Morgunblaðið - 09.12.1997, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 1997
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
íslenska
útvarpsfélagið hf.
Hreggviður
Jónsson ráð-
inn forstjóri
HREGGVTÐUR Jónsson, fram-
kvæmdastjóri fjármála- og rekstrar-
sviðs Islenska útvarpsfélagsins hf.,
hefur verið ráð-
inn forstjóri fé-
lagsins. Tekur
hann við starfinu
um næstu áramót
af Jóni Ólafssyni,
sem mun áfram
sinna hefðbund-
inni stjómarfor-
mennsku hjá fé-
laginu.
Hreggviður er
34 ára rekstrar-
hagfræðingur með MBA próf frá
Harvard Business School í Boston.
Hann starfaði sem markaðsstjóri hjá
Brimborg hf. 1988-1991, gerðist ráð-
gjafi hjá McKinsey & Company í
Stokkhólmi á sviði stjómunar og
stefnumótunar að loknu MBA námi
1993, og réðst síðan sem ráðgjafi til
stjómar ÍÚ í október 1995. Hregg-
viður er kvæntur Hlín Sverrisdóttur,
skipulagsfræðingi og landslagsarki-
tekt, og eiga þau tvö böm.
Segist taka við góðu búi
Tilkynnt var um stjómendaskiptm
á starfsmannafundi Islenska útvarps-
félagsins í gær. ÍÚ á og rekur Stöð 2,
Bylgjuna og Stjömuna, auk Sjón-
varpsmarkaðarins og margmiðlunar-
fyrirtækisins Islandia. Félagið rekur
einnig sjónvarpsstöðina Sýn. Hregg-
viður sagði í samtali við Morgunblað-
ið í gær að of snemmt væri að segja
tíl um hvort stjómendaskiptunum
myndu fylgja einhverjar breytingar í
rekstri félagsins en nýjum mönnum
fylgdu alltaf nýir siðir. Kvaðst hann
taka við góðu búi og góður gangur
væri í rekstri fyrirtækja ÍÚ.
.... ♦♦♦------
Fjórir slösuðust
á Grundar-
tangavegi
ÁREKSTUR varð á Gmndartanga-
vegi í Hvalfirði um klukkan 9 í gær-
morgun. Fjórir vom fluttir slasaðir á
Sjúkrahús Akraness.
Fólksbíll og gámabíll rákust nokk-
uð harkalega saman en dimmt var
enn, hálka og nokkuð blint þar sem
áreksturinn varð. SjúkrabíU flutti
hina slösuðu til Akraness en meiðsli
þeirra vom ekki mjög alvarleg.
-------------------
Gæsluvarðhald
í sex vikur
MADUR sem handtekinn var sl.
fimmtudag eftir innbrot í geymslur
við Skipholt í Reykjavík var úrskurð-
aður um helgina í gæsluvarðhald í
sex vikur. Hann er einn þriggja
manna sem réðust inn á heimili
manns við Kleppsveg í síðasta mán-
uði.
Hreggviður
Jónsson
Reglur um vinnu í lokuðu rými
Mæla skal gas og súr-
efni áður en farið er inn
SAMKVÆMT reglum um vinnu í
lokuðu rými sem gefnar vora út fyr-
ir um tveimur ámm á að gasmæla
og súrefnismæla lokaða tanka áður
en farið er inn í þá. Þrátt fyrir þess-
ar reglur hafa á síðustu áram orðið
nokkur alvarleg vinnuslys, þar sem
menn hafa orðið fyrir gaseitmn
og/eða súrefhisskorti við það að fara
inn í lokaðar þrær eða önnur lokuð
rými. Skemmst er að minnast
banaslyss sem varð um borð í Gull-
veri á Akureyri sl. föstudag, þegar
maður sem fór ofan í nær súrefnis-
lausan keðjukassa skipsins lést og
tveir aðrir sem á eftir honum fóm
vom hætt komnir.
Að sögn Sigurðar Þórarinssonar,
deildarstjóra hjá Vinnueftirliti rík-
isins, var aðeins kveðið á um
gasmælingu í gömlu reglunum um
vinnu í lokuðu rými, en samkvæmt
þeim nýju á bæði að mæla súrefni
og gas áður en farið er inn í lokuð
rými. Sigurður segir ljóst að í tilvik-
inu á Akureyri hafi sjór lekið inn í
keðjukassann. Þegar járn ryðgi,
dragi það í sig súrefni og þannig
hafi allt súrefnið inni í kassanum
eyðst.
Óvenjumörg slys
á siðustu árum
Sigurður segir óvenjumörg slys
af þessu tagi hafa orðið á síðustu ár-
um, þrátt fyrir að reglur kveði skýrt
á um hvemig þau megi fyrirbyggja.
„Við sendum reglumar út í um
1.000 eintökum þegar þær vom
gefnar út, í allar vélsmiðjur og til
flestra verktaka, en það virðist bara
ekki vera nóg.“ Hann segir ekki
ljóst hvað gert verði í framhaldinu
en þó sé líklegt að einhvers konar
átak verði gert til fræðslu.
í júlí síðastliðnum varð starfs-
maður loðnuverksmiðju á Akranesi
fyrir alvarlegri gaseitran í loðnuþró
og annar varð fyrir vægri eitran. í
ágúst 1994 misstu þrír menn með-
vitund í lokuðu rými í dýpkun-
arpramma við Grandagarð og var
talið að þeir hefðu orðið fyrir súr-
efnisskorti vegna ryðmyndunar í
jámi í prammanum. Sama sumar
var starfsmaður SR-mjöls á Siglu-
firði mjög hætt kominn þegar hann
var að hreinsa loðnuþró, þar sem
baneitraðar lofttegundir höfðu
myndast út frá skemmdu hráefni.
Hélt konu nauð-
ugri í handjárnum
MAÐUR, sakaður um að hafa
haldið 26 ára konu nauðugri á
heimili sínu, nauðgað henni og
misþyrmt, var úrskurðaður í
Héraðsdómi Reykjavíkur í
gæsluvarðhald til 23. janúar.
Maðurinn er sakaður um að
hafa haldið konunni nakinni í
handjámum í íbúð sinni og mis-
þyrmt henni á ýmsan hátt. Kon-
unni tókst að hringja á hjálp
meðan árásarmaðurinn svaf.
Lögreglan mddist inn á heimili
mannsins og var hann handtek-
inn. Konan var flutt á móttöku
fyrir fómarlömb kynferðislegs
ofbeldis þar sem hlúð var að
henni.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Kveikt á
S
Oslóartrénu
ENN á ný hafa Óslóarbúar sent
Reykvíkingum jólatré á sinn
fasta stað á Austurvelli. Kveikt
var á trénu sl. sunnudag með
hefðbundinni athöfn, í blíðviðri
og að viðstöddu fjölmenni á öll-
um aldri. Auk ávarpa og
jólatónlistar skemmtu jólasvein-
ar gestum með uppátækjum sín-
um.
100 þús-
und í bæt-
ur vegna
ummæla
RITSTJÓRI og þáverandi að-
stoðarritstjóri DV, Jónas
Kristjánsson og Elías Snæland
Jónsson, hafa í Héraðsdómi
Reykjavíkur verið dæmdir til
að greiða þrotabúi manns 100
þúsund krónur í miskabætur
vegna ummæla, sem höfð vom
um hann í viðtali í blaðinu í
september í fyrra. Maðurinn
hafði krafist einnar milljónar í
miskabætur.
í viðtalinu, sem haft var við
son fyrrverandi sambýliskonu
mannsins, sagði m.a. að hann
hefði haft 12 milljónir út úr
veikri konunni með svikum og
blekkingum og að hann hefði
leikið þennan leik við annað
fólk.
Ritstjórarnir byggðu sýknu-
kröfu sína m.a. á því að þar
sem ummælin kæmu fram í
viðtali við nafngreindan mann
og hafi verið orðrétt eftír hon-
um höfð gætu þeir ekki sem
höfundar borið refsi- og fébóta-
ábyrgð á þeim. Dómarinn féllst
ekki á þetta og benti á að
blaðamaðurinn sem tók viðtalið
hefði ekki nafngreint sig í
skilningi prentlaga og viðmæl-
anda hans hefði ekki verið
stefnt í málinu. Þá væm fyrir-
sagnir í blaðinu settar fram
með þeim hætti að til álita
kæmi að sá frágangur væri
sjálfstætt á ábyrgð ritstjóra og
málið því réttilega höfðað á
gmndvelli ábyrgðar þeirra.
Dómarinn hafnaði sýknu-
kröfu Elíasar, sem byggði á því
að skýra ættí ákvæði laga um
prentrétt þröngt og þar væri
aðstoðarritstjóri ekki nefndur.
Dómarinn sagði þvert á móti
að lagaákvæðið tæki einnig til
aðstoðarritstjóra, enda væri
það ekki takmarkað að því
leyti.
Ummælin dæmd ómerk
Öll ummæli, sem stefnt var
út af, vom dæmd ómerk. Dóm-
arinn tók fram, að öll væm þau
höfð eftir viðmælanda blaða-
manns DV í viðtali og ýmist
höfð eftir honum óbeint í við-
talinu eða innan tilvitnunar-
merkja. Sumpart lýstu þau
skoðun viðmælandans á stefn-
anda málsins. Þegar þetta væri
virt þættu ekki efni til að fall-
ast á kröfu um að ritstjórunum
yrði refsað samkvæmt hegn-
ingarlögum. Hins vegar fælu
ummælin í sér ólögmæta mein-
gerð gegn stefnanda og hann
ætti rétt á miskabótum.
Loks voru ritstjóramir
dæmdir til að birta dóminn og
forsendur hans í DV og til að
greiða þrotabúi mannsins 190
þúsund kr. í málskostnað.
10-18:30
Sum fyrirtæki eru opin lengur.
KRINGMN
^ fí R fl fí F M FE L I HBHBÍ JS
W' 1 ------.rJ^' ^
Varað við gáleysislegri notkun leysibenda
Undanteknmg að leysibendar
séu seldir sem leikföng hér
SVO virðist sem það heyri til und-
antekninga að svokallaðir leysi-
bendar séu seldir sem leikföng í
verslunum hér á landi. Þeir hafa þó
verið í tísku meðal barna og ung-
linga og dæmi eru um að þeir hafi
verið notaðir til að trufla íþrótta-
kappleiki. Geislavarnir ríkisins vara
við gáleysislegri notkun þessara
áhalda.
Morgunblaðið ræddi við nokkra
verslunarmenn, sem telja að það sé
fremur undantekning en regla að
börnum séu seldir leysibendar. Sem
dæmi má nefna að í a.m.k. einni
leikfangaverslun í Reykjavík eru
leysibendar einungis seldir einstak-
lingum yfir 18 ára aldri og aðeins
samkvæmt pöntun. Aðallega eru
það kennarar og fyrirlesarar sem
kaupa þessi áhöld og verslunar-
menn benda á að þau séu auk þess
það dýr að það sé yfirleitt ekki á
færi barna að kaupa þau.
Viðvörun frá Geislavörnum
ríkisins
Fyrir skömmu fékk bam í Hafnar-
firði geisla úr leysibendi í augað.
Betur fór en á horfðist en skóla-
hjúkmnarfræðingur sendi málið til
Hollustuverndar ríkisins, sem sendi
það áfram til Löggildingarstofu, sem
er yfireftirlitsstjómvald á þessu
sviði samkvæmt lögum um öryggi
vöra. Að sögn Birnu Hreiðarsdóttur,
deildarstjóra markaðsgæsludeildar
Löggildingarstofu, var Aðalskoðun
hf., sem sér um eftirlit á markaði
fyrir Löggildingarstofu, falið að
kanna málið nánar og að því loknu
voru öll gögn send til Geislavarna
ríkisins, sem nú hafa sent frá sér við-
vömn vegna gáleysislegrar notkunar
leysibendanna.