Morgunblaðið - 22.03.1998, Blaðsíða 22
E SUNNUDAGUR 22. MARZ 1998
Skrifstofuhúsnæði
Til leigu 300 fm innréttuð skrifstofuhæð við
Síðumúla. 7 sérskrifstofur ásamt afgreiðslu-
rými, kaffistofu,, tölvuherbergi, eldtraustri
öryggisgeymslu og góðri skjalageymslu.
yjigsanlegt er að leigja húsnæðið í tvennu lagi.
Upplýsingar í síma 588 7600.
Atvinnuhúsnæði
Verslunar- og lagerhúsnæði til leigu í Ármúla,
stærð ca 200 fm. Laust 1. apríl.
Upplýsingar gefur Vilhjálmur í síma 893 8826.
Skrifstofur
Til leigu glæsileg 230 fm skrifstofuhæð í Síðu-
múla 21, sem skiptist í 9—11 herbergi.
Góð nýting. Laus eftir samkomulagi.
Upplýsingar í síma 535 1000, 869 3570 og
554 4515..
Skrifstofuhúsnæði
til leigu í Mörkinni 3 (Virku-húsinu) frá 1. maí.
130 fm á 2. hæð og 65 fm á 3. hæð.
Upplýsingar gefur Helgi í síma 568 7477 og
heimasíma 557 5960.
MORGUNBLAÐIÐ
Skrifstofuhúsnæði til leigu
Á svæði 105 eru til leigu 2 herbergi á 4. hæð
í lyftuhúsi. Einnig eitt stærra. Skrifborð geta
fylgt. Sameiginleg kaffistofa.
Upplýsingar í síma 553 6777 á skrifstofutíma.
Til leigu við Faxafen
Til leigu er 200 fm verslunarpláss við Faxafen
með góðri gluggahlið.
Upplýsingar veitir Ragnar Tómasson, hdl.,
Skútuvogi 13, símar 568 2511 og 896 2222.
SMÁAUGLVSINGAR
FÉLAGSLÍF
I.O.O.F. 3 = 1783238 = Dd.
□ MÍMIR 5998032319 III
□ HELGAFELL 5998032319 IVA/ 2
qGIMLI 5998032319 I
I.O.O.F. 19 = 1783238 = III*
I.O.O.F. 10= 1783238 =
Aðalstöðvar
v KFUM og KFUK,
Holtavegi 28.
Almenn samkoma og barna-
stundir í dag kl. 17. Vitnisburðir:
Heiðrún Kjartansdóttir, Cortis
Snook og Kornelía Eichhorn.
Eftir samkomuna verður léttur
matur til sölu gegn vægu verði.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
fnmhjólp
Aibinenn samkoma í Þríbúðum,
Hverfisgötu 42, í dag kl. 16.00.
Mikill söngur. Samhjálparkórinn
tékur lagið. Barnagæsla. Ræðu-
menn Björg Lárusdóttir og
Þórír Haraldsson. Kaffi að lok-
inni samkomu. Allir velkomnir.
Samhjálp.
Útsala í fullum gangi
Erl. geisladiskar 40% afsl.
Erl. bækur 30— 60% afsl.
Ýmsar gjafavörur 50% afsl.
ý'ersluninJ^J^j
\---------------------------
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaöarerindísins.
Bænastund í dag kl. 14.00.
iV.fi =3
Hallveigarstíg 1 • simi 561 4330
Dagsferðir sunnud. 22. mars:
Kl. 10.30 frá BSI. Gengið á reka á
suðurströnd Reykjanesskagans.
Páskaferðir
9. —13. apríl. Skaftárdalur —
Lakagígar
Gengið á skíðum frá Skaftárdal
um Leiðólfsfell í Hrossatungur.
Gengið um Lakagíga og á Laka.
Farangur fluttur milli náttstaða
með vélsleðum.
9.—13. apríl. Sigalda
— Fjallabak — Skaftárdalur.
Skíðaganga i Landmannalaugar
úr Sigöldu. Þaðan er gengið í
Jökuldali og siðan um Græna-
fjallgarð í Skælinga. Þar er gist í
gangnamannaskála.
9. —13. apríl. Sigalda —
Landmannalaugar — Básar.
Skíðaganga i Landmannalaugar
úr Sigöldu. Þaðan er gengið í
Hvanngil. Þriðja daginn er
gengið um Emstrur og gist í
Botnum. Komið i Bása á páska-
dag.
11.—13. apríl. Básar
um páska.
Þriggja daga skemmtiferð fyrir
alla fjölskylduna. Fjölbreyttar
gönguferðir, kvöldvökur o.fl.
11.—13. apríl. Fimmvörðu-
háls um páska.
Gengið frá Skógum upp í Fimm-
vörðuskála. Gengið niður í Bása
daginn eftir.
Ferðaáætlun 1998.
Ferðaáætlun 1998 fæst á skrif-
stofu Útivistar. Skráning þátt-
töku í sumarferðir stendur yfir.
KROSSINN
Sunnudagur: Almenn sam-
koma kl. 16.30. Barnagæsla er
meðan á samkomunni stendur.
Hvað ætlar Guð að gera fyrir
okkur í dag?
Mánudagur: Útsending á
Omega kl. 21.30.
Þriðjudagur: Biblíulestur kl.
20.30. Enn meira af orði Guðs.
Föstudagur: Konunglegu her-
sveitirnar kl. 18.00. Barnastarf
fyrir 5-12 ára.
Laugardagur: Unglingasam-
koma kl. 20.30. Kraftur, dýrð og
enn meiri blessun.
Bóka og gjafavöruverslunin er
opin alla virka daga frá kl. 14-18.
Við erum að hefja söfnun á notuð-
um fötum og skóm. Tekið verður
við slíku alla virka daga. Netfang
okkar er krossinn@skima.is
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía
Samkoma kl. 16.30. Vitnisburðir.
Ræðumaður Hinrik Þorsteinsson.
Barnagæsla meðan á samkomu
stendur.
Allir hjartanlega velkomnir.
Mið: Kl. 18:30 fjölskyldusamvera
með léttum veitingum á vægu
verði. Kl. 19:30 fræðsla og bæn.
Fös: Kl. 20:30 unglingasam-
koma.
Netfang: www.gospel.is.
Frá Sálar-
rannsóknar-
félagi
íslands
Miðlarnir og huglæknarnir Bjarni
Kristjánsson, Guðrún Hjörleifs-
dóttir, Hafsteinn Guðbjörnsson,
Kristín Karlsdóttir, Margrét Haf-
steinsdóttir, María Sigurðardótt-
ir, Skúli Lórenz og Þórunn
Maggý Guðmundsdóttir starfa
hjá félaginu og bjóða upp á
einkatíma. Auk þess býður Bjarni
Kristjánsson upp á umbreytinga-
fundi fyrir hópa.
Fræðslu-, fyrirbæna- og sjálf-
styrkingarhópar, sem Friðbjörg
Óskarsdóttir annast, eru á mánu-
dögum og þriðjudögum.
Hafin er skráning í nýjan bæna-
hring sem Skúli Lorenz mun
stofna og halda utanum.
Við mynnum á heilunarsam-
komuna í dag kl. 14.00 i Garða-
stræti 8.
Upplýsingar og bókanir eru frá
kl. 9-12 og 13-17 alla virka daga í
símum 551 8130 og 561 8130 og
á skrifstofunni Garðastræti 8.
Einnig er tekið á móti fyrirbæn-
um í sömu simum.
SRFÍ.
Klg,tÖÍnn
K r i « t i í i > m f i I i (
Bæjarhrauni 2, Hafnarfirði.
Kl. 11.00 Krakkakirkja.
Kl. 20.00 Almenn samkoma.
Predikun: Stefán Ágústsson.
Beðiðfyrir þörfum einstaklinga.
Laugardagur kl. 21.00:
„Eldur unga fólksins."
Bænastund miðvikudag kl. 20.00.
Allir velkomnir.
Morgunsamkoma kl. 11:00.
Unglingablessun.
Barnastarf í fjórum deildum og
kennsla fyrir fullorðna.
Kvöldsamkoma kl. 20:00.
Lofgjörð, predikun og fyrirbæn.
Allir hjartanlega velkomnir.
Hjálpræðis-
herinn
Kirkjustræti 2
Kl. 20.00 Hjálpræðissamkoma.
Brigaderarnir Ingibjörg og Óskar
Jónsson stjórna og tala. Allir
hjartanlega velkomnir!
Mánudag kl. 15.00 Heimilasam-
band. Séra Anna Pálsdóttir talar.
íslenska
Kristskirkjan
Morgunsamkoma kl. 11:00.
Fræðsla fyrir börn og fullorðna.
Almenn samkoma kl. 20:00.
Friðrik Schram predikar. Heilög
kvöldmáltíð. Allir velkomnir.
HEIMILISDÝR
Frá H.R.F.I
Kynningarfundur á veiðiprófum
fyirr standandi fuglahunda verð-
ur þriðjudaginn 24. mars kl.
20.30 og kynningarfundur á veið-
iprófúm fýrir Retriever hunda
verður þriðjudaginn 31. mars kl.
20.30.
Báðir fundirnir verða haldnir í
Gerðubergi, D—sal.
Stjórnin.
KENNSLA
HEILSUSETUR
ÞÓRGUNNU
Bakmeðferð
Námskeið helgina 28.-29. mars
nk. Kennsla í slökunarnuddi með
virkum ilmolíum, þrýstipunkta-
nuddi fyrir bakvandamál. Svæða-
meðferð fyrir bak. Upplýsingar og
innritun fyrir 26. mars á Heilsu-
setri Þórgunnu í síma 562 4745 og
896 9653 milli 8.30-9.30 og
12.00—14.00 alla virka daga.
Þórir S. Gröndal skrifar frá Flórída
*;
í UPPVEXTI mínum held ég að spil hafí
verið í hávegum höfð á flestum heimilum.
Allir krakkar höfðu gaman af að spila, en
það var dálítið mismunandi hvað spilamenn-
ingin var þróuð á þessum eða hinum heimil-
unum. Á mínu heittelskaða æskuheimili
höfðum við ánægju af spilum, en einhvem
veginn held ég ekki, að við höfum verið mik-
ið spilafólk. Eg held að hæst hafi spilamenn-
ingin risið hjá okkur í þau fáu skipti sem
nokkrir ættingjar komu og spiluðu fram-
sóknarvist við pabba og mömmu. Við krakk-
arnir lágum á gægjum, hlustuðum á gleð-
skapinn, og ég man eftir að hafa hugsað að
þegar ég yrði fullorðinn, myndi ég ef til vill
uppgötva leyndardóma spilamennskunnar
geta lært að spila framsóknarvist.
A spilasviðinu var ég mjög flinkur að
byggja spilaborgir, en lærði seinna að leggja
kapal og spila svarta Pétur. í því spili gat
orðið mikill spenningur og stundum læti. Á
þessum árum fann ég út að á heimilum
sumra kunningjanna vom spilin tekin miklu
hátíðlegar en heima hjá mér. Stundum var
manni boðið að taka þátt í einhverju spili,
sem maður hafði aldrei heyrt um. Þá vom
menn settir niður við borð og oftast sagt
sem svo að þetta væri enginn vandi og
myndi lærast um leið. En mér gekk ekkert
vel að læra nýju spilin, kófsvitnaði og lék af
mér. Fannst þetta ekkert gaman.
%umir strákanna vora miklir spilagosar.
Ekki einasta komu þeir frá miklum spila-
heimilum og kunnu þar af leiðandi ekki bara
flókin spil eins og lomber, marías, póker og
vistina áðurnefndu, heldur gátu þeir líka
framið alls kyns spilagaldra. Stundum vom
þeir með stokkinn í vasanum og drógu hann
upp til þess að sýna kúnstir sínar. Einfeldn-
in^fer eins og ég vora oft tilvalin fórnarlömb.
Olsen
Allavega tiktúrur notuðu þeir við að stokka
spilin og gátu næstum látið þau fljúga í loft-
inu. Vora þeir æstir í að halda svoleiðis sýn-
ingar þegar stelpur vora viðstaddar til þess
að dást að þeim.
Þegar ég var táningur, barst hið heims-
fræga spil Olsen Olsen til landsins. Olli það
straumhvörfum í viðhorfi mínu til spila-
mennskunnar því hér var komið spil, sem ég
gat lært og spilað af kunnáttu mér til mikill-
ar ánægju. Þegar ég var kyndari á hvalveiði-
bát, spiluðum við Olsen af feiknarkrafti og
héldum mörg mót á vertíðinni. Mikill spenn-
ingur og hiti hljóp oft í keppendur og höfðu
allir gaman af. Eitt sinn í vondu veðri kom
kokkurinn með sætsúpupottinn í borðsalinn
og skorðaði hann á borðinu upp við vegginn.
Á hillu fyrir ofan lágu Olsen keppnisspilin og
þegar skipið hallaði í einum öldualnum,
duttu ein 10 kort ofan í pottinn. Brugðu
menn skjótt við og veiddu grómtekin spilin
upp úr sjóðandi heitri súpunni og þurrkuðu
af þeim eftir beztu getu. Var súpan síðan
borðuð af góðri lyst, en spilin voru þurrkuð í
bökunarofninum og síðan notuð í keppni á
næturvaktinni.
Þegar alvara fullorðinsáranna þröngvaði
sér upp á fólkið skaut upp ijótum kollinum í
spilaheiminum leikur sá, sem brids er kall-
Olsen
aður. Vitanlega var hann búinn að vera lengi
við lýði, en mér hafði þó tekist að láta sem
hann væri ekki til. En nú var það ekki hægt
lengur, því jafnaldrarnir höfðu útskrifaðist
úr Olsen skóla lífsins og vora nú farnir að
spila brids. Líkaði mér það alls ekki vel.
Þegar ég ákvað að festa ráð mitt höguðu
örlögin því þannig að ég, frá Olsen-heimili í
Vesturbænum, lagði hug á stúlku af brids-
heimili í Austurbænum. Nú vora góð ráð
dýr. Gerði ég mér vitanlega upp mikinn
áhuga á þessari göfugu spilaíþrótt, en bæði
heitkonan og foreldrar hennar undraðust,
hvernig ég hafði sloppið í gegnum uppvöxt-
inn án þess að verða brids-sýkinni að bráð.
Einhvern veginn talað ég mig út úr því, en
baðst forláts og sagðist nú hafa mikinn
áhuga og vildi læra listina hjá þeim.
Fóru nú í hönd mörg kvöld, þar sem ég
sat kófsveittur yfir spilunum með þeim
þremur. Mér var kennt að telja punkta og
segja sagnir og það reyndist mér þung raun.
Bölvanlega gekk mér að fylgjast með því
hvaða spil hinir vora búnir að leggja út og
heldur var ég ekki klókur að geta séð á svip
mótspilaranna hvernig spil þeir höfðu á
hendi. Þetta hringsnerist allt í hausnum á
mér, en ég reyndi samt að gera mitt bezta,
því til mikils var að vinna. Þau hljóta að hafa
séð einhverja framför eftir nokkur kvöld, því
verðandi tengdamútter sagði eitt sinn sem
svo að ég myndi þjálfast því við kæmum ef-
laust til með að spila mikið í hjónabandinu.
Eg bara kyngdi vandræðalega en sagði ekk-
ert.
Eftir að við vorum gengin í það heilaga
held ég að eiginkonan hafi fljótlega séð að
hún hafði keypt Olsen-köttinn í sekknum,
hvað bridsmálunum viðvék. Ef til vill hafði
hún séð í gegnum mig í tilhugalífinu og hún
hefur aldrei ásakað mig um að hafa svikið
sig í brids-tryggðum. Eins og þið vitið, þá er
það nú á dögum í tízku að játa opinberlega
fyrrum drýgðar syndir af öllu tagi. Finnst
mér því nú að ég verði að viðurkenna opin-
berlega að ég villti á mér heimildir í spila-
málunum. Konan hefii- haldið áfram að
stunda sitt heittelskaða brids og hefir náð
góðum árangri á þessu sviði. Hún hefir lesið
feiknin öll af brids-bókum og verið meðlimur
í mörgum spilaklúbbum. Nú getur hún líka
spilað brids við Omar Shariff í tölvunni og
hefi ég sagt henni að hún verði að sætta sig
við hann fyrst ég hef brugðist henni.
Og nú hefir það gerst að Olsen Olsen, sem
reyndar er allsendis óþekkt spil hérna í
henni Ameríku, hefir verið endurreistur í
okkar lífi. Við eram búin að kenna barna-
börnunum þetta snjalla spil og höfum setið
að spilum með þeim marga góða stundina.
Öll hafa þau mjög gaman af leiknum, en það
er yngsta barnið, Anna Lína 7 ára, sem er al-
gjörlega heilluð af spilinu og köllum við hana
Olsen-drottninguna. Hún er sú sem alla
vinnur, jafnvel afa sinn, sem eitt sinn taldi
sig liðtækan Olsen-mann. Það er alltaf jafn-
gaman að sjá svipinn á þeirri litlu, þegar hún
skellir síðasta spilinu á borðið og hrópar 01-
sen Olsen!