Morgunblaðið - 17.02.1998, Page 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 1998
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Velta Hampiðjunnar hf. minnkaði um 13% á síðastliðnu ári
Hagnaður
nam 65 millj-
ónum króna
Hampiðjan hf.
Úr reikningum
ársins 1997
- SAMSTÆÐA -
Rekstrarreikningur Miiijónir króna 1997 1996 Breyling
Rekstrartekjur Rekstrargjöld 1.372.4 1.276.4 1.428,1 1.256,8 -3,9% +1,6%
Rekstrarhagn. I. vexti af langtímask. Vextir af langtímaskuldum 96,0 (12,8) 171,3 (21,4) -44,0% -40,0%
Hagnaður af reglulegri starfsemi Aðrar tekjur og (gjöld) 83,2 0 149,8 8,6 -44,5%
Hagnaður fyrir tekju- og eignaskatt Reiknaðir skattar 83,2 (18,2) 158,4 (52,6) -46,5% -65,4%
Hagnaður ársins 65,0 105,8 -38,6%
Efnahagsreikningur 31. desember 1997 1996 Breyting
ysujiliai\ 1.098,7
Fastafjármunir 1.080,3 +1,7%
Veltuf jármunir 742.3 726.6 +2.2%
Eignir samtals 1.841,0 1.806.9 +1,9%
| Skuldir og eigid fé: | j 950,3 56,3
Eigið fé Tekjuskattsskuldbinding 978,5 63,0 +3,0% +11,9%
Langtímaskuldir Skammtímaskuldir 365,6 433,9 388,7 411,6 -6,0% +5,4%
Skuldir og eigið fé samtais 1.841.0 1.806.9 +1.9%
HAGNAÐUR Hampiðjunnar hf.
nam 65 milljónum króna á síðast-
liðnu ári, samanborið við 106 millj-
óna hagnað árið áður. Samdráttinn
má aðallega rekja til minni sölu á
innanlandsmarkaði, m.a. vegna
mikilla fjárfestinga útgerða í veiði-
búnaði árin á undan. Reiknað er
með meiri sölu og þ.a.l. auknum
hagnaði á þessu ári í áætlunum fyr-
irtækisins.
Velta Hampiðjunnar saman um
tæp 13% á milli ára, nam 1.156
milljónum króna í fyrra en 1.326
milljónum árið áður. Dótturfélögin
auka hins vegar tekjur sínar og
það dregur verulega úr áhrifum
samdráttarins við uppgjör sam-
stæðunnar. Þannig voru heildar-
tekjur samstæðunnar 1.372 millj-
ónir í fyrra eða 56 milljónum minni
en árið áður. Auknar tekjur dóttur-
félaga skýrast aðallega af auknum
umsvifum DNG-Sjóvéla hf. og þess
að Balmar Lda. í Portúgal hóf sölu
á afurðum til óskyldra aðila.
I rekstraráætlun fyrirtækisins
var gert ráð fyrir 75 milljóna króna
hagnaði í fyrra. Frávik frá áætlun
felast I því að rekstrartekjur móð-
urfélags minnkuðu meira en
áformað var að því er kemur fram í
frétt frá fyrirtækinu. Á móti þeim
samdrætti vann hins vegar hag-
stæður fjármagnskostnaður og
aukinn hagnaður dótturfélaga.
Samdráttur í sölu móðurfélags
skýrist aðallega af minni sölu full-
búinna flottrolla á heimamarkaði.
Ástæðuna má einkum rekja til
mikilla fjárfestinga útgerða í veiði-
búnaði árin á undan ásamt því að
sókn á úthafssvæðin dróst saman.
Sala trollneta dróst einnig saman
en verðmæti kaðalsölu jókst frá
fyn-a ári þrátt fyrir samdrátt í
magni. Rörasala var svipuð og áð-
ur.
Aukinn
útflutningur
Útflutningur jókst nokkuð frá
fyrra ári og nam 44% af heildarsölu
í fyrra, samanborið við 36% árið
áður. Útflutningurinn dreifist nú á
marga markaði og stefnir Hamp-
iðjan að því að styrkja starfsemi
sína á þeim með beinni þátttöku í
sölu og þjónustustarfsemi á hverj-
um stað.
Efnahagur fyrirtækisins breyt-
ist lítt frá fyrra ári og eiginfjár-
hlutfall er óbreytt eða 53%.
Nettóskuldir, þ.e. heildarskuldir að
frádregnum veltufjármunum lækk-
uðu og námu 1.120 milljónum á
móti 130 milljónum 1996. Veltu-
fjárhlutfall samstæðureiknings var
1,68 um áramótin en 1,77 árið áður.
Bókfært verð hlutabréfaeignar fé-
lagsins nam 368 milljónum króna
um áramót en á sama tíma var
verðmæti þeirra á markaði 808
milljónir.
Hampiðjan gerir að sögn ráð
fyrir auknum fjárfestingum á árinu
og þar verða vélar og tæki til fram-
leiðslu uppistaðan. Aformað er að
kaupa vélar til framleiðslu nýrra
afurða, tæki sem auka gæði fram-
leiðslunnar og í þriðja lagi fjárfest-
ingar á erlendum mörkuðum og í
skyldum rekstri hérlendis. Líklegt
er að fjármögnun verði að hluta
mætt með því að losa um aðrar
eignir.
Búist við auknum hagnaði
Forráðamenn Hampiðjunnar
eiga von á að sala innanlands auk-
ist nokkuð frá fyrra ári. „Reiknað
er með meiri aukningu útflutnings
þegar markaðsstarf erlendis skilar
sér. Bein þátttaka Hampiðjunnar í
sölu og þjónustustarfsemi í öðrum
löndum styrkir mjög stöðu fyrir-
tækisins í því sambandi. Kostnaður
mun halda áfram að hækka í takt
við almennar verðlagsbreytingar
án þess að unnt verði að endur-
spegla þá þróun í verði afurðanna
nema að hluta. Gangi söluaukning
eftir er búist við að hreinn hagnað-
ur vegna reglulegrar starfsemi
aukist nokkuð frá því sem var
1997.“
Kaupstefnan TórRek í Færeyjum
25 fyrirtæki hafa
staðfest þátttöku
Morgunblaðið/Þorkell
ÓLAFUR Vigfússon er nýr eigandi Veiðimannsins.
Nýr eigandi að
V eiðimanninum
25 ÍSLENSK fyrirtæki hafa stað-
fest þátttöku í kaupstefnunni
TórRek 1998 sem haldin verður í
Þórshöfn í Færeyjum 25.-29. mars
næstkomandi. Kaupstefnan er
samstarfsverkefni Útflutningsráðs
og Eimskips.
TórRek kaupstefnan er fram-
hald af NuuRek kaupstefnunni
sem sömu aðilar stóðu fyrir í Nuuk
í Grænlandi í febrúar í fyrra. Þor-
geir Pálsson, framkvæmdastjóri
Útflutningsráðs, segir að 25 fyrir-
tæki úr flestum greinum atvinnu-
Hagnaður
HB fram úr
áætlun
HB á Akranesi hefur sent frá sér
tilkynningu þar sem greint er frá
því að hagnaður félagsins á nýliðnu
ári verði meiri en upphaflega hafi
verið gert ráð fyrir. Ekki er þó til-
greint nánar hversu mikill hagnað-
ur ársins verður.
Eftir að sex mánaða uppgjör fé-
lagsins var birt var jafnframt gefið
upp að áætlað væri að hagnaður
ársins yrði 380 milljónir króna. I
tilkynningu sem félagið sendi
Verðbréfaþingi í gær segir hins
vegar að nú sé ljóst að afkoma fé-
lagsins verði betri en ofangreind
áætlun hafi gert ráð fyrir. Árs-
reikningur HB verður birtur í
næstu viku.
lífsins hafi staðfest þátttöku í
kaupstefnunni og reiknað sé með
að 40-50 Islendingar verði í hópn-
um sem fari til Færeyja. TórRek
er ekki aðeins hugsuð sem við-
skiptalegur viðburður því einnig
verður lögð áhersla á menningar-
leg samskipti landanna og vinabæj-
arsamband höfuðborganna Þórs-
hafnar og Reykjavíkur.
Kaupstefnan verður sett 26.
mars af borgarstjórum Reykjavík-
ur og Þórshafnar, þeim Ingibjörgu
Sólrúnu Gísladóttur og Leivi Han-
sen. Daginn eftir verða flutt erindi
um samskipti landanna og þar tala
m.a. Halldór Ásgrímsson utanrík-
isráðherra og Edmund Joensen,
lögmaður Færeyinga. Þennan dag
verður fulltrúum færeysks at-
vinnulífs boðið að kynna sér vörur
og þjónustu íslenskra fyrirtækja á
sýningu í Badmintonhöllinni í
Þórshöfn en daginn eftir verður
sýningin opin almenningi.
Islensk
kenning kynnt
Leikkonan María Ellingsen, sem
er Færeyingur í aðra ættina, verð-
ur veislu- og kaupstefnustjóri í
ferðinni. Til að styrkja menningar-
leg samskipti landanna verður
Jazztríó Olafs Stephensen með í
fór og mun það leika tónlist setn-
ingarkvöldið, í móttökum, hátíðar-
kvöldverði og á tónleikum. Þá
verður íslenska kvikmyndin Agnes
sýnd í Þórshöfn meðan á kaup-
stefnunni stendur og Þjóðdansafé-
lag Færeyja mun skemmta.
ÓLAFUR Vigfússon, fyrrum
framkvæmdastjóri verslunarinn-
ar Útilífs, og eiginkona hans
María Anna Clausen hafa keypt
hina gamalgrónu verslun Veiði-
manninn í Hafnarstræti 5 af Paul
O’Keeffe. Paul mun áfram reka
heildverslun sem hefur umboð
ABU Garcia, Fenwick, Berkley
og Hardy.
Ólafur hefur verið fram-
kvæmdastjóri Útilífs undanfarin
tvö ár. Hann sagðist í samtali við
Morgunblaðið ætla að viðhalda
ímynd Veiðimannsins og halda
áfram að selja vörur frá ABU
Garcia og fleiri framleiðendum
sem verslunin hefur haft á
boðstólum. Hins vegar myndi
hann auka vöruúrvalið, bæði með
eigin innflutningi og vörum frá
öðrum heildverslunuin.
En hvernig skyldi Ólafi lítast á
að reka verslun í Hafnarstrætinu
í samkeppni við veiðivöruversl-
anir í fjölsóttum verslanamið-
stöðvum. „Ég hafði efasemdir um
Hafnarstrætið í upphafi, en hef
komist að því að gamli miðbær-
inn er mjög heillandi svæði. Fólk
er tilbúið að gera sér sérstaka
ferð í veiðibúðina sína og lætur
ekki nægja að koma við í slíkri
búð í verslanamiðstöðvum."
Aukning
f heildsölu
f frétt frá Paul O’Keeffe segir
m.a. að undanfarin ár hafi orðið
mikil aukning í heildsölu Veiði-
mannsins ehf vegna kaupa Out-
door Technologies Group (OTG)
á ABU-Garcia. Þetta hafí orðið
til þess að Veiðimaðurinn ehf
hefur ákveðið að selja Ólafi Vig-
fússyni, verslunina Veiðimaður-
inn. Paul hyggst nú einbeita sér
að heildsölu Veiðimannsins ehf
og fylgja eftir mikilli söluaukn-
ingu á því sviði.
Útboð bankabréfa
Landsbankans
Avöxtunar-
krafan
5,33-5,47%
VTÐSKIPTI hefjast á morgun með
bankabréf frá Landsbanka Islands í
þremur nýjum flokkum, til fimm, sjö
og tíu ára. Um er að ræða fyrstu
bankabréfaflokka bankans sem eru
skráðir á Verðbréfaþing og við-
skiptavakt er með.
Bréfin eru svokölluð kúlubréf, þ.e.
höfuðstóll og vextir greiðast í einu
lagi í lok lánstímans. Útgáfudagur
bréfanna var 1. febrúar sl. og eru
þau bundin vísitölu neysluverðs með
grunnvísitölu í febrúar 1998, 182,4
stig. Heildarupphæð nafnverðs get-
ur orðið að hámarki átta milljarðar
sem selja má á næstu þremur árum.
Stefán Stefánsson hjá fjárstýringu
Landsbankans segir að með útgáf-
unni sé verið að koma til móts við
fjárfesta sem sækjast eftir skráðum
verðbréfum með viðskiptavakt.
„Markmiðið með útboðinu er að afla
fjár tO starfsemi bankans, endurnýja
eldri bankabréf og auka svigi'úm til
útlána. Viðbrögð fjárfesta hafa verið
mjög góð en með svo stórum flokk-
um þarf að dreifa sölunni á lengri
tíma en áður. Ávöxtunarkrafan á út-
gáfudegi var 5,50%-5,55% en líklega
verður boðið úr flokkunum á morgun
miðað við 5,33%-5,47% ávöxtunar-
kröfu. Markmiðið er að enduríjár-
magna a.m.k. tvo milljarða á næst-
unni með þessum hætti.“
-------------
Þörungaverksmiðjan
Um 25 millj-
óna króna
hagnaður
UM 25 milljóna króna hagnaður varð
af rekstri Þörungaverksmiðjunnar
að Reykhólum á síðasta ári, sam-
kvæmt óendurskoðuðu uppgjöri sem
nú liggur fyrir. Þetta er umtalsvert
betri afkoma en árið 1996, er hagn-
aður fyrirtækisins af reglulegri
starfsemi nam um 6,5 milljónum
króna. Það ár varð hins vegar um 10
milljóna króna hagnaður af óreglu-
legum liðum, sem fólst í niðurfell-
ingu skulda fyrirtækisins.
Að sögn Bjarna Óskars Halldórs-
sonar, framkvæmdastjóra Þörunga-
verksmiðjunnar, felst bætt afkoma á
milli ára fyrst og fremst í því að fyr-
irtækið hafi verið að selja meira án
fraktgjalda. Því liggi minni kostnað-
ur á bak við veltu fyrirtækisins, sem
hafi verið svipuð á milli ára eða rúm-
ar 146 milljónir króna.
Bjami segir að rekstur verk-
smiðjunnar hafi gengið vel á síðasta
ári. Alls hafi verið framleitt mjöl úr
16.000 tonnum af þangi og þara.
Bjami segir að auk meiri fram-
leiðslu hafi hagstæð gengisþróun
komið fyrirtækinu til góða. Það selji
stóran hluta afurða sinna í breskum
pundum, en gengi pundsins hækkaði
sem kunnugt er mikið á síðasta ári.
------♦-♦-♦--
Kynning á
ISAP-öryggis-
kerfinu
INGVALD Thuen frá Security Group
Intemational í Noregi mun halda fyr-
irlestur hér á Iandi nk. fimmtudag um
ISAP-öryggiskerfið og hvemig hægt
er að nota það til að bæta aðgangs- og
rekstraröryggi tölvuumhverfa fyrir-
tækja og stofnana.
í fréttatilkynningu frá ISAP á ís-
landi segir að Thuen sé meðal
fremstu sérfræðinga heims um ör-
yggismál, hafi mikla reynslu að baki
og hugbúnaði hans hafi verið fá-
dæma vel tekið á Norðurlöndum.
Fyrirlesturinn verður haldinn á
Hótel Loftleiðum og hefst kl. 13.