Morgunblaðið - 17.02.1998, Qupperneq 27
MORGUNB LAÐIÐ
ERLENT
ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 1998 27
Reuters
HERMENN í friðargæsluliðinu
standa yfir manni, sem þeir
telja, að hafi verið í herliði her-
stjórnarinnar, sem steypti
kjörnum forseta á síðasta ári.
Sierra Leone
Friðar-
gæsluliðið
treystir
tökin
Freetown. Reuters.
HERMENN á vegum ECOMOG,
vestur-afríska friðargæsluliðsins,
vinna nú að því að afvopna liðsmenn
herstjórnarinnar í Sierra Leone og
hóta jafnframt að skjóta hvern þann,
sem notar sér upplausnarástandið í
höfuðborginni, Freetown, til að ræna.
Liðsmenn herstjómarinnar, sem
tók völdin í landinu fyrir tæpu ári,
hafa flestir gefist upp fyrir friðar-
gæsiuliðum en ieiðtogar þeirra, sem
ekki hafa verið handteknir, eru flún-
ir, líklega lengra inn í landið. Hafa
foringjar í friðargæsluliðinu heitið að
elta þá uppi hvert á land sem er.
Obreyttir borgarar, sem flúðu
Freetown vegna átakanna, eru nú að
snúa heim aftur.
Skyndiréttarhöld
BBC, breska ríkisútvarpið, sagði í
gær, að herflokkar hliðhollir Ahmad
Tejan Kabbah forseta, sem herstjóm-
in steypti, hefðu náð á sitt vald tveim-
ur bæjum á landsbyggðinni, Bo og
Kenema, og tekið af lífi nokkra stuðn-
ingsmenn herstjórnarinnar. Hefði
verið efnt til skyndiréttarhalda yfir
þeim og þeir síðan afhentir unglinga-
flokkum, sem sáu um aftökumar.
Neyð í
Sómalíu
vegna flóða
Nairobi. Reuters.
MEIRA en 2.000 manns hafa týnt lífi
og hundmð þúsunda orðið að flýja
heimili sitt vegna mikilla flóða í
Sómalíu. Er búist við, að ástandið
eigi eftir að versna ef eitthvað er því
nú er hinn eiginlegi regntími að
ganga í garð.
Veðurfræðingai- spá meira en með-
alúrkomu á regntímanum, sem
stendur frá mars til júní, en þúsundir
bænda misstu alla janúaruppskeruna
í flóðum. Síðan hafa þau rénað nokk-
uð og sáning er hafin aftur sums
staðar en hætt er við, að hún mis-
farist ef aftur flæðir. I Sómalíu hefur
rignt óhemjumikið frá því í nóvem-
ber, sem er mjög afbrigðilegt og
heita straumnum við Suður-Ameríku,
E1 Nino, kennt um.
Loftflutningar með matvæli
Matvælahjálp Sameinuðu þjóðanna,
WFP, hefur flutt nærri 5.400 tonn af
matvælum til 450.000 manna á flóða-
svæðunum frá því í nóvember og hef-
ur skorað á aðildarríki SÞ að leggja
fram 1,2 milljarða kr. til að unnt sé að
koma þangað og til Kenía rúmlega
milljónum tonnum. Verður að flytja
mestallt með flugvélum því að flóðin
hafa skolað burt vegum og brúm.
Niðurstaða rannsóknar á misheppnuðu tilræði Mossad í Jórdaníu
Jerúsalem. Reuters.
Netanyahu nær
hvítþveginn
í NIÐURSTÖÐUM rannsókna á
misheppnaðri tilraun ísraelsku
leyniþjónustunnar, Mossad, til að
ráða af dögum leiðtoga herskárra
samtaka múslíma í Amman er ekki
talið útilokað að fleiri slíkar að-
gerðir verði framkvæmdar í
Jórdaníu.
„Nefndin efast ekki um ágæti
þessarar stefnu en leggur engu að
síður til að stjórnvöld ræði hana,
skilgreini umfangið og setji grund-
vallarreglur um framkvæmd henn-
ar,“ segir í niðurstöðum rannsókn-
arnefndarinnar, sem Benjamin
Netanyahu, forsætisráðherra Isra-
els, skipaði nokkmm dögum eftir
tilræðið.
Hamas-samtök múslíma myrtu
21 ísraela í sjálfsmorðssprengju-
árásum í Israel á síðasta ári og í
kjölfar þess sendi Netanyahu
Mossad-liða til Amman í Jórdaníu
til þess að myrða Khaled Meshal,
einn af leiðtogum Hamas. Tilræðið
mistókst, og fréttaskýrendur sögðu
þetta vera mesta klúður í sögu
leyniþjónustunnar.
í skýrslu rannsóknamefndar-
innar, sem gerð var opinber að
hluta til í gær, segir ennfremur:
„Sú ákvörðun að gera atlöguna í
Jórdaníu var byggð á þeirri grand-
vallarforsendu að enginn staður í
heiminum skuli vera öraggt skjól
fyrir þá sem hafa í hyggju að
fremja hryðjuverk í Israel.“ í nið-
urstöðunum segir líka, að ekkert
hafi verið athugavert við þátt Net-
anyahus í áætluninni.
Tilræðið kom illa niður á sam-
skiptum Israela við Jórdani, sem
hafa verið hvað vinveittastir Israel-
um af öllum arabaríkjum, og
neyddust Israelar til þess að láta
lausan Sheikh Ahmed Yassin, and-
legan leiðtoga Hamas, og hátt í 70
aðra fanga, til þess að fá útsendara
Mossad leysta úr haldi í Jórdaníu.
Reuters hafði í gær eftir jór-
dönskum embættismanni, sem vildi
ekki segja neitt um niðurstöður
rannsóknarinnar, að tilræðið við
Meshal hafi verið brot á friðar-
samningum og virðingarleysi við
sjálfstæði Jórdaníu.
syöst á Lálandi.
Sumardvöl í sumarhúsahveríinu Marielyst Ferie Center
á suöausturströnd Falsturs, frábærum stað fyrir
barnafjölskyldur við eina af bestu og lengstu
baðströndmn Danmerkur.
Frá báðum þessum fyrsta fiokks sumarhúsahverfum
er stutt að fara á ýmsa áhugaverða staði á Lálandi,
Falstri og Suður-Sjálandi.
Ndið ykkur í eintak af
nýjumferðabæklingi
Flugleiða, Sumaifjöri ‘98,
þarsemeraðfinna
nánari upplýsingarum
ferðamöguleika íDan-
mörku. Bæklingurinn liggur
frammi á öllum söluskrifstofum Flugleiða,
áferðaskrifstofunum og á öllum bensínstöðvum Olís.
Sjáumstöll íSumarfjöri ‘98 íDanmörku.
Fjölskyldan upplifir
ótalmargt á bílaleig'ubíl
í Danmörku
Sjáland, Fjón, Mön, Falstur, Láland og
síðast en ekki síst Jótland bjóða ferðafólki
ótal möguleika til að eiga skemmtilegt og
viðburðaríkt sumarfrí á eigin veguin.
DANSKA FERÐAMALARAÐIÐ
FLUGLEIDIR
Traustur íslenskurferðafélagi