Morgunblaðið - 22.03.1998, Side 1

Morgunblaðið - 22.03.1998, Side 1
fltargtutfrfaMfe ATVINNU/RAD- OG SMÁAUGLÝSINGAR PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS SUNNUDAGUR 22. MARZ1998 BLAÐ E ATVINNUAUGLÝSINGAR j Starf á endurskoð- unarskrifstofu ENDURSKOÐUNARSKRIFSTOFA óskar eftir að ráða viðskiptafræðing af endurskoðunarkjörsviði til starfa. Þarf að geta hafíð störf sem fyrst. Umsóknir á að senda af- greiðslu Mbl. fyrir 27. mars, merktar: „E - 2000.“ Skrifstofa Samtaka um þjdðareign SAMTÖK um þjóðareign vjlja „afnema það óréttlæti að einhverjir einstaklingar géti kastað eign sinni á sameign þjóðarinnar og leikið sér síðan með hana í fjárhættuspili", segir í auglýsingu þeirra. Samtökin óska eftir starfsmanni til að stjóma skrifstofunni. Leitað er að „kraftmiklum hug- sjónamanni sem vill leggja nótt við dag til að afla málstaðn- um íylgis". Nánari upplýsingar gefa Jón Arason í síma 4833311 og Bárður Halldórsson í síma 5654360 og 5614030. Starf í Noregi ÓSKAÐ er eftir manni til starfa á bændabýli 40 km suður af Ósló. Um er að ræða svínarækt, Islandshestarækt, korn- og skógaryrkju og byggingarstarfsemi. Upplýsingar veitir Jens A. Sundby í síma 0004731288225. Stjdrn útflutnings- fyrirtækis ÚTFLUTNINGSFYRIRTÆKI í Reykjavík óskar eftir að ráða framkvæmdastjóra og felur starfið í sér daglegan rekstur og markaðssetningu íslenskra afurða erlendis. I boði er vel launað, spennandi starf sem býður upp á ferða- lög erlendis og hlutfallslegar arðgreiðslur. Góð tölvukunn- átta og sjálfstæð vinnubrögð eru mjög mikilvæg. RAÐA UGL ÝSINGAR Listamannastyrkir í Kopavogi LISTA- og menningarráð Kópavogs auglýsir eftir umsókn- um um starfsstyrki til listamanna úr Kópavogi fyrir árið 1998. Umsóknarfrestur er til 19. apríl. Roleg og reyklaus fjölskylda FIMM manna, róleg og reyklaus fjölskylda óskar eftir 4-5 herbergja húsnæði til leigu á Reykjavíkursvæðinu frá 1. ágúst. Meðmæli ef óskað er. Upplýsingar í síma 5535969 eða 8961177. Sumarbústaðaloð í Skorradal TIL sölu er leiguland í Skorradal, alveg við vatnið, allt skógi vaxið og ósnortið. Hálftíma akstur frá Reykjavík eftir göngin. SMÁAUGLÝSINGAR Starf Sálarrann- soknafélagsins SÁLARRANNSÓKNAFÉLAG íslands minnir á störf miðla og huglækna hjá félaginu, einnig fræðslu-, fyrirbæna- og sjálfstyrkingarhópa á mánudögum og þriðjudögum og heilunarsamkomu í dag kl. 14. Hafín er skráning í nýjan bænahring sem Skúli Lorenz mun stofna og halda utan um. 1997 hagstætt hjá Norræna fjárfestingarbankanum Lánaði 10 milljarða til Islands HAGNAÐUR af starfsemi Norræna fjár- festingarbankans nam 114 milljónum ECU (9,1 milljarði kr.) í íyrra en það er svipaður hagnaður og árið 1996. Engin útlánatöp urðu á árinu, að því er segir í frétt frá bank- anum. Á árinu 1997 tók bankinn þátt í fjármögn- um um 70 stórra fjárfestingarverkefna á Norðurlöndum, og svara þessar fjárfesting- ar til 11% af heildarfjárfestingu norræns at- vinnulífs á árinu 1997. Mikill hluti nýrra lána fór til fjárfestinga yfir landamæri sem efla efnahagslegan samruna, auka hagvöxt og bæta atvinnuástand. Allmörg verkefni voru einnig á sviði rannsókna og þróunar- starfsemi, innviða og umhverfismála. Mestur hluti norrænna lána bankans var enn sem fyrr til sænskra lántakenda eða um 37%. Lán til íslenskra lántakenda námu ríf- lega 8% af heildarútlánum bankans til Norðurlanda í árslok 1997. Á árinu 1997 var stofnsettur nýr lána- flokkur til umhverfisbóta á grannsvæðum Norðurlanda. Tilgangur áætlunarinnar er að taka þátt í fjármögnun umhverfisverk- efna á grannsvæðum Norðurlanda í austri, þ.e.a.s. við Eystrasalti, Barentshaf og á Kólaskaga. Fyrstu lán af þessu tagi voru veitt til sveitarfélaga í Lettlandi og Litháen auk fjárfestinga til endurbóta á vatnsöflun- ar- og frárennsliskerfum í Sankti Péturs- borg. Stærsti einstaki lánveitandi á íslandi Á árinu 1997 var gengið frá átta nýjum lánssamningum við íslenska lántakendur að fjárhæð ríflega 10 milljarðar kr. Útistand- andi lán bankans til íslenskra lántakenda nema nú ríflega 39 milljörðum kr., sem svarar til ríflega 8% af heildarlánveitingum bankans til Norðurlanda. Til viðbótar koma síðan samningsbundin óútborguð lán að jafnvirði 4,5 milljarðar kr., sem væntanlega koma til útborgunar næstu 12 mánuðina. NIB er stærsti einstaki erlendi lánveit- andi til íslands með um 15% af öllum er- lendum langtímaskuldbindingum þjóðar- búsins í lok september sl. Útborguð ný lán til Islands á árinu 1997 námu 6,5 milljörðum kr., en það er mun meiri fjárhæð en undan- farin ár. Árleg útborgun nýrra lána til ís- lands á árunum 1995 og 1996 nam tæplega 4,5 milljörðum kr. hvort ár. Á árinu 1997 voru samþykkt átta ný lán til Islands að fjárhæð 8,3 milljarðar kr. Nánar tiltekið er hér um að ræða lán til orkuframleiðslu í tengslum við nýja stóriðju bæði til Landsvirkjunar, 3.600 milljónir kr., og Hitaveitu Reykjavíkur, 2.450 milljónir kr. Þá var veitt lán til Marels hf. að fjárhæð 200 milljónir kr. vegna fjárfestingar yfir landamæri, þ.e. kaupa Marels hf. á danska fyrirtækinu Carnitech A/S. Veitt var lán til Flugleiða hf. að fjárhæð 1.080 milljónir kr. vegna kaupa félagsins á nýjum Boeing 757-200 þotum. Ennfremur var veitt lán að fjárhæð 205 milljónir kr. til stækkunar Grundartangahafnar vegna byggingar nýs álvers og ráðgerðrar stækk- unar Járnblendifélagsins hf. Einnig voru veitt lán bæði til íslandsbanka hf. að fjár- hæð 500 milljónir kr. og SPRON að fjárhæð 290 milljónir kr. til endurlána. Verslunar- ráð veitir námsstyrki FORMAÐUR Verslunarráðs Islands, Kolbeinn Kristinsson, afhenti nýlega tveimur íslensk- um námsmönnum námsstyrk úr námssjóði Verslunarráðs. Styrkir þessir eru veittir ár- lega námsmönnum er stunda framhaldsnám við, erlenda há- skóla. Fjárhæð hvors styrks um sig er 200.000 krónur og er þeim ætlað að efla íslenskt at- vinnulíf og stuðla að framþróun þess. Styrkþegar að þessu sinni voru þau Jón Garðar Guðmundsson og Sigríður Sig- urjónsdóttir. Jón Garðar er fæddur árið 1968. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Sund 1988 og lokaprófi í viðskipta- fræði frá Háskóla íslands vorið 1992, af fjármálasviði. Hann stundar nú framhaldsnám við viðskiptaháskólann IESE í Barcelona á Spáni. Þar leggur hann stund á tveggja ára MBA- nám, sem lýkur vorið 1999. Sigríður er einnig fædd árið 1968. Hún lauk stúdentsprófi frá Verzlunarskóla Islands árið 1988 og stundar nú MA-nám í hönnun við Central Saint Martins College of Art and Design í London þar sem hún leggur meðal annars áherslu á notkun vistvænna efna í hönn- un og iðnaði, hönnunarstúdíó á Internetinu og stjórnun og markaðssetningu í sambandi við hönnun. SH velur UNIX miðlara frá Nýherja NÝVERIÐ gerði Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna samning við Nýherja um kaup á UNIX miðlara af IBM RS/6000 F50 gerð. Á hinum nýja miðlara ætlar Sölumiðstöðin að reka aðalupplýsingakerfi sitt er byggist á Fjölni. Það sem ýtti undir fjárfestinguna var krafan um aukin gæði í upplýsingavinnslu fyrir- tækisins, aukið rekstraröryggi og meiri afköst, að því er segir i fréttatilkynningu. RS/6000 F50 miðlarinn er búinn helstu rekstraröryggiskostum sem fyrirfinnast í ES/9000 stórtölvum IBM. Hann hefur m.a. sjálfstæða þjónustutölvu um borð sem vakir yfir starfinu og getur brugðist við atburðum á margvíslegan hátt. Vél- in getur haft fjóra öfluga PowerPC gjörva og hefur 128 bita minnis- braut sem getur fært 1,3 GB af gögnum á hverri sekúndu. Hún er búin 512 MB vinnsluminni og SSA RAID diskakerfi með 10 4,5 GB diskum. SSA diskatæknin býður uppá meiri áreiðanleika en SCSI og talsvert meiri afköst, sérstaklega í gagnasafnsvinnslu þar sem álaginu er dreift á marga diska. Það réði nokkru um val Sölumið- stöðvarinnar að AIX, þ.e. UNIX sí «*>*«»<- ;V\ ^ ■ !' í i- ,, (■. v Á myndinni eru standandi frá vinstri: Helgi Örn Viggósson, sölustjóri IBM RS/6000, Bjarni Lúðvfksson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs SH, Sigurður Ingi Margeirsson, forstöðumaður tölvudeildar SH, og Hrafn Þórðarson, sölufulltrúi IBM RS/6000. Sitjandi eru Emil G. Ein- arsson, framkvæmdastjóri miðtölvudeildar Nýherja, og Friðrik Páls- son forstjóri SH. stýrikerfið frá IBM, er þeim kost- um búið að framkvæma má nánast alla viðhaldsvinnu án þess taka kerfið úr þjónustu. Þá réð miklu að AIX hefur öflug myndræn notenda- skil fyrir kerfisstjóra svo að engin þörf er á sérhæfðri UNIX þekkingu við daglegan rekstur. Talsverður vöxtur hefur verið hjá Nýherja á IBM RS/6000 sviðinu undanfarið. Fjárfest hefur verið í aukinni þjónustuhæfni á sviðinu og hefur UNIX sérfræðingum fjölgað, en nýlega stóðust fjórir slíkir próf er veitir þeim titilinn „Certified IBM AIX Specialist“.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.