Morgunblaðið - 22.03.1998, Side 18
1« E SUNNUDAGUR 22. MARZ1998
MORGUNBLAÐIÐ
Tónlist fyrir alla
Auglýst er eftir tillögum að tónlistardagskrám
og tónlistarverkefnum í skólum og fyrir al-
menning á vegum verkefnisins Tónlist fyrir
alla 1998—1999 og á haustönn 1999. Hug-
rfiyndir þurfa ekki að vera bundnar tilteknum
flytjendum. Þegar tillögur eru metnar er eftir-
farandi m.a. haft til hliðsjónar:
I Tónlistardagskrár fyrir skóla skulu vera við
hæfi nemenda grunnskóla og fela með ein-
hverju móti í sér bæði skemmtun og
fræðslu og miðast við lengd einnar kennslu-
stundar. Ljóst skal vera með hvaða hætti
höfða á til mismunandi aldurshópa og til-
laga feli í sér hugmynd um áhugavert kynn-
ingar- og námsefni til nota við kennslu í
tengslum við tónleika.
If Flytjendurskulu hafa góðatónlistarmennt-
un. Að jafnaði skulu þeir hafa haslað sér
völl í tónlistarlífi hér á landi. Til greina kem-
ur jafnframt að veita efnilegum tónlistar-
mönnum, sem eru að stíga sín fyrstu spor,
tækifæri á vettvangi Tónlistar fýrir alla.
Þeir skulu jafnframt geta boðið fullgilda tón-
leikadagskrá til að flytja á opinberum tón-
leikum.
III Flytjendur, sem standa að sömu tillögu,
skulu að jafnaði ekki vera fleiri en fimm. Þeir
skulu reiðubúnir að fara hvert á land sem
er til tónleikahalds í skólum og fyrir almenn-
ing meðan skólar starfa, enda standi hver
ferð ekki lengur en tíu daga.
IV Tónlistardagskrár með öllum tegundum
tónlistar eiga heima á skólatónleikum upp-
fylli þær ofangreind skilyrði og skal úrval
úrtillögum hverju sinni vera fjölbreytt þar
sem gætt er nokkurs jafnvægis milli ólíkra
tegunda tónlistar.
V Stuðla skal að því að tónlistarfólk og tónlist-
arnemendur í heimabyggð taki þátt í verefn-
inu, ýmist með sjálfstæðu framlagi eða með
því að taka þátt í tónlistardagskrá aðkomu-
hópa.
"fliílögur berist Tónlist fyrir alla, pósthólf
1668,121 Reykjavík, á eyðublöðum sem fást
í Menntamálaráðuneyti. Verkefnisstjóri veitir
allarfrekari upplýsingar í síma 566 7810 árdeg-
is. Skilafrestur rennur út þriðjudag 14. apríl
nk.
Nýskipuð samráðsnefnd Tónlistar fyrir alla heldur utan um faglega
uppbyggingu Tónlistar fyrir alla og er verkefnisstjóra til ráðgjafar
um tónlistardagskrár og tónlistarverkefni. Henni er ætlað að fara
yfir umsóknir og hugmyndir sem berast um tónlistardagskrár og
tónlistarverkefni á vegum Tónlistar fyrir alla. Eftirtaldir skipa samráðs-
nefnd Tónlistar fyrir alla: Margrét Bóasdóttir söngkona, f.h. Félags
íslenskra tónlistarmanna, Helga Hauksdóttir fiðluleikari, f.h. Sinfóníu-
hljómsveitar íslands, Jónas Ingimundarson píanóleikari, f.h. Tón-
menntakennarafélags íslands, Snorri Örn Snorrason tónlistarmaður,
f.h. Félags íslenskra hljómlistarmanna, Björn Þorsteinsson forstöðu-
maður fræðslu- og menningarsviðs Kópavogsbæjar, f.h. Sambands
íslenskra sveitarfélaga og Selma Guðmundsdóttir píanóleikari, sem
er formaður nefndarinnar.
fBORGARVERKFRÆÐINGURINN
í REYKJAVÍK
Hugmyndabanki vegna
ræktunarátaks
Unglingar í Vinnuskóla Reykjavíkur hafa á und-
ábförnum árum unnið að skógrækt í útmörkum
borgarinnar svo sem Öskjuhlíð, Elliðaárdal,
Austurheiðum og Heiðmörk. Nú erfullgróður-
sett í mörg þessara svæða og er stefnt að því
að á sumri komanda verði auknar gróðursetn-
ingar innan borgarhverfanna.
Hér með er leitað eftir ábendingum frá borg-
arbúum um verkefni fyrir Vinnuskóla Reykja-
víkur við rætkun í hinum ýmsu hverfum borg-
arinnar.
Borgarbúar komi hugmyndum sínum skriflega
tij:
Skrifstofu garðyrkjustjóra,
Skúlatúni 2,105 Rykjavík,
eða hringi í bækistöðvar garðyrkjudeildar milli
kl. 9.00 og 12.00 dagana 23.-27. mars.
Símar 581 4569 fyrir svæðið sunnan og vestan
Ejjiðaáa, og 587 8035 fyrir svæðin norðan og
austan Elliðaáa.
KÓPAVOGSBÆR
Salir — breyting á
aðalskipulagi
Tillaga að breyttu aðalskipulagi Kópavogs
1992—2012 auglýsist hér með skv. 18. gr. skipu-
lags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.b. Breyt-
ingin nærtil svæðis sem afmarkast af Hádegis-
hólum og byggð í Lindum í vestur, lögsögu-
mörkum Kópavogs og Reykjavíkur í norður,
mörkum Vatnsendalands og Fífuhvammslands
við Markastein í austur og Rjúpnahlíð og Hnoð-
raholt í suður.
Breytingin felst í eftirfarandi:
1. Arnarnesvegur er færður norðar og tengi-
braut feld út alltfrá Leirdalsbotni að bæjar-
mörkum Reykjavíkurog Kópavogs á móts
við Jaðarsel.
2. Verslunar- og þjónustusvæði í Leirdalsbotni
er fellt út.
3. Iðnaðarsvæði í Rjúpnadal erfellt út.
4. Gert er ráð fyrir 9 holu golfvelli í Litla-Leir-
dal.
5. Afmörkun fyrirhugaðs kirkjugarðs í Leirdal
er breytt og hann stækkaður.
6. Afmörkun bæjarverndar í Hádegishólum
er breytt með tilvísan í ítarlegri afmörkun.
7. Afmörkun íþrótta- og skólasvæðis breytist.
8. Afmörkun íbúðarsvæðis vestast á svæðinu
breytist. Milli þess og íþróttasvæðisins er
gert ráð fyrir hverfisþjónustu og leikskóla.
9. Afmörkun íbúðarsvæðis austast á svæðinu
breytist og það fært norðaustur. Sjá jafn-
framt lið 3 hér að ofan.
Göngu- og reiðleiðir breytast.
Uppdrættur, ásamt skýringarmyndum verða
til sýnis á Bæjarskipulagi Kópavogs, Fannborg
2,4. hæð, frá kl. 9—15 alla virka daga frá 23.
mars—24. apríl nk. Athugasemdum og ábend-
ingum skal skila skriflega til Bæjarskipulags,
eigi síðar en kl. 15.00 föstudaginn 8. maí nk.
Þeir, sem ekki gera athugasemdir innan tilskil-
ins frests, teljast samþykkir tillögunni.
Skipulagsstjóri Kópavogs.
BORGARVERKFRÆÐINGURINN í REYKJAVÍK
Lóðaúthlutun í Reykjavík
Til úthlutunar eru neðangreindar lóðir í Staða-
hverfi.
• Lóðirfyrireinbýlishús:36lóðirvið Bakka-
staði.
• Lóðirfyrir raðhús: 9 lóðir (29 íbúðir) við
Bakkastaði.
Gert er ráð fyrir að lóðirnar verði byggingar-
hæfar í ágúst og september nk.
Nánari upplýsingar verða veittar á skrifstofu
borgarverkfræðings, Skúlatúni 2,3. hæð, sími
563 2300. Þarfást einnig afhent umsóknar-
eyðublöð, skipulagsskilmálar og uppdrættir.
Tekið verður við umsóknum um lóðirnar frá
og með föstudeginum 27. mars nk. kl. 8.20 á
skrifstofu borgarverkfræðings.
Borgarstjórinn í Reykjavík.
Starfsstyrkir
til listamanna
í Kópavogi
Lista- og menningarráð auglýsir eftir umsókn-
um um starfsstyrki til listamanna úr Kópavogi
fyrir árið 1998.
Veittir verða starfsstyrkir einungistil þeirra
listamanna sem búsettir eru í Kópavogi.
Umsóknarfrestur ertil 19. apríl nk.
Umsóknum um framangreinda starfsstyrki
skal skila til Lista- og mennningarráðs
Kópavogs, Fannaborg 2, 2.hæð, 200 Kópavogi.
Lista- og menningarráð
Kópavogs.
Auglýsing frá Landbúnaðarráðuneytinu
og embætti yfirdýralæknis
Varnarsvæði samkv. reglu-
gerðum nr. 158 og 168/
1998 um varnir gegn út-
breiðslu á smitandi hita-
sótt í hrossum
Samkvæmt heimild í lögum nr. 25/1993 um
dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, hefur
landinu verið skipt upp í vamarsvæði, svo
sem hér segir:
Svæði 1. Reykjavík, Kópavogur, Hafnarfjörð-
ur, Garðabær, Bessastaðahreppur,
Mosfellsbær og Árnessýsla.
Svæði 2. Akranes.
Svæði 3. Reykjanes, sunnan Hafnarfjarðar.
Svæði 4. Kjalarnes- og Kjósarhreppar.
Svæði 5. Borgarfjarðarsýsla, sunnan Skarðs-
heiðar.
Svæði 6. Rangárvallasýsla, vestan Markar-
fljóts.
Svæði 7. Rangárvallasýsla, austan Markar-
fljóts og Mýrdalshreppur.
Svæði 8. Aðrir kaupstaðir og landshlutar.
Eftirfarandi reglur gilda um takmörkun
á flutningi hrossa, reiðtygja og flutnings-
tækja, sótthreinsun fatnaðar, hestamót
o.fl.:
1. Óheimilt er að flytja hross á milli eða í gegn-
um varnarsvæði.
2. Óheimilt er að flytja notuð reiðtygi, þ.m.t.
kamba, klórur, píska, ábreiður og dýnur á
milli varnarsvæða.
3. Óheimilt er að fara með flutningatæki fyrir
hross á milli varnarsvæða.
4. Hestamenn og aðrir sem umgangast hross
skulu forðast samgang við hross af öðrum
varnarsvæðum. Sé brýn þörf á slíkum sam-
gangi skulu hestamenn klæðast hlífðar-
fatnaði og skóm sem ekki eru notaðir í hest-
húsum eða við hestamennsku á öðrum
svæðum eða hafa verið sótthreinsaðir. Þeir
skulu með öllum tiltækum ráðum hindra að
óhreinindi úr umhverfi hrossa berist á önnur
varnarsvæði t.d. með bílum.
5. Innan svæða er heimilt að flytja hross á milli
hesthúsa og umgangur hirða, járningam-
anna og tamningamanna milli hesthúsa er
heimill. Þá er heimilt að stunda útreiðar,
halda reiðnámskeið og hestamót innan
hvers varnarsvæðis.
Um heyflutninga milli vamarsvæða gilda
eftirfarandi reglur:
1. Óheimilt er að nota til heyflutninga tæki sem
notuð eru til flutninga á hrossum.
2. Eingöngu má nota heyflutningatæki sem
auðvelt er að þrífa að utan sem innan.
3. Heyflutningatæki skulu háþrýstiþvegin fyrir
og eftirflutninga og hjól, hjólaskálar, flutn-
ingsrými og gólfrými ökumanns úðað með
sótthreinsileginum „Virkon", eða jafnvirku
sótthreinsiefni.
4. Bílstjórum er óheimilt að fara inn í hesthús,
hlöðurog hesthúsagerði og skulu gæta
ítrasta hreinlætis við störf sín. Þeir skulu
sótthreinsa skófatnað og klæðast nýþvegn-
um hlífðarfatnaði.
5. Vélar sem notaðar eru til heyflutninga innan
hesthúsahverfa má ekki flytja til annarra
svæða nema að undangenginni sótthreinsun.
Brot gegn fyrirmælum þessum varða viðurlög-
um samkvæmt 30. gr. laga nr. 25/1993 um
dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim.
Landbúnaðarráðuneytið og
Embætti yfirdýralæknis,
20. mars 1998.
FÉLAGSSTARF
Ný skólastefna
— enn betri skóli —
Opinn kynningarfundur um framangreint málefni verður i fundarsal
Mýrarhúsaskóla, þriðjudaginn 24. mars kl. 20.30. Á fundinum verður
kynnt ný skólastefna menntamálaráðherra.
Frummælendur verða: Björn Bjarnason, menntamálaráðherra og
Jónmundur Guðmarsson, verkefnisstjóri nýrrar skólastefnu hjá
Menntamálaráðuneytinu.
Fundurinn sem haldinn er af Sjálfstæðisfélagi Seltirninga er öllum
opinn.