Morgunblaðið - 17.02.1998, Side 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
15 mánaða fangelsi fyr
ir ofbeldi og nauðgun
Morgunblaðið/Halldór
DOKTOR Kristján Steinsson.
Doktorsvörn við Háskólann
ÞRJÁTÍU og eins ára garaall mað-
ur hefur verið dæmdur í Héraðs-
dómi Reykjaness til að sæta 15
mánaða fangelsi fyrir að beita fyrr-
um sambýliskonu sína líkamsmeið-
ingum og nauðga henni aðfaranótt
fimmtudagsins 31. júlí 1997.
Þá var maðurinn dæmdur til að
greiða allan sakarkostnað, um 180
þúsund krónur í laun verjanda og
saksóknaralaun og að greiða fyrr-
um sambýliskonu sinni 300 þúsund
krónur í bætur og laun lögmanns
hennar. Lögmaður konunnar gerði
kröfur um tvær milljónir króna auk
dráttarvaxta í miskabætur, en dóm-
inum þótti að með því sem upplýst
var fyrir dómi um alltíð og náin
samskipti ákærða og konunnar eftir
að brot var framið, rétt að bótafjár-
hæð var ákveðin miklum mun lægri
en krafist var.
Óstöðugur framburður
Sannað þótti að ákærði hefði
gengið berserksgang, brotið og
bramlað húsgögn og rifið hurðir af
svefnherbergisskápum umrædda
nótt. Þá þótti einnig sannað að
ákærði hefði veitt sambýliskonu
sinni marga alvarlega áverka á
höfði, hálsi, handleggjum, búk og
læri, með höggum og spörkum, með
því að draga hana á hárinu og með
því að kasta í hana hleðslutæki fyrir
borvél. Framburður ákærða um at-
burði umrædda nótt hafi verið
óstöðugur og um sumt ótrúverðug-
ur.
Sú skýring hans að sambýliskona
hans hefði hlotið áverka við að detta
og reka sig á fengi ekki staðist að
mati dómsins. Fjarstæðukennt
verði að teljast að þau hafi elskast á
eðlilegan og óþvingaðan máta að
undan gegnum þeim líkamsmeið-
ingum sem sannaðar þóttu. Fram-
burður sambýliskonunnar hafi hins
vegar verið stöðugur og hún verið
sjálfri sér samkvæm í frásögnum
fyrir lækni á Neyðarmóttöku, fyrir
lögreglu og fyrir dómi.
Frásögn hennar sé styrkt af frá-
sögnum og vottorðum þeirra lækna
sem hana rannsökuðu í kjölfar um-
ræddra atvika, sem breyti þó ekki
að konan sé sönn að því að hafa bor-
ið rangt fyrir lögreglu um samskipti
sín og ákærða eftir umrædda nótt,
en í ljós kom að þau hefðu haft náið
samneyti oftar en einu sinni þá
mánuði sem í hönd fóru eftir að
konan lagði fram kæru um líkams-
árás og nauðgun.
KRISTJÁN Steinsson læknir varði
doktorsritgerð sína við Háskóla Is-
lands um helgina. Ritgerðin heitir:
„Systemic Lupus Erythematosus.
Epidemiology, Pathogenesis and
Genetics with Special Reference to
the Complement System."
I ritgerðinni er fjallað um sjúk-
dóminn rauða hunda og hvernig
erfðafræðilegir þættir hafa áhrif á
alvarleg sjúkdómseinkenni. Orsak-
ir sjúkdómsins eru að mestu
óþekktar, en ýmislegt bendir til
þess að um samspil erfða- og um-
hverfisþátta sé að ræða. Að mati
Kristjáns eru rannsóknir sem auka
þekkingu á orsökum og meingerð
rauðra hunda mikilvægar m.t.t.
bættrar meðferðar og munu einnig
nýtast hvað varðar aðra skylda
sjúkdóma.
Rannsókn Kristjáns á nýgengi
sjúkdómsins á árinum 1975-1984
sýnir greinilega fjölgun nýgreindra
tilfella. Sjúkdómurinn er mun al-
gengari meðal kvenna en karla
(7:1). Sjúklingarnir eru almennt
eldri og sjúkdómseinkennin vægari
hér á landi samanborið við flestar
erlendar rannsóknir.
Andmælendur við doktorsvörn-
ina voru Gunnar Sturfelt, dósent
frá háskólanum í Lundi, og Reynir
Arngrímsson, dósent við Háskóla
Islands. Einar Stefánsson, forseti
læknadeildar, stjórnaði athöfninni.
Var skipan hótelnefndar til úthlutunar á fjármagni til heilsárshótela ólögleg?
I
í
»
í
I
t
»
I
í
i
I
Ráðuneyti véfengir álit
umboðsmanns Alþingis
og leggur fram ný gögn
Umboðsmaður Alþingis hefur gefið út álit um að skipan nefndar til að út-
hluta 20 milljónum króna til að bæta rekstrarstöðu heilsárshótela hafi verið
ólögleg og nefndin því ekki bær til að úthluta fénu. Mál þetta hefur vakið
nokkrar deilur og meðal annars verið rætt utan dagskrár á Alþingi. Sam-
gönguráðuneyti hefur nú krafíst þess að álitið verði endurskoðað á þeirri
forsendu að valdsvið Ferðamálaráðs hafí ekki verið skert og er þess nú
beðið að umboðsmaður svari.
SAMGÖNGURÁÐUNEYTIÐ
hefur farið þess á leit að Gaukur
Jörundsson, umboðsmaður Alþing-
is, endurskoði álit um skipan
nefndar, sem átti að úthluta 20
milljónum króna til að bæta rekstr-
argrundvöll heilsárshótela hér á
landi, þar sem hún hafi verið ólög-
leg. Umboðsmaður sagði að sam-
kvæmt lögum hefði samgöngu-
ráðuneytinu ekki verið heimilt að
skerða valdsvið Ferðamálaráðs ís-
lands með því að skipa nefndina.
Umboðsmaður tók málið fyrir eftir
að borist höfðu kvartanir frá
tveimur aðilum í hótelrekstri, sem
ekki fengu hluta af fénu.
Ekki skerðing?
I bréfi frá samgönguráðuneytinu
til umboðsmanns dagsettu 30. jan-
úar eru lögð fram ýmis gögn til að
sýna fram á að „úthlutun styrkj-
anna var alfarið gerð í samræmi
við vilja og samþykkt Ferðamála-
ráðs frá 31. janúar 1995“ og síðan
er bætt við: ,,[Þ]ví var í raun ekki
um neina skerðingu á ákvörðunar-
valdi Ferðamálaráðs að ræða.
Samgönguráðuneytið hafði engin
áhrif á störf þessarar nefndar enda
var enginn fiilltrúi ráðuneytisins í
nefndinni."
Innan ráðuneytisins er talið að
ályktun umboðsmanns um að ráð-
herra hafi ekki haft vald til að
skipa nefndina þar sem Ferða-
málaráð hefði ekki framselt
ákvörðunarvald sitt á þessu sviði
hafi orðið til vegna misskilnings,
sem orðið hafi vegna svars ráðu-
neytisins við erindi umboðsmanns í
janúar.
I svarinu, sem ráðuneytið sendi
umboðsmanni, er brugðist við ósk
hans um að gerð verði grein fyrir
skipan hótelnefndarinnar: „Uthlut-
unamefndin var skipuð fulltrúum
frá Ferðamálasjóði, Ferðamálaráði
og fjárlaganefnd Alþingis. Þar með
var tryggt að hlutaðeigandi aðilar,
þ.á m. Ferðamálaráð, áttu aðild að
undirbúningi málsins og tillögu um
úthlutun á styrkjum til hótela á ár-
inu 1995.“
Samþykkt á fundi
Ferðamálaráðs
Umboðsmaður Alþingis taldi
þetta svar ekki fullnægjandi eins
og fram kom í áliti hans. Hefur
ráðuneytið því lagt fram frekari
gögn til að sýna fram á það að skip-
an nefndarinnar til að fjalla um
skiptingu fjárins hafi verið gerð
með umboði Ferðamálaráðs. Þar á
meðal er fundargerð ráðsins frá 31.
janúar þar sem skipan hennar var
samþykkt: ,,[S]amþykkt var tillaga
formanns um að leggja til að komið
verði á fót þriggja manna starfs-
hópi til að fjalla um skiptingu fjár-
ins. Lagt er til að í hópnum eigi
sæti einn fulltrúi frá Ferðamála-
ráði, einn frá svokallaðri „hótel-
nefnd“ [Alþingis] og einn frá
Ferðamálasjóði.“
Fundur Ferðamálaráðs var hald-
inn 31. janúar 1995. 2. febrúar
skrifar fjárlaganefnd Alþingis bréf
og greinir frá fjái’veitingunni, en
það hafði hins vegar einnig verið
gert munnlega nokkrum dögum
fyrir fundinn þannig að stjórn
Ferðamálaráðs var þá kunnugt um
alla málavöxtu, að því er segir í
bréfi samgönguráðuneytis.
Hefði átt að fela Ferðamálaráði
Umboðsmaður Alþingis komst
að þeirri niðurstöðu að ákvörðun
um 20 milljónirnar hafi samkvæmt
ákvæðum fjárlaga nr. 158/1994 átt
að fela Ferðamálaráði íslands:
„Þar sem ráðið framseldi ekki
ákvörðunarvald sitt á þessu sviði
og með því að æðra stjórnvaldi var
að lögum ekki heimilt að skerða
valdsvið Ferðamálaráðs með slíkri
ráðstöfun, var nefnd sú, sem sam-
gönguráðherra skipaði hinn 10.
maí 1995 til þess að gera tillögu tU
hans um úthlutun fjárins, ekki bær
til þess að annast það verkefni. Var
því að lögum ekki staðið rétt að út-
hlutun þess fjár, sem hér um ræð-
ir.“
Umboðsmaður segir í álitinu,
sem var birt 8. janúar, að í lögun-
um sé ótvírætt að það sé eingöngu
á valdi Ferðamálaráðs og eftir at-
vikum framkvæmdastjórnar þess
að setja á laggirnar sérstaka und-
irnefnd, sem hefði það verkefni
með höndum að ráðstafa fénu. Það
sé í samræmi við það meginsjón-
armið í stjórnsýslurétti að ákvörð-
un um framsal á lögbundnum
verkefnum stjómvalds verði ein-
göngu tekin af því sjálfu og skýr
lagafyrirmæli kveði ekki á um
heimildir æðra stjórnvalds í þess-
um efnum.
Umboðsmaður Alþingis skrifaði
samgönguráðuneytinu bréf vegna
þessa máls og bað um gögn sem
bárust í febrúar á liðnu ári. I bréfi
ráðuneytisins fyrir ári segir að þar
sem úthlutunamefndin hafi verið
skipuð fulltrúum frá Ferðamála-
sjóði, Ferðamálaráði og fjárlaga-
nefnd Alþingis, hafi það verið
tryggt „að hlutaðeigandi aðilar, þ.á
m. Ferðamálaráð, [ættu] aðild að
undirbúningi málsins og tillögu um
úthlutun á styrkjum til hótela á ár-
inu 1995“.
Ekki fjallaö um hæfi
manna í nefndinni
í áliti umboðsmanns segir að
hvorki sé talin ástæða til þess að
fjalla um hæfi þeirra manna, sem
skipuðu hina sérstöku úthlutunar-
nefnd, né starfshætti hennar.
Tilefni þess að umboðsmaður Al-
þingis tók þetta mál fyrir var
kvörtun tveggja aðila vegna máls-
meðferðar ráðuneytisins við út-
hlutun styrlga að upphæð 20 millj-
ónir króna, sem vora veittir sem
aukafjárveiting fyrir tilstilli fjár-
laganefndar á fjárlögum ársins
1995. Þessi fjárveiting var ákveðin
eftir að nefnd, sem skipuð var árið
1993 til að kanna rekstrargrund-
völl heilsárshótela á landsbyggð-
inni og leita leiða til að styrkja
hann, hafði skilað áliti. Þegar mælt
var fyrir fjárveitingunni á þingi
sagði formaður fjárlaganefndar að
hún ætti að gera skuldbreytingar
heilsárshótelum mögulegar.
Nefnd samgönguráðherra skil-
aði endanlegu áliti fyrri hluta árs
1995 og lagði þar til „við sam-
gönguráðherra að skipaður [yrði
þriggja] manna starfshópur sem í
[ættu] sæti fulltrúar frá Ferða-
málasjóði, Ferðamálaráði og sam-
gönguráðuneyti".
Taldi 11 hótel styrkhæf
Halldór Blöndal samgönguráð-
herra skipaði nefndina í maí 1995
til að gera tillögu um ráðstöfun
fjárins. Þorleifur Þór Jónsson var
skipaður fulltrúi Ferðamálaráðs,
Björn Jósef Arnviðarson fulltrúi
Ferðamálasjóðs og Sturla
Böðvarson úr „hótelnefnd" AI-
þingis. Nefndin lagði fram mat
um að 11 hótel teldust styrkhæf
og segir í áliti umboðsmanns að
samgönguráðuneytið virðist hafa
óskað eftir því þegar það lá fyrir
að formleg umsókn um styrk
kæmi frá hverju þeirra. Þegar
þær höfðu borist var tilkynnt um
úthlutun styrksins.
Þeir aðilar, sem kvörtuðu við
umboðsmann, sögðu að úthlutunin
hefði átt sér stað án undangeng-
innar kynningar eð auglýsingar.
Því hafi keppinautum ekki gefist p
kostur á að sækja um styrki og |,
keppa um þá á jafnréttisgrundvelli. ^
Leynd hefði hvílt yfir málinu á P
meðan samgönguráðuneytið og hin
sérstaka úthlutunamefnd höfðu
það til meðferðar og aðeins þeim,
sem úthlutun fengu, hefði verið
kunnugt um ráðstöfun fjárins fram
að úthlutun. Umræddir aðilar hafi
þannig ekki fengið tækifæri til að
kynna málstað sinn fyrir ráðheraa w
eða nefndinni áður en ákvörðun I-
hefði verið tekin um úthlutun f
styrkjanna. |y
Þessir aðilar reka hvorir tveggja
hótel og telja engan vafa leika á því
að þau séu heilsárshótel og falli
undir þær forsendur, sem ráðu-
neytið segir úthlutunarnefndina
hafa gefið sér við mat á styrkhæfi
einstakra hótela. Annar þeirra er
Pétur Snæbjörnsson, hótelstjóri
Hótel Reynihlíðar. L
Styrkurinn var veittur árið 1995
til 11 hótela og samtaka svo-
nefndra Regnbogahótela. »
Utandagskrárumræður
Mál þetta var tekið fyrir í utan-
dagskrárumræðum á Álþingi ný-
lega í liðinni viku og spurði Lúðvík
Bergvinsson, þingflokki jafnaðar-
manna, forsætisráðherra þá hvort
samgönguráðherra yrði látinn
sæta pólitískri ábyrgð. Lög hefðu p
verið brotin með skipun nefndar- fe
innar þar sem hún hefði eingöngu ^
átt að vera á valdi Ferðamálaráðs. w
Þá hefði Samkeppnisráð komist að
þeirri niðustöðu í september 1996
að vinnureglur þriggja manna
nefndarinnar hefðu brotið í bága
við samkeppnislög.
Davíð Oddsson forsætisráðheiTa
sagði í umræðunum að álit umboðs-
manns hefði á engan hátt rýrt stöðu ^
samgönguráðherra í ríkisstjóm og P
bætti við að hann teldi fullmikið |)
gert úr þessu máli miðað við efni
þess og aðstæður. Davíð lagði
áherslu á að Ferðamálaráð hefði
undirbúið skipun úthlutunarnefnd-
ar og einu afskipti samgönguráð-
herra af því hefðu verið að skipa
hana. Hefði ráðherra ekki undirrit-
að skipun nefndarinnar hefði ekkert
verið út á afgi’eiðslu þess að setja.
Umboðsmaður Álþingis hefur k
ekki svarað beiðni samgönguráðu-
neytis um að málið verði endur- £
skoðað, en búast má við að svar p
berist fljótlega. .