Morgunblaðið - 29.01.1998, Page 57
MORGUNBLAÐIÐ
________________________________FIMMTUDAGUR 29. JANÚAR 1998 57
FÓLK í FRÉTTUM
MYNPBÖND
Boðorða-
brjótur
BOÐORÐIN
(Commandments)____
Ganianinynd
★V4
Framleiðendur: Michacl Chinch, Joe
Medjuck, Daniel Goldberg. Leik-
stjóri: Daniel Taplitz. Handritshöf-
undur: Daniel Taplitz. Kvikmynda-
taka: Slawomir Idziak. Tdnlist: Jos-
eph Vitarelli. Aðalhlutverk: Aidan
Quinn, Courtney Cox, Anthony
LaPaglia. 89 mín. Bandaríkin. Cic-
myndbönd 1998. 12. janúar. Myndin
er bönnuð innan 16 ára.
ÞESSI svarta gamanmynd fjallar
um mann sem ætlar að ögra al-
mættinu með því að brjóta boðorðin
tíu. Ástæðan er
sú að honum
finnst hann eiga
að fá svar við
spurningunni af
hverju hann sé
svona ólánsamur
í lífinu. Eftir því
sem líður á list-
ann yfir boðorðin
verður erfiðara
að brjóta þau þar til aðeins eitt boð-
orð stendur eftir: „Eigi skaltu mann
deyða.“
Það er lítið um brandara í mynd-
inni og oft tekur hún sig alltof alvar-
lega, sem gerir hana langdregna á
köflum. Leikararnir standa sig
prýðilega, en persóna Cox er ekki
nægilega vel skrifuð, svo maður
hefur enga samkennd með henni.
Quinn og LaPaglia eiga nokkra
góða spretti, sérstaklega í atriðum
þar sem báðir koma við sögu. Kvik-
myndatakan er mjög góð og tækni-
lega er myndin vel gerð. Hugmynd-
in að myndinni er nokkuð góð og ef
betur hefði verið unnið úr henni
hefði þetta getað orðið frábær gam-
anmynd.
Ottó Geir Borg
Útsala
Enn meiri
verðlækkun
Opið kl. 10-18,
laugard. kl. 10—16.
JOSS
Laugavegi 20, s. 562 6062.
JAMES Brown sýndi á æfingu í heimabæ sínum Augusta í Georgíu-
fylki að hann getur enn stigið sporin sín frægu.
Mistök hjá dótturinni
SÖNGVARINN kraftmikli James
Brown fór á dögunum að undir-
búa æfingar fyrir tónleikaferða-
lag aðeins viku eftir að hann var
útskrifaður af sjúkrahúsi. Þar
hafði hinn 64 ára gamli Brown
verið meðhöndlaður við ofnotkun
verkjalyfja. Að hans sögn var
það dóttir hans, Deana Brown,
sem lét leggja söngvarann inn á
geðdeild gegn vilja hans. „Þetta
voru mistök,“ sagði James
Brown um ákvörðun dóttur sinn-
ar. „Það eina sem Deana veit er
að hún fær ekki meiri peninga
frá mér, ekki krónu."
Samkvæmt umboðsmanni
Brown, Jeff Allen, varð hann
háður verkjalyfjunum eftir að
hann slasaðist á sviði þegar hann
fór í splitt en hann er einmitt
frægur fyrir líflega sviðsfram-
komu. Sjálfur þvertekur Brown
fyrir að hafa verið háður verkja-
lyfjunum og segir dótturina hafa
lagt hann inn á sjúkrahús eftir að
hann missti stjóm á sér og spark-
aði í innanstokksmuni heima hjá
sér. Orsök reiðinnar hafi verið
þáttur sem Brown var að horfa á
í sjónvarpinu um fátækt barna í
Suður-Ameríku.