Morgunblaðið - 17.02.1998, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 1998 29
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Tristan Gribbin, leikkona að baki Brynju Benediktsdóttur, höfundi og
leiksljóra, en hún situr á milli, Ragnhildar Rúrikssdóttur, sem mun
leika íslenzku útgáfuna, og Ingibjargar Þórisdóttir, aðstoðarleik-
stjóra.
Vínlands-
ævintýrið
LEIKLIST
Vinnustofur leikara
N k e ni iii t i li ú s i n ii
FERÐIR GUÐRÍÐAR (THE
SAGA OF GUÐRÍÐUR)
Höfundur enskrar útgáfu: Brynja
Benediktsdóttir með aðstoð Tristan
Gribbin. Leikstjóri: Brynja Bene-
diktsdóttir. Lcikari: Tristan Gribbin.
Hljóðmynd: Margrét Örnólfsdóttir.
Leikmynd og grímur: Rebekka Rán
Samper. Búningar: Filippía Elísdótt-
ir. Ljósahönnun: Jóhann Pálmi
Bjarnason. Sunnudagur 15. febrúar.
í HAUKSBÓK Landnámabókar,
Grænlendinga sögu og Eiríks sögu
rauða er sagt frá fundi nýs lands
suður og vestur af Grænlandi um
síðustu árþúsundamót sem nefnt
var Vínland. Þangað fóru norrænir
menn í leit að gulli og grænum
skógum og fundu hið síðarnefnda.
Landnámstilraunir þeii'ra runnu út
í sandinn vegna fjandskapar frum-
byggjanna.
Aratugum saman var deOt um
sannleiksgildi sagnanna á alþjóða-
vettvangi en eftir að ótvíræðar
minjar um búðir norrænna manna
fundust á L’Anse aux Meadows á
norðurodda Nýfundnalands hefur
sagnfræðilegt gildi hinna fornu
sagna verið óumdeilanlegt. Þessar
heimildir hafa verið afar vinsælt
umfjöllunarefni fræðimanna, jafnt
frá Norðurlöndunum sem Ameríku
og má t.d. minna á kenningar Páls
Bergþórssonar um þetta efni.
Atburðir þeir sem sögumar
byggja á hafa orðið myndlistar-
mönnum, skáldum og rithöfundum
yrkisefni. Sérstaklega hafa kven-
persónur sagnanna orðið þeim
hugleiknar. Sem dæmi má nefna að
breski rithöfundurinn Maurice
Hewlett skrifaði eina af fjölda
skáldsagna sinna er byggja á ís-
lenskum arfí um persónu Guðríðar
Þorbjarnardóttur og nefndi „Gud-
rid the Fair“. Fyrir örfáum árum
samdi kanadíski höfundurinn Joan
Clark skáldsögu um kynsystur sína
Freydísi er heitir einfaldlega
„Eiriksdottir" og svo má minna á
kynngimagnað myndverk Ellenar
Birgis af Freydísi með bragðið
sverðið.
Biynja Benediktsdóttir hefur
undanfarið unnið við samningu
leikverks um persónu Guðríðar
Þorbjarnardóttur. I kjölfar einleiks
þess sem hér er til umfjöllunar
eiga að fylgja aðrir slíkir á sænsku
og íslensku og vonandi verk um
sama efni stærra í sniðum áður en
lýkur. Brynja sækir efnivið sinn
aðallega í Eiríks sögu rauða, enda
er frásögn hennar af Guðríði fyllri
og hún þar sveipuð helgiljóma, en
nokkuð hefur farið eftir tíðaranda
hvort Eiríks saga eða Grænlend-
inga saga hefur fallið betur í
kramið hjá þeim sem um sögurnar
hafa fjallað. Uppvöxtur Guðríðar á
Islandi er látinn liggja milli hluta
en sjónum beint að sögu hennar í
þremur hjónaböndum og tveimur
heimsálfum.
Brynja kemur ótal efnisatriðum
að og fylgir sögunni nokkuð ná-
kvæmlega. Þegar hún bregður þar
út af gerir hún það af dramatískri
nauðsyn, og styðst þá m.a. við
reynslu sína með Inúk-hópnum.
Þessi atriði lífga upp á einleikinn
og er hægt að fallast á þau flest
nema hvað sagnfastir menn munu
án efa sjá eftir brjósti Freydísar.
Brynja leikur sér einnig með
tungutak verksins til að það beri
keim að íslensku máli og framburði
en einstaka sinnum teflir hún á
tæpasta vað (t.d. „smail by small“)
og fetar þar í fótspor Eiríks Magn-
ússonar og Williams Morris sem
voru sakaðir um að fyrna svo málið
á enskum þýðingum sínum á forn-
sögunum að merkingin færi for-
görðum.
Tristan Gribbin fer með hlut-
verk Guðríðar og allra annarra
sem við sögu koma. Hún hefur til
að bera öryggi, kraft, sterka svið-
snánd og góða framsögn. Það sem
er minnisstæðast í túlkun hennar
er hvernig hún með líkamanum öll-
um túlkar jafnt fólk sem fugla. Hér
verður sem oftar að frekjan Frey-
dís verður eftirminnilegri en hin
góða Guðríður. Leikstjórnin er
hugvitsamleg og mörg atriðin
áhrifamikil í hinni miklu nálægð
sem rýmið krefst.
Búningar Filippíu Elísdóttur
voru einfaldir og stílhreinir.
Rebekka Rán Samper hefur málað
á baktjaldið nútíma Vínlandskort
ski-eytt sæskrímslum sem fengin
eru að láni úr eftirmynd af íslands-
korti Ortelíusar. Einfaldur ljósa-
búnaður var nýttur svo vel að
einskis varð saknað og hljóðmynd
Margrétar Örnólfsdóttur var áleit-
in og áhugaverð þó að gefa hefði
mátt meiri tíma í að vekja og deyfa
sum tónbrotin.
Þessi einleikur Brynju Bene-
diktsdóttur er þarft framtak og vel
heppnað. Það verður gaman að fá
að fylgjast með í framtíðinni
hvernig verkið þróast. Með smá yf-
irlegu hefur það alla burði til að
verða einstakt framlag til að minn-
ast 1000 ára afmælis fundar Vín-
lands.
Justin Lavender syngur
í Astardrykknum
BRESKI tenórsöngvarinn Justin
Lavender mun syngja hlutverk
Nemorinos á tveimur sýningum Is-
lensku óperunnar á Astardi'ykknum
eftir Gaetano Donizetti næstkom-
andi fóstudag og laugardag. Hljóp
hann í skarðið fyrir Italann Roberto
Iuliano síðastliðinn laugai'dag, þegar
sá síðarnefndi gekk úr skaftinu
vegna veikinda. Eftir helgi er ráð-
gert að Björn Jónsson taki við hlut-
verkinu.
Svo sem fram hefur komið átti
Iuliano í erfiðleikunum á frumsýn-
Á HÁSKÓLATÓNLEIKUM, mið-
vikudaginn 18. febrúar kl. 12.30,
leikur Anna Guðný Guðmundsdótt-
ir píanóleikari sónötu í F-dúr KV
332 eftir Wolf-
gang Amadeus
Mozart. Sónötuna
samdi Mozart er
hann var 27 ára
gamall og átti þá
átta ár eftir óhf-
uð.
Anna Guðný
brautskráðist frá
Anna Guðný Tónlistarskólan-
Guðmundsdóttir um í Reykjavík
árið 1979 og
stundaði framhaldsnám við Guild-
hall School of Music and Drama
með sérstaka áherslu á kammer-
tónlist og meðleik með söng. Til
ingunni vegna eymsla í hálsi. Söng
hann tvær sýningar að auki en
ákveðið var að hann drægi sig í hlé
að hinni síðari lokinni, á föstudaginn
var, þar sem hann hafði ekki enn náð
fullri heilsu. Var Lavender þá kvadd-
ur á vettvang en þeir Iuliano starfa
fyrir sama umboðsaðila í Englandi.
Lavender er enginn nýgræðingur
á sviði óperutónlistar, hefur sungið
við helstu óperuhús heims, svo sem
La Scala, Covent Garden og Vínar-
óperuna. Á þessu starfsári hefur
hann haldið röð tónleika með Vinar-
viðbótar hefur hún sótt námskeið
og einkatíma. Anna hefur komið
fram sem einleikari með Sinfóníu-
hljómsveit íslands, Sinfóníuhljóm-
sveit æskunnar, Sinfóníuhljómsveit
áhugamanna og Kammersveit
Reykjavíkur og líka leikið á fjölda
kammertónleika bæði hér á landi
og erlendis. Hún er lausráðin við
Sinfóníuhljómsveit íslands og
kennir við Tónlistarskólann í
Reykjavík. Hún hlaut 12 mánaða
starfslaun árið 1995 frá íslenska
ríkinu.
Verð aðgöngumiða er kr. 400,
ókeypis fyrir handhafa stúdenta-
skírteina. Dagskrá Háskólatón-
leika má nálgast á vefnum. Slóðin
er: http://www.rhi.hi.is/~gunnag/
tonlist/tonleikar.html
sinfóníunni og sungið hlutverk Don
Josés í Carmen í Royal Albert Hall.
Héðan fer Lavender til New York,
þar sem hans bíður verkefni við
Metropolitan-óperuna.
Þá hefur hann tekið þátt í mörgum
hljóðritunum á óperum, meðal ann-
ars I Puritani eftir Bellini, þar sem
ein eftirsóttasta sópransöngkona
heims, Edita Gruberova, söng á móti
honum. Þá hefur Lavender tekið
þátt í að syngja Messías eftir Hándel
inn á plötu, auk valinna aría efth'
Rossini og Donizetti.
*
Islenska
uppspretta
ljóða
„SÁNGEN om Múna“ nefnist
ljóðabók eftir Svíann Roland
Persson. Hann er einn þeira
Svía sem yrkja um fornnoræn
efni og sækja oft orð og yrkis-
efni í fornnorrænu. Múna segir
hann í skýringum að styðjist
við íslenska orðið muna. Víða í
bókinni er vikið að fornnor-
rænum og íslenskum efnum en
líka sótt í brunna arabísku og
hinna ýmsu fomfræða.
„Sángen om Múna“ sem er
tíunda bók Rolands Perssons
er 111 síður með skýringum.
Útgefandi er forlagið Procyon
í Álmhult í Svíþjóð.
Píanóleikur á Háskóla-
tónleikum í hádeginu
Það eru allar líkur á því
að þú finnir kæliskáp hjá okkur við þitt hæfi
Kaeliskáp ar
í ótrúlegu úrvatí á goðu uerði!
4^indesif [SeNERAL FROST ^ OBMSSON
Umboðsmenn Lágmúla 8 • Sími 533 2800
AEG
Vesturland: Málningarþjónustan Akranesi, Kf. Borgfirðinga, Borgarnesi. Blómsturvellic Hellissandi. Guðni Hallgrlmsson, Grundarfirði. Ásubúö.Búðardal
Vestflrölr: Geirseyrarbúöin, Patreksfiröi. Rafverk, Bolungarvik.Straumucísafiröi.Norðurland: Kf.Steingrímsfjaröar.Hólmavík. Kf. V-Hún., Hvammstanga. Kf. Húnvetninga,
Blönduósi. Skagfiröingabúö.Sauöárkróki. KEAbyggingavörur, Lónsbakka, Akureyri.KEA, Dalvík. KEA, Siglufiröi Kf. Þingeyinga, Húsavík.Uö, Raufarhöfn. Austurland:
Sveinn Guömundsson, Egilsstööum. Kf. Ntopnfiröinga, Vopnafiröi.Verslunin Vík, Neskaupsstaö. Kf. Fáskrúösfiröinga, Fáskrúösfirði KASK, Höfn. Suöurland: Mosfell,
Hellu. Árvirkinn, Selfossi. Rás, Þorlákshöfn. Jón Þorbergs, KirHubæjarklaustri. Brimnes, Vestmannaeyjum. Reykjanes: Stapafell, Keflavík. Rafborg, Grindavík.
Sveinn Haraldsson