Morgunblaðið - 22.03.1998, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 22.03.1998, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. MARZ 1998 E 9 Forstöðumaður skóla- og menningar- sviðs á Norðurlandi Laust ertil umsóknar nýtt starf forstöðumanns skóla- og menningarsviðs í sameinuðu sveitarfé- lagi Árskógs-, Svarfaðardalshrepps og Dalvíkur- bæjar. Um er að ræða víðtækt rekstrar- og stjórn- unarstarf. Undirsviðið heyra málefni leikskóla, grunnskóla, tónlistarskóla, æskulýðs-, íþrótta- og tómstundamál og menningarmál. Forstöðumaður undirbýr árlegar fjárhagáætl- anir fyrir rekstrardeildir sviðsins, fylgist með framkvæmd þeirra og ber ábyrgð á, eftir atvik- um að fjárhagsáætlanir standist. Bæjarstjóri er næsti yfirmaðurforstöðumanns en hans næstu undirmenn eru skólastjórar grunnskóla, forstöðumenn leikskóla, skóla- stjóri tónlistarskóla, íþrótta- og æskulýðsfull- trúi og forstöðumenn safna. Gerð er krafa um að umsækjandi hafi háskóla- próf á sviði stjórnunar eða rekstrar og/eða starfsreynslu á þeim vettvangi sem nýtist í starfinu. Æskilegt er að viðkomandi hafi einnig þekkingu og reynslu á sviði áætlanagerðar, góða tölvukunnáttu og vald á a.m.k. einu Norð- urlandamáli auk ensku. Hann þarf einnig að eiga auðvelt að vinna með öðrum og hafa með hendi forystu, geta skipulagt flókin verkefni og framkvæmd þeirra og sett fram á skilmerki- legan hátt verk sín í ræðu og rituðu máli. Upplýsingar um starfið, kaup og kjör, veitir bæjarstjórinn á Dalvík, Ráðhúsinu Dalvík í síma 466 1370. Umsóknum skal skilað fyrir 30. mars 1998, en starfslýsing vegna starfsins liggur frammi í afgreiðslu Ráðhússins. Gert er ráð fyri að umsækjandi geti hafið störf 1. júní nk. Bæjarstjórinn á Dalvík, Rögnvaldur Skíði Friðbjörnsson. Penninn hf. er 65 ára gamalt og rótgróið fyrirtæki. Starfsmenn eru nú 130. Penninn rekur 4 ritfangaverslanir, 2 bókaverslanir Eymundsson, Pennann skrifstofubúnað og Pennann-Egil Guttormsson heildverslun. Innkaupafulltrúi Penninn-Egill Guttormsson heildverslun óskar eftir að ráða innkaupafulltrúa. Innkaupafulltrúi mun sjá um innkaup, samskipti við erlenda birgja, eftirfylgni firamleiðsluþátta auk þess að annast markaðssetningu á ýmsum vörum. Við leitum að röskum og drifandi aðila með marktæka reynslu af sambærilegu. Enskukunnátta er nauðsynleg. Áhersla er lögð á skipulögð og öguð vinnubrögð auk metnaðar til að ná góðum árangri í starfi. Umsóknarfrestur er til og með 27. mars n.k. Ráðning verður sem allra fyrst. Guðrún Hjörleifsdóttir, ráðningar- fulltrúi, veitir nánari upplýsingar. Viðtalstímar eru frá kl.10-13. Umsóknareyðublöð eru fyrirliggjandi á skrifstofunni, sem opin er frá kl.10-16 allar virka daga. STRÁj ehf. IB starfsráðningar| guðný harðardóttir Mörkinni 3,108 Reykjavík, sími: 588 3031, bréfcími 588 3044 Staða skólastjóra Grunnskóla Sauðárkróks Staða skólastjóra Grunnskóla Sauðárkróks er laustil umsóknar. Samkvæmt ákvörðun skóla- nefndar Sauðárkróks og bæjarstjórnar Sauðár- króks hefur verið ákveðið að sameina Barna- skóla Sauðárkróks og Gagnfræðaskólann á Sauðárkróki undir ei.na stjórn. í hinum sameinaða grunnskóla eru tæplega 500 nemendur. Skólinn býrvið þröngan húsa- kost og er forgangsverkefni bæjaryfirvalda að skapa skólanum þá aðstöðu að skólinn verði einsetinn árið 2001. Verið er að teikna viðbygg- ingu við skólahús Gagnfræðaskólans. Lögð er áhersla á að sá/sú sem ráðin(n) verðurtil skólastjórastarfsins geti komið sem fyrst til starfa og tekið þátt í mótun hugmynda um framtíðarbyggingu. Hér er því um að ræða bæði krefjandi og áhugavert starf. Krafa er gerð um tilskilin starfsréttindi samkvæmt lög- um og tekur viðkomandi laun skv. kjarasamn- ingum Launanefndar sveitarfélaga og kennara- félaganna. Á Sauðárkróki búa rúmlega 2700 manns og hefur íbúafjöldi vaxið hratt á undanförnum árum. Þjónustustig er með því besta sem gerist. Þar er fjölbrautarskóli, sjúkrahús, tónlistarskóli, leikskólar, bókasafn, iþróttahús og sundlaug. Þar er lika skólaskrifstofa fyrir Skagafjörð, Svæðisskrifstofa um málefni fatlaðra á Norðurlandi vestra, þá rekur bæjarfélagið öfluga félagsþjónustu. Sauðárkrókur er þekktur fyrir öflugt íþrótta- og menningarlíf. Samgöngur eru mjög góðar hvort heldur á landi eða í lofti. Þann 6. júní nk. sameinast Sauðárkrókur og 10 önnur sveitarfélög í Skagafirði í eitt sveitarfélag með hátt í 5000 íbúa. Umsóknarfrestur um starfið er til 15. apríl nk. og skal skila umsóknumtil bæjarstjóra, bæjar- skrifstofu við Faxatorg, 550 Sauðárkrókur, sem veitir einnig allar nánari upplýsingar um starfið. Vinnusími: 453 5133, hs. 453 5184. Einnig veitir formaður skólanefndar Ásbjörn Karlsson upplýsingar í síma 453 6632 á kvöldin og um helgar. KÓPAVOGSBÆR Kópavogsbær auglýsir eftirfarandi sumarstörf iaus til umsóknar: Vinnuskóli Yfirflokkstjórar og flokkstjórar (leiðbeinendur). Æskilegt er að umsækjendur hafi reynslu í verkstjórn og að starfa með unglingum. Um- sækjendur skulu vera 20 ára eða eldri. Vinnu- skólinn er reyklaus vinnustaður. Skólagarðar og smíðavellir Leiðbeinendur. Æskilegt er að umsækjendur hafi reynslu og áhuga á ræktun/smíðum og að starfa með börnum. Umsækjendurskulu vera 20 ára eða eldri. Sundlaug Afleysingamenn. Góð sundkunnátta áskilin. Umsækjendur skulu vera 20 ára eða eldri. íþróttavellir Flokkstjórar og verkamenn í almenna hirðingu og gæslustörf. Gæsluvellir Afleysingamenn í 70% starf. Æskilegt er að umsækjendur hafi reynslu og áhuga á að starfa með börnum. Áhaldahús Flokkstjórar og verkamenn í garðyrkjustörf og almenn verkamannastörf. Flokkstjórar skulu hafa reynslu í verkstjórn og garðyrkjustörfum. Umsóknareydublöð liggja frammi á tækni- deild Kópavogs, Fannborg 2, 3. hæð. Nánari upplýsingar eru veittar í síma 554 1570 kl. 9-11 og 13-15. Umsóknarfrestur um ofangreind störf er til 15. apríl nk. Starfsmannastjóri. IFélagsmál astofn un Hafnarfjarðar Vitinn Liðsmaður Við viljum ráða liðsmenn til starfa, sérstaklega vantar liðsmann fyrir fullorðinn fatlaðan ein- stakling í Hafnarfirði. Um er að ræða vinnu sem einungis væri unnin á kvöldin og um helg- ar. Gert er ráð fyrir að unnir séu 30 tímar á mánuði. Liðsmenn vinna samkvæmt lögum um málefni fatlaðra nr. 59/1992 en þar segir m.a. í X kafla 24. gr..að með liðveislu sé átt við persónulegan stuðning og aðstoð við að njóta menningar og félagsiífs. Umsóknareyðublöð liggja frammi á Félagsmála- stofnun Hafnarfjarðar, Strandgötu 8—10. Upplýsingar gefur Kolbrún Oddbergsdóttir fél- agsráðgjafi og umsjónarmaður með málefnum fatlaðra á Félagsmálastofnun Hafnarfjarðar, í síma 565 5710 á milli kl. 11.00og 12.00 alla virka daga. Starfsmenn í félags- lega heimaþjónustu Áhugasama starfsmenn vantar í félagslega heimaþjónustu hjá Félagsmálastofnun Hafn- arfjarðar. Vinnan felst einkum í því að vinna með einstak- lingum, sem þurfa á aðstoð að halda við létt heimilisstörf. Vinnutími er sveigjanlegur en oftast frá kl. 9.00—17.00. Laun samkvæmt kjarasamningi á milli Hafnar- fjarðarbæjar og Verkakvennafélagsins Framtíð- arinnar í Hafnarfirði. Umsóknareyðublöð liggja frammi á Félags- málastofnun Hafnarfjarðar, Strandgötu 8—10. Upplýsingar gefur Húnbjörg Einarsdóttir, um- sjónarmaður heimaþjónustu í síma 565 5710 á milli kl. 9.00 og 11.00 alla virka daga. Tilsjónarmenn Einnig er óskað eftir tilsjónarmönnum, sem starfa eftir lögum um vernd barna og ung- menna nr. 58/1992. Um er að ræða hlutastörf. Hlutverk tilsjónarmanns felst fyrst og fremst í því að aðstoða foreldra við að sinna forsjár- og uppeldisskyldu sinni s.s. best hentar hag og þörfum barns eða ungmennis. Nauðsynlegt er að umsækjendur séu a.m.k. eldri en 20 ára. Upplýsingar um störf tilsjónarmanna veitir María Hjálmarsdóttir, yfirfélagsráðgjafi í síma 565 5710. V vinmumAla STOfNUN Eftirfarandi störf hjá Vinnumálastofnun em laus til umsóknar: ■ Náms- og starfsráðgjafi hjá Vinnumálastofnun, Reykjavík. Hlutverk ráðgjafans verður m.a, að samræma störf náms- og starfsráð- gjafa á svæðisvinnumiðlunum og vinna að stefnumótun með yfirstjóm Vinnumálastofnunar og leggja fram tillögur og meta úrræði gegn atvinnuleysi. ■ Náms- og starfsráðgjafi hjá Svæðisvinnumiðlun Norðurlands vestra, Blönduósi. Hlutverk ráðgjafans verður m.a. að vinna að starfsleitaráætlunum með atvinnuleitendum í samræmi við lög nr. 13/1997 um vinnumarkaðsað- gerðir óg þjónusta atvinnufyrirtækin í umdæminu með vinnumiðlun. ■ Menntun og hæfniskröfur: Nauðsynlegt er að umsækjandi hafi lokið háskólanámi í náms- og starfs- ráðgjöf, vinnusálfræði, hafi kennaramenntun eða annað sambærilegt nám. Þá er einnig nauðsynlegt að umsækjandi hafi víðtæka þekkingu á vinnumarkaðnum og menntakerfinu, hafi góða hæfni til mannlegra samskipta ásamt góðum skipulagshæfileikum. Laun samkvcemt launakerfi starfsmanna ríkisins. Upplýsingar veita Gissur Pétursson forstjóri Vinnumálastofnunar í síma 511 2500 og Gunnar Richarðsson forstöðumaður Svæðisvinnumiðlunar Norðurlands vestra í síma 455 4200. Umsóknarfrestur ert til 6. apríl. Vinnumálastofnun er þjónustustofnun sem starfar samkvæmt lögum nr. 13/1997 um vinnumarkaðsaögerðir og fer með yfirstjórn vinnu- miðlunar í landinu. Þá annast Vinnumálastofnun m.a. sjóðsvörslu og daglega afgreiðslu fyrir Atvinnuleysistryggingasjóð, Tryggingasjóð sjálfstætt starfandi einstaklinga, Ábyrgðasjóð launa og Starfsmenntaráð félagsmálaráðuneytisins. A vegum stofnunarinnar starfa átta svæðisvinnumiðlunarskrifstofur. VINNUMÁLASTOFNUN • HAFNARHÚSINU VID TRVGGVAGÖTU 160 REYKJAVlK • SlMI 511 2500 • MYNDSENDIR 511 2520

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.