Morgunblaðið - 29.01.1998, Page 14
14 FIMMTUDAGUR 29. JANÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Opið htís fyr-
ir aldraða
OPIÐ hús verður fyrir aldraða í
Akureyrarkirkju í dag, fímmtudag-
inn 29. janúar, og hefst það kl. 15
og stendur til 17.
HaUdóra Ingimarsdóttir spjallar
við gesti af alkunnri snilld, þrjú
börn, frá 11 til 15 ára leika á harm-
óníkur, þau Einar Bjöm Einars-
son, Hólmfríður Katla Ketilsdóttir
og Svanhildur Ketilsdóttir. Jón
Viðar Guðlaugsson stjórnar fjölda-
söng, séra Svavar Alfreð Jónsson
flytur stutta hugvekju. Boðið verð-
ur upp á kaffí og brauð á vægu
verði, 200 krónur. Akstur er í boði
frá Víðilundi og Dvalarheimilinu
Hlíð.
---------------
Ólafur sýnir
á Kardlínu
ÓLAFUR Sveinsson myndlistar-
maður sýnir verk sín á Café Kar-
ólínu, Kaupvangsstræti á Akur-
eyri. A sýningunni em vatnslita-
myndir, en þema hennar em
gluggar.
Olafur hefur lokið námi frá mál-
unardeild Myndlistarskólans á
Akureyri ásamt námsdvöl í Lathi í
Finnlandi. Hann hefur áður haldið
einkasýningar hérlendis og tekið
þátt í samsýningum hér á landi og í
Danmörku.
Sýningin er opin á almennum af-
greiðslutíma Café Karólínu og
stendur hún til febrúarloka.
Morgunblaðið/Kristj án
Sólbakur EA fær andlitslyftingu
HÓPUR málara var á fleygiferð
með málningarrúllur og pensla
í Sólbak EA, frystitogara Ut-
gerðarfélags Akureyringa hf. í
blíðviðrinu í gær. I þeim hópi
var Guðmundur Rafnsson, sem
hér fer fimlega með rúlluna um
síðu skipsins.
Sólbakur er til sölu og hefur
legið við bryggju á Akureyri
frá í maí á síðasta ári, fyrir ut-
an að skipið fór einn rækjutúr í
desember sl. Sæmundur Frið-
riksson, útgerðarstjóri UA,
sagði skipið óselt en nokkuð
hefði verið um fyrirspurnir frá
bæði innlendum og erlendum
aðilum. Hann sagði hins vegar
nauðsynlegt að halda skipinu
við og þessi vinna málaranna
væri liður í því.
Þorramaturinn á þrotum
ÞORRAMATUR er að verða uppseldur hjá
kjötvinnslum á Akureyri, þótt aðeins sé liðin
tæp vika af þorra. Astæðan er m.a. meiri sala en
undanfarin ár, auk þess sem mjög margar versl-
anir þjófstarta og bjóða þorramat strax í byrjun
janúar. „Þetta er alltaf að færast framar og það
hefur komið íyrir að við höfum afgreitt frá okk-
ur þorramat á milli jóla og nýárs,“ sagði Björn
Arason hjá Nýja Bautabúrinu.
Elís Arnason hjá Kjötiðnaðarstöð KEA
sagði að framleiðslan væri að minnka og erfið-
ast væri að eiga nóg af hrútspungum, þar sem
sláturfé væri alltaf að fækka. „Fólk lítur ekki
við þorrabökkunum þegar pungarnir eru búnir
og þetta er orðið spurning um að fara að fram-
leiða einhvers konar punglíki. Við erum að
selja okkar afurðir mjög víða og vandamálið er
það vilja allir fá þorramatinn í búðirnar strax
3. janúar. Þetta ástand virðist vera nokkuð
víða, því það eru kjötvinnslur að hringja til
okkar og leita eftir þorramat. Ástandið er
nokkuð svipað og í fyrra, þótt það sé kannski
heldur verra í ár.“
Salan alltaf
að færast framar
Eiður Gunnlaugsson hjá Kjamafæði hafði
sömu sögu að segja. „Það er mikil eftirspurn og
mér sýnist við verða búnir með okkar þorramat
um næstu helgi. Salan fór vel af stað í byrjun
árs og svo kom aftur mjög sterkur kippur í
hana, ég man ekki eftir að slíkt hafi gerst af jafn
miklum krafti og nú. Salan er alltaf að færast
framar og kemur nú í beinu framhaldi af jólun-
um. Þorramaturinn er þess eðlis að hann þaif
ákveðið ferli í fi'amleiðslu sem tekur nokkum
tíma og því er ekki hægt að stökkva til og fram-
leiða meira þegar komið er fram á þennan tíma.
En þrátt fyrir þessa stöðu framleiddum við mun
meira af þorramat nú en áður.“
Bjöm Arason hjá Nýja Bautabúrinu sagði
orðið eitthvað lítið eftir af þorramat á þeim
bænum, þótt framleiðslan hafi verið meiri nú en
áður. „Þomamatur virðist seljast æ betur og
neyslan er alltaf að færast framar. Ég held að
það sé til nægt hráefni en þetta er vara sem
maður vill selja upp og hún geymist ekki á milli
ára.“
Ferðafélag
Akureyrar
Farið á
Súlumýrar
NÝTT starfsár er nú að hefj-
ast hjá Ferðafélagi Akureyi'ar
og hefur ferðaáætlun félagsins
sem nýlega kom út verið
kynnt, en í henni er að finna
ferðir við sem flestra hæfi.
Fyrsta ferð félagsins á
þessu starfsári er ferð á Súlu-
mýrar næstkomandi laugar-
dagsmorgun, 31. janúar, og
verður lagt af stað kl. 10. Fer
það eftir veðri og færð hvort
þetta verður gönguferð eða
farið verður á gönguskíðum.
Skráning fer fram á skrif-
stofu félagsins á Strandgötu
23, en hún er opin á fimmtu-
dögum og föstudögum frá kl.
17.30 til 19 fyrir auglýstar
ferðir.
Fundur um
alzheimer-
sjúkdóminn
FUNDUR verður haldinn hjá
Félagi áhugafólks og aðstand-
enda sjúklinga með alzheimer-
sjúkdóm og skylda sjúkdóma á
Ákureyri og nági’enni,
FAASAN, á morgun, föstu-
daginn 30. janúar og hefst
hann kl. 17 í sal Dvalarheimil-
isins Hlíðar. Gestur fundarins
verður Jón Snædal, sérfræð-
ingur í öldrunarlækningum.
Hann mun fjalla um
alzheimersjúkdóminn og
helstu nýjungar í greiningu og
meðferð slíkra sjúklinga.
Fundurinn er öllum opinn.
Skyldu-
leikjamót
SKYLDULEIKJAMÓT verð-
ur haldið í skákheimili Skák-
félags Akureyrar við Þing-
vallastræti 18 á Akureyri
föstudagskvöldið 30. janúar
og hefst það kl. 20. Umhugs-
unartími er 7 mínútur, en
nánar verður fjallað um
skylduleik á mótsstað. Allir
eru velkomnir.
Ferðafólagið hyggst bjóða
upp á fjölbreyttar ferðir
Morgunblaðið/Kristján
HORÐUR Harðarson, sprautari á bifreiðaverkstæði Hölds, við vinnu
sína í nýja sprautuklefanum. Með honum á myndinni eru Björn Rúnar
Magnússon verkstjóri og Ari Fannar Vilbergsson, nemi í bílasprautun.
Höldur tekur nýjan
sprautuklefa í notkun
FERÐAFÉLAG Akureyrar hefrn-
kynnt ferðaáætlun sína fyrir árið
1998 og verða að venju fjölbreyttar
ferðir í boði.
Fram á vorið eru skíðagöngu-
ferðir fyrirferðarmestar, í febrúar
eru tvær slíkar á döfínni, annars
vegar þorraferð í Botna, þar sem
gengið verður frá Svartárkoti um
Suðurárbotna í skálann Botna þar
sem verður gist og sama leið geng-
in til baka daginn eftir, og í lok
mánaðarins er óvissuferð. Einnig
eru tvær skíðagönguferðir á dag-
skránni í mars, annars vegar um
Norðurárdal-Hörgárdal og svo um
Stóra-Vatnsskarð að Þúfnavöllum í
Víðidal.
Skíðagönguferðir í Þorvaldsdal,
Glerárdal, og frá Svarfaðardal í
Ólafsfjörð verða í aprílmánuði. Að
venju verður gengið á Súlur 1. maí,
skíðagönguferð á Kaldbak, fugla-
skoðunarferð í nágrenni Akureyrar
og sigling í Málmey eru einnig í
boði.
Tvær ferðir um Öskjuveg
Meðal ferða sumarsins má nefna
að í byrjun júní verður gönguferð í
Botna, frá Svartárkoti, gengið
verður á Þverbrekkuhnjúk í Öxna-
dal, gengið verður inn í Glerárdal
og í Bægisárdal. Einnig er í boði
ferð úr Ólafsfirði, um Héðisfjörð og
í Siglufjörð, gengið verður á Mæli-
fellshnjúk og Kerlingu. Ekið verður
um Brúaröræfi, að Snæfelli, Eyja-
bökkum og í Fljótsdal um miðjan
júlí en dagana 17. til 23. júlí verður
farin gönguferð með allan útbúnað
eftir Öskjuveginum svonefnda, frá
Herðubreiðarlindum í Svartárkot,
og gist í skálum félagsins, Þor-
steinsskála, Bræðrafelli, Dreka,
Dyngjufelli og Botnum. Sama leið
verður gengin í byrjun ágúst, en þá
er um svokallaða lúxusferð að
ræða, þar sem gengið verður með
lágmarksútbúnað og ekið með far-
angur göngufólks milli skála.
Gönguferð um Fjörður og Látra-
strönd er á dagskrá um verslunar-
mannahelgi og í samvinnu við
Ferðafélag Islands verður boðið.
upp á gönguferð um svonefndan
Laugaveg um sömu helgi. Jeppa-
ferð um hálendið norðanvert verður
í byrjun ágúst, farið í Laugafell,
Gæsavatnaleið, í Öskju og Herðu-
breiðarlindir. Gengið verður um
Vindheimafjallgarð í sumar og áætl-
að er að fara frá Ólafsfirði í Hvann-
dali og aftur til Ólafsfjarðar. Þá má
nefna gönguferð á Hreppsendasúl-
ur á Lágheiði og gönguferð um
Þingmannaveg, frá Hróarsstöðum í
Fnjóskadal að Eyrarlandi í Eyja-
firði. í september verður gengið á
Hálshnjúk í Fnjóskadal.
Frá Ólafsfjarðarmúla
til Akureyrar
Líkt og síðasta sumar verður
boðið upp á raðgöngu í sumar, í
fjögur skipti, og verður gengið frá
Ólafsfjarðarmúla með ströndinni
inn Eyjafjörð og til Akureyrar.
Fyrsta ferðin verður 27. júní þegar
gengið verður frá Mígindi í Ólafs-
fjarðarmúla að ósum Svarfaðar-
dalsár, þar hefst annar hluti göng-
unnar 4. júlí og verður gengið frá
Hálsá að sjó og að Víkurbæjunum á
Árskógsströnd. Þriðja göngufórin
hefst þar og verður gengið að Hörg-
árósum, þar sem fjórða ferðin hefst
25. júh', en hún endar á Akureyri.
BIFREIÐAVE RKSTÆÐI Hölds á
Akureyri hefur tekið í notkun nýjan
og glæsilegan sprautuklefa. Klefinn
er af gerðinni Carmat og er einn sá
fullkomnasti á landinu í dag. í gegn-
um klefann fara um 26.000 rúmmetr-
ar af lofti á klukkustund, sem þýðir
um 7-8 loftskipti á mínútu, og það
má kynda hann yfir 100 ° á C.
Gamli sprautuklefinn á verkstæði
Hölds hefur einnig verið endurnýj-
aður og því er hægt að sprauta í
tveimur klefum í einu. Þá hefur
Höldur tekið í notkun nýja
vatnslakkið frá Glassurit sem Bíla-
naust í Reykjavík hefur umboð fyrir.
í fréttatilkynningu frá Höldi segir
m.a. að þetta nýja lakk þyki hrein
bylting frá því sem verið hefur og er
rætt um að frá árinu 2000 verði
skylda að nota þannig vatnslakk.
Nýja lakkið er umhverfisvænt, nokk-
uð sem ekki er hægt að segja um
annað lakk, auk þess sem notkun
leysiefna verður nánast úr sögunni
við sprautun.
H
í
11
i
'
i
I
,
C
V
€
r
k
ú
(•
Q
u
(
H