Morgunblaðið - 29.01.1998, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 29. JANÚAR 1998 39
0
i
AÐSENDAR GREINAR
ferðamenn og gera þeim vist sína
hér eftirminnilega.
Vanræksla okkar á þessu sviði
kann að stafa að einhverju leyti af
því að við höfum sjálf lengst af farið
til útlanda í leit að ódýru áfengi og
hlýju sólskini, vinnuþrælkuð og í
mestri þörf lyrir hugsunarlitla
hvfld. Þess vegna hefur alltaf verið
gert ráð fyrir því hér að túristar
væru allir og alls staðar fávísir,
áhugalausir og latir að hugsa. En
útlendir ferðamenn sem koma til
Islands hljóta að vera að leita að
einhverju öðru en ódýru áfengi,
hlýju sólskini eða íyrirhafnarlausri
hvfld. Mér finnst líka ósennilegt að
margir þeirra séu að fara í sína
fyrstu langferð. Þeir hljóta flestir
að vera búnir að fá sig fullsadda af
þessu fyrst-mest-stærst-best-gorti,
sem allar ferðakynningar hafa ver-
ið fullar af svo lengi sem elstu
menn muna. Mestur hluti þess
fólks sem við eigum möguleika á að
taka á móti á íslandi hlýtur að vera
menntað fólk, ferðavant og gagn-
rýnið. Við það verður að tala í al-
vöru og af sannri, haldgóðri þekk-
ingu. Allt annað er rányrkja í at-
vinnugreininni.
Við íslendingar þurfum að
byggja upp menntaða ferðaþjón-
ustu sem kynnir íslenskan menn-
ingararf erlendis og sinnir fólki
sem í hefur kviknað áhugi við þá
kynningu. Þetta er langtum nær-
tækari kostur en flestir hugsa út í
hér á landi. Islensk miðaldamenn-
ing er auðug og forvitnileg, og hún
er þegar orðin þekktari í heiminum
en flesta Islendinga grunar. Bara
eitt dæmi að sinni: Lærð og alvar-
leg bók um þessa menningu eftir
bandaríska prófessorinn Jesse
Byock, Medieval Iceland, hefur
ekki aðeins verið þýdd og gefin út á
japönsku, hún er komin þar í
annarri útgáfu. Þúsund ára afmæli
Vínlandsferðanna er gott tilefni til
þess að hefja myndarlegt kynning-
arátak á íslenskri miðaldamenn-
ingu. Það má gera enn, þrátt fyrir
þessi einu nefndarmistök forsætis-
ráðuneytisins, en það er sannarlega
kominn tími til að hefjast handa.
Höfundur er prófessor í sagnfræði.
Hvað er Taizé?
VIÐ erum stödd í
Háteigskirkju í
Reykjavík. Það er
fimmtudagskvöld.
Klukkan er að verða
níu. I kirkjunni er allt
til reiðu. Kertaljós
loga í gluggum og á
gólfi, raflýsing í lág-
marki, reykelsisilmur í
lofti. Við fáum okkur
sæti á mjúkum bekkj-
unum með sönghefti í
hendi. Kyrrðin er nær
áþreifanleg. Við virð-
um fyrir okkur altaris-
myndina, krossinn lit-
ríka, tákn lífsins, sem
Guð gefur. Hér snertir
himinn jörð. Við endurnýjum
ósýnilega krossinn okkar í signing-
unni og svo hefst söngurinn:
Taizé er sveitaþorp í
Frakklandi. María
Ágústsdóttir segir frá
Taizé-messum og
-söngvum.
„Drottinn Guð hefur sent mér
styrk sinn, Drottinn Guð, hann er
mér allt. Hann mun vísa mér á
sinn veg og breyta ótta í gleði-
söng...“ Laglínan er einföld og við
getum öll sungið með, studd af
orgeli, þverflautu og gítar sem
glæða sönginn lífi.
A milli söngva er lesið úr ritning-
unni. Svo sitjum við í kyrrðinni góða
stund og finnum frið Guðs í hjarta
og huga. „Vona á Guð, hann kemur
fljótt. Vona á Guð, mér gefur frið“.
Og svo biðjum við, tendrum ljós og
felum Drottni Jesú líf okkar og
systkina okkar um allan heim. Aður
en við göngum syngjandi út úr
kirkjunni gefst okkur kostur á að
þiggja fyrirbæn við altarið. Þar er
nærvera Guðs sterk. „Þar sem mis-
kunn býr og kærleikur, þar ert þú,
ó, Guð...“
María
Ágústsdóttir
Taizé: Sátt og
eining
Taizé-söngur á upp-
runa sinn í samnefndu
sveitaþorpi í Frakk-
landi. Allt frá síðari
heimsstyrjöld hefúr
evangelískt bræðrafé-
lag haft þar aðsetur
sitt og mótað einfalt
helgihald, sem hefur
samfélag og frið milli
manna og þjóða að
markmiði sínu. Margt
fólk heimsækir Taizé
ár hvert og flytur með
sér hugsjónina og
söngvana heim. Enda
gætir áhrifa Taizé um
allan heim, ekki síst í samkirkjulegu
starfi, þar sem lögð er áhersla á
systkinasamfélag allra kristinna
manna.
Hér á íslandi hafa Taizé-messur
verið haldnar víða og með mismun-
andi sniði. Tvennt er þó ávallt haft í
heiðri, söngvamir, sem kenndir eru
við Taizé, og markmiðið, að miðla
sátt og einingu. Látið sættast við
Guð, segir í helgri bók (II. Kor.
5.20). Taizé-kvöldsöngurinn hjálpar
okkur að ná sáttum, að sættast við
okkur sjálf, annað fólk, lífið og Guð.
Verið velkomin í Háteigskirkju á
fimmtudagskvöldum kl. 21.
Höfundur er prestur við Háteigs-
kirkju í Reykjnvík.
ALHLIDA TOLVUKERFI
HUGBUNAÐUR
FYRIR WINDOWS
A annað þúsund
notendur
KERFISÞRÓUN HF.
Fákafeni 11 • Sími 508 8055
www.islandia.is/kerfisthroun
Míkiá úrvðl af
falleguiti
rúfflfatnciái
íiði*
OMmBröaMgll Simissi 4050 Reyktwfk.
JDeqiiiiiUUiíh
- kjarni málsins!
EUROðATEX'
PÍPU-
EINANCRUN
kk (sjálfKmandi rúllum,
plötum og hólkum.
Þ. ÞORGRÍMSSON & CO
ÁRMÚLA 29 - REYKJAVÍK - SÍMI 38640
J
I
4
Super BlackLine
28Lt
4 hausa Hi-Fi Nicam Stereo tæki
Long Play, taktu upp 10 tíma af efni
8 liða upptökuminni m/ShowView
2 Scart tengi og RCA f.videtökuvél
Fjarstýring og allar aðgerðir á skjá
Schneider
MP14Q
Þessi gefur bíósölunum
■ 200W heimabíómagnari
• 3ja diska geislaspilari og tvöfalt kassettutæki
• Stafrænt útvarp
... og að sjálfsögðu 5 hátalarar
B»Schn0ktef
MONTANA
Flatur SUPER Blackline myndlampi -
Nicam Stereo 2 x 35 wött -
Textavarp, Scart tengi -
Sjálfvirk stöðvainnsetning -
Fjarstýring ofl. -
A\xarpsv©^urUmí
W\K\ð urva/ af oX
Geislaspilari
Stafrænt útvarp
Kassettutæki
Fjarstýring ofi.
Tölvur
Grensásvegi 3-108 Reykjavlk - Sími: 5885900 - Fax : 5885905
Fyrir
falleg
heimili!
w0m
•%a t m ' -I
Tneira
1«
HÚSGAGNAHÖLLIN
Bíldshöfðl 20 -112 Rvfk - S:510 8000