Morgunblaðið - 17.02.1998, Blaðsíða 43
I
J
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 1998 43
OSKAR
HERVARSSON
+ Óskar Hervars-
son fæddist í
Súðavík í Álftafirði
17. júní 1930. Hann
lést á Sjúkrahúsi
Akraness hinn 10.
febrúar síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
Guðmunda Eiríks-
dóttir, f. 19.12. 1909,
og Hervar Sigurvin
Þórðarson, f. 29.9.
1906, d. 21.7. 1985.
Systkini Óskars eru:
Fanney, f. 17.6. 1931,
Sólveig Þórunn, f.
5.9. 1932, Birna, f.
6.12. 1933, Svanhildur, f. 26.1.
1935, Eiríkur, f. 14.9. 1938, Dóra,
f. 4.9. 1939, Hafsteinn Gunnar, f.
19.2. 1943, d. 5.9. 1943 og Jón
Trausti, f. 19.8. 1945.
Eftirlifandi eiginkona Óskars
er Sigríður Fjóla Ásgrímsdóttir,
f. 11.1. 1932. Börn þeirra eru: 1)
I'
Þórður Ægir, f. 4.6.
1954. Eiginkona hans
er Sigurborg Odds-
dóttir og eiga þau
tvær dætur. Þórður
Ægir á eina dóttur af
fyrra hjónabandi og
áður eignaðist hann
eina dóttur. 2) Guð-
munda Hrönn, f. 28.8.
1956. Eiginmaður
hennar er Stefán Ei-
ríksson. Þau eiga tvö
börn. 3) Irma Sjöfn, f.
12.11. 1961. Eigin-
maður hennar er
Hrólfur Ölvisson. Þau
eiga tvær dætur. Stjúpsonur
Óskars er Ásgrímur Kárason, f.
18.11. 1950. Eiginkona hans er
Jólianna Guðrún Þorbjörnsdóttir.
Þau eiga þijú börn.
Óskar verður jarðsunginn frá
Akraneskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 14.
Á hádegi hinn 10. febrúar andað-
ist bróðir okkar Óskar Hervarsson.
Fögur vetrarsólin gyllti hinn drif-
hvíta snjó, yfir Akrafjallinu blár
himinn, með þunnri slæðu hvítra
skýja. Það var eins og öll þessi feg-
urð himins og jarðar væri sett fram
til heiðurs þér, okkar kæri bróðir.
Ótímabært andlát hans er okkur
sárt, en sá sem yfir vakir, hann
ræður, okkar er að sættast á.
Óskar var góður bróðir, grand-
var og glaðlyndur maður sem gekk
ávallt hægt um gleðinnar dyr og
tók tillit til nærveru sálar. í faðm-
lagi hans bjó hlýja og styrkur.
I einkalífinu var Oskar ham-
ingjusamur maður, elskaður af fjöl-
skyldu sinni og kom kærleikur
þeirra til hans best í ljós er þau
önnuðust hann af ást og umhyggju
hans síðustu daga hér á jörð. Hann
uppskar eins og hann sáði til, því að
fjölskyldan var honum dýrmætust
og hlúði hann alla tíð vel að henni.
Móðir okkar, nú orðin 87 ára að
aldri, sér nú eftir góðum syni sem
var henni mjög kær og hennar
fyrsta bam. Guð styrki hana og alla
fjölskylduna hans.
í sólhvítu ijósi
hinna síðhærðu daga
býr svipur þinn.
Eins og tálblátt regn
sé ég tár þín falla
yfir trega minn.
Og íjarlægð þín sefur
í faðmi minum
í fyrsta sinn.
(Steinn Steinarr.)
Við þökkum honum samfylgdina
í 67 ár. Hvíl í friði, kæri bróðir.
Þín systkini.
Þegar við félagar úr Kirkjukór
Akraness komum saman ásamt
samferðafólki föstudaginn 6. febrú-
ar til þess að minnast ferðar okkar
til Landsins helga fyrir 20 árum
kom kveðja frá Óskari Hervars-
syni. Hann gat ekki verið með þar
sem hann hafði skömmu áður lagst
inn á sjúkrahús til þess að gangast
undii- aðgerð. Ég held að enginn
hafi búist við því að áður en vika
væri liðin yrði hann allur en sú er
nú orðin raunin. Ekki fer hjá því að
hugurinn leiti aftur í tímann við slík
tímamót enda er margs góðs að
minnast.
Kirkjukór getur verið sundurleit-
ur hópur því að söngfólkið kemur
úr ýmsum áttum og úr flestum
stéttum. Það sem sameinar það er
áhugi á tónlist og það yndi sem það
hefur af söng. Bassinn er kjölfestan
í góðum kór og skiptir máli að hann
sé vel skipaður. Þar var Óskar á
réttum stað en hann hafði fallega
bassarödd og var einnig lagviss
maður. Hann var líka góður félagi,
hafði næma kímnigáfu og naut þess
að segja frá. Á árshátíðum kórsins
og við fieiri tækifæri flutti hann
annála starfsins með gamansömu
ívafi við góðar undirtektir. Hann
var formaður kórsins á árunum
1979-81 og gegndi því starfi af trú-
mennsku og festu. - Sá er þetta rit-
ar hefur nú starfað í Kirkjukórnum
í 27 ár og man ekki betur en Óskar
hafi verið þar allan þann tíma. Þær
eru því orðnar margar stundimar
sem við höfum átt saman á kirkju-
loftinu og víðar í söng og við höfum
sungið saman á mörgum tónleikum.
Upp í hugann koma ógleymanlegar
stundir á ferðalögum til ísraels,
Þýskalands, Lundúna, Austurríkis
og Ungverjalands, svo og á ferða-
lögum innanlands.
Skálholtsferðirnar eru orðnar
margar. Fyrir þær góðu samveru-
stundir skal nú þakkað. Það verður
tómlegra á kirkjuloftinu eftir en áð-
ur og skarð Óskars verður vand-
fyllt.
Fyrir hönd Kirkjukórsins sendi
ég eftirlifandi eiginkonu, börnum,
tengdabörnum, barnabömum og
móður hans innilegar samúðar-
kveðjur. Þeirra missir er mikill en
minningin um góðan mann lifir.
Steingrímur Bragason.
„Verði þinn vilji.“ Stundum get-
um við lítið annað sagt. Þannig var
mér innanbrjósts þegar ég frétti
veikindi og síðan lát Óskars
Hervarssonar. Óskar var of fljótt
burtkallaður frá vinum sínum og
Blómabúð in
öa^ðskom
v/ PossvogskiFUjucja^ð
Sími: 554 0500
Persónuleg,
alhliða útfararþjónusta.
Áralöng reynsla.
Sverrir Einarsson, útfararstjóri
Sverrir Olsen, útfararstjóri
Útfararstofa Islands
Suðurhlíó 35 ♦ Sími 581 3300
Allan sólarhringinn.
Crfídryííj
ur
UPPLVSINGAR f SÍMUM
562 7575 & 5O5O 925
HOTEL LOfTLEíÐfR
I * G f í Ií * l' * ( * f f t í
fjölskyldu. En við deilum ekki við
hinn æðsta dómara, heldur verðum
við að sætta okkur við það sem við
fáum ekki breytt, jafnvel þó að okk-
ur finnist dómurinn ekki tímabær
eða réttlátur.
Nú þegar leiðir skilja viljum við
systkinin og foreldrar okkar í
Flatatungu, þakka fyrir allt það
sem þú gafst af þér á langri sam-
leið. Þau eru ófá veridn sem þú
skildir eftir þig og margar hlýjar
samverustundir sem við áttum með
ykkur hjónunum.
Þegar ég var barn voruð þið
Didda í mínum huga einn af vor-
boðunum. Á vorin þegar túnin voru
orðin það sprottin að grasið bylgj-
aðist undan vindinum gátum við átt
von á því að þið færuð að koma í
fyrstu heimsókn sumarsins. Þið
komuð færandi hendi og við bræð-
ur hlökkuðum til. Allt frá því ég
man fyrst eftir mér talaðir þú við
okkur krakkana eins og jafningja
þína og taldir ekki eftir þér að sýna
þolinmæði við að svara bamalegum
spumingum. Seinna skildist mér að
lítillætið er einkenni stórbrotinna
manna.
Með Óskari Hervarssyni er
genginn góður drengur sem fegraði
og bætti mannlífið í kringum sig.
Ég veit að sökuðurinn er mikill hjá
fjölskyldunni og eftirlifandi eigin-
konu. Megi Guð styðja þau og
styrkja.
Ámi Gunnarsson
frá Flatatungu.
♦O' y
%
¥
Þegar andlát
ber að höndum
Útfararstofa kirkjugarðanna ehf.
Sími 551 1266
Allan sólarhringinn
Glæsileg kaffihlaðborð
FALLEGIR SALIR
OG MJÖG GÓÐ ÞJÓNUSTA
Eiginmaður minn,
HALLGRÍMUR INDRiÐASON,
Litla-Hvammi,
Eyjafjarðarsveit,
varð bráðkvaddur á heimili okkar laugardaginn 14. febrúar.
Lilja Jónsdóttir.
+
Ástkær eiginmaður minn,
BJARNÞÓR VALDIMARSSON,
lést á heimili sínu Reykjamörk 2b, Hveragerði að kvöldi 14. febrúar sl.
Jarðarförin auglýst síðar.
Fyrir mína hönd og annara vandamanna,
Þórdís Jónsdóttir.
Bróðir okkar,
GARÐAR RÖÐULL KRISTJÁNSSON
frá Finnstungu,
lést á sjúkrahúsi í Ástralíu 15. janúar sl.
Útförin hefur farið fram.
Grétar F. Guðmundsson,
Heimir F. Guðmundsson,
Áslaug F. Guðmundsdóttir,
Svanhildur F. Guðmundsdóttir
og fjölskyldur.
Elskuleg móðir okkar, tendamóðir og amma,
RAGNA SVAVARSDÓTTIR,
Stiilholti 8,
Akranesi,
lést laugardaginn 14. febrúar.
Jarðarförin auglýst síðar.
Bergljót Skúladóttir,
Benedikt Skúlason,
Einar Skúlason,
Laufey Skúladóttir,
Ingibjörg Skúladóttir,
Þorbjörg Skúladóttir,
Sigrfður Skúladóttir,
Skúli Ragnar Skúlason,
tengdabörn og barnabörn
+
Bróðir okkar og mágur,
SIGURÐUR JÓNSSON,
vélvirki,
Stóragerði 38,
Reykjavik,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mið-
vikudaginn 18. febrúar kl. 15.00.
Ingigerður Jóndóttir,
Maria Jónsdóttir,
Guðrún S. Jónsdóttir,
Brynhildur Stefánsdóttir,
Margrét Stefánsdóttir.
Egill Kristbjörnsson,
Jón Kristjánsson,
Pétur Kristbergsson,
Kristinn Júlíusson,
+
Kveðjuathöfn vegna,
MARGRÉTAR FINNBJÖRNSDÓTTUR
frá ísafirði,
verður haldin I Dómkirkjunni í Reykjavík mið-
vikudaginn 18. febrúar kl. 16.00.
Útför hennar verður gerð frá ísafjarðarkirkju
laugardaginn 21. febrúar kl. 14.00.
Elísabet G. Kristjánsdóttir,
Hulda Bryndís Sverrisdóttir,
Kristján Sverrisson,
Margrét K. Sverrisdóttir,
Ásthildur L. Sverrisdóttir,
Greta L. Kristjánsdóttir,
Ragnhildur Sverrisdóttir,
Guðni A. Jóhannesson,
Ema S. Ragnarsdóttir,
Pétur S. Hilmarsson,
Matthías Sveinsson,
Sverrir Hermannsson.