Morgunblaðið - 29.01.1998, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 29. JANÚAR 1998 49
___________FRÉTTIR________
! Búvísindadeild skipu-
leggur Ráðunautafund
RÁÐUNAUTAFUNDUR Bænda-
samtaka íslands, Búvísindadeildar
i Bændaskólans á Hvanneyri og
Rannsóknastofnunar landbúnaðar-
1 ins verður haldinn í ráðstefnusal A
{ á 2. hæð Hótels Sögu 10.-13. febrú-
ar nk. Ráðunautafundur hefur verið
árlegur viðburður síðan 1952 en Bú-
vísindadeild Bændaskólans á
Hvanneyri stendur nú að fundinum
í fyrsta sinn.
Ráðunautafundurinn er alhliða
fagráðstefna þar sem lagt er fram
margvíslegt efni úr niðurstöðum
4 rannsókna og umræður fara fram
um ýmis framfaramál í landbúnaði.
I Fundurinn er öllum opinn.
{ Ráðstefnunni er skipt niður í
hálfs dags fundi sem hver um sig
fjallar um ákveðið þema. A fyrsta
fundinum verður „Hagfræði land-
búnaðarstefnunnar“ rædd og þar
mun Eiríkur Einarsson, deildar-
stjóri hjá ríkisendurskoðun í Sví-
þjóð, flytja erindi um „Rekstrarum-
hverfi landbúnaðarins hér á landi
samanborið við útlönd" og hagfræð-
ingarnir Markús Möller og Guð-
mundur Stefánsson fjalla um „Hag-
fræðilegar forendur landbúnaðar-
stefnunnar, einkum með tilliti til
búvörusamninga".
„Fóðurfræði" og „Búfjárrækt“ fá
hvor sinn fundinn en sérstök
áhersla er lögð á jarðfræði að þessu
sinni og er fimmtudagurinn helgað-
ur henni. Einnig verður fjallað um
„Endurheimt votlendis“. Góð vinnu-
brögð eru ofarlega á baugi því fyrri
hluta miðvikudags er málefnið
„Markviss framsetning leiðbein-
inga“ og ráðstefnunni lýkur með
fundi um „Gæðastjórnun í landbún-
aði“ en gæðastjórnun er vaxandi
áhersluatriði í landbúnaði eins og
öðrum atvinnugreinum.
Skráning og afhending gagna
hefst kl. 8.15 þriðjudaginn 10. febr-
úar og fundurinn verður settur
stundvíslega kl. 9. Ráðstefnugjald
er 7.000 kr. og er innifalið í þvl ráð-
stefnurit með öllum erindum eða yf-
irlitum og kaffi/te. Ráðstefnugjald
fyrir einn dag er 2.000 kr. og ráð-
stefnuritið kostar í lausasölu 2.500
kr.
Nánari upplýsingar um fundinn
er hægt að fá hjá Bændasamtökum
íslands (Kristinn Hugason),
Bændaskólanum á Hvanneyri
(Haukur Gunnarsson) og Rann-
sóknastofnun landbúnaðarins
(Hólmgeir Bjömsson).
Úrslit í
i söngkeppni
< félagsmið-
stöðva
ÚRSLIT í Söngkeppni félagsmið-
stöðva 1998 fara fram fimmtudaginn
29. janúar á Hótel íslandi. Þessi
keppni er fyrir unglinga á aldrinum
13—16 ára og er nú haldin í sjöunda
| skipti. Frá því 1992 hefur þessi
keppni verið haldin við miklar vin-
* sældii' og þetta er í þriðja skipti sem
{ hún er haldin á Hótel íslandi. Vin-
sældir keppninnar hafa verið slikar
að á síðustu keppnum mættu í kring-
um 2000 unglingar, segir í fréttatil-
kynningu.
Undanfarna mánuði hafa farið
fram undankeppnir í 28 félagsmið-
stöðvum og skólum um land allt sem
veita rétt til þátttöku í keppninni á
4 Hótel íslandi. Gert er ráð fyrir um
50 keppendum en það er einungis
I brot af öllum þeim unglingum sem
{ þátt hafa tekið í undankeppnum um
allt land.
Keppendur koma víða af landinu
en flestir keppendurnir eru þó af
suðvestur horni landsins. í fyrsta
skipti verður eingöngu keppt í einum
flokki þar sem bæði hópar og ein-
staklingar taka þátt.
Húsið verður opnað kl. 18.30 og
, keppnin sjálf byrjar kl. 19 stundvís-
i lega og er áætlað að henni Ijúki kl.
| 22.30. Kynnir verður Ottó Tynes en
4 dómnefndina skipa; Sigrún Eiríks-
' dóttir úr Kolrössu krókríðandi,
Steinþór Einarsson, formaður Sam-
fés, Hulda Guðrún Geirsdóttir, óp-
erusöngkona, Hrólfur Sæmundsson,
söngnemi og Þorvaldur Kristjáns-
son, fulltrúi unglinga.
Verðlaunin eru m.a. ferðageisla-
spilari frá Heimilistækjum hf., 8
leikfimis- og Ijósakort frá líkams-
| ræktarstöðinni Hress í Hafnarfirði,
i geisladiskar frá Spor ehf., líkams-
, ræktarkort frá Eróbik Sport o.fl.
* Einungis er hægt að kaupa miða í
félagsmiðstöðvum og er miðaverð
400 kr. Það er félagsmiðstöðin Þrótt-
heimar í Reykjavík í samvinnu við
Samfés, samtök félagsmiðstöðva,
sem stendur að þessari keppni.
Fræðslufundur
fyrir foreldra
j ungs fólks í
vímuefnavanda
SÁÁ efnir til ffæðslu- og umræðu-
fundar fyrir foreldra ungs fólks í
vímuefnavanda föstudaginn 30. janú-
ar. Fundurinn verður haldinn í
göngudeild SÁÁ, Síðumúla 3-6 og
, hefst kl. 20. Aðgangur er ókeypis.
Rætt verður um þau meðferðarúr-
il ræði sem standa ungu fólki i vímu-
< efnavanda tilboða, þá hugmynda-
' fræði sem býr að baki meðferðinni
og hvernig unga fólkið bregst við. Á
fundinum er foreldrum einnig boðið
að tjá hug sinn og fá nánari skýring-
ar. Frummælendur verða Þórarinn
Tyrfingsson, yfirlæknir á sjúkrahús-
inu Vogi og Hjalti Björnsson, dag-
skrárstjóri göngudeildar SÁA.
Fræðslufundur
Greiningar-
stöðvarinnar
FORELDRA- og styrktarfélag
Greiningarstöðvar verður með
fræðslufund í kvöld í húsnæði
Greiningarstöðvar, 4. hæð, og hefst
fundurinn kl. 20.30.
Foreldrafélagið er að hefja fyrir-
lestraröð í samvinnu við sérfræð-
inga Greiningarstöðvar. Fyrirhugað
er að hvert fótlunarsvið sjái um
fræðslu á einum fræðslufundi í vet-
ur. í kvöld sér fötlunarsvið I um
fræðsluna og mun Ti-yggvi Sigurðs-
son sálfræðingur halda fyrirlestur.
Foreldrafélagið hvetur foreldra
fatlaðra barna til að mæta. Kaffi-
veitingar.
Fyrirlestur um
náttúruheilun
JÓGAKENNARINN Dada Druvan-
anda frá Bandaríkjunum kjmnir
náttúralegar aðferðir (naturopathy)
og heilsufræði jóga föstudaginn 30.
janúar kl. 20 í stofu 101 í Odda, við-
skipta- og félagsvísindadeild HÍ við
Suðurgötu.
I fréttatilkynningu segir að
heilsuaðferðirnar séu einfaldar og
auðlærðar og byggist á lögmálum
náttúrunnar til sjálfsheilunar. Þær
hafi verið þaulreyndar í mörg ár og
hafi reynst árangursríkar.
Hægt er að túlka fyrirlesturinn
fyrir þá sem vilja. Aðgangur er
ókeypis.
MS-fyrirlestur
í líffræði
STEFÁN Þ. Sigurðsson flytur fyrir-
lestur um genabreytingar og
krabbamein fostudaginn 30. janúar
kl. 15 í stofu G6 Líffræðistofnun,
Grensásvegi 12.
Fyrirlesturinn fjallar um tengsl
p53 og óstöðugleika erfðaefnisins og
erfðabreytingar 1 blöðruhálskirtils-
krabbameini.
Rætt um stöðu
átthagafélaga
í TILEFNI af 60 ára afmæli Hún-
vetningafélagsins í Reykjavík stend-
ur félagið fyrir málþingi um fortið
og framtíð átthagafélaga í Húnabúð,
Skeifunni 11, sunnudaginn 1. febrú-
ar, kl. 13. Allir velkomnir meðan
húsrúm leyfir.
Framsöguerindi flytja Jón
Björnsson, framkvæmdastjóri
menningar-, uppeldis- og félagsmála
hjá Reykjavíkurborg, Jón Torfason,
íslenskufræðingur og Eyrún Inga-
dóttir, sagnfræðingur. Ennfremur
gefst gestum kostur á að leggja
fram fyrirspurnir.
Kristinn
Björnsson í
Skátabúðinni
SKÍÐAMAÐURINN Kristinn
Björnson frá Ólafsfirði verður stadd-
ur í Skátabúðinni við Snorrabraut
fimmtudaginn 29. janúar kl. 16 þar
sem hann heilsar upp á gesti og
gangandi.
Þar gefst mönnum kostur á að
hitta Kristin, ræða við hann um afrek
hans á erlendum vettvangi og hverjar
horfm-nai- eru fyrir Ólympíuleikana.
Ki-istinn mun einnig árita og gefa
Rossignol boli, plaköt og myndir.
Þorrablót
Andvara
HESTAMANNAFÉLAGIÐ And-
vari heldur sitt árlega þorrablót
laugardaginn 31. janúar í Félags-
heimilinu.
Húsið verður opnað kl. 20. Ræðu-
maður kvöldsins er Andrés Sigurðs-
son, formaður íþrótta- og tóm-
stundaráðs Garðabæjar. Veislustjóri
verður Þorkell Bjarnason, fyrrver-
andi hrossaræktaráðunautur.
Miðar verða seldir í Félagsheimil-
inu í dag og á morgun frá kl. 20-22.
Miðaverð er 2.900 kr.
LEIÐRÉTT
Árétting
í VIÐTALI við Katrínu Óskarsdótt-
ur í Daglegu lífi síðastliðinn föstudag
með yfirskriftinni Ofurkonan að-
framkomin er eftirfarandi setning:
Og enn jók Katrín vinnuna. Hún
gerðist stuðningsfulltrúi lesblinds
drengs í Hlíðaskóla og stuttu síðar
leysti hún vinkonu sína af sem
mvndmenntakennari í tvo tíma á dag
í Álftamýrarskóla.
í framhaldi er bein tilvitnur. í
Katrínu sem segir: „Eftir þá reynslu
vorkenni ég kennurum. Hlutskipti
þeirra er að aga gjörsamlega agalaus
börn. Mér finnst aðdáunarvert
hvernig þeir geta haldið geðheilsu
undir stöðugu áreiti.
Af gefnu tilefni vill Katrín Óskars-
dóttir taka fram að hún er með þessu
að skirskota til agaleysis barna al-
mennt en ekki agaleysis lesblinda
drengsins.
Kvikmynd í röngu kvik-
myndahúsi
Kvikmyndin „In & Out“ er sýnd í
Stjörnubíói og Sambióunum. Þetta
var ekki rétt í dómi um myndina í
gær. Beðist er velvirðingar á mistök-
unum.