Dionu, sem lést í bflslysi i Paris 31. ágúst sl. V —.... ^ Sala stofnfjár í Sparisjóði Ólafsfjarðar Á fundi stofnfjáreigenda Sparisjóðs Ólafsfjarðar, sem haldinn var 7. september 1997, var samþykkt að auka stofnfé í sjóðnum um 200 millj. kr. Bréfin eru föl einstaklingum og fyrirtækjum um allt land og kostar hvert bréf 15 þús. kr. Engin takmörk eru á því hve mörg bréf hver aðili má kaupa, en atkvæðisréttur verður aldrei meiri en 5% af heildaratkvæðamagni í sparisjóðnum. Sala bréfanna stenduryfirtil 20. nóvember 1997 og eru þeir, sem áhuga hafa á að kaupa bréf, beðnir um að snúa sér til Sparisjóðs Ólafsfjarðar, Aðalgötu 14, Ólafsfirði, sími 466 2215. Sparisjóður Ólafsfjarðar. ... ........... ^ Díe letzte Márchenprínzessin

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.