Morgunblaðið - 29.01.1998, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FIMMTUDAGUR 29. JANÚAR 1998 31
Vaxtarbroddar í
arkitektúr og hönnun
MYNBI.IST
Iláðhús Reykjavíkur
ARKITEKTÚR OG HÖNNUN
Lokaverkefni arkitekta, landslags-
arkitekta og iðnhönnuða. Opið
mán.-fös. frá 8-19, lau. og sunn.
12-18. Aðgangur ókeypis. Til 3.
febrúar.
í RÁÐHÚSI Reykjavíkur er
þessa vikuna sýning á lokaverkefn-
um 14 arkitekta, landslagsarkitekta
og iðnhönnuða. Sýningar á arki-
tektúr og hönnun geta reynt á þolrif
þeirra sem eru ekki vanir að lesa úr
flóknum uppdráttum. Teikningar
arkitekta hafa oft að geyma feiki-
legt magn upplýsinga, þannig að
jafnvel þótt þær sýni allt sem arki-
tekt þarf að vita, þá segja þær
óþjálfuðu auga næsta lítið. A sýn-
ingunni er um mjög ólík verkefni að
ræða, sem þar að auki eru sett fram
á misjafnan hátt, án þess að það sé
reynt að skapa heildarsvip. Ekki er
það til að auka manni þolinmæði að
sýningin virðist hafa verið sett upp í
flýti, flekum og borðum raðað sam-
an, myndum raðað upp meira með
tilliti til þess að koma sem flestu að,
frekar en að gera það aðgengilegt.
Merkingar voru ekld nógu skýrar
og ekkert samræmi í uppsetningu.
Allt gerir þetta áhorfandanum erfltt
fyrir og er ekki til þess fallið að
halda athygli hans og áhuga. Þetta
kemur á óvart því hér eru hönnuðh'
á ferð og maður hefði haldið að skýr
framsetning á tillögum væri hluti af
starfi þeirra. Það kemur heldur
hvergi fram, eftir því sem ég gat
best séð, hver stóð fyrir sýningunni
og sá um uppsetningu.
Þegar rýnt er í gögnin kemur
ýmislegt athyglisvert í ljós. Nokkur
verkefni fást við innlendan vett-
vang. Úlla Rolf Pedersen gerir til-
lögu að nýju skipulagi fyiir Austur-
völl, og Hermann Georg Gunn-
laugsson endurskipuleggur Lysti-
garðinn á Akureyri og umhverfi
hans. Þorleifur Eggertsson vinnur á
athyglisverðan hátt úr hugmynd um
aðlögunarheimili fyrir unga eitur-
lyfjaneytendur. Halldóra Vífilsdótt-
ir setur fram spennandi tillögu um
hvernig megi gera Öskjuhlíðina að
vettvangi íyrir menningarsamskipti
og umhverfislist, í tilefni af alda-
mótaárinu og hlutverki Reykjavíkur
sem menningarborgar Evrópu.
Framsetning Halldora á sinni til-
lögu var líka einna skýrust fyrir hið
ótamda auga. Þarna voru líka mjög
metnaðarfull verkefni, eins og vín-
verksmiðja á Spáni eftir Orra Arna-
son, og skipulag á sendiráðum
Norðurlandanna á sameiginlegri lóð
við Tiergarten í miðborg Berlínar.
Fjölbreytnin er því mikil og við-
fangsefnin ólík, þannig að það er
ómögulegt að gera sér einhverja
heildarmynd af þeim lærdómi sem
þessi hópur kemur með að utan. En
ef það væri eitthvert eitt atriði, sem
ég ætti að tiltaka, sem væri ein-
kennandi fyiir verkefnin, þá væri
það hið mikla dálæti sem þau virð-
ast hafa á ósamhverfu. Flest allir
forðast samhverfuna og regluna.
Það er enginn miðlægur ás sem
hliðar speglast um. Ef um er að
ræða einhvern ás þá birtist hann
sem vegur, múr, stígur eða gangui'
sem klífur í sundur og brýtur upp
einingu heildarinnar.
Bandaríski myndlistannaðurinn
Donald Judd skrifaði einhvers stað-
ar að samhverfa eigi að vera reglan
í arkitektúr, nema að mjög góðar
astæður komi til. Hér virðist hið
þveröfuga gilda, að byggingar og
skipulag skuli ekki vera sam-
hverfar nema annað sé óhjákvæmi-
legt.
Það væri gaman að spyrja sig
hverju það sætir að ungir arkitekt-
ar og hönnuðir forðist samhverfuna
í lengstu lög. Skyldi einhver einfóld
tvíhyggjuhugsun liggja þar að baki,
sem sagt, að samhverfa sé reglu-
bundin, ströng, ópersónuleg og
módernísk, en ósamhverfa, aftur á
móti, órökræn, frjáls, persónuleg og
póstmódernísk? Eða er þetta bara
tíska?
Heildaráhrifin af sýningunni voru
eins og að upplausnarástand væri
ríkjandi, og manni dettur ósjálfrátt
í hug hvort sýningin sé lýsandi fyrir
ástandið í arkitektúr og iðnhönnun í
heiminum í dag. Skipulagt kaos?
Gunnar J. Arnason
afsláttur
Laugavegi 51 - S. 551-7717
Við setjum MENNINGAR-, SKIPULAGS-
OG UMHVERFISMÁL á oddinn
og leggjumst á eitt að tryggja
Guðrúnu Jónsdóttur arkitekt og
formanni Menningarmálanefndar
Reykjavíkur öruggt sæti í borgarstjórn.
* Heildarsýn í skipulagsmálum
* Einhæft og fátæklegt líf er afleiðing staðlaðra
félagslegra lausna
* Virk þátttaka almennings eflir samkennd og sátt
í samfélaginu.
Gerður Steinþórsdóttir cand. mag.
Snorri Ingimarsson læknir
Kristín Ástgeirsdóttir alþingiskona
Kristinn Hrafnsson myndlistarmaður
Kolbrún Bergþórsdóttir
bókmenntafræðingur
Ólöf Guðný Valdimarsdóttir
framkvæmdastjóri
Dagfríður Halldórsdóttir ritari
Sigrún Karlsdóttir félagsráðgjafi
Steinunn Þórarinsdóttir
myndlistarmaður
Gunnhildur Valdemarsdóttir
hjúkrunarforstjóri
Arinbjörn Vilhjálmsson arkitekt
Helga Hannesdóttir læknir
Sigrid Valtingojer myndlistarmaður
Ólöf Magnúsdóttir útibússtjóri
Agnes Hansdóttir myndmenntakennari
Sigríður Guðmannsdóttir sjúkraliði
Þór Vigfússon myndlistarmaður
Páll Agnar Pálsson fv. yfirdýralæknir
Helga K. Bjarnason framkvæmdastjóri
Birgir Andrésson myndlistarmaður
Anna Eyjólfsdóttir form.
myndhöggvarafélagsins
Hulda Hákon myndlistarmaður
Ólafur Ingi Jónsson forvörður
Anna Fjóla Gísladóttir Ijósmyndari
Arnar Jónsson leikari
Sylvía Guðmundsdóttir kennari
Júlíana Gottskálksdóttir listfræðingur
Auður Haralds rithöfundur
Brynhildur Þorgeirsdóttir
myndlistarmaður
Brynja Benediktsdóttir leikstjóri
FELUM HENNI FORYSTU!