Morgunblaðið - 09.12.1997, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 1997 57
MAGNUS
TÓMASSON
+ Magnús Tómas-
son fæddist í
Reykjavík 7. janúar
1926. Hann lést á
Landspítalanum 29.
nóvember síðastlið-
inn. Foreldrar hans
voru hjónin Tómas
Magnússon, f. 10.2.
1897, d. 29.5. 1975,
og Ólína Eyjólfs-
dóttir, f. 15.12.
1902, d. 8.9. 1981.
Systkini Magnús-
ar eru Eyjólfur, f.
11.10. 1923, d.
16.10. 1988, Olafía,
f. 25.3. 1927, Tómas Ólafur, f.
7.6. 1930, Sigurður, f. 18.8.
1933, d. 20.4. 1976, Sigmundur,
f. 13.1. 1940, og Sigríður
Magnea f. 21.3. 1942.
Magnús kvæntist hinn 8.
febrúar 1947 Þorbjörgu Eiðs-
dóttur, f. 4.8. 1924. Börn Magn-
úsar og Þorbjargar eru: Ólafía
Sigríður, f. 29.8. 1948, maki
Jóhann Geirharðsson, f. 12.8.
1946. Börn þeirra eru Magnús
Þór, f. 30.1.1971, sambýliskona
Védís Sigurjónsdóttir, f. 13.11.
1972, og Geirharð-
ur Snær, f. 31.12.
1975, sambýliskona
Hjördís Guðnadótt-
ir, f. 3.9. 1976. Eið-
ur Kristinn, f. 7.9.
1950, maki Kristin
Ólafsdóttir, f. 14.12.
1951. Börn þeirra
eru: Eiður Kristinn,
f. 27.7. 1984 og
Anna Margrét, f.
4.11. 1985. Fyrir
átti Kristín Erlu
Björk, f. 27.4. 1972,
sambýlismaður
Magnús Einarsson,
f. 28.4. 1970. Börn þeirra eru
Alexander Öm, f. 21.12. 1994,
og Einar Arnar, f. 9.6. 1996.
Magnús starfaði um árabil á
strandferðaskipinu Esju, þar til
hann hóf nám í pípulögnum sem
hann starfaði við lengst af, eða
þar til hann hóf störf hjá versl-
uninni Utilíf og vann þar meðan
þrek og heilsa entist.
Utför Magnúsar fer fram frá
Fríkirkjunni í Reykjavík í dag
og hefst athöfnin klukkan
13.30.
Elsku afi, nú ertu farinn og við
söknum þín sárt, því þú varst okkur
svo góður. Við geymum í hugum
okkar allra minningarnar um góðu
stundirnar okkar saman. Það var
svo gaman að fara austur og vera
í hjólhýsinu og fylgjast með þér að
veiða. Og oft ef stóri fiskurinn beit
á, var öllum boðið í laxaveislu.
Okkur þótti enginn sunnudagur
nema farið væri í heimsókn til afa
og ömmu í Skálagerði, og alltaf
fengum við eitthvað gott í munn-
inn. Svo var notalegt að sitja í fang-
inu á þér. Nú ertu kominn til Guðs
og þarft ekki að vera veikur framar.
Elsku afi, við vitum að nú líður
þér vel. Við þökkum þér fyrir að
hafa fengið að eiga svona góðan
afa, þann albesta.
Við biðjum góðan Guð að styrkja
ömmu sem misst hefur svo mikið.
Anna og Eiður.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
(V. Briem.)
I dag kveð ég elskulegan tengda-
föður, sem lést eftir erfið veikindi.
Eg kynntist Magnúsi fyrst þegar
við unnum saman fyrir löngu. Fann
ég strax hvern mann hann hafði
að geyma. Hann var glaðlegur, létt-
ur og gaman að tala við hann.
Seinna giftist ég inn í fjölskylduna
og var mér og dóttur minni tekið
sérstaklega vel af þeim hjónum.
Magnús var mjög barngóður maður
og afabörnin voru auðvitað í miklu
uppáhaldi hjá honum. Það var alltaf
gaman að koma í heimsókn í Skála-
gerðið, og það var eiginlega komin
hefð fyrir því að fara á sunnudögum
til þeirra. Það var gaman að sjá
hve samrýnd hjón þau voru og mikl-
ir vinir, enda búin að vera saman
i yfir 50 ár. Magnús hafði mjög
gaman af því að veiða fisk og naut
útiverunnar og náttúrunnar. Nú hin
seinni ár gat hann kannski ekki
farið eins oft og hann hefði viljað
vegna veikinda. Margar góðar
minningar á ég um hann, en ég
ætla að geyma þær innra með mér.
Þó er mér efst í huga hve traustur
og sannur hann var. Elsku Maggi
minn, nú ert þú farinn á annan stað
og líður vel en það er samt svo
skrítið að sjá þig ekki aftur, en
minningin lifir. Þakka þér fyrir alla
gleðina sem þú veittir okkur. Guð
blessi þig.
Elsku Þorbjörg mín, ég bið Guð
að styrkja þig og fjölskylduna alla.
Kristin.
Leggðu þvi sál þína að fótum jarðarinnar
í læknandi hendur himinsins
og í faðm hins mikla djúps.
Þegar stund mannsins er komin
mun lífið sjálft leiða hann heim.
(Gunnar Dal.)
Hjónin Magnús og Bubba hafa
verið óbeinir nágrannar okkar
mæðgna á þriðja tug ára. Sjaldan
höfum við heimsótt ættarhöfðingj-
ana í Skólagerði öðru vísi en að
rekast á annað hvort þeirra eða
bæði.
Þessar tvær íjölskyidur hafa
fylgst náið hvor með annarri í gegn-
um árin og skipst á fréttum af si-
stækkandi afkomendahóp. En nú
er komið að leiðarlokum. Fyrir hönd
fjölskyldu okkar viljum við þakka
Magnúsi fyrir sýndan hlýhug í okk-
ar garð í gegnum tíðina og sendum
eftirlifandi konu hans, Þorbjörgu,
og börnum þeirra okkar innilegustu
samúðarkveðjur.
Ingunn og Ása.
Þegar við kveðjum og minnumst
þín, elsku afi, er það með sárum
söknuði. Lífsgleði og þrautseigja
og jákvæði einkenndu þig. Þær eru
ljúfar minningarnar um allar góðu
stundirnar i Skálagerðinu, allir bílt-
úrarnir og ekki síst allar veiðiferð-
irnar, en þær voru ófáar sem við
fórum saman austur að Sogi. Þar
gistum við í Sillabústað sem var
algjör paradís fyrir alla sem þar
komu, ekki síst veiðimanninn sem
í þér bjó. Það var líka mikil upplif-
un fyrir okkur strákana að fá að
renna fyrir bleikju með afa. Og
ekki drógu langvarandi veikindi úr
veiðigleðinni, þvert á móti átti veið-
in hug hans allan. Okkur strákunum
og öllum sem kynntumst þér gafstu
allan þann kærleika sem hægt er
að gefa. Við kveðjum þig með sökn-
uði, en í huga okkar og hjörtum
lifir minningin um þig, elsku afi.
En minning þín
er mjúk og hlý
og mun oss standa nærri,
með hveiju vori vex á ný
og verður ávallt kærri.
(Magnús Ásgeirsson)
Guð blessi þig.
Magnús Þór og
Geirharður Snær.
Kæri tengdafaðir og vinur um
margra ára skeið. Ég kveð þig með
söknuði og kæru þakklæti fyrir
samfylgdina á lífsleiðinni.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Blessuð sé minning þín.
Jóhann Geirharðsson.
Elsku Maggi minn, mig langar
til að þakka þér fyrir stundimar sem
þú gafst mér. Þú reyndist mér sem
sannur afi, og aldrei mun ég gleyma
fyrstu kynnum okkar, þegar ég kom
í vinnuna til mömmu og fór þá allt-
af til þín í heimsókn og fékk kúlur
og tópas og við spjölluðum saman.
Ég man öll jólin þar sem fjölskyldan
var saman kornin. Minningin um
þig mun lifa með okkur.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Elsku Bubba, góður Guð styðji
þig og styrki.
Erla.
Persónuleg,
alhliða útfararþjónusta.
Áralöng reynsla.
Sverrir Einarsson, útfararstjóri
Sverrir Olsen, útfararstjóri
Utfararstofa Islands
Suðurhlíð 35 ♦ Sími 581 3300
Allan sólarhringinn.
í stórum og rúmgóðum sýningarsal okkar
eigum við ávallt fyrirliggjandi margar
gerðir legsteina og minnisvarða.
Hvergi meira úrval. Yfir 45 ára reynsla
Verið velkomin til okkar,
eða fáið myndalista.
SKEMMUVEGI 48, 200 KÖP., SIMI: 557-6677/FAX: 557-8410
+
Faðir okkar, stjúpfaðir, tengdafaðir, afi og
langafi,
RAFN ALEXANDER PÉTURSSON,
fyrrv. framkvæmdastjóri,
lést laugardaginn 6. desember síðastliðinn.
Bergljót Rafnsdóttir,
Júlíus G. Rafnsson,
Pétur Ó. Rafnsson,
Kjartan Rafnsson,
Auður Rafnsdóttir,
Dröfn Rafnsdóttir,
Árni Júlíusson,
barnabörn og
Bjöm Einarsson,
Guðrún Gísladóttir,
Guðríður Friðriksdóttir,
Sólveig Einarsdóttir,
Júlíus Bjarnason,
Sigurður Sævarsson,
Sólveig Jónsdóttir,
barnabarnabörn.
Konan mín elskuleg, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
NANNA HALLDÓRSDÓTTIR,
Skólavörðustíg 20,
lézt á Vífilsstaðaspítala fimmtudaginn 4. des-
ember sl.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju mánudag-
inn 15. desember kl. 13.30.
Runólfur Sæmundsson,
Logi Runóifsson, Anna Kristjánsdóttir,
Daði Runólfsson, Ragnheiður Ríkharðsdóttir,
Halldór Björn Runóifsson, Margrét Árnadóttir Auðuns,
barnabörn og barnabarnabarn.
+
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og
amma
SIGRÍÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR,
Kleppsvegi 142,
lézt á heimili sínu laugardaginn 6. desember.
Halldór Halidórsson,
Guðmundur Halldórsson, Elísabet Halldórsdóttir
Hildigunnur Halldórsdóttir, Gylfi fsaksson
Halldór Halldórsson, Ingibjörg Tómasdóttir
og barnabörn.
+
Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma og
langamma,
ÓLÖF KETILBJARNARDÓTTIR,
Baldursgötu 16,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðviku-
daginn 10. desember kl. 13.30.
Guðmundur Guðveigsson,
Peter Salmon,
Jóhanna Guðbjömsdóttir,
Nína Edvardsdóttir,
Kolbrún Dóra Indriðadóttir,
Ólöf Guðmundsdóttir Salmon,
Eggert Snorri Guðmundsson,
Indriði Halldór Guðmundsson,
Guðmundur Sævar Guðmundsson, Edda Sigurbergsdóttir,
Halldóra Katla Guðmundsdóttir,
Sigrún Stefánsdóttir,
Oddný Björg Halldórsdóttir, Helgi Kristjánsson,
Ólöf Berglind Halldórsdóttir
og barnabarnabörn.
+
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, teng-
dafaðir, afi og langafi,
EINAR KJARTANSSON,
dvalarheimilinu Höfða,
Akranesi,
sem andaðist á heimili sínu fimmtudaginn
4. desember, verður jarðsunginn frá Akranes-
kirkju fimmtudaginn 11. desember kl. 14.00.
Þórdís Baldvinsdóttir,
Sonja Hulda Einarsdóttir,
Brynja Einarsdóttir,
Fanney Lára Einarsdóttir,
Sólveig Einarsdóttir,
Jakob Þór Einarsson,
Gísli Bjarnason,
Örnólfur Þorleifsson,
Kjartan Rafnsson,
Valgerður Janusdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.