Morgunblaðið - 17.02.1998, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 1998 11
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Ásdís
LAUGAVEGUR var lokaður fyrir bílaumferð um tíma á sunnudaginn á meðan flutningur hússins stóð yfir.
Ekið með hús af Laugavegi í Grímsnes
TVÍLYFT hús sem stóð á Lauga-
vegi 53 var flutt í heilu lagi í
áföngum frá Reykjavík á Selfoss í
fyrrinótt og þaðan átti svo að
halda áfram með húsið að Sól-
heimum í Grímsnesi seint í gær-
kvöldi og í nótt. Sólheimar hafa
eignast húsið en byggja á verslun-
ar- og íbúðarhús á lóðinni við
Laugaveg þar sem húsið stóð.
Notaður var öflugur flutninga-
bíll frá fyrirtækinu Gunnari Guð-
mundssyni hf. sem ók í fyrsta
áfanga með húsið að Rauðavatni á
sunnudag. Því næst var var farið
með húsið yfir Heliisheiði á Selfoss
í fyrrinótt. Tókust flutningar vel
þrátt fyrir talsverða hálku á heið-
inni. I gærkvöldi stóð til að húsið
yrði flutt í Sólheima. Húsið er tví-
lyft, alls níu metra hátt og voru
gerðar ýmsar ráðstafanir svo
koma mætti húsinu heilu á áfanga-
stað, þurfti m.a. að ijúfa straum á
raflínum sem farið var undir á
leiðinni. Að sögn Guðmundar Ar-
manns Péturssonar, forstöðu-
manns í Sólheimum, verður húsið
notað fyrir nokkra íbúa Sólheima
og hefur því þegar verið fundinn
staður. Guðmundur sagði að þrátt
fyrir að húsið væri á góðum
grunni og hefði verið vel byggt í
upphafi þyrfti að gera á því tölu-
verðar lagfæringar en það var
byggt snemma á öldinni.
Bæjarstjóri Borgarbyggðar um sameiningu Mýramanna
Skynsemin látin ráða
fremur en tilfinningar
Morgunblaðið/Theodór
KOSIÐ um sameining-u í Borgarfirði. Ibúar sameinaðs
sveitarfélags verða kringum 2.400.
SAMEINING f BORGARFIRÐI SAMÞYKKT
Stækkað
svæði
Atkvæði Auðirog
Sveitarfélag fjöldi kjcrskrá greiddu ógiidir Nei Já
Álftaneshreppur 96 68 61 0 24 37
Borgarbyggð 2.083 1.456 486 10 64 412
Borgarhreppur 133 37 67 2 16 49
ÞverárWíðafhr. 72 55 50 2 17 31
SAMTALS 2.384 J.676 664 14 121 529
Já,
htutfalí
60,7%
84,8%
73,1%
62,0%
SAMEINING fjögurra sveitarfé-
laga í Mýrasýslu var samþykkt á af-
gerandi hátt með 529 atkvæðum
gegn 121 í kosningunum sl. laugar-
dag. íbúar nýja sveitarfélagsins
verða um 2.400 talsins.
Aðspurður kvaðst Oli Jón Gunn-
arsson, bæjarstjóri Borgarbyggðar,
vera mjög ánægður með niðurstöð-
una og einnig hversu skýr og af-
dráttarlaus hún væri. „Niðurstaðan
er jafnvel jákvæðari en ég þorði að
vona,“ sagði Óli Jón. „Eg tel að
menn sem áður voru á móti hafi
greinilega látið skynsemina ráða
frekar en tilfinningar sínar.“
Aðspurður um nafn á sveitarfé-
laginu sagði Óli Jón að nafnið Borg-
arbyggð rúmaði meira en það gerði
í dag og hefði verið hugsað þannig
er það varð til, en í sjálfu sér væri
ekki búið að ákveða neitt í þessu
sambandi. „Við stigum fyrsta skref-
ið í sameiningarmálum árið 1994 og
erum að stíga annað skrefið núna í
þessum kosningum."
Víðtækari sameining
hugsanleg
Aðsgurður um þriðja skrefið
sagði Óli Jón: „Maður horfir á það
að öll skynsemi hnígur að því að allt
svæðið norðan Skarðsheiðar og
vestur í Eyja- og Miklaholtshreppi
verði sameinað í eitt sveitarfélag í
framtíðinni. Þetta er mjög heild-
stætt þjónustusvæði sem er á mjög
mörgum sviðum í samvinnu, eins og
í heilsugæslu og í dvalarheimilis-
málum og fleiru."
Þorkell Fjeldsted, hreppsnefnd-
armaður í Borgarhreppi og formað-
ur sameiningarnefndarinnar, kvaðst
vera mjög sáttur við niðurstöðuna.
„Þetta er þróunin, fólki fer fækk-
andi í sveitinni og það er betra að
hafa góða þjónustu á einum stað en
að hafa lítið sem ekkert út um allt,“
sagði Þorkell og bætti við: „Kynn-
ingin gekk mjög vel og mér farmst
strax mjög jákvæður tónn í fólki.
Við héldum fjölmenna fundi í Val-
felli og Lyngbrekku þar sem sans-
einingarmálin voru kynnt og folk
ræddi málin ofan í kjölihn.”
Norrænar kirkjur þinga með fulltrúum
kirkna í suðurhluta Afríku
Mikilvægt að hver
kynnist aðstæð-
um annars
TVEIR fulltrúar íslensku þjóðkirkj-
unnar voru nýverið á fundi fulltrúa
kirkna á Norðurlöndum með fulltrú-
um kirkna í suðm’- og austurhluta
Afríku sem haldinn var í Mósambik.
Hafa slíkir fundir verið haldnir
reglulega síðustu 10 árin en auk þess
að skiptast á skoðunum um reynslu
hafa norrænu kirkjurnar stutt marg-
vísleg verkefni hjá þeim afrísku.
„Kirkjumar á Norðurlöndum hafa
tekið þátt í samræðum við þessar
kirkjudeildir um stefnumál og síðan
hafa norrænu kirkjuhjálparstofnan-
irnar stutt margs konar verkefni
meðal þjóða í suðurhluta Afríku og
raunar víðar. Þessi samskipti eru
báðum aðilum mikilvæg og geta allir
lært af því að kynna sér aðstæður
hver hjá öðrum,“ segir séra Þoi-vald-
ur Karl Helgason biskupsritari sem
sótti fundinn ásamt Jónasi Þórissyni,
framkvæmdastjóra Hjálparstofnun-
ar kirkjunnar. Jónas er tengiliður ís-
lensku kirkjunnar við þetta sérstaka
verkefni.
Þorvaldur segir verkefnið hafa
byrjað þegar kirkjurnar í Afríku
áttu í erfiðleikum og þörfnuðust
stuðnings, m.a. vegna aðskilnaðar-
stefnu stjómvalda í Suður-Afríku og
umræðu innan kirkna og samtaka í
norðri og suðri um aðstöðumun fólks
í þessum heimshlutum. „Þarna koma
saman fulltrúar mikilla andstæðna í
heiminum og umhverfið er gjörólíkt í
norðri og suðri en þarna bera menn
saman bækur sínar, þeir kynna okk-
ur hvað er að gerast á sínum vett-
vangi og við á okkar,“ sagði Þorvald-
ur Karl ennfremur.
Þá skoðuðu þeir Jónas og Þorvald-
ur Karl framgang verkefna sem
Hjálparstofnun kirkjunnar hefur
fjármagnað, m.a. stuðning við konur
í Mósambik. „Allar norrænu kirkju-
hjálparstofnanirnar hafa stutt mikið
þróunarstarf í þessum löndum og
Hjálparstofnun kirkjunnar lagði til
dæmis fram fjái-magn til að endur-
bæta brunna og vatnsból og nú
styrldr stofnunin sérstakt verkefni
meðal kvenna sem Lútherska heims-
sambandið stjórnar," segir Þorvald-
ur og telur það athyglisvert og mjög
þakklátt verkefni.
Mikilvæg verkefni
til stuðnings konum
„Það gengur út á að styrkja kon-
ur, ekki síst einstæðar, til að sjá sér
farborða. Konum hefur til dæmis
verið lánað fé til að kaupa saumavél
sem þýðir að þær geta unnið fyrir
sér með saumaskap og oftast eru
nokkrar konur saman um ákveðin
verkefni á þessum sviðum. Þær end-
urgreiða síðan lánið þegar starfsem-
in hefur komist á legg og fá jafnvel
áfram lítils háttar styrk til að þróa
hana enn frekar," segir Þorvaldur
Karl. Hann segir verkefni sem þetta
sérstaklega mikilvægt þessum kon-
um sem oft eru ekkjur eða að karl-
arnir hafi haldið til nálægra landa í
atvinnuleit og dvelji þá þar langdvöl-
um.
Séra Þorvaldur Kai-1 er að lokum
spurður hvað sitji eftir að lokinni
ferð sem þessari:
„Mér fannst merkilegast að kynn-
ast því hvemig kirkjudeildir hafa af-
skipti af efnahagsmálum og raunar
öllum þjóðmálum og láta til sín taka.
Við sáum til dæmis hvernig kirkju-
deildir mótmæltu harðlega vaxta-
hækkun og færðu rök fyrir því að
þar væru stjómvöld að ráðast á kjör
þeirra sem ekkert ættu en væru að
reyna að rétta úr kútnum eftir ára-
tuga erfiðleika. Á þessu sviði em
kirkjumar duglegar og hafa sér-
fræðinga á öllum þessum sviðum í
þjónustu sinni.“
Á NÝJ y M STAÐ
Hans Petersen hf. hefur flutt
skrifstofur sínar og heildsölu
að Suðurlandsbraut 4frá Lynghálsi
og hefur fengið nýtt símanúmer.
Nýtt símaRÓnw er
570
llÍANsftmttN
Þ V I ENQUR O A QAH E R U E I N S