Morgunblaðið - 17.02.1998, Qupperneq 17
MORGUNB LAÐIÐ
AKUREYRI
ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 1998 17
Hrakningar á heiðum
Leikfélag Menntaskólans á Akureyri
Ferðin á heimsenda
frumsýnd í apríl
FÓLK á ferð um Öxnadalsheiði,
Strandir, Holtavörðuheiði og víðar
lenti í hrakningum á fóstudags-
kvöld og aðfaranótt laugardags í
aftakaveðri. Björgunarsveitum og
lögreglu tókst að koma flestum til
byggða en á Öxnadalsheiði héldu
átta manns þó kyrru fyrir í rútu.
Flutningabíll fór á hliðina á
Steingrímsfjarðarheiði í vonsku-
veðri á fostudagskvöld en mennina
sem í honum voru sakaði ekki. Um
svipað leyti lenti fólksbíll út af veg-
inum í Kollafírði og sótti lögreglan
á Hólmavík fólkið, sem ekki varð
meint af, og var bíllinn talinn
óskemmdur. Þá sóttu menn úr
Biðu í bílunum á
••
Oxnadalsheiði
yfir nðtt
björgunarsveitinni Káraborg á
Borðeyri fólk sem var í rafmagns-
lausum bíl á Holtavörðuheiði.
Menn frá Hjálparsveit skáta og
Flugbjörgunarsveitinni á Akureyri
sóttu fólk úr nokkrum bflum sem
fastir voru á Öxnadalsheiði, auk
þess sem félagar úr jeppaklúbbn-
um 4x4 aðstoðuðu vegfarendur.
Að sögn Viðars Þorleifssonar, fé-
laga í Flugbjörgunarsveitinni, var
fólkið orðið mjög blautt og kalt.
Sjálfur kvaðst hann ekki muna eft-
ir jafnslæmu veðri á heiðinni en
bflar björgunarmanna fuku fjórum
sinnum út af veginum í hvössum
vindhviðum.
Atta manns sem voru á leið yfir
heiðina í lítilli rútu héldu kymi fyr-
ir í rútunni um nóttina, ásamt
tveimur manneskjum öðrum í
tveimur bifreiðum. Björgunarleið-
angur var sendur upp á Óxnadals-
heiði að sækja fólkið, þegar illviðr-
inu fór að slota. Ekkert amaði að
fólkinu og gekk vel að koma því til
byggða, en komið var með það til
Akureyrar undir kvöld.
LEIKFÉLAG Menntaskólans á
Akureyri hefur hafíð æfingar á
leikritinu „Ferðin á heimsenda"
eftir Olgu Guðrúnu Árnadóttur.
Leikstjóri er Saga Jónsdóttir og
er áætlað að frumsýna verkið 2.
aprfí næstkomandi.
Leikritið er barnaleikrit en
höfðar til alira aldurshópa.
Þetta er fallegt og hugljúft æv-
intýri með söngvum, tónlist og
glensi. Við fýlgjumst með ferð
þriggja ferðalanga á heimsenda
með gripinn Geislaglóð til að
bjarga framtíð álfanna í Ljósa-
landi. Galdramaðurinn Hrappur
og hjálparhella hans sækjast
eftir Geislaglóð og ferðalang-
arnir þrír verða að hafa sig alla
við að koma í veg fyrir það, en
þremenningarnir rekast einnig
á ýmsar kynjaverur, s.s. tröll,
vetrarálfa, köngulær og fleira á
ferð sinni.
Hæstiréttur um
Möðrufellsmálið
Dómur Hér-
aðsdóms
skal vera
óraskaður
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
hafnaði á síðasta ári kröfu hrepps-
nefndar Eyjafjarðarsveitar um að
ógiltur yrði með dómi úrskurður
landbúnaðaiTáðuneytisins þar sem
felld var úr gildi ákvörðun hrepps-
nefndar að neyta forkaupsréttar að
jörðinni Möðrufelli í Eyjafjarðar-
sveit. Hreppsnefndin skaut málinu
til Hæstaréttar sem á fimmtudag
staðfesti dóm undirdóms.
Forsaga málsins er sú að Matthí-
as Eiðsson og Hermína Valgarðs-
dóttir festu kaup á jörðinni Möðru-
felli á síðasta ári en hreppsnefnd
Éyjafjarðar hafnaði kröfu lögmanns
þeirra að þeim yrði afhent jörðin og
hugðist neyta forkaupsréttar. Land-
búnaðarráðuneytið felldi úr gildi
ákvörðun hreppsnefndarinnar að
neyta forkaupsréttar.
Hreppsnefnd gerði þá kröfu fyrir
dómi að úrkurðurinn yrði ógiltur en
því var hafnað í Héraðsdómi og nú
fyrir Hæstarétti.
I dóm Hæstaréttar segir m.a. að
niðurstaða hins áfrýjaða dóms um
kröfur á hendur stefndu skuli vera
óröskuð um annað en málskostnað.
Áfrýjanda, hreppsnefnd Eyjafjarð-
arsveitar, er gert að greiða stefndu
500 þúsund kr. í málskostnað í hér-
aði og fyrir Hæstarétti.
---------------
Sagnahefð
í nútíma-
samfélagi
RÁÐSTEFNAN „Sagnahefð í nú-
tímasamfélagi, hagnýting og þróun“
er alþjóðleg ráðstefna sem haldin
verður á Fosshótel KEA á Akureyri
dagana 19. til 21. febrúar en að henni
standa Háskólinn á Akureyri og
Rannsóknarþjónusta Háskólans.
Hún fer fram á ensku.
Markmið ráðstefnunnar er að
fjalla umhvernig fyrirtæki, stofnanir,
skólar eða einstaklingar nýta sér
sagnahefðina í nútímasamfélagi. Til
dæmis má nefna hvernig fulltrúar
ferðaþjónustu á íslandi hafa í aukn-
um mæli bryddað upp á samspili
ferðaþjónustu og sagnahefðar, en
einnig er ætlunin að skoða hvernig
sagnahefð birtist í margmiðlun,
kvikmyndum og annarri listsköpun
og iðnaði.
Ráðstefnan er einnig tengslaráð-
stefna fyrir Leonardo da Vinci,
Media, Info 2000, Arian, Ka-
leidoscope, Raphael og aðrar
styrkjaáætlanir Evrópusambands-
ins.
Upplýsingar um ráðstefnuna veit-
ir Þórleifur Stefán Björnsson, al-
þjóðafulltrúi Háskólans á Akureyri.
erum
- ANNO 1 929 -
Skútuvogur 1 • Sími 568 8660 • Fax 568 0776
á íslandi
Slartla halmlllt-og rallakjaverslunarkeðja I Evrópu
VERIÐ VELKOMIN I VERSLUN OKKAR