Morgunblaðið - 17.02.1998, Blaðsíða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 1998
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
-
Skaflarnir
skulu burt
ÞEIR eru mikil hreystimenni,
Ólafsfirðingar. Jóhann Júlíus Jó-
hannsson sem býr við Marar-
byggð brá sér út að moka inn-
keyrsluna hjá sér á sunnudag,
hlýrabolurinn dugði og skófla
ein ógnarmikil. Bæjarbúar bíða
nú spenntir eftir að þeirra mað-
ur, Kristinn Björnsson keppi á
Ólympíuleikunum í Nagano í
Japan, en geta sjálfir ekki stund-
að annað en gönguskíði, lítill
snjór er til fjalla en töluvert
niðri í bæ, en sá hefur að mestu
fokið í skafla og þeir sem eru
fyrir almennri umferð þurfa að
víkja.
Síðari umræða um
fjárhagsáætlun
Ólafsfjarðar
Aðalmark-
miðið að
greiða nið-
ur skuldir
SIÐARI umræða verður um
fjárhagsáætlun Ólafsfjarðar-
bæjar á fundi bæjarstjórnar á
morgun, miðvikudag, en áætl-
unin miðar einkum af því að
greiða niður skuldir bæjarins.
Gert er ráð fyrir samkvæmt
áætluninni að skatttekjur bæj-
arins verði 228 milljónir króna.
Almennur rekstur bæjarins,
að frádregnm málaflokkum
kostar 163 milljónir króna. Af
einstökum málaflokkum má
nefna að áætlað er að 68,4
milljónir króna fari til fræðslu-
mála, 29,9 milljónir í félagsmál
og til æskulýðs- og íþróttamála
verður varið 25,5 milljónum
króna.
Stefna bæjaryfirvalda í
Ólafsfirði hefur verið sú síð-
ustu ár að greiða niður skuldir
bæjarins og svo er áfram.
Samkvæmt fjárhagsáætlun
sem rædd verður á morgun er
gert ráð fýrir að tekin verði ný
lán að upphæð 24 milljónir
króna en langtímalán bæjarins
verða greidd niður um 26,6
milljónir króna. Ekki er gert
ráð fyrir neinum stórum verk-
efnum á vegum bæjarins í
þessari áætlun, en liðlega 20
milljónir króna fara til fram-
kvæmda á þessu ári.
Samkvæmt áætluninni er
gert ráð fyrir að rekstur Hita-
og vatnsveitu skili 37 milljón-
um króna í tekjur á þessu ári.
Búa í haginn
fyrir framtíðina
Þorsteinn Asgeirsson, for-
seti bæjarstjórnar, sagði að
niðurgreiðsla skulda einkenndi
fjárhagsáætlunina umfram
annað. „Við stefnum að því að
borga niður skuldir okkar um
rúmlega 26 milljónir króna á
árinu. Við höfum lent í ýmsum
áfóllum í kjölfar þess að íyrir-
tæki hér í bænum hafa orðið
gjaldþrota og á því þarf að
taka. Það má segja að við
stöndum vel hvað verkefni
varðar, höfum á síðustu árum
staðið í ýmsum framkvæmdum
þannig að það er ekkert sem
bráðnauðsynlegt er að gera
nú. Þótt þetta sé kosningaár
erum við ekkert að fara út í
miklar framkvæmdir til að
sýnast. Stefna okkar er að
greiða skuldirnar niður og búa
þannig í haginn fyrir framtíð-
ina og með þeirri stefnu getum
við orðið skuldlaus eftir tíu
ár,“ sagði Þorsteinn.
Morgunblaðið/Þórhallur Jónsson
Yfír 300 manns leituðu aðstoðar lögreglu
Fimmtán bflar skemmdust
í árekstrum á Hlíðarbraut
MIKILL erill var hjá lögreglu á
Akureyri um helgina vegna óveðurs,
aðallega frá því snemma á laugar-
dagsmorgun og fram yfír hádegi, en
á þeim tíma bárust yfir 300 símtöl
þar sem leitað var eftir aðstoð.
Lögregla ásamt félögum í Hjálp-
arsveit skáta og Flugbjörgunarsveit
aðstoðuðu fólk sem komast þurfti
leiðar sinnar í óveðrinu og greiddu
fyrir umferð þar sem hægt var.
Fjöldi árekstra varð þegar bifreið-
ar skullu saman vegna lítils skyggnis
og varð þannig tjón á 15 bílum á Hlíð-
arbraut við afleggjarann hjá Hlíðar-
fjalli, en þar var mikill vindstrengur
og skyggni nánast ekkert. A þessum
stað var ekið aftan á lögreglubifreið
sem stóð með blá, blikkandi ljós og
munaði minnstu að hún kastaðist á
lögreglumenn sem voru að störfum.
Var Hlíðarbrautinni lokað fyrir allri
umferð af þessum sökum um tíma.
Lítilsháttar tjón varð víða um
bæinn, einkum vegna foks. í Gler-
árhverfi fauk mótakrossviðarplata
inn um glugga á annarri hæð í fjöl-
býlishúsi og olli hún nokkru tjóni.
Nokkur börn höfu verið að leik í her-
berginu er hún kom inn í, en voru
nýfarin út þegar platan kom í gegn-
um gluggann og má það teljast mikið
lán. Einnig varð tjón á nokkrum bíl-
um og rúður brotnuðu á þónokkuð
mörgum stöðum en hvergi varð telj-
andi tjón.
Menntasmiðja kvenna
Attunda
önnin hafín
ÁTTUNDA önn Menntasmiðju
kvenna á Akureyri hófst í síðustu
viku og stunda nú 24 konur nám við
skólann. Að þessu sinni er haldið
fímmtán vikna námskeið fyrir konur
sem hafa tíma til að sækja dagskóla
milli kl. 9 og 15 alla virka daga.
Áhersla er lögð á heildstætt nám sem
getur orðið sterkur grunnui- að ýms-
um störfum, frekara námi og eða dag-
legu virku lífi.
I grófum dráttum skiptist námið
þannig að þriðjungur er sjálfsstyrk-
ing, þriðjungur hagnýtt nám og þriðj-
ungur skapandi starf, en náminu er
ætlað að auka lífshæfni nemenda.
Flutt í nýtt húsnæði
Menntasmiðja kvenna flutti starf-
semi sína í nýtt húsnæði síðastliðið
haust á Glerárgötu 28, 3. hæð. í sept-
ember og október var haldið nám-
skeið íyrir nýbúa á Akureyri og sóttu
það 16 manns alls staðar að úr heimin-
um sem búið hafa mislengi á Akur-
eyri. I ijós kom að mikil nauðsyn var á
námskeiði sem þessu og verður því
reynt að halda annað slíkt snemma
sumars.
Síðasta námskeið Menntasmiðju
kvenna var sérstaklega ætlað íyrir
ungar mæður og styrkti Rauði kross
Islands það, en um var að ræða þrett-
án vikna nám þar sem einnig var boð-
ið upp á þriggja vikna starfsþjálfun á
leikskólum og öldrunarstofnunum
bæjarins.
Á vegum Menntasmiðjunnar heftir
einnig verið boðið upp á námskeið fyr-
ir almenning, m.a. sjálfsstyrkinga-
námskeiðið Lífsvefinn og Konur og
sveitarstjómarmál. Nú stendur yfir
námskeiðið Peningamir og lífið og um
næstu helgi verður efiit til námskeiðs-
ins Léttara líf og síðar námskeið með
yfirskriftinni Skapandi skrif.
-----------------
Morgunblaðið/Borghildur Kjartansdóttir
NEMENDUR tóku virkan þátt í afmælishátíðinni, þeir sýndu dans,
sungu og fluttu leikþætti auk þess sem þeir höfðu útbúið fróðlega sýn-
ingu úr sögu skólans.
SAFNAST var saman í Sandgerðisbót þar sem barnafræðsla hófst
fyrst í Glerárþorpi fyrir um 90 árum og gengið í skrúðgöngu að Gler-
árskóla.
Yfir 2 þúsund
manns í af-
mælishátíð
Glerárskóla
YFIR TVÖ þúsund manns sóttu
afmælishátíð Glerárskóla sem
haldin var á sunnudag í björtu
og fallegu veðri, en fresta
þurfti hátíðinni um einn dag
sökum óveðurs sem geisaði á
Akureyri á laugardag.
Nemendur og starfsfólk skól-
ans höfðu dagana á undan há-
tíðinni undirbúið fróðlega sýn-
ingu sem vakti óskipta athygli
gesta, en þess var minnst að 90
ár voru frá uppliafi barna-
fræðslu í Glerárþorpi, 60 ár
voru frá því Glerárskóli, þar
sem nú er leikskólinn Árholt,
var tekinn í notkun og 25 ár frá
því byrjað var að kenna í fyrstu
byggingunni í núverandi skóla-
húsnæði. Rúsínan í pylsuenda
afmælisársins var að 30 ár voru
liðin frá því Vilberg Alexand-
ersson skólastjóri tók til starfa
við skólann.
Skrúðganga úr Sandgerðisbót
Hátiðin liófst með því að far-
ið var í skrúðgöngu frá Sand-
gerðisbót, þar sem fyrsti skól-
inn norðan Glerár var og heim
að Glerárskóla. Við athöfn í
Himnaríki, félagsmiðstöð í
kjallara skólans, afhenti full-
trúi foreldrafélagsins skólanum
að gjöf tölvu sem komið hefur
verið fyrir á bókasafni skólans
og mun hún án efa koma nem-
endum vel. Ásta Sigurðardóttir
formaður skólanefndar flutti
kveðju og færði skólanum tvö
bindi af Sögu Akureyrar eftir
Jón Hjaltason og konur í Kven-
félaginu Baldursbrá færðu
skólanum peningagjöf.
Nemendur í 1. 2. 5. og 7.
bekk sungu, sýndu dans og _
fluttu leikþætti fyrir gesti. í
íþrótthúsinu höfðu nemendur
útbúið tívolí sem naut rnikilla
vinsælda. Nemendur í 10. bekk,
valhópur í fjölmiðlun, sá um út-
varpssendingar í tengslum við
hátíðahöldin.
Veika fóstrið
og veiki
nýburinn
VEIKA fóstrið og veiki nýburinn er
heiti á námskeiði sem haldið verður
á vegum Endurmenntunarstofnun-
ar Háskóla íslands í samvinnu við
Háskólann á Akureyri dagana 6. og
7. mars næstkomandi.
Námskeiðið er ætlað læknum,
ljósmæðrum, hjúkrunarfræðingum,
sjúkraliðum og öðrum sem vinna við
mæðra-, nýbura- og ungbarna-
vernd.
Umsjón með námskeiðinu hafa
þeir Atli Dagbjartsson og Reynir
Tómas Geirsson, en auk þeirra
kenna Hildur Harðardóttir fæðing-
arlæknir og Gestur Pálsson barna-
læknir á námkeiðinu. I pall-
borðsumræðum sem bera yfirskrift-
ina siðfræðivandamál hjá veika
fóstrinu og nýburanum taka einnig
þátt Kristján Kristjánsson, siðfræð-
ingur, Sía Jónsdóttir lektor og ljós-
móðir og Vilhjálmur Andrésson yf-
irlæknir.
Skráning og upplýsingar um
námskeiðið eru á skrifstofu Endur-
menntunarstofnunar Háskóla Is-
lands.
-----^44------
Framtíðar-
verkefni
Gilfélagsins
GILFÉLAGIÐ heldur almennan
félagsfund í Deiglunni, Kaupvangs-
stræti á Akureyri, fimmtudags-
kvöldið 19. febrúar kl. 20.30. Um-
ræðuefni fundarins verður framtíð-
arverkefni Gilfélagsins og eru fé-
lagsmenn hvattir til að mæta á
fundinn.
}
f
I
í
I
i
►
\
i
i
i
1