Morgunblaðið - 17.02.1998, Page 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 1998
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Boðar róttækar breyt-
ingar á Ihaldsflokknum
London. Reutes.
WILLIAM Hague, leiðtogi breska
Ihaldsflokksins, boðaði í gær um-
fangsmiklar breytingar á skipulagi
og starfsháttum flokksins. I ræðu
sem hann flutti á fundi með þing-
mönnum Ihaldsflokksins og blaða-
mönnum sagði hann þetta yrði rót-
tækasta uppstokkun er gerð hefði
verið á skipulagi flokksins á öld-
innk
„Ég kynni ykkur hér róttækustu
og umfangsmestu breytingar á
stjórnmálaflokki í breskri nútíma-
stjómmálasögu, róttækustu breyt-
inguna á Ihaldsflokknum frá tím-
um Disraelis," sagði Hague.
Benjamin Disraeli var þekktsti
stjómmálaleiðtogi íhaldsmanna á
síðustu öld og gegndi embætti for-
sætisráðherra á áranum 1874-1880.
Hague, sem tók við embætti af
John Major í kjölfar ósigurs
flokksins í þingkosningum í maí á
síðasta ári, sagðist stefna að því að
gera Ihaldsflokkinn að „lýðræðis-
legasta flokki Bretlands“.
Meðal þeirra breytinga sem
Hague kynnti er að hætt verður að
taka við fjárframlögum frá erlend-
um aðilum og að opinberlega verð-
ur greint frá öllum framlögum yfír
5000 pund. Þá hyggst hann reyna
að laða að nýja flokksfélaga, ekki
síst úr hópi yngri kjósenda, með
því að veita flokksmönnum aukin
áhrif á stefnumótun og taka upp
atkvæðagreiðslur meðal flokks-
manna um frambjóðendur og
flokksleiðtoga.
Greidd verða atkvæði um tillög-
urnar í næsta mánuði en fulltrúar
Verkamannaflokksins gerðu lítið
úr þeim í gær. Barbara Roche, ráð-
herra í iðnaðarráðuneytinu, sagði
tillögurnar fáránlegar og að enginn
fulltrúi í hinni nýju stjóm flokksins
hefði verið kosinn beinu kjöri af
flokksfélögum.
Reuters.
WILLIAM Hague, leiðtogi
Ihaldsfloklcsins, kymiir fyrir-
hugaðar breytingar á starfshátt-
um flokksins í ræðu á veitinga-
húsinu Atrium í Westminster.
Yfírkjörstjórn á Indlandi segir kosningarnar fara „tiltölulega“ rólega af stað
ffcrark;
Reuters
INDVERSKIR slökkviliðsmenn berjast við að slökkva eld, sem braust út eftir að sprengja sprakk í bíl í borginni Coimbatore í suðurhluta landsins.
52 skæru-
liðar
felldir
í Alsír i
París. Reuters. B
ALSÍRSKAR hersveitir felldu 52 ,
múslímska uppreisnarmenn í hern- "
aðaraðgerðum undanfama daga og
hafa náð á sitt vald einum helsta
leiðtoga útlaga í Alsír og 150 mönn-
um hans, að því er alsírsk blöð
greindu frá í gær.
Að minnsta kosti 36 óbreyttir
borgarar voru felldir suður af Al-
geirsborg á laugardag og í Saida-
héraði, samkvæmt upplýsingum al- !
sírskra embættismanna. Á sunnu- |
dag var lögreglumaður myrtur í Al- .
geirsborg og tilræðismaðurinn "
komst undan.
Fjórtán ára gömul stúlka slapp
frá uppreisnarmönnum er tekið
höfðu hana höndum fyrir hálfu ári
og veitti stúlkan hermönnum upp-
lýsingar er leiddu til þess, að gerð
var árás á búðir uppreisnarmann-
anna í Medea-héraði, um 70 km suð-
ur af Algeirsborg, að því er Le Mat- I
in greindi frá. Tuttugu og þrír upp- I
reisnarmenn vora felldir og aðgerð- k
um var haldið áfram.
í héraðinu Tlemcen, sem er rúm-
lega 400 km austur af Algeirsborg,
felldu hermenn 10 uppreisnarmenn
sem vora í felum á búgarði. í
Telagh, skammt frá Tlemcen, vora
17 uppreisnarmenn felldir á sunnu-
dag að sögn blaðsins L’Authent-
ique. Þar hafði fjöldi óbreyttra ,
borgara verið myrtur, m.a. voru 10 r
skomir á háls fyrir tæpri viku.
Sérsveit GIA í haldi I
Sautján óbreyttir borgarar og
hermenn hlynntir stjómvöldum
voru felldir í Saida á laugardag, en
þar hafa hermenn nú á valdi sínu
150 manna sérsveit Herdeildar
íslams (GIA), og er Antar Zouabri,
leiðtogi GIA sagður vera þeirra á
meðal. Að sögn L’Authentique gáfu ,
þrír fyrrverandi GIA-liðar upplýs-
ingar er leiddu til handtökunnar.
Zouabri er 29 ára og tók við leið- |
togahlutverki í GIA í júh' 1995 er
þáverandi yfirmaður Herdeildar-
innar lét lífið í átökum. Zouabri hef-
ur oftar en einu sinni verið sagður
fallinn.
Fleiri en 50 hafa
látist í sprengju-
tilræðum
Nýju Delhi. Reuters.
YFIRKJÖRSTJÓRN á Indlandi
sagði í gær, að fyrsti kjördagurinn af
fimm í þingkosningum í landinu
hefði farið tiltölulega friðsamlega
fram. Að minnsta kosti 13 manns
fórust þó í sprengjutilræðum í gær
og alls 54 um helgina.
Alls máttu 250 milljónir manna
kjósa í gær, á fyrsta kjördegi, en
kjörsókn var lítil, trúlega á bilinu 50
til 55%. Hinar 350 milljónimar á
kjörskrá kjósa 22., 23., 28. febrúar
og 7. mars. I nyrstu héruðunum þar
sem snjóþyngsli eru mikil verður
kosið í júní.
Að minnsta kosti 13 manns létu líf-
ið í sprengjutilræðum í Biharríki og
er þá mannfallið um helgina í öllu
landinu 54 manns. í borginni
Coimbatore þar sem kosið verður
um næstu helgi hefur hver sprengj-
an sprungið á fætur annarri og þar
hafa meira en 200 manns slasast auk
þeirra, sem hafa látið lífið.
Herskáir múslimar undir grun
Engin samtök hafa lýst ábyrgðinni
á hendur sér en lögregluna granar
herskáa múslima um hryðjuverkin.
Voru tvenn samtök þeirra bönnuð
um helgina og margir handteknir.
Sex múslimai- týndu lífí þegar lög-
reglan umkringdi hús þeirra á
sunnudag og virðist sem þeir hafi
fyrir slysni sprengt sprengju, sem
þeir voru með. Þá hefur innanríkis-
ráðherra Indlands einnig gefíð í
skyn, að Pakistanar, erkifjendm-
Indverja, hafí haft hönd í bagga með
hryðjuverkamönnunum.
Á sumum stöðu hafa stuðnings-
menn þjóðernissinnaðra hindúa,
Bharatiya Janata-flokksins, verið
sakaðir um að stela kjörkössum og á
nokkram svæðum hefur fólk ekki
þorað á kjörstað af ótta við
sprengjutilræði og hótanir maóista,
sem eru andvígir kosningunum.
Ringulreið á þingi
Kjörsókn á Indlandi hefur farið
minnkandi frá kosningunum 1984
þegar hún var 64% og verður líklega
ekki nema rétt 50 nú. Er Janata-
flokknum spáð langmestu fylgi en
ólíklegt er, að hann fái einn meiri-
hluta. Bendir flest til, að sama
ringulreiðin verði á þingi og verið
hefur síðustu árin. Sonia Gandhi,
ekkja Rajivs Gandhi, fyrrverandi
forsætisráðherra, virðist hafa tekist
að hressa nokkuð upp á fylgið við
Kongressflokkinn en hann má þó
muna sinn fífil fegurri.
Gagnrýni vex á áform |
um myntbandalag ’
Brussel, Berlín. The Daily Telegraph.
AFORMIN um að koma á Efna-
hags- og myntbandalagi Evrópu,
EMU, um næstu áramót, mega
þessa dagana þola gagnrýni efa-
semdaradda úr mörgum áttum. Nú
era aðeins fáeinir mánuðir þar til
leiðtogar Evrópusambandsins
(ESB) taka um það ákvörðun hver
aðildarríkjanna 15 teljast hæf til að
gerast stofnaðilar að myntbanda-
laginu, en nýjasta áhlaup þýzkra
efasemdamanna um ágæti þess
gæti orðið til þess að öll áformin
frestuðust.
Stjómlagadómstóll Þýzkalands er
nú með til athugunar kæru fjögurra
þekktra þýzkra háskólamanna, sem
með því að fá dómstólinn til að taka
málið íyrir vonast til að stofnun
EMU frestist, líkt og gildistaka Ma-
astricht-sáttmálans frestaðist á sín-
um tíma um hálft ár vegna þess að
stjómlagadómstóllinn þurfti sinn
tíma til að skera úr um hvort hinn nýi
grandvallarsáttmáli ESB samræmd-
ist þýzku stjómarskránni eður ei.
Við þessa tilraun fjórmenning-
anna þýzku til að knýja fram frestun
á myntbandalaginu bætist vaxandi
óróleiki meðal athafnamanna og
hagfræðinga í fleiri ESB-löndum um
það hversu skynsamlegt það sé að
halda EMU-áformunum til streitu.
Möguleikinn á írestun áformanna er
því komin á dagskrá, hvort sem
mönnum líkar betur eða verr.
Forystumenn evrópskra iðnrek-
enda og jafnvel sumir meðlimir
framkvæmdastjómar ESB hafa
áhyggjur af því að EMU verði að
veraleika á þeim tíma sem að hefur
verið stefnt - en muni valda von-
brigðum. Þeir era hræddir um að
myntbandalagið muni ekki skila
þeim hagvexti og framfóram sem
stuðningsmenn þess binda vonir við.
Ekki er talið síður líklegt að EMU
leiði til aukins atvinnuleysis og hafi
neikvæðar pólitískar afleiðingar.
Kohl talinn mega vara sig
Nýjustu skoðanakannanir í
Þýzkalandi benda til að 70 af
hundraði landsmanna kæri sig ekki
um að markinu verði skipt út fyrir
hinn nýja Evrópugjaldmiðil, evróið.
Það era þvi ýmis teikn á lofti fyrir
Helmut Kohl kanzlara, sem hefur
gert myntbandalagið að helzta bar-
áttumáli sínu í baráttunni fyrir end-
urkjöri sínu í haust. Hann stendur
frammi fyrir sívaxandi andstöðu
heima fyrir við áformin. ,
Einn af áhrifamestu bandamönn-
um Kohls gaf í skyn í viðtali sem P
birtist i gær að „einstaka bjánar" |
kynnu að freista þess að koma öðr-
um manni í hlutverk kanzlaraefnis
Ki-istilegra demókrata (CDU) fyrir
kosningamar til sambandsþingsins
í haust.
Michael Glos, leiðtogi þingmanna
CSU, systurflokks CDU í Bæjara-
landi, á sambandsþinginu í Bonn,
sagði að þótt hann gæti ekki ímynd- j
að sér að mögulegt væri að „vinna
kappreiðar með því að skipta um 1'
hest á miðjum endasprettinum,“ þá |
væri ekki hægt að vernda stóran
flokk íyrir „heimsku einstakra
manna“.
Talsmenn flokksforystu CDU
brugðust við þessum ummælum
með því að lýsa því yfir að flokkur-
inn stæði „heill og óskiptur“ að baki
Kohl. En ummæli Glos endurspegla
áhyggjur innan ríkisstjórnarflokk- j,
anna af mögulegum afleiðingum
þess fyrir kanzlarann hve almenn- r
ingur er neikvætt stemmdur í gai'ð }
EMU-áformanna.