Morgunblaðið - 29.01.1998, Page 24
24 FIMMTUDAGUR 29. JANÚAR 1998
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
KRAFTMIKIL STEFNURÆÐA BEINIR ATHYGLI FRÁ ÁSÖKUNUM
STEFNURÆÐA Clintons er líklega mikil-
vægasta ræða sem hann hefur flutt á póli-
tískum ferli sínum. Hann minntist ekki á
mál Lewinsky en setti þess í stað málefnin
á oddinn og lagði til aukna áherslu á vel-
ferðarmál. Um svipað leyti og ræðan var
flutt bárust fréttir af fyrrum elskhuga
Lewinsky sem ætlar að veita saksóknaran-
um Starr þær upplýsingar sem hann hefur.
Stefnuræðunni var almennt vel tekið og
kannanir sýna jákvæð viðbrögð kjósenda. I
.
gær kom Hillary Clinton aftur fram í morg-
unsjónvarpi og vísaði ásökunum í tengslum
við Lewinsky-málið á bug. Sjálfur hélt for-
setinn ásamt varaforseta sínum AI Gore í
ferð um Illinois og Wisconsins til að ræða
pólitísk stefnumál sín. Fékk hann mjög
góðar viðtökur er hann ávarpaði háskóla-
nema í Illinois. Rannsókn Starr hélt hins
vegar áfram og var Leon Panetta fyrrum
skrifstofustjóri Hvíta hússins meðal þeirra
sem báru vitni í gær.
STEFNURÆÐA CLINTONS
Tekjuafgangurinn fari
í að efla lífeyriskerfíð
BILL Clinton, forseti Banda-
ríkjanna, flutti langa og yf-
irgripsmikla stefnuræðu á
bandaríska þinginu í fyrr-
inótt og lagði áherslu á að nota þyrfti
væntanlegan afgang af fjárlögum
næstu ára til að styrkja almanna-
tryggingakerfið. Forsetinn minntist
ekki á ásakanimar um að hann hefði
haldið við Monicu Lewinsky, fyrrver-
andi starfsstúlku Hvita hússins, og
hvatt hana til að bera ijúgvitni um
samband þeirra. Hann beindi hins
vegar athyglinni að fjáriögunum, ýms-
um vandamálum sem steðja að heim-
inum og kynnti metnaðarfull áform
um úrbætur í menntamálum, aukna
aðstoð við foreldra sem eiga böm á
dagheimilum og breytingar á sjúkra-
tryggingum aldraðra. Ræðu forsetans
var almennt vel tekið en forystumenn
repúblikana vömðu við því að ýmis
áform forsetans yrðu of dýr.
Stefnuræða forsetans tók 72 mín-
útur og Clinton þurfti alls 104 sinn-
um að gera hlé á máli sínu vegna
lófataks þingmanna beggja deilda
þingsins, ráðherra, dómara hæsta-
réttar og stjómarerindreka, sem
hlýddu á ræðuna. Aðstoðarmenn
Clintons höfðu óttast að þingmenn-
imir myndu taka ræðunni fálega
vegna máls Lewinsky en þær áhyggj-
ur reyndust ástæðulausar.
Asakanirnar á hendur Clinton og
fjölmiðlafárið, sem þær hafa valdið,
urðu til að mikil spenna var í
þingsalnum áður en forsetinn hóf
ræðuna. Áhugi sjónvarpsáhorfenda á
stefnuræðunni var einnig óvenju
mikill vegna máls Lewinsky.
„Bjargið almannatrygginga-
kerfínu fyrst“
Forsetinn sagði að stefna sín hefði
stuðlað að góðæri í Bandaríkjunum
en hann forðaðist þó að gagnrýna
repúblikana og sagði að þeir hefðu
lagt sitt af mörkum til að eyða fjár-
lagahallanum. Áætlað er að afgangur
fjárlaga næstu fimm ára nemi um 200
milljörðum dala (14.400 milljörðum
króna) og Clinton lagði til að þessir
fjármunir yrðu geymdir þar til samið
yrði um úrbætur á almannatrygg-
ingakerfinu.
„Hvað eigum við að gera við þenn-
an væntanlega afgang?" spurði Clint-
on. „Svar mitt er einfalt og stutt:
bjargið almannatryggingakerfinu
fyrst.“
Ráðgert er að þingið breyti lögum
um almannatryggingamar á næsta
ári vegna fyrirsjáanlegrar fjölgunar
ellilífeyrisþega á næstu öld. Yfirvöld
hafa áætlað að verði ekkert að gert
geti almannatryggingakerfið aðeins
náð til um 75% af áætluðum fjölda
Bandaríkjamanna á ellilífeyrisaldri
árið 2029.
Ymsir atkvæðamiklir þingmenn úr
röðum repúblikana tóku tiilögu Clint-
ons vel. „Beiti hann sér fyrir því að
afgangurinn verði notaður til að
bjarga almannatryggingunum, ætla
ég að styðja það heilshugar," sagði
öldungadeildarþingmaðurinn og
repúblikaninn Phil Gramm.
Fulltrúadeildarþingmaðurinn
Mark W. Neumann tók í sama streng
en hann er aðalhöfundur áætlunar,
sem nýtur mikils stuðnings meðal
íhaldsmanna, um að afgangurinn
verði notaður til að lækka skatta,
minnka skuldir ríkisins og til að
standa straum af kostnaði nýrra
verkefna. Hann kvaðst telja að marg-
ir repúblikanar myndu styðja tillögu
forsetans.
Clinton kynnti ýmsar aðrar tillög-
ur um úrbætur í félagsmálum. Hann
kvaðst til að mynda viija lækka lág-
marksaldur þeirra, sem eiga rétt á
sjúkratryggingum fyrir aldraða, og
nokkrir repúblikanar hlógu þegar
forsetinn hélt því fram að slík breyt-
ing kallaði ekld á aukin útgjöld ríkis-
sjóðs.
Forsetinn lagði til að 22 milljörð-
um dala (1.600 milljörðum króna)
yrði varið á næstu fimm árum til að
minnka bekkjarstærðir í grunnskól-
um landsins, reisa nýja skóla og til
starfsþjálfunar fyrir ungt lágtekju-
fólk.
Clinton lagði ennfremur til að ríkin
fengju 7,5 milljarða dala (165 millj-
arða króna) til viðbótar til að niður-
greiða dagvistargjöld fyrir börn lág-
tekjufólks. Forsetinn vill einnig að
reglur um skattaafslætti vegna dag-
vistargjalda verði rýmkaðar.
Forystumenn repúblikana sögðu
að „óskalisti" forsetans myndi kosta
FORTÍÐ LEWINSKY
Fyrrverandi elskhugi
afhendir Starr gögn
LÖGMAÐUR fyrrverandi elskhuga
Monicu Lewinsky segir hana
haldna lyga- og kynlífsáráttu. Mað-
urinn hafi verið sannfærður um að
Lewinsky hafi haldið til starfa sem
lærlingur í Hvíta húsinu með það
fyrir augum að komast að því
hversu langt kynlífið gæti fleytt.
henni, að því er hann fullyrti í sam-
tali við NBC-sjónvarpsstöðina.
Andy Bleiler, sem átti í ástarsam-
bandi við Lewinsky, segir hana
hafa látið sig fá myndir og skjöl
sem hún hafi beðið hann að geyma
en að hans sögn er engin mynd-
anna af Bill Clinton Bandaríkjafor-
seta. Hann hefur verið sakaður um
að hafa átt í kynferðissambandi við
hana og neytt hana til að ljúga til
um sambandið.
Bleiler var leiklistarkennari í
skólanum sem Lewinsky gekk í i
Oregon og hófst ástarsambandið
eftir að hún lauk námi, 18 ára göm-
ui, árið 1992. Því lauk í fyrra er eig-
inkona Bleilers komst að samband-
Reuters.
BILL Clinton flytur stefnuræðu sína í þinginu.
ríkissjóð 40-45 milljarða dala
(2.80CU3.200 milljarða króna) á næsta
ári. Ymsar af tillögum forsetans
væru of kostnaðarsamar og gengju
því í berhögg við samkomulag flokk-
anna um að setja þak á ríkisútgjöldin
til að eyða fjárlagahallanum og
greiða fyrir skattalækkunum.
Clinton hvatti ennfremur til þess
að lágmarkslaun yrðu hækkuð og
repbúblikanar tóku þeirri tillögu fá-
lega. Embættismenn í Hvíta húsinu
qramps handsome
Arfwnal'io'rtcen*':'8'
Haj>py val«ntlne'6 D«y
Reuters
TALIÐ er að Monica Lewinsky
hafi sett þessa auglýsingu í
Washington Post á degi
elskenda á síðasta ári og ætlað
hana forsetanum. Fullyrt er að
á margumræddum upptökum af
samtölum hennar og Lindu
Tripp segi hún Tripp frá aug-
lýsingunni, þar sem vitnað er í
kafla úr Rómeó og Júlíu eftir
William Shakespeare.
sögðu að hann myndi leggja til á
næstunni að lágmarkstímakaupið,
sem nemur nú 5,15 dölum, verði
hækkað um einn dal í áfóngum á
næstu árum.
Saddam varaður við
Clinton notaði einnig tækifærið til
að vara Saddam Hussein íraksfor-
seta við því að hann myndi ekki kom-
ast upp með að hindra vopnaeftirlit
Sameinuðu þjóðanna í írak. „Þú
getur ekla virt vilja heims-
happv
MOM B'
I Uires M'
1 MyUte.ii
inu en hjónin segja það hafa
gerst er Lewinsky hafi
stært sig af því við gamla
skólafélaga.
Lögmaður Bleiler-iijón-
anna, sem boðaði til blaða-
mannafundar með þeim um
stundarfjórðungi áður en
| forsetinn flutti stefnuræðu
sína í fyrrakvöld, sagði
uewinsky hafa vingast við
fjölskylduna og að hún hafi sagt
þeim hjónum að hún hafi átt í ástar-
sambandi við „háttsettan embættis-
mann í Hvíta húsinu". Lewinsky hafi
talað um að hún hafi einungis átt
munnmök við manninn og verið „ör-
væntingarfúll" vegna þess að hann
viidi ekki ganga lengra.
Segir lögmaðurinn að Lewinsky
hafi beðið Bleiler-hjónin að geyma
fyrir sig skjöl og myndir, sem þau
hyggist afhenda Kenneth Starr,
byggðarinnar að vettugi. Þú hefur
beitt gjöreyðingarvopnum áður. Við
erum staðráðin í að koma í veg fyrir
að þú getir notað þau aftur.“
Clinton ræddi ennfremur fjár-
málakreppuna í Asíuríkjum eins og
Indónesíu, Suður-Kóreu og Tælandi
og sagði að margir Bandaríkjamenn
gerðu sér ekki grein fyrir því hvemig
slík vandamál gætu haft áhrif á af-
komu þeirra sjálfra.
Þingið frestaði því í fyrra að ræða
beiðni forsetans um fjárveitingu til
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (IMF),
sem hefur reynt að binda enda á
kreppuna í Asíu, vegna deilu um fóst-
ureyðingar. Clinton hvatti þingið til
að flýta afgreiðslu málsins en því var
fálega tekið.
Flestir repúblikanar og demókrat-
ar voru sammála um að Clinton hefði
enn einu sinni sannað að hann væri
mikill ræðumaður og honum hefði
tekist að beina athyglinni frá máli
Lewinsky, að minnsta kosti um sinn.
Flutningur ræðunnar þótti áhrifa-
mikfil og ýmis ummæli forsetans
voru þess eðlis að jafnvel hörðustu
andstæðingar hans meðal repúblik-
ana urðu að klappa fyrir honum; til
að mynda þegar hann gagnrýndi
bamaþrælkun og kynnti „hugrakkan
hermann" sem hafði barist í Bosníu
og sat við hlið Hillary Clinton í
þingsalnum.
Nokkrir af hörðustu andstæðing-
um Clintons sögðu að ræðan myndi
að öllum líkindum auðvelda honum
að takast á við nýju ásakanirnar en
þessi sigur væri skammgóður verm-
ir. „Hann lék þetta hlutverk mjög
vel,“ sagði repúblikaninn og öldunga-
deildarþingmaðurinn Rick Santomm.
„Þegar stjórnmálamenn lenda í vand-
ræðum gera þeir það sem þeir gera
best - eyða peningum.“
Lott boðar skattalækkanir
Trent Lott, leiðtogi repúblikana í
öldungadeildinni, svaraði ræðu Clint-
ons í beinni sjónvarpsútsendingu og
lofaði að lækka skatta og skera upp
herör gegn eiturlyfjaneyslu.
Lott minntist ekki á ásakanirnar á
hendur forsetanum en gagnrýndi
stefnu hans og sakaði hann um að
vilja auka umsvif ríkisins, hækka
skatta og skerða frelsi fjölskyldn-
anna. „Forsetinn virðist telja að auk-
in ríkisumsvif geti leyst vandamál
bama okkar ef þið fallist á að láta
stjórninni í té meira af peningunum
ykkar - og veita henni meira vald yf-
ir lífi ykkar. Vitleysa."
Lott kvaðst ekki samþykkur til-
lögu Clintons um að nota allan af-
ganginn af fjárlögum næstu ára til að
styrkja almannatryggingakerfið og
sagði að nota bæri hluta hans til að
minnka skuldir ríkisins og lækka
skatta. „Þegar allt kemur til alls em
þetta ykkar peningar."
saksóknara í málinu. Hann neitaði
því hins vegar að einhveijar mynd-
anna væm af Clinton. Þá hafi
Lewinsky aldrei nefnt Clinton á
nafn en kallað téðan embættis-
mann „kvikindið". Það er sama
nafn og fullyrt er að hún hafi gefið
forsetanum á upptökum sem Linda
Tripp gerði af samtölum hennar og
Lewinsky.
Eftir að Lewinsky hætti störfum í
Hvíta húsinu hafí hún ennfremur
sagt hjónunuin að hún hafi farið í
fóstureyðingu en lögmaðurinn svar-
aði ekki spurningum um hver faðir-
inn hefði verið.
Lögmaðurimi dró upp ófagra
mynd af Lewinsky. Sagði hann hana
hafa vanda til þess að hagræða stað-
reyndum til að bæta ímynd sína og
fullyrti að hún liefði troðið sér inn á
fjölskyldu Bleilers til að ná betra
taki á honum. Hefði Lewinsky neit-