Morgunblaðið - 17.02.1998, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 17.02.1998, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 1998 49 I I 1 I I I I i s 3 1 i i i 270 keppa í eðlisfræði FORKEPPNI í landskeppni í eðl- isfræði og Ólympíuleikana í eðlis- fræði fer fram í dag, 17. febrúar. 270 framhaldsskólanemendur í 11 framhaldsskólum víðsvegar um landið þreyta keppnina og verða fímm keppendur valdir fyrir Ólympíuleikana í eðlisfræði. Úslitakeppnin verður háð milli 14 framhaldsskólanemenda í byrj- un mars og 5 þeirra verða valdir til að taka þátt í Ólympíuleikunum í eðlisfræði. Forkeppnin felst í að leysa 25 fjölvalsspurningar á 2 klst. úr efni sem að uppistöðu til er úr náms- efni 1. árs (2 áfangar) í eðlisfræði framhaldsskóla. Spurningarnar hafa framhaldsskólakennarar lagt til en eðlisfræðikennari Háskólans á Akureyri hefur útbúið þær til keppninnar. Keppt á ísiandi Það eru Eðlisfræðifélagið og Fé- lag raungreinakennara sem standa að Landskeppninni en Morgun- blaðið stendur straum af öllum kostnaði við keppnina. Ólympíu- leikarnir í eðlisfræði fara í þetta skiptið fram á Islandi í boði menntamálaráðuneytisins í júlí. Búist er við nærri 300 keppendum frá 58 löndum og um 200 farar- stjórum, áheymarfulltrúum og öðrum gestum. Keppnin stendur yfir í 8 daga og fer hún fram í Laugardalshöll en Fjölbrautaskólinn í Ármúla hýsir skrifstofu leikanna. Marg- háttaður undirbúningur fer nú fram og mun ÍTR leita eftir 60 fs- lendingum á þrítugsaldri sem eru reiðubúnir að vera hinum ungu er- lendu keppendum til halds og trausts á meðan á dvöl þeirra hér- lendis stendur. Félag raungreinakennara leitar eftir raungreinakennurum sem stofna vilja til kynna við erlend starfsystkini sín og sendiráðin leita eftir fjölskyldum sem kynna vilja keppendunum íslensk heimili, segir í fréttatilkynningu. Námsstefna um kennslu ein- hverfra UMSJÓNARFÉLAG einhverfra stendur fyrir námsstefnu dagana 17. -18. febrúar í KFUM og K hús- inu við Holtaveg. Námsstefnan ber yfirskriftina Kennsla einhverfra, frá kenningum til aðgerða. Fyrirlesar- ar eru þau Theo Peeters og Hilde DeClerq sem eiu hérlendis dagana 16.-19. febrúar. Einhverfan er sérstæð fbtlun. Mikilvægt er að góð þekking sé á fótluninni, þekking skilar sér í auknum skilningi á fótluninni og á þjónustustörf. Umsjónarfélag ein- hverfra leggur mikla áherslu á fræðslu. Námsstefna sem þessi er mjög mikilvæg. Hún er mjög vel sótt. Foreldrar, kennarar, þroskaþjálfar og fjöldi annarra sækja þessa náms- stefnu, segir í fréttatilkynningu. Fyrirlestrar um Tantra-jóga JÓGAKENNARINN Dada Ru- dreshvar heldur kynningarfyrir- lestra á vegum Ananda Marga um Tantra-jóga, sem er alhliða æfinga- kerfi, næstu tvo miðvikudaga, þ.e. 18. og 25. febrúar kl. 20. „Lögð verður áhersla á nokkur meginatriði Tantra-viskunnar og áhrif iðkunarinnar til heildræns þroska, sannrar gleði og heilbrigði. Tíunduð verða andleg markmið Tantra-jóga og hugleiðslu til vit- undarvakningar fyrir bættu um- hverfi og betri heimi,“ segir í fréttatilkynningu. Kynningin verður í Lögbergi við Hí, stofu 101, án endurgjalds. FRETTIR HEILSUSTOFNUN í Hveragerði. Fyrirlestur um fæðuval og mígreni MÍGRENSAMTÖKIN halda fræðslufund í Gerðubergi miðviku- daginn 18. febrúar kl. 20. Dr. Inga Þórsdóttir, dósent í næringarfræði við Háskóla íslands, flytur erindi um fæðuval og mígreni og svarar fyrirspurnum. Inga er einnig for- stöðumaður á næringarstofu Land- spítalans þar sem næringarráðgjaf- ar vinna og auk þess situr hún í Manneldisráði. Á undan fyrirlestrinum fer fram stutt kynning á fyrirhugaðri tveggja vikna dvöl mígrenisjúklinga á Heilsustofnun í Hveragerði 9.-20. mars næstkomandi sem undirbúin hefur verið í samvinnu við Mígren- samtökin. Áhersla í meðferðinni er Fyrirlestur um homma og lesbíur GUÐMUNDUR Páll Ásgeirsson, námsráðgjafi við Iðnskólann í Reykjavík, flytur íyrirlestur á veg- um Rannsóknarstofnunar Kennara- háskóla íslands, miðvikudaginn 18. febrúar kl. 16.15. Fyrirlesturinn nefnist: „Með hnút í maganum. Við- töl við lesbíur og homma um sárs- aukafullar tilfinningar í tengslum við_ að koma úr felum.“ í fyrirlestrinum mun Guðmundur greina frá viðtölum sínum við nokkrar lesbíur og homma. Þar sögðu þau frá því er þau gerðu sér grein fyrir að þau væru samkyn- hneigð. Einnig skýrðu þau frá reynslu sinni af því að „koma úr fel- um“. Athyglinni verður einkum beint að sorg og sárum tilfinningum og því hvernig tekist var á við þær, segir í fréttatilkynningu. Fyrirlesturinn byggist á meist- araprófsverkefni Guðmundar við uppeldisvísindadeild Kennarahá- skóla íslands 1997 á sviði ráðgjafar. Fyrirlesturinn verður haldinn í stofu M-201 í Kennaraháskóla ís- lands við Stakkahlíð. Húnvetningafé- lagið 60 ára HÚNVETNINGAFÉLAGIÐ í Reykjavík er 60 ára í dag, 17. febrú- ar. I tilefni þessara tímamóta efnir félagið til dagskrár nú á næstunni í nýrri Húnabúð, sem tekin var í notkun í gær, í Skeifunni 11, 3. hæð. Föstudaginn 20. febrúar verður kántrý- og hagyrðingakvöld. Þar skemmtir Hallbjörn Hjartarson og einnig verða á palli nokkrir kunnir hagyrðingar. Sunnudaginn 22. febrúar verður tónlistardagur þar sem flutt verða fjölbreytt tónlistaratriði tengd Hún- vetningum. Miðvikudaginn 25. febrúar verður upplestur á bundnu og óbundnu máli úr verkum Húnvetninga. Afmælisskákmót verður haldið föstudaginn 27. febrúar þar sem þátttakendur verða Húnvetningar sunnan heiða og norðan. Afmælisdagskránni lýkur með árshátíð sem verður í Kiwanishús- inu við Engjateig laugardaginn 28. febrúar. Um dansinn sér Geirmund- ur Valtýsson. á slökun, hreyfingu og mataræði; að byrja nýtt líf, að breyta um lífsstíl. I skipulegri dagskrá samkvæmt stundaskrá er heilsuþjálfun: vatns- leikfimi, göngur, æfingar í tækjasal, bakskóli, æfingar fyrir háls og herð- ar, almenn leikfimi og slökun. Auk þess ýmiss konar böð (leirböð, víxl- böð, slökunarböð, ilmolíuböð o.fl.) og nudd og sjúkraþjálfun. Fræðsla og ráðleggingar eru stór þáttur til að hjálpa dvalargestum til að breyta um lífsstíl, t.d. leiðbeinir næringar- fræðingur um mataræði. Meðferðin fer einnig fram í umræðuhóp með öðrum mígrenisjúklingum. Fulltrúi frá Heilsustofnun mun annast kynninguna á meðferðinni. Fyrsti fundur skógræktarfé- laganna í vetur SKÓGRÆKTARFÉLÖGIN halda fræðslufund í Mörkinni 6 (húsi Ferðafélagsins) í kvöld, þriðju- dag, kl. 20.30. Þetta er fyrsti fundur ársins í fræðslusamstarfi Skógræktarfélags Islands og Búnaðarbanka Islands hf. og er nú tekinn upp þráðurinn frá því í fyrra. Aðalerindi kvöldsins flytur Jón Loftsson skógræktarstjóri og nefnist „Skógræktin inn í 21. öld- ina“. „Lítil útbreiðsla skóga, ásamt jarðvegsrofi, eru eitt alvarlegasta umhverfisvandamál okkar. Mikið verk er óunnið að því að byggja upp gróðurauðlind landsins þó svo að ýmislegt hafi áunnist. Núna era um eitt hundrað ár síðan skipuleg skógrækt hófst hér á landi, sem margvíslegan fróðleik er hægt að draga af. Jón mun í máli, og með litskyggnum, fjalla um þann lær- dóm sem af því má draga og gera grein fyrir framtíðarsýn sinni á skógræktarmálum," segir í frétta- tilkynningu. Áður en Jón hefur mál sitt mun Bergþór Pálsson söngvari syngja nokkur skógarlög. Kaffi og kleinur verða á boðstólum. RANGLEGA var farið með eftimafn Kristínar Hallberg í Morgunblaðinu á laugardag í texta með mynd af samsæti íslendinga 1 Stokkhólmi stuttu eftir veitingu Nóbelsverðlaun- anna árið 1955. Birtist myndin hér aftur, en á henni eru í fremri röð frá Námskeið í skyndihjálp REYKJAVÍKURDEILD RKÍ gengst fyrir námskeiði í almennri skyndihjálp sem hefst fimmtudag- inn 19. febrúar. Kennsludagar verða 19., 23. og 24. febrúar. Kennt verður frá kl. 19-23. Nám- skeiðið verður 16 kennslustundir og verður haldið í Fákafeni 1, 1. hæð. Námskeiðsgjald er kr. 4.000. Skuldlausir félagar í RKÍ fá 50% afslátt. Hægt verður að ganga í fé- lagið á staðnum. Einnig fá nem- endur í framhaldsskólum og há- skólum sama afslátt gegn framvís- un skólaskírteinis. Meðal þess sem kennt verður á námskeiðinu er blásturaðferðin, endurlífgun með hjartahnoði, hjálp við bruna, blæðingum úr sárum. Einnig verður fjallað um helstu heimaslys, þ.m.t. slys á börnum og forvarnir almennt. Að námskeið- inu loknu fá nemendur skírteini sem hægt er að fá metið í ýmsum skólum. Barnfóstrunámskeiðin hefjast 4. mars. Næsta námskeið um slys á bömum verður í maí. Önnur nám- skeið hjá félaginu eru námskeið í áfallahjálp (sálrænni skyndihjálp) og um móttöku þyrlu á slysstað. Þeir sem hafa áhuga á að komast á þessi námskeið geta skráð sig frá kl. 8-16. Tekið skal fram að félagið út- vegar leiðbeinendur til að halda þessi námskeið. Fyrirlestur um auglýsingar ALLIANCE Frangaise, Austur- stræti 3, stendur fyrir fyrirlestri og almennri umræðu um heim auglýsinganna miðvikudaginn 18. febrúar kl 20.30. Marta Þórðardóttir segir frá því ferli „sem liggur að baki þessa mjög svo áberandi fyrirbrigðis í nútímaþjóðflélagi“, eins og segir í fréttatilkynningu. Hún mun sýna nokkur valin dæmi og útskýrir þau, um leið og hún ber saman vinnuaðferðir aug- lýsingahönnuða og auglýsingar, hér á landi og í Frakklandi, þar sem hún lærði. Kynningin og umræður fara fram á frönsku og íslensku. LEIÐRÉTT Haldiðún Gróa hafi skó í FRÉTT í blaðinu á laugardag, um minningarathöfn um Halldór Kiljans Laxness, var m.a. sagt frá lögum, sem Kór Menntaskólans við Hamrahlíð og Hamrahlíðarkórinn fluttu við ljóð Halldórs. Ranglega var farið með nafn höfundar lagsins Haldiðún Gróa hafi skó. Höfundur er Gunnar Reynir Sveinsson. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum. vinstri: Sven B.F. Janson, Þórunn Ástríður Bjömsdóttir, Sigurður Nordal, Kristín Hallberg, Halldór Laxness. Standandi frá vinstri: Pet- er Hallberg, Ragnar Jónsson, Ólöf Nordal, Jón Helgason og Auður Sveinsdóttir Laxness. KIRKJUSTARF Safnaðarstarf Áskirkja. Opið hús fyrir alla ald- urshópa kl. 10-14. Léttur máls- verður. Bústaðakirkja. Æskulýðsstarf fyr- ir 10-12 ára kl. 17. Dómkirkjan. Kl. 13.30-16 mömmufundur í safnaðarh., Lækj- argötu 14a. Kl. 16.30 samverustund fyrir böm 11-12 ára. Grensáskirkja. Kyrrðarstund kl. 12. Orgelleikur, altarisganga, fyrir- bænir. Léttur málsverður á eftir. Hallgrímskirkja. Fyrirbænaguðs- þjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúk- um. Háteigskirkja. Starf fyrir 10-12 ára börn kl. 17 í safnaðarheimilinu. Langholtskirkja.Ungbarnamorg- unn kl. 10-12. Opið hús. Æskulýðs- fundur kl. 20. Laugarneskirkja. Lofgjörðar- og bænastund kl. 21. Umsjón Þorvald- ur Halldórsson. Neskirkja. Foreldramorgunn á morgun kl. 10-12. Fræðsla: Mataræði ungbarna. Seltjarnaraeskirkja. For- eldramorgunn kl. 10-12 Árbæjarkirkja. Foreldramorgunn i safnaðarheimilinu í dag kl. 10-12. Breiðholtskirkja. Bænaguðsþjón- usta með altarisgöngu kl. 18.30. Bænaefnum má koma til sóknar- prests í viðtalstímum hans. Digraneskirkja. Starf aldraðra í dag frá kl. 11. Fella- og Hólakirkja. Starf fyrir 9- 10 ára kl. 17. Grafarvogskirkja. Eldri borgarar. Opið hús kl. 13.30. Föndrað, spilað, sungið. Kaffi. KFUM, drengir 9-12 ára kl. 17.30-18.30. Æskulýðsfélag, yngri deild, fyrir 8. bekk kl. 20-22. Hjallakirkja. Bæna- og kyrrðar- stund kl. 18. Kópavogskirkja. Mæðramorgunn í safnaðarheimilinu Borgum í dag kl. 10-12. Fríkirkjan í Hafnarfirði. Opið hús fyrir 8-10 ára böm kl. 17-18.30 í safnaðarheimilinu, Linnetstíg 6. Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús í Vonarhöfn í safnaðarh. Strand- bergi fyrir 10-12 ára kl. 17-18.30. Bessastaðakirkja. Bæna- og kyrrð- arstund kl. 17.30. Hægt er að koma bænaefnum til presta og djákna safnaðarins. Vídalínskirkja. Fundur í æsku- lýðsfélaginu, yngri deild kl. 19.30, eldri deild kl. 21. Víðistaðakirkja. Aftansöngur og fyrirbænir kl. 18.30. Borgarneskirkja. Helgistund þriðjudaga kl. 18.30. Mömmumorg- unn í Félagsbæ kl. 10-12. Grindavíkurkirkja. Foreldramorg- unn kl. 10. TTT starf kl. 18-19 fyrir 10-12 ára. Unglingastarf kl. 20.30 fyrir 8. 9. og 10. bekk. Keflavíkurkirkja. Hugvekja í Hvammi kl. 17. Kirkjan opin 14-16. Starfsfólk kirkjunnar í Kirkjulundi 14-16. Landakirkja. Kl. 16 kirkjuprakk- arar (7-9 ára). Kl. 20.30 eldri deild KFUM & K í húsi félaganna. Lágafellskirkja. Kyrrðar- og bænastund verður í Lágafells- kirkju í dag kl. 18. Mömmumorgun í safnaðarheimilinu miðvikudag kl. 10-12. ------------------- Fundur um starfsmannamat ANNAR hádegisverðarfundur menntanefndar Bandalags háskóla- manna í fyrirlestraröð um starfs- mannamál verður í Komhlöðunni, Bankastræti 2, 19. febrúar nk. kl. 12-13. Þar ræðir Þórður S. Óskarsson, framkvæmdastjóri starfsmanna- og stjórnunarsviðs Norðuráls hf„ um frammistöðumat/starfsmannasam- töl. Fundurinn er öllum opinn. Blað allra landsmanna! i&orgtinl&líi&ifc - kjarni malsins! Rangt eftir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.