Morgunblaðið - 17.02.1998, Blaðsíða 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
Heilbrigðiseftirlitið
Algengast að kvartað
sé vegna matarsýkingar
Eðli kvartana til
heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur
Meint matarsýking
Röng meðferð
Skemmdur matur
Neysluvatn
Sóðaskapur
Útrunnin vara
Röng merking
Óleyfileg aukaefni
17
2 Fjöldi kvartana
Agúrkur, salöt, paprikur, steinselja
Islenskt grænmeti
allan ársins hring
SKRÁÐAR kvartanir sem bárust
Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur
vegna matvæla voru 54 á síðasta
ári. Að sögn Rögnvalds Ingólfsson-
ar, sviðsstjóra matvælasviðs hjá
Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur,
berast líka til þeirra kvartanir sem
eru ekki skráðar. „Þá vill fólk ekki
láta nafns síns getið og heilbrigðis-
fulltrúar leysa úr málunum í síma
án þess að það leiði til neinna ann-
arra aðgerða."
Algengustu kvartanimar á síð-
asta ári voru vegna meintra matar-
sýkinga og að sögn Rögnvalds er
sjaldnast hægt að finna orsökina ef
um fáa einstaklinga er að ræða.
„Það er töluvert um að veirusýk-
ingar valdi óþægindum í maga og
fólk tengi slík óþægindi við síðustu
máltíð sem neytt var.“ Hann segir
að á síðasta ári hafi engar alvarleg-
ar hópsýkingar komið upp.
Rögnvaldur segir að nokkuð sé
leitað til þeirra vegna rangrar
meðferðar matvæla og einnig
vegna skemmds matar eða gallaðs
neysluvatns. „Við fengum níu
kvartanir vegna skemmdra mat-
væla á síðasta ári en vegna útrunn-
inna vara, rangra merkinga og
óleyfilegra aukefna voru einungis
sex kvartanir sem báust til okkar.“
Þegar Rögnvaldur er spurður
hvort þetta lága hlutfall kvartana
vegna rangra merkinga og útrunn-
inna vara endurspegli ástandið í
verslunum segir hann að svo geti
vel verið. „Hins vegar er erfitt að
segja til um hvort svo sé og rétt að
hvetja neytendur til að leita til okk-
ar ef keypt em matvæli sem upp-
fylla ekld kröfur eða eru ófullnægj-
andi að einhverju leyti.“
Rögnvaldur segir misjafnt
hvemig starfsmenn heilbrigðiseft-
irhtsins bregðist við kvörtunum.
„Stundum er hægt að leysa úr
kvörtunum í síma og þá eru þær
ekki skráðar. Ef um alvarlegri
kvartanir er að ræða eru þær at-
hugaðar nánar. Stundum er tekið
sýni af vörunni og farið á staðinn ef
um ranga meðferð matvæla er að
ræða eða kvartað er undan sóða-
skap.“
NEYTENDUM hefur nú í fyrsta
skipti staðið til boða að kaupa
ýmsar tegundir af íslensku
grænmeti allan ársins hring. Að
sögn Kolbeins Ágústssonar hjá
Sölufélagi garðyrkju-
manna hefur í fyrsta
sinn tekist að framleiða
islenskar agúrkur
þannig að þær standi
til boða árið um kring.
„Við höfum ekki get-
að annaðmarkaðnum
alveg en eftir nokkrar
vikur verður það mögu-
legt. Ástæðan fyrir því að
nú bjóðast agúrkur allan
ársins hring er sú að æ fleiri
eru farnir að rækta agúrkur
með raflýsingu og þetta á líka
við um græna papriku og salöt.
Þá hafa islensk jarðarber verið
fáanleg allt árið og í mörg ár
hafa íslenskir sveppir verið til
allt árið. fslenskir tómatar hafa
verið að koma á markaðinn en
það er Guðjón Birgisson á Mel-
um á Flúðum sem sendi fyrstu
tómatana frá sér 26. janúar síð-
astliðinn.
Viðtökur neytenda góðar
Kolbeinn segir viðtökur ís-
lenskra neytenda frábær-
ar. „Það er ljóst af viðtök-
unum að fólk vill islenskt
grænmeti enda er gæða-
munurinn mikill. Okkur
hefur ennfremur tekist
að halda verði nálægt því
sem býðst á erlendu græn-
meti en engir verndartollar
eru lagðir á innflutt græn-
meti um þessar mundir.“ Kol-
beinn er viss um að ef verð á
raforku væri lækkað kæmi það
fram í Iægra verði á grænmeti.
Hann segir bændur láta vel af
ræktun grænmetis undir raflýs-
ingu. „Það hefur aðeins borið á
því að vanti t.d. lit á salat eins
og Lollo Rosso þar sem lýsingin I
er ekki mikil en bragðið er |
engu að síður ágætt.“
Morgunblaðið/Emilía
Nýtt
Bakkelsi
í brúsa
SHAKE a Cake eða bakkelsi í 1
brúsa er nýjung á markaðnum.
Hægt er að fá amerískar pönnukök-
ur eða skonsur í svona brúsum og
það eina sem þarf að gera er að
bæta vatni út í duftið í brúsanum og
hrista hann svo hressilega. Þá er
deigið tilbúið á pönnuna.
Einnig eru fáanlegar súkkulaði-
tertur og súkkulaðimúffur í þessum 1
brúsum. Áður en deigið er sett í (
form er vatni og jurtaolíu bætt út í
brúsann, tappinn skrúfaður á og *
brúsinn hristur rækilega.
íslenskar leiðbeiningar eru á
flöskunum en bakstursbrúsarnir
koma frá Bretlandi. Það er Ásgeir
Sigurðsson ehf. sem sér um inn-
flutning á brúsunum og þeir fást í
öllum helstu matvöruverslunum.
-kjarnimálsins!
Bókaðu núna
og tryggðu þér
30.000 kr.
afslátl
fyrir fjölskylduna til
Benidorm
Heimsferðir kynna nú hagstæð-
ustu verð sumarsins til Benidorm,
og ef þú bókar núna getur þú
tryggt þér 6.000 kr. afslátt
fyrir manninn, eða allt að
30.000 kr. afslátt fyrir fjöl-
skylduna. Fáðu bæklingin
sendan og kynntu þéj
glæsilega nýja gistivalkosti
fyrir sumarið og tryggðu
þér besta verðið í sumar.
Fáðu bæklinginn sentían
Verð kr. 39.932 Verð kr. 53.960
Hjón með 2 börn, 2-11 ára, 2 vikur, M.v. 2 í íbúð, Vina del Mar, 2 vikur,
Vina del Mar. 15. júlí.
HEIMSFERÐIR
mma ih
Austurstræti 17, 2. hæð • sími 562 4600
» n°kda9a
■Medisana
buxur
Styðja vel við mjóbak, mjaðmir og hné
(Styðja við hné í lengri sídd, niður fyrir hnéj
Örva vessakerfið og auka blóðstreymi.
Húðin endurnýjar sig örar og verður stinnari.
Hafa hjálpað mörgum í baráttunni við
appelsínuhúð.
Henta vel í alla líkamsrækt,
sérstaklega HJIiI'IIJTíI
Fáanlegar í tveimur lengdum og sjö stærðum
Críptu tækifærid
- meðan birgðir endast.
Útsölustaðir:
Lyfja, Lágmúla - Ingólfsapótek, Kringlunni
Háaleitisapótek, Háaleitisbraut 68 - G rafarvogsapótek, H veraf o I d 1-5
Árbæjarapótek, Hraunbæ 102 - Dekurhornið, Hraunbergi 4