Morgunblaðið - 09.12.1997, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 1997 37
LISTIR
Vídeólistakona hlaut
Turner-verðlaunin
Morgunblaðið. London.
TATE listasafnið var stofnað
íyrir réttum hundrað árum af
manni sem auðgaðist á sykur-
framleiðslu. Tate & Lyle
blómstra enn í sykurbransanum
og listasafnið þrífst sömuleiðis,
það er nú í eigu breska ríkisins
og hýsir meðal annars helsta
safn (tuttugustu aldar- og) nú-
tímalistar þjóðarinnar.
Fjórar konur
kepptu til úrslita
í Tumer keppninni eru valdir
fjórir listamenn, verk þeirra
sýnd, og síðan stendur einn
þeirra eftir með pálmann í hönd-
unum, tuttugu þúsund pundum
ríkari.
Markmiðið með samkeppninni
er að heiðra breskan listamann
og ýta undir þi-óun í breskri nú-
tímalist. Áhuginn á Turner verð-
laununum hefur aukist jafnt og
þétt frá því þau vom fyrst veitt
1984, það er talið að
rúmlega 50 þúsund
áhorfendur komi ár-
lega til að sjá hvað
fremstu listamenn
þjóðarinnar hafa
fram að færa.
I ár eru það fjórar
konur sem kepptu
um verðlaunin,
hvort sem það em
viðbrögð við því að í
fyrra voru það fjórir
karlmenn sem
kepptu til úrslita eða
hrein tilviljun skal
látið ósagt.
Cornelia Parker
Cornelia Parker
komst í sviðsljósið í
fyiTa þegar hún í
samstarfi við
leikkonuna Tildu
Swinton sýndi Tildu
i glerbúri um-
kringda hlutum sem
höfðu sögulegt gildi,
eins og t.d. vindil
Winston Churchills og sokk af
Viktoríu drottningu. A Turner
sýningunni er hún með verk sem
heitir Mass (colder Darker Matt-
er) búið til úr brannum leifum af
kirkju sem varð fyrir eldingu í
Texas. Viðarbútarnir og kola-
molarnir hanga í spottum neðan
úr loftinu og mynda kassalaga
form sem er þéttast innst en
dreifir sér nær útveggjum kass-
ans. Hún sýnir einnig mörg
smærri verk, oft eru þetta hlutir
sem hafa litla sem enga merk-
ingu í daglegu lífi, en öðlast nýja
merkingu þegar þeir eru komnir
inn í listasafnið og á bakvið gler.
T.d. tók hún upp hringlið í lykla-
kippu Freuds, lét skera vínil-
plötu með upptökunni, tók síðan
spæninn (þunnir vinilþræðir)
rammaði hann inn og kallar
verkið Negatives of Sound.
Christine Borland
Christine Borland rannsakar
framhugmyndir um mennska til-
vera, hún notar réttarlæknis-
fræði sem granninn að sinni list.
Phantom Twins era eftirlíkingar
af leðurdúkkum sem vora notað-
ar til að kenna læknanemum síð-
ustu aldar um fæðinguna. Leðrið
var strekkt utanum raunveruleg-
ar fósturbeinagrindur, Borland
notar að vísu plast afsteypur í
sínar dúkkur. Hún býr einnig til
skuggamyndir með því að strá
dufti á glerplötu með béinagrind,
síðan fjarlægir hún beinagrind-
ina og eftir sitja útlínur beina-
grindarinnar í duftinu sem varp-
S
Arlega er haldin
í Tate listasafninu
á bökkum Thames-
ár í London lista-
samkeppni kennd
við listmálarann
Turner. Nú hlaut
þau Gillian Wear-
ing, vídeólistakona.
Dagur Gunnarsson
segir frá keppend-
unum og sýningu
^eirra.
ar draugalegum skugga á vegg-
inn og gólfið fyrir neðan og
minnir einna helst á röntgen-
mynd. Er þetta myndhverfing
fyrir duftið sem við verðum öll að
eða áminning um þá ópersónu-
legu meðhöndlun sem líkami
okkar hlýtur að okkur látnum?
Angela Bullock
Angela Bullock er yngsta lista-
konan sem keppir til verðlaun-
anna í ár og er með nútímalegt
framhald af list sjöunda áratug-
arins, minimalisma og hugtaka-
eða hugmyndalist. Hún fylgir
þeim stíl sem þá tíðkaðist í skær-
litum verkum sem áhorfendur
geta tekið virkan þátt í að skapa.
Superstrueture with Satelites er
í raun risavaxin bólstrað mubla
eða sófi sem gefur frá sér hljóð
ef sest er á hann eða ef maður
gengur framhjá nemum sem
skynja hreyfingu. Hún notar
tölvutæknina óspart í sínum
verkum og sum verk hennar era
í raun skjálftamælar sem bregð-
ast við umgangi áhorfenda og úr
verður einstök skrá yfir stað og
stund.
Gillian Wearing
Við hátíðlega athöfn 2. desem-
ber sl. var tilkynnt að Gillian
Wearing, vel þekkt videólista-
kona, hreppti Tumer verðlaunin
í ár.
Wearing notar myndbandið
sem listform, gerir stuttar
áhrifamiklar myndir sem era oft-
ar en ekki fullar af húmor. Hún
sýnir tvö verk í þessari sýningu,
annars vegar; 60 Minutes Si-
lence, þar sem hún myndaði 26
manns í lögreglubúningum þegja
í klukkustund, sitjandi og stand-
andi eins og uppstillt fyrir
myndatöku hjá ljósmyndara. Það
er eins og hópmynd af lögreglu-
þjónum sé að fylgjast með
manni, þeir horfa í myndavélina,
ræskja sig, iða í sætinu eða tví-
stíga eins og venjulegt fólk gerir
þegar því er sagt að það verði að
sitja þögult í klukkustund. Ef
maður hefur þolinmæði til að
staldra nokkra stund við þetta
verk þá er eins og maður fari að
greina mismunandi persónuleika
í lögregluhópnum og fer að
ímynda sér sögu og bakgrunn
sumra. Hitt verkið er öllu
óhuggulegra. Það heitir Sacha &
Mum, það sýnir samspil móður
og dóttur á heimili þeirra. Faðm-
lög breytast í stympingar, móðir-
in notar handklæði
eins og grímu og
haft á dótturina sem
er á nærfötunum
einum saman. Mynd-
in er svarthvít og er
sýnd afturábak, öll
hljóð verða drunga-
leg og ómennsk. We-
aring leikstýrði
þessu verki gaum-
gæfilega og það sést
á stílfærðum hreyf-
ingum leikaranna.
Það má vel lesa úr
þessu einfalda tákn-
mynd af þróun á
„haltu mér, slepptu
mér“ samskiptum
móður og dóttur, ást
verður haft.
Allt í óvissu
A hverju ári flykk-
ist almenningur á
Tumer sýninguna í
Tate listasafninu og
nú í ár eins og oft áð-
ur sprattu upp deilur
og umræður í fjölmiðlum um
hvað list sé. Getur það að setja
hversdagslegan hlut í glerkassa í
listasafni breytt þessum hlut í
listaverk? Margir segja nei,
þetta er bara merkingarlaust
bull sem hefur ekkert með vand-
að handbragð listamannsins að
gera, að hugmyndirnar séu oft
einfaldir brandarar sem skilja
ekkert eftir sig, að það vanti alla
dýpt.
Listfræðingar og listamenn
sem hafa andmælt þessu sjónar-
miði segja að þetta listform sé
eins og ljóðlist, það verði að leyfa
verkunum að tala til þín bæði á
tilfinninga- og vitsmunalegu
plani, það þurfi að leggja á sig
smávinnu til að skilja sum verk-
in.
Algeng gagnrýni á nútímalist
er líka að hún virðist ekki búa
yfir neinum svörum, varpi bara
fram spurningum, því er oftast
svarað með því að fæstir lista-
menn hafi gefið sig út fyrir að
geta leyst lífsgátuna, markmiðið
sé að vekja fólk til umhugsunar
um stöðu sína í nútíma þjóðfé-
lagi og þaðan af víðara sam-
hengi.
Þessi tegund af list virðist oft
vera að miðla því til áhorfandans
að allt sé óvíst og að við vitum í
raun ekkert með vissu. Þessum
skilaboðum er komið til skila eft-
ir flóknum og oft háþróuðum
leiðum, gjarnan með kaldhæð-
inni kímnigáfu.
Sýningin stendur til 18. janú-
ar.
GILLIAN Wearing hreppti Turner verðlaunin í ár. Hún
notar myndbandið sem listform og sýnir tvö verk á
verðlaunasýningunni; Sextíu mínútna þögn, þar sem
hún myndaði 26 manns í lögreglubúningum þegja í
klukkutíma, og Sacha & Mum, sem sýnir samspil móður
og dóttur á heimili þeirra.
Tina í sultutíð
DJASS
Múlinn á Jómfrúnni
DJAMMSESSJÓN
Lokakvöld 1997 - Föstudagskvöldið
5. desember.
FRÆGT eintal, How jazz was
born, endar danski gamanleikar-
inn Dirch Passer á þessum orðum:
„... som rusinen i polseenden, som
the rasine in the hot dog end,
horer vi dem her i en typisk jam
session, direkte oversatt: syltetoj
session." Ekki getum við íslenskir
leikið efth- seinni orðaleikinn er
Tao Michaélis samdi fyrir Dirch,
en djammsessjónir hafa lengi verið
haldnar hér og frægastar trúlega í
Breiðfirðingabúð í den. Djamm-
sessjón kalla djassmenn þegar
hljóðfæraleikarar safnast saman
og leika án æfingar lög sem þeir
þekkja allir og spinna yfir hljóm-
um þeirra. Slíkar samkomur vora
djassmönnum stórsveitaráranna
lífsnauðsyn. Þá fengu blásarar
sveitanna í besta falli þrjátíuog-
íjögurra takta sóló í örfáum lögum
á kvöldi - nema þeir væru stór-
stjörnur - og enga útrás fyrir
sköpunarþörfina fyrren á djamm-
sessjónum eftir vinnu. Nú er öldin
önnur og menn spinna einsog þá
lystir og kannski var djammses-
sjónin á Múlanum sl. föstudags-
kvöld útför íslenska djassdjamms-
ins. I það minnsta voru ekki marg-
ir að djamma; tveir píanistar,
bassaleikarar og trommai-ar, einn
blásari, gítaristi og söngkona. Þeg-
ar ég kom á staðinn var setið í
flestum sætum og Jóel Pálsson að
blása I’ll remember april, gamlan
stríðssöng djassmanna sem Orms-
lev og Jón Páll djömmuðu m.a.
með Friedrich Gulda í Framsókn-
Bökakvöld í
Súfistanum
Hafnarfirði
FJÓRIR rithöfundar lesa úr nýút-
komnum bókum sínum í Súfistan-
um, Strandgötu 9 Hafnarfirði, í
kvöld, þriðjudaginn, kl. 20.30.
Einar Már Guðmundsson, les úr
nýrri skáldsögu sinni Fótspor á
himnum; Páll Bergþórsson les úr
bókinni Vínlandsgátan, Hörður
Magnússon les úr bókinni Everest,
Islendingar á hæsta fjalli heims og
Kristín Marja Baldursdóttir les úr
skáldsögu sinni Hús úr húsi.
-------------
Listmunauppboð
á Hótel Sögu
GALLERÍ Fold heldur listmuna-
uppboð nk. fimmtudag á Hótel Sögu
kl. 20.30. Boðin verða upp tæplega
100 verk, þar á meðal mörg verk
gömlu meistaranna. Verkin verða til
sýnis í Gallerí Fold, Rauðarárstíg,
þriðjudag kl. 10-18, miðvikudag kl.
10-22 og fimmtudag kl. 10-18.
arhúsinu forðum daga. Svo kom
kanadíska söngkonan Tina Pal-
mer, sem hér hefur dvalist við
kennslu og söng frá því haustið
‘96. Þá sló prentarinn Ólafur
Stolzenwald bassann með atvinnu-
mönnunum Eyþóri Gunnarssyni
og Pétri Grétarssyni og í Body and
soul lagði Tina ýlfrandi hljóðnem-
ann frá sér og lét röddina berast
raflausa um salinn. Hún syngur
ekki í hinum hefðbundna djassstíl
- er líkari Sheilu Jordan og þeim
dömum - og hefur aukið fjöl-
breytni í íslensku djasslífi. í lok
djammsins kallaði Tómas R. Ein-
arsson, einn af forastumönnum
Múlans, á tvo nemendur í djass-
deild Tónlistarskóla FÍH, þá Eirík
Orra Ólafsson trompetnema og
Valdimar Sigurðsson bassanema,
og léku þeir blúsinn hans Theloni-
usar Monks: Straight no chaser.
Að vísu var Monk fjarri, en því er
maður vanur, en Gulli Briem sat
við trommurnar og barði trylling í
tónlistina og strákarnir stóðu sig
vel. Það er alltaf gaman að heyra
unga, efnilega nemendur og
kannski væri ráð að ljúka næstu
hrinu Múlans með því að leyfa
efnilegustu nemendum djassdeild-
ar Tónlistarskóla FÍH að leika
með topp djassrýþmasveit. Það er
kannski rétti djammsessjón nú-
tímans.
Þetta vora síðustu tónleikar
djassklúbbsins Múlans á þessu ári,
en væntanlega verður þráðurinn
tekinn upp í febráar.
Að lokum: Einn af höfuðsnilling-
um Islandsdjassins, Jón Páll
Bjarnason gítaristi, er væntanleg-
ur heim í jólafrí og mun leika með
tríói Ólafs Stephensen svo það er
hægt að fara að hlakka strax til
heitra djassjóla.
Vernharður Linnet
Peysur
100% merinóull
Rúllukragi, v-hálsmál
og hnepptar
POLARN O. PYRET
KRINGLUNNI-SÍMI 5681822
fltovgititMð&ifr
- kjarni málsins!
Námskeið
tU aukinna ökuréttinda
hefjast vikulega
Sveigjanlegur námstími (áfangakerfi), próf á rútu, leigubíl, vörubíl og
vörubíl með tengivagni. Reyndir kennarar, góðir bílar, fullkomin aðstaða.
Hafðu samband og fáðu nánari upplýsingar.
<Ú)
♦♦
- OKU
$KOIJNN
IMJODD
Kennsla og skrifstofa: Þarabakka 3, Mjóddinni, Rvík, sfmi 567-0-300