Morgunblaðið - 29.01.1998, Side 8

Morgunblaðið - 29.01.1998, Side 8
8 FIMMTUDAGUR 29. JANÚAR 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR HANN er ekki á biðlista eftir aðgerð hjá Ingibjörgu P. heldur hjá Davíð... Hugmyndir um nafn nýja sveitarfélagsins Austrið og fírðimir koma víða við sögu ÁKVEÐIÐ hefur verið að skipa starfshóp til að stýra vinnu við ákvörðun um nafn á nýja sveitarfé- lagið sem til verður við sameiningu Neskaupstaðar, Eskifjarðar og Reyðarfjarðar. Ýmis nöfn hafa þegar verið nefnd og tengjast þau flest austrinu eða fjörðunum. Gert er ráð fyrir því að íbúum sveitarfélaganna gefist kostur á að koma með hugmyndir og síðan verði kosið á milli nafna í sveitar- stjórnarkosningunum í vor. Það er ákveðið fyrirfram að heiti núverandi sveitarfélaga koma ekki til greina sem nafn á sameinaða sveitarfélagið enda munu byggðar- lögin áfram bera núverandi heiti. Þó vinna við nafnavalið sé ekki komin langt áleiðis hafa komið upp hugmyndir um fjöldamörg nöfn. Smári Geirsson, fúlltrúi í samein- ingarnefnd, segir að menn séu gjaman að reyna að finna eðlilegt samheiti fyrir svæðið og búa til nöfn út frá því. Austrið og firðirnir koma mikið við sögu. Austurríki Sem dæmi um þetta má nefna eftirfarandi hugmyndir: Miðfirðir, Fjarðabyggð, Firðir og Austfirðir. Hólmaneskaupstaður hefur verið nefndur og Gerpisbyggð, hvoru- tveggja hugmyndir út frá ömefn- um sem tengja staðina saman. Hólmanes er sem kunnugt er á milli Eskifjarðar og Reyðarfjarðar og ber auk þess í sér nafn Nes- kaupstaðar. Gerpisbyggð tengist fjallinu Gerpi sem er útvörður fjallgarðsins sem skilur að Norð- fjörð og Reyðarfjörð. Einn við- mælandi á svæðinu taldi Gerpis- byggð ómögulegt nafn vegna þess að íbúar þess hlytu þá að verða nefndir Gerpi. Austurríki hefur komið til tals, hugsanlega meira í gamni en alvöru. Þar kemur Austrið við sögu og tengja má seinni hluta nafnsins við mesta at- hafnamanninn á Eskifirði. Einum viðmælanda fannst Austurríki allt of „rautt“ nafn. Smári Geirsson vill enga ábyrgð taka á þessum hug- myndum, segir að vinnan sé ekki komin nógu langt áleiðis til þess að hægt sé að taka afstöðu til nafna. Hann vekur athygli á því að hluti nafnanna samrýmist ekki núver- andi lögum. Fyrir Alþingi hefur hins vegar verið lagt frumvarp um breytingar á nafnareglum og seg- ist Smári gera sér vonir um að það verði samþykkt tímanlega fyrir kosningarnar í vor. AÍlir dagar eru tilboðsdagar hjá okkur Úgerð rannsóknarskipanna austur? Getum ekki boð- ið þeim annað en góða aðstöðu Hafnarstjórnir Eski- fjarðar, Reyðar- fjarðar og Neskaup- staðar hafa kosið undirbún- ingsnefnd til að vinna að því að fá útgerð rannsókna- skipa Hafrannsóknastofn- unar flutta í nýja sveitarfé- lagið sem til verður um næstu kosningar með sam- einingu þriggja áður- nefndra staða. Neftidin hef- ur nú ráðið Magna Krijáns- son, nafnkunnan aflaskip- stjóra í Neskaupstað, til að undirbúa málið. „Mitt hlutverk er að kynna mér allar hliðar málsins og búa það upp í hendurnar á nefndinni. Mun ég gera það með ítar- legri skýrslu," segir Magni. - Hvernig ætlar þú að vinna að málinu? „Eg er að kynna mér starf- semi Hafrannsóknastofnunar og þá sérstaklega útgerð rann- sóknaskipanna. Einnig kjaramál sjómanna, viðhald, veiðarfæri og aðra þjónustu við sldpin. Ég hef farið eina ferð suður og ræddi þá við fjölda fólks. Fór á fund Jakobs Jakobssonar for- stjóra Hafrannsóknastofnunar og fékk leyfi hans til að fara um deildir stofnunarinnar og kynna mér starfsemina, einkum það sem snýr að útgerðinni. Ég hef einnig farið í rann- sóknaskipin þegar þau hafa komið við hér fyrir austan, fyrst í Arna Friðriksson og síðan Bjama Sæmundsson, og kynnt málið fyrir mannskapnum. Sjó- mennirnir tóku mér vel og þetta voru skemmtilegir fundir. Sem betur fer skömmuðu þeir mig fyrir að vera að vasast í þessu, þeir óttast um sinn hag. Eg tal- aði fyrir málinu og bað um mótrök því ég vil að öll sjónar- mið komi fram þannig að ég geti skilað trúverðugri skýrslu.“ - Eru þeir ekki á móti flutn- ingi útgerðarinnar austur? „Jú, þeir eru flestir á móti en þó ekki allir. Maður getur jafn- vel séð menn í sömu deild á önd- verðri skoðun. Þeir tengja þetta gjarnan rangri byggðastefnu og tala sumir um græðgi í okkur að vera að ásælast störf þeirra. Ég legg aftur á móti á það áherslu að ekki er verið að hrifsa neitt frá þeim. Ég sé það fyrir mér að menn haldi störfum sín- um og eina breytingin fyrir nú- verandi starfsmenn yrði sú að þeir myndu mæta til vinnu úti á flugvelli í stað þess að mæta niðri á Ingólfsgarði. Síðan myndu síast inn í ____________ áhöfnina Austfirðing- ar, eftir því sem pláss losna því enda þótt mikið sé um góða _____________ menn um borð í rann- ““ sóknaskipunum eru störf sjó- mannanna ekki nema að litlu leyti sérhæfð.“ - Hafa þeir ekki nokkuð til síns máls þegar þeir tala um græðgi? Flutningur ríkisstofn- ana út á land er umdeild byggða- stefna. „Það er verið að toga allt frá okkur. Loftskeytastöðvamar eru aðeins eitt lítið dæmi, starf- semi þeirra hefur víðast hvar verið lögð niður og flutt til Reykjavíkur þótt allir sjómenn viti að það hefur skaðað þjónust- Magni Kristjánsson ► Magni Kristjánsson er fæddur í Neskaupstað 24. ágúst 1942. Hann fór til sjós fyrir fenningu og eftir nám í Stýrimannaskól- anum var hann stýrimaður og skipstjóri á skipum frá Nes- kaupstað og víðar frá 1962 og fram undir 1990 og var í hópi mestu aflamanna í flotanum. Eftir að Magni fór í land var hann fyrst við eigin útgerð og fiskvinnslu og hefur síðan verið við verslun. Hann rekur nú sölu- skála og gistiheimili í Neskaup- stað. Eiginkona hans er Sigríð- ur Sjöfn Guðbjartsdóttir. Störfin ekki nema að litlu leyti sérhæfð una. Héðan fóru 2-3 störf vegna þessa og öllum virðist finnast það sjálfsagt. Ef til dæmis fimm menn úr nýja sveitarfélaginu fengju í upphafi störf um borð í rannsóknaskipunum samsvaraði það 150 störfum í Reykjavík. Það munar um hvert starf. Flutningur útgerðarinnar hingað mun líka skila sér í aukn- um umsvifum þjónustufyrir- tækja og við það mun starfsemi þeirra styrkjast og störfum hugsanlega fjölga. Við verðum líka að hafa í huga að ekki er verið að slíta menn upp með rótum eins og hugsan- lega gerist þegar hefðbundin ríkisfyrirtæki eru flutt út á land. Fjarvistir frá heimilinu eru hluti af stai-fi sjómannsins, flutningur hingað austur varðar aðeins spm-ninguna um það hvar hann eigi að mæta til vinnu.“ - Hvað með kostnaðinn, er ekki dýrara að hafa útgerðina hér þegar flytja þarf mannskap- inn og tækin hingað austur? „Miðað við áætlun um leið- angra sem gefin er út í upphafi hvers árs virðist ekki skipta máli ________ hvaðan skipin eru gerð út, maður sér ekki mun á siglingum. Eitthvað dýrara verð- ur að flytja starfsfólk, veiðarfæri og búnað. Hafnargjöld eru ekki greidd og það mun ekki breytast. Hins vegar tel ég að menn finni að ýmis þjónusta er ódýrari úti a landi en í höfuðborginni. Ég hef þá trú að þetta jafni sig út. Ég veit að það er afbragðs mannskapur um borð í rann- sóknaskipunum og vel að út- gerðinni staðið í Reykjavík. Við getum ekki boðið þeim annað en góða aðstöðu hér. Ég tel enga ástæðu til að óttast að það takist ekki því hér eru góðir sjómenn og góð aðstaða.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.