Morgunblaðið - 09.12.1997, Page 67
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 1997 67
Felicia LX: 1.300 vél, 5 gíra, Bosch-Monomotronic innsprautun, stangarstýri, öryggisstýrisstöng, þokuljós að aftan, hliðarspeglar
hæðarstillanleg öryggisbelti, 4 hnakkapúðar, barnalæsingar á aftur- stillanlegir innanfrá, farangursrými opnanlegt innanfrá, aftursæti
hurðum, halogen aðalljós, hæðarstilling á framljósum, tann- niðurfellanlegt 60:40, upphituð afturrúða, afturrúóuþurrka m/tímarofa.
Fundur um
fyrsta ís-
lenska félags-
fræðing'inn
FÉLAGSFRÆÐINGAFÉLAG ís-
lands stendur fyrir fundi um Guð-
mund Finnbogason, prófessor við
Háskóla íslands, þriðjudaginn 9.
desember kl. 12-13 í Odda, stofu
101.
Á fundinum mun Jóhann Hauks-
son, félagsfræðingur og fréttamað-
ur á RÚV, kynna nýútkomna bók
sína Hugur ræðir hálfri sjón sem
Háskólaútgáfan gaf út. Guðmundur
var m.a. langt á undan sinni sam-
tíð á Norðurlöndum í rannsóknum
á verklagi í fiskvinnslu og leitaðist
við að auðvelda störfin og auka
afköstin. Hann bar einnig hug-
myndastraum félagsfræðinnar
hingað til lands á öndverðri öldinni
sextíu árum áður en fræðigreinin
skaut rótum í Háskóla íslands.
Allir eru velkomnir meðan hús-
rúm leyfir.
------» ♦■ ♦---
Málstofa um
mannréttindi
MÁLSTOFA um mannréttindi verð-
ur haldin miðvikudaginn 10. desem-
ber kl. 17.15, í A sal Hótel Sögu.
Bengt Lindqvist, umboðsmaður
fatlaðra hjá Sameinuðu þjóðunum,
heldur fyrirlestur um grundvallar-
reglur Sameinuðu þjóðanna til jöfn-
unar tækifæra fyrir fólk með fötlun.
Sem umboðsmaður fatlaðra hjá
Sameinuðu þjóðunum hefur Bengt
Lindqvist það verkefni að fylgjast
með því hvort grundvallarreglunum
sé framfylgt, benda á það sem bet-
ur má fara í málefnum fatlaðra hjá
aðildarríkjum Sameinuðu þjóðanna
og vera framkvæmdastjóra Samein-
uðu þjóðanna til ráðgjafar um stöðu
fatlaðra.
Það eru Blindrafélagið, Lands-
samtökin Þroskahjálp, Mannrétt-
indaskrifstofa íslands og Öryrkja-
bandalagið sem standa að komu
Lindquist hingað til lands.
------» ♦ ♦----
Skógræktar-
fundi frestað
ÁÐUR auglýstum fræðslufundi á
vegum skógræktarfélaganna, sem
vera átti í kvöld, þriðjudagskvöld,
í Mörkinni 6 hefur verið aflýst.
Verður hann haldinn í febrúar á
næsta ári.
FRÉTTIR
Unglingaskemmtun
Hringsins
NÝLEGA var haldin önnur af
hinum tveimur árlegu ungl-
ingaskemmtunum á Barnaspít-
ala Hringsins. Þar koma saman
unglingar sem á spítalanum
dvelja svo og þeir sem hafa
dvalist þar mikið.
Stefán Hilmarsson tróð þar
upp og veitingar voru í boði
Hróa Hattar, Hringbraut 119.
Svona ánægjulegar samkomur
stytta stundirnar fyrir ungling-
ana sem ekki eiga kost á mikl-
um skemmtunum annars.
Kaffisýning
í Te- og
kaffibúð-
mm
Buxna- og pilsdragtir
Síð pils og stakir jakkar
Ttskuskemman
Bankastræti 14, sími 561 4418
TE- og kaffibúðin, Laugavegi 27,
er nú með sýningu sem gefur yfir-
lit yfir sögu og þróun kaffisins og
hanga ljósmyndir uppi á veggjum
kaffihússins sem tengjast verslun-
inni.
Þar má sjá þróun kaffidrykkjunn-
ar frá því að kaffiberið uppgötvað-
ist fyrst sem hressandi ávöxtur og
þar til farið var að brenna og mala
kaffibaunina og búa til úr henni
kaffidrykkinn.
Einnig hefur verið gefinn út
bæklingur sem nefnist Saga og
leyndardómur kaffisins og liggur
hann frammi fyrir gesti og gang-
andi. Þar má t.d. lesa um uppruna
kaffiplöntunnar, útbreiðslu hennar
um heiminn, ræktun og einnig
hvernig kaffihúsamenningin þróað-
ist. Kynningin mun standa yfir til
febrúarloka 1998, en þá mun taka
við kynning sem verður tileinkuð
te og tedrykkju.
OttAAt KF-265
TILBOÐ
Kælir 197 Itr. Frystir 55 Itr.
HxBxD 146.5 x 55 x 60
Aðeins
54.990,-
Það eru nýjar glæsilegar
innréttinqar í öllum 20 gerðum
kæliskápanna.
fyrsta flokks frá
iFOmx
HÁTÚNI6A REYKJAVÍK SIMI5524420
Ný snyrti-
stofa opnuð
RÓSA B. Hauksdóttir hefur
opnað eigin snyrtistofu ásamt
Maríu Tamimi.
Stofan heitir Neglur og feg-
urð og býður upp á gervineglur
og förðun og ýmiskonar vörur.
Neglur og fegurð er til húsa á
Eiðistorgi 13,2. hæð.
RÆSTIVAGNAR
ÍBESTÁl
Urvalið er hjá okkur
Nýbýlavegur 18 • 200 Kópavogur
Sími: 510-0000 • Fax: 510-0001
LOKSIN
FLISPEYSU
198
Ath Sendum í póstkröfu.
Grænt númer 800-5730.
Simi 562-9730. Fax 562-9731
DRESS
MANN
LAUGAVEGI 18 B - REYKJAVIK
Hvar færðu nýjan bíl
fyrir 638.554 kr. án vsk?
... eða aðeins 795.000 kr. með
virðisaukaskatti. Hvort sem þú
leitar að snattbíl í fyrirtækið,
skutbíl fyrir efni og tæki eða plássi
fyrir alla fjölskylduna, þá er Skoda
Felicia hreint ótrúlega hagstæður
valkostur. Skoðaðu Skoda Felicia
og sjáðu hvað hægt er að gera
fyrir rétt rúmlega sex hundruð
þúsund!
Verð: 638.544 án vsk.
Nýbýlavegi 2 • Sími 554 2600
Umboðsmenn um land allt:
Akranes, Akureyri, Egilsstaðir,
Höfn, Reykjanesbær, Vestmannaeyjar.