Morgunblaðið - 09.12.1997, Qupperneq 52
-52 ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 1997
AÐSENDAR GREINAR
MORGUNBLADIÐ
Frumstæðir
áldraumar
ORKUMÁLASTJÓRI
skrifar grein í Morgun-
blaðið hinn 28. október
sl. Þar er skrifað: „Ekki
þarf að nýta nema
þriðjung þessarar orku
(þ.e. 9/10 óvirkjaðrar
orku) í orkufrekum iðn-
aði til þess að útflutn-
ingsverðmæti afurða
hans verði meiri en
allra sjávarafurða
landsmanna." Þessu
fylgir engin athuga-
semd um að afurðir
„orkufreks iðnaðar" og
ágóðinn af þeim renni
til þeirra aðila sem eiga
og reka væntanleg stór-
iðjuver, en útflutningsverðmæti
sjávarafurða rennur inn í íslenskt
þjóðarbú. Svona uppsetning á sam-
anburði er það sem kallað er „hálf-
sannleikur". Minnast má
„Hálfsannleikur oftast er óhrekj-
andi lygi“ - Steph. G. Stephansson.
Þetta viðhorf orkumálastjóra til
hins stórkostlega arðs með „nýtingu
.orkulinda landsins“ er iðkað af
virkjanasinnum og pólitískum fram-
tíðarspámönnum og skipuleggjur-
um. Hingað til hefur orkufrekur
iðnaður eða stóriðja í eigu útlend-
inga engan arð borið í þjóðarbú ís-
lendinga. Skuldirnar og vextirnir
vegna virkjanakostnaðar eru það
miklir að um engan arð er að ræða,
og nú er svo komið að rafmagnaðir
áldrauma frumkvöðlar telja að
næsti draumur Landsvirkjunar um
orkuver norðan Vatnajökuls verði
i. landsmönnum fjárhagslega ofviða
og því sé ákjósanlegt að orkuverið
sé að 15% í eigu er-
lendra fjárfesta. Þessi
lága tala sem iðnaðar-
ráðherra setti fram á
miðstjómarfundi
Framsóknarflokksins
- Morgunbl. 23. nóv. sl.
er mjög tortryggileg og
virðist til komin til þess
eins að villa um fyrir
landsmönnum. Ef fram-
kvæmdimar em ofviða
landsmönnum, hverju
yrði þeir bættari með
15% eign erlendra fjár-
festa? Þessir fram-
stæðu og í senn út-
smognu tilburðir iðnað-
arráðherra um 15%
eigu erlendra aðila blekkja engan.
Hlutfallið myndi skjótlega hækka
upp í 100% þegar til framkvæmda
✓
Utsmognir tilburðir
iðnaðarráðherra,
segir Siglaugur
Brynleifsson,
blekkja þó engan.
kæmi við virkjanagerð norðan
Vatnajökuls og yrði þá auðvelt að
tala um nauðsyn virkjananna fyrir
atvinnutækifæra sköpun og landsaf-
sal þar með réttlætt.
Nú era að koma í ljós ýmis
ákvæði úr samningum við eiganda
eða eigendur Norðuráls, sem sýna
hvað íslenskir samningsaðilar
gengu langt til þess að álverksmiðja
Siglaugur
Brynleifsson
Léttir
meöfærilegir
viðhaldsiitiir.
Ávallt fyrirliggjandi.
Góö varahlutaþjónusta.
Þ. ÞQRGRÍMSSON & CO
A undan timanum
í 100 ár.
fyrir
steinsteypu.
Armúla 29, sími 38640
FYRIRLI6GJANDI: GÖLFSLÍPIVÉLAR - RIPPER ÞJOPPUR DÆLUR
• STEYPUSAGIR - HRJERIVÉLAR - SAGARBLOB - VonduO tramleiðsla.
þessi risi hér á landi. Rafmagnsverð
til fyrirtækisins er ríkisleyndarmál
og mætti ætla að það sé yfrið lágt
og nú hefur komið í ljós að samið
hafí verið um að Norðurál mætti
flytja inn starfslið þ.e. farandverka-
menn til starfa, sem verkalýðsfor-
ysta Akraness og jafnvel borgar-
stjórinn í Reykjavík, sáu sem hin
stórkostlegustu atvinnutækifæri
fyrir íbúa Akraness og höfuðborg-
arinnar. Má spyrja hvort launa-
greiðslur Norðuráls séu samnings-
bundnar við eitthvert lágmark og
hvort íslenska ríkið eigi að greiða
mismuninn á lágmarkskaupi far-
andverkamanna og íslenskra verka-
manna, ef þeim byðist þar atvinna?
Stjóm Landsvirkjunar og iðnað-
arráðherra unnu dyggilega að því
að lokka hingað fyrirtæki það sem
nú nefndist „Norðurál" og standa
nú í samningum við Norsk-Hydró.
Við það hefur virkjanaáhugi þess-
ara aðila stóreflst og nú er talað um
„rafmagnaða áldrauma" sem hafa
ekki látið formann Framsóknar-
flokksins ósnortinn, því að hann
ræðir nú um byggðaþróun í sam-
bandi við stóriðju á nokkram stöð-
um á landinu. Þar er kominn vísir-
inn að væntanlegum ráðstjómar-
áætlunum. Draumurinn er þessi:
Erlend stóriðjufyrirtæki fá afhent-
ar orkulindir og gufuorku landsins
gegn því að virkja og koma upp
stóriðjufyrirtækjum á einum fjóram
til fímm stöðum á landinu og.þar er
talið að hefjist blómlegt atvinnulíf
og ál- eða jámblendi- jafnvel
magnesíummenning. Landsvirkjun
mun eiga hlut að lagningu línanna
og sjá að einhverju leyti um rekstur
virkjananna. Á þennan hátt verður
byggðin í landinu tryggð og öll
skipulagning landsmanna verður
mun auðveldari. Þjóðin mun þegar
að þessu kemur hafa eignast allt há-
lendi landsins, ár og vötn og allt
sem í þeim er, svo og hafíð og allar
auðlindir þess og hverja einustu
fiskpöddu. Og Islendingar munu þá
framleiða rafmagn - hreint raf-
magn - og stuðla þannig að minnk-
andi útblæstri eiturefna út í loft-
hjúpinn með ál-, magnesíum- og
jámblendiveram. Þá er upprunninn
sá tími að orkumálastjóri, formaður
Framsóknarflokksins og iðnaðar-
ráðherra geta staulast um á fjós-
haugnum þar sem hann er hreinn
„og þar með fullkomnað contradict-
io in adjecto" - eða þá rökfræðilegu
mótsögn, sem Sigurður Nordal lýsir
svo vel með dæmi List og lífsskoðun
III - bls. 140. Rv. 1987.
Höfundur er rithöfundur.
Þrúgandi þögn
stjórnvalda
Eru Islendingar
barnamorðingjar?
NÝLEGA kom hing-
að til lands lögfræðing-
ur sem starfar í Bret-
landi en er fæddur og
uppalinn í Irak. Hann
ræddi við blaðamenn
og hélt fyrirlestur í
Norræna húsinu um
hið hörmulega ástand
sem almenningur í
Irak býr við. Þetta
ástand er þó ekki af
völdum náttúruham-
fara heldur afleiðing
víðtæks og langvarandi
viðskiptabanns sem
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
hefur ákveðið að beita gegn þessari
þjóð (ekki gegn einum manni eins
og látið er í veðri vaka).
Islensk stjómvöld hafa sam-
þykkt að banna öll viðskipti við
Irak hverju nafni sem þau nefnast.
Ein afleiðing viðskiptabannsins er
sú að um 600 þúsund böm undir
fimm ára aldri hafa látið lífið. Þessi
böm eru saklaus. Þeim var fórnað.
Því er haldið fram að stríð bitni
alltaf á saklausum borgurum. En
jafnvel í stríði verða aðilar að hlífa
óbreyttum borguram. Annars ger-
ast þeir sekir um stríðsglæpi. Og
hér er ekki einu sinni um stríð að
ræða. Viðskiptabannið er ekki
gagnkvæmt. Fómarlömbin eru öll
öðram megin víglínunnar. Nokkrir
stjómmálamenn hafa ákveðið að
það borgi sig að fóma hundraðum
þúsunda bama í meintri baráttu
við einn mann, Saddam Hussein.
Utanríkisráðherra Bandaríkjanna,
Madeleine Albright, sagði í þætti í
bandaríska sjónvarpinu CBS að
þessar aðgerðir hefðu verið „þess
virði“.
Elfas Davíðsson og
þögn stjórnvalda
Eins og ég nefndi hér að ofan
tekur ísland þátt í að refsa sak-
lausu fólki. Eh'as Davíðsson, tón-
skáld og mannvinur, hefur tekið
upp hanskann fyrir bömin í írak.
Hann hefur ásamt fjölda fólks
margsinnis skorað á stjómvöld að
hætta að taka þátt í
þessari atlögu. Stjóm-
völd hafa hvorki virt
hann svars né haft fyr-
ir því að verja afstöðu
sína. Þá hafa þau ekki
sent fulltrúa sína til
Iraks til þess að kynn-
ast þeim skelfílegu af-
leiðingum sem aðgerð-
irnar, sem Islendingar
styðja, hafa haft.
Hið sama gegnir um
Alþingi. Þótt einstakir
þingmenn hafi gagn-
rýnt aðgerðimar var-
færnislega hefur þingið
látið eins og málið komi
Islendingum ekki við.
I fyrra lagði Elías fram skýrslu
um viðskiptabannið þar sem hann
sýnir fram á að það er í raun ekk-
Breytt stefna
stjórnvalda, segir
Arnþór Helgason,
væri ekki stuðning-
---------------------y-------
ur við forseta Iraks.
ert annað en alvarlegur stríðsglæp-
ur og jafngildir alþjóðlegu hi-yðju-
verki. Hann vísaði til alþjóðasamn-
inga sem Island hefur undirritað
og banna atlögu gegn óbreyttum
borguram.
Mér sýnast röksemdir og heim-
ildir Elíasar trúverðugar og í fullu
samræmi við heilbrigða skynsemi.
Það liggur í augum uppi að aðgerð-
ir sem leiða til dauða einnar millj-
ónar óbreyttra borgara geta undir
engum kringumstæðum verið rétt-
mætar, hvað þá siðlegar. Það hefur
enginn maður og engin stofnun
rétt til að ákveða að svipta saklaust
fólk lífi eða refsa heilli þjóð vegna
afglapa einhverra stjórnvalda.
I framhaldi af rannsoknum sín-
um ritaði Elías ríkissaksóknara og
forseta Alþingis bréf, þar sem
krafíst var lögsóknar á hendur
fyrrverandi og núverandi utanrík-
Raftækin
frá okkur eru
góðar jólagjafir
fyrir heimilisvænt
fólk á öllum aldri.
SMITH &
NORLAND
Nóatúni 4 • Sími 5113000
Sú mebfærilegasta, minnsta, léttasta og nettasta frá ÆG
Þab er leikur einn að vinna með
Vampirino ryksugu frá AEG.
Svo er hún ekki geymslu plássfrekl
• 5 föld ryksíun
• Lenqjanleql sogrör
■ Inndraganleg snúra
• Vinnuradius 9,5 melrar
• 3 auka sogstútar
• Rykpoki tekur 2 lítra
• Mjög létt, 4,5 kg
VAMPYRW
10.896,-
-hreint undur
stgr.
Glugginn
laugavegi 60 sími 551 2854
Jakkapeysu-
úrvalið
erí
Glugganum
rnjiOÐ
jCfáamyndaatofti
(jutmwca Jaginuviaaonwí
Suðurveri, simi 553 4852