Morgunblaðið - 17.02.1998, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ
HESTAR
ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 1998 41
J
1
I
i
j
I
0
I
1
'i
I
I
J
*
I
J
t
i
i
4
I
€
I
Í
d
Í
i
Hófhirða II
Stíumar betri fyrir
hófa og fætur
STÖÐUGT færist í vöxt að hesta-
menn breyti hesthúsum sínum úr
básafyrirkomulagi yfir í stíur sem er
tvímælalaust til bóta frá flestum
hliðum séð. Hvað varðar hófa og fæt-
ur er mun betra að hross séu laus í
stíum en standi á básum. Hrossin
geta hreyft sig sem þýðir að blóð-
streymi til hófa verður heldui' meira
en í kyrrstöðu eða því sem næst á
básum. Þá eru einnig meiri líkur á að
hrossin standi á rakara undirlagi í
stíum en í þurrum básum.
Þær rakadrægu góðar
I stíuhúsum er ýmist mokað út
daglega, á nokkurra daga fresti eða
mánaðarlega og er þá talað um
safnstíur. Er þá safnað taði og tölu-
verðu magni af spónum undir
hrossin í u.þ.b. einn mánuð. Raka-
stig undirlagsins fer þá eftir því
hversu mikið af spónum er borið
undir hrossin daglega. Óhætt er að
segja að safnfyrirkomulagið sé að
mörgu leyti það besta sem völ er á
fyrir hrossin séu spónabirgðir alltaf
nægar og vel borið undir. Hrossum
líður vel á mjúku og volgu undirlag-
inu og engin hætta er á ofþomun í
neðri hluta hófa. Ókosturinn hvað
varðar hófana er hinsvegar sá að
hóftunga og hófbotn vilja „soðna“
vegna rotnunar og jafnvel hita-
myndunar í safninu. Einnig vill
brenna við að rotnun verði of mikil
eins og til dæmis hóftungurot.
Hóftungan verður mjög efnislítil og
dregur það úr virkni hófsins. Sé
naumlega borið undir eykst nei-
kvæð rotnun í hóftungu og einnig
hófbotni. Velgjan í undirlaginu
virðist hinsvegar heldur auka hóf-
vöxtinn.
Besta undirlag sem líklegast er
völ á í dag eru rakadrægu gúmmí-
motturnar sem hleypa bleytu í
gegnum sig. Hægt er að hafa nokk-
urra daga safn á þeim en líklega er
best að mokað sé daglega. Mottur
þessar halda vel í sér raka og
tryggja í flestum tilvikum eðlilegt
rakastig í neðri hluta hófa.
Rakastig hófa fylgir loftraka
Mikil fylgni er á milli loftraka og
rakastigs í hófum. Hófar þorna til
að mynda mjög fljótt þegar
langvarandi þurrkakaflar eru og
gildir þar einu hvort hross séu á
húsi eða úti. Það sem hestamenn
verða sérstaklega að gæta að er
þegar hófar þoma í hófhvarfinu. Er
þá best að bera á mýkjandi áburð
eins og júgursmyrsl, vasilín svo
ekki sé nú talað um ýmsar tegundh'
af hófáburði. Vara ber þó við því að
sumar tegundir era vaxtahvetjandi
og er varasamt að nota slíkan
áburð að staðaldri. Mælt er með að
slíkar tegundir séu ekki notaðar
lengur en tíu daga í senn. I hóf-
botninn og á hóftungu er gott að
bera á tjörablandaðan áburð sér-
staklega ef mikil rotnun hefur átt
sér stað. Þegar hestar eru settir á
lokaða botna er ávallt gott að bera
tjöraáburð á, sama hvort notað er
fyllingarefni eða ekki.
Alltof algengt er að sjá innistöðu-
hross með glerharða hóftungu,
homþófa og hófbotn. Virðist sem
mikill hluti hestamanna gefi þess-
um þætti hirðingarinnar engan
gaum fyrr en í óefni er komið.
Vatn hefur löngum verið talið
það besta á hófinn en ljóst má öll-
um vera að það eitt að skola hófa
daglega dugar skammt til að við-
halda eðlilegu rakastigi í hófum.
Hinsvegar má hiklaust mæla með
daglegri skolun hófa og fóta sér í
lagi hrossa undir álagi. Þeir sem
hafa ár eða lækjarsprænur nærri
hesthúsum geta endað alla reiðtúra
á því að láta hestinn standa nokkr-
ar mínútur í vatninu. Bæði til að
skola hófa og kæla fætur. Þeir sem
ekki hafa slíkar aðstæður geta búið
til kar með sírennsli utan við hest-
húsin t.d. úr steinsteypu uþb. 40
sentimetra djúpt og látið hestana
standa í því. Full ástæða er til að ít-
reka að það að bera tað undir
hrossin til að mýkja hófa er ekk^-
góður kostur og mörg betri ráð til
sem gefa betri heildarárangur.
Hált á svellinu
þessa dagana
I lokin er full ástæða til benda
hestamönnum á að athuga vel
skafla undir hrossunum því víða era
mikil svellalög um þessar mundir og
hætta á að hrossin geti snúið sig. I
snjóleysinu undanfamar vikm' hafa
skaflar slitnað óeðlilega mikið og
hafi menn notað gamlar skeifur
undh- hrossin má gera ráð fyrir að^
skaflar séu famir að láta mjög á sjá.
Þeim, sem ætla að keppa á næst-
unni, er rétt að benda á að gott er
að skipta um fjaðrir og setja svo-
kallaðar broddfjaðrir í stað þeirra
hefðbundnu. Þær tryggja mun
betra grip sem kemur sér vel í
beygjum ef keppt er á hringvöllum.
Þá er hægt að bjarga sér með
broddfjöðram ef skaflamir era
orðnir gripalitlir og ekki hægt að
jáma upp af einhverjum ástæðum.
I næsta homi verður fjallað um
val skeifna með tilliti til virkni hófs-
ins.
Valdimar Kristinsson
IÐNÞING 1998
Iðnþing Samtaka iðnaðarins verður haldið
föstudaginn 20. febrúar nk. í samkomusalnum
Gullhömrum, í Húsi iðnaðarins að Hallveigarstíg I.
10:00 Formót:
Niðurstöður úr stefnumótunarvinnu Samtaka iðnaðarins.
Opinn fundur með þátttöku stjórnar og ráðgjafaráðs.
11:45 Mæting og móttaka fundargagna.
12:00 Iðnþing sett.
Hádegisverður í boði Samtaka iðnaðarins.
13:15 Ræða formanns Sl, Haraldar Sumarliðasonar.
Ræða iðnaðarráðherra, Finns Ingólfssonar.
14:15 Hlutfallsleg fækkun starfsmanna í iðnaði.
Afleiðing efnahagsmistaka eða eðlilegrar
þróunar efnahagslífsins?
De-lndustrialization: The Case of lceland.
- R.E. Rowthorn, prófessor í hagfræði við
háskólann í Cambridge.
Umræður og fyrirspurnir.
I5:I5 Hlé.
15:30 Aðalfundarstörf og úrslit kosninga.
16:45 Ályktun Iðnþings afgreidd.
17:00 Þingslit.
19:30 Hóf Samtaka iðnaðarins í veislusalnum Gullhömrum, Hallveigarstíg I.
(3) SAMTÖK
■ ■■ IÐNAÐARINS
HALLVEIGARSílG 1 • PÓSTHÓLF 1450 • 121 REYKJAVÍK • SÍMI 511 5555 • FAX 511 5566
HEIMASfÐA www.si.is • TÖLVUPÓSTUR mottaka@si.is
Byrjenda og framhaldsnámskeið - byrja 16. og 17. feb.
5 vikna lokuó námskeið sem fer að mestu fram á
spinninghjólunum en einnig verður farið í tækjasal
og gerðar kvió- og teygjuæfingar.
• Fitumælt i byrjun og lok námskeiðs.
• Regluleg viktun.
• Fræðslufundur um mataræði.
• Mappa meó ýmsum fróðleiksmolum.
% ¥
Leiðbeinendur: ^ %
Ágústa Hrönn og Þórhalla
5 vikna frábært námskeió fyrir byrjendur þar sem
farið verður i alla þá leikfimi sem að Þokkabót
hefur upp á að bjóða.
• Fitumælt í byrjun og lok námskeiðs.
• Regluleg viktun.
• Fræðslufundur um mataræói.
• Mappa með ýmsum fróðleiksmolum. t
Leióbeinandi: Ágústa Hrönn %
Vetur í
Allir sem gerast „Meólimir" í febrúar fá frítt
árssundkort i sundlaug Seltjarnarness
Síóast var uppselt og færri
komust aó en vildu.
Tryggóu þér pláss strax!
Þokkabót á netinu
www.islandia.is/thokkabot
Nánari upplýsingar
og skráning í síma
561-3535
Netfang: thokkabot@islandia.is