Morgunblaðið - 22.03.1998, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 22. MARZ 1998 E 17
S ka rtg r i pa versl u n
Óskum eftir starfskrafti, 35—40 ára í 16—20
tíma á viku, að hluta til á laugardögum, og
meiri vinnu á álagstímum.
Umsókn skal skila á afgreiðslu Mbl. merkt:
„S - 123".
Mötuneyti
Aðstoð óskast í mötuneyti (ekki yngri en fer-
tug). Vinnutími frá kl. 9.00—14.00 fjóra daga
í viku.
Svörsendist afgreiðslu Mbl. merkt: „Mötuneyti
— 3946", fyrir 27. mars.
Rækjuveiðar
Vinnslustjóri óskast á grænlenskan rækjufrysti-
togara. Aðeins vanur maður kemurtil greina.
Upplýsingar í síma 562 6389.
Þrif í heimahúsum
Tek að mér þrif í heimahúsum.
Upplýsingar í síma 553 8858.
Prentari óskast
Óskum eftir prentara til starfa.
Farið verður með allar umsóknir
sem trúnaðarmál.
Upplýsingar í símum 554 4399 og 554 4260.
|?
Prenttækni
f öllum lltum
Sölumenn
Leitum að fólki sem vill hafa góðartekjur og
getur unnið skipulega og sjálfstætt.
Við veitum fulla þjálfun.
Bíll nauðsynlegur.
Pantaðu viðtal í síma 555 0350.
Síld og fiskur
Óskum eftir að ráða kjötiðnaðarmenn til starfa
sem fyrst.
Upplýsingar gefur Einar í síma 555 4488.
BM Vallá ehf.
Óskum eftir að ráða starfsmann í framleiðslu-
deild, um er að ræða framtíðarstarf.
Æskilegt er að umsækjendur séu með lyftara-
próf.
Nánari upplýsingar eru veittar í síma 577 4000
milli 10.00 og 16.00.
Endurskoðun
Endurskoðunarskrifstofa óskar að ráða við-
skiptafræðing af endurskoðunarkjörsviði til
starfa. Um er að ræða fjölþætt starf.
Þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Vinsamlegast sendið umsóknirtil afgreiðslu
Mbl. fyrir 27. mars nk., merktar: „E — 2000".
Störf í Noregi
um 40 km suður af Osló. Margskonar störf; við
svínarækt, íslandshestarækt, korn- og skógar-
yrkju og byggingarstarfsemi. Húsnæði útvegað.
Hafið samband við Jens A. Sundby, Sundby
Gárd, N-3474 Áros, sími 00 47 31 28 82 25,
fax 00 47 31 28 57 11.
TILKYNNIIMGAR
Krabbameinsfélagið
Aðalfundur Krabbameins-
félags Reykjavíkur
verður haldinn í húsi Krabbameinsfélagsins,
Skógarhlíð 8, mánudaginn 30. mars 1998 og
hefst kl. 20.30.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Önnur mál.
Að loknum aðalfundi verður haldið fræðslu-
erindi um krabbamein.
Veitingar.
Stjórnin.
Fyrirtæki — Einstaklingar
Laus veiðileyfi í Norðurá.
Vegna forfalla eru laus leyfi á frábærum tíma
í einni fengsælustu veiðiá landsins.
Frá hádegi 24. júlí — hádegis 27. júlí, 4 stangir
og frá hádegi 27. júlí — hádegis 30. júlí, 4
stangir.
Fullt fæði og frábær þjónusta.
Áhugasamir vinsamlegast hafið samband í
síma 581 3425.
Stangaveiðifélag Reykjavíkur,
Háaleitisbraut 68,
103 Reykjavík.
A
iSOr-A
Auglýsing
frá yfirkjörstjórn
í Kópavogi
Vegna utankjörfundarkosninga sem hefjast
30. mars nk. mun yfirkjörstjórn taka á móti
framboðslistum vegna sveitarstjórnakosning-
anna 23. maí nk. mánudaginn 23. mars kl.
20:30 í Félagsheimili Kópavogs 2. hæð.
Kjörstjórnin mun svo fimmtudaginn 26. mars
á sama stað og sama tíma, og að viðstöddum
umboðsmönnum lista úrskurða umfyrirliggj-
andi framboð og listabókstafi.
Lokafresturtil að skila framboðslistum vegna
sveitarstjórnarkosninganna er 3. maí nk.
Yfirkjörstjórn í Kópavogi,
Jón Atli Kristjánsson,
Haukur Ingibergsson,
Vigfús Hallgrímsson.
Kennaraháskóli íslands
Opin samkeppni um hönnun á merki
skólans
Ákveðið hefur verið að gangast fyrir opinni
samkeppni um hönnun merkis Kennaraháskóla
íslands í tilefni þess að 1. janúar sl. var
stofnaður nýr háskóli, þar sem fjórir skólar
voru sameinaðir í einn. Keppnin er haldin í
samráði við FÍT, Félag íslenskra teiknara og
samkvæmt keppnisreglum þess. Öllum er
heimil þátttaka.
Verklýsing og hlutverk
Merkið verður notað sem einkennistákn skól-
ans, svo sem á bréfsefni, námsskírteini, útgefin
verk, oddfána, byggingar o.fl. Merkið má vera
í allt að fjórum litum en auðvelt þarf að vera
að nota það í svart/hvítu.
Frágangur og skilafrestur
Tillögum skal skilað til Kennaraháskóla íslands,
Stakkahlíð, 105 Reykjavík. Þærskulu merktar
dulnefni en nafn höfundar, ásamt heimilisfangi
og símanúmeri, skal fylgja með í lokuðu um-
slagi merktu dulnefninu. Einungis skal senda
inn eina tillögu undir hverju dulnefni. Tillögum
skal skilað í stærðinni A4. Skilafresturertil kl.
16.00 föstudaginn 15. maí.
Dómnefnd og verðlaun
Fimm manna dómnefnd, skipuð fulltrúum FÍT
og KHÍ, velur þá tillögu er hlýtur verðlaun.
Henni er heimilt að hafna öllum tillögum ef
þátttaka og gæði þeirra tillagna sem sendar
verða í keppnina teljast ófullnægjandi að mati
dómnefndar. Höfundi þeirrartillögu er hlýtur
verðlaun verðurtilkynnt um úrslit þegardóm-
nefnd hefur lokið störfum. Að keppni lokinni
verður haldin sýning á völdum tillögum og
úrslit tilkynnt.
Veitt verða ein verðlaun 300.000 kr. fyrir bestu
tillögu um merki ásamt 150.000 kr. greiðslu
til höfundarfyrir hönnun og frágang merkis
til prentunar.
Nánari upplýsingar fást hjá Kennaraháskóla
íslands í síma 563 3800. Einnig má leggja fyrir-
spurnir inn á netfangið khi@khi.is
Kennaraháskóli íslands
Félag íslenskra teiknara.
Sumarbúðir í Reykjadal
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra mun að
venju reka sumarbúðirfyrirfötluð börn í
Reykjadal, Mosfellsbæ, frá 29. maí til
28. ágúst.
Umsóknir um dvalartíma þurfa að berast félag-
inu fyrir 2. apríl nk. á eyðublöðum sem fást
í afgreiðslu félagsins á Háaleitisbraut 11. Rvík.
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra
sími 581 4899.
Tilkynning
frá Ríkiskaupum
vegna 2000 ártalsins
Eftirtaldir seljendur hafa svarað fyrirspurnum
Ríkiskaupa um vandamál vegna ártalsins 2000
í vél- og hugbúnaði sem þeir selja:
• Almenna kerfisfræðistofan hf.
• Einar J. Skúlason hf.
• Forritun ehf.
• Hugvit hf.
• Kerfisþróun hf.
• Kuggur hf.
• Opin Kerfi hf.
• Skýrr hf.
• Tæknival hf.
Svör þeirra hafa verið birt á www.rikiskaup.is/
y2k. Seljendur eru hvattir til að koma upplýs-
ingum um vél- og hugbúnað vegna ártalsins
2000 til Ríkiskaupa til birtingar á veraldarvefn-
um.
Nánari upplýsingar í síma 552 6844
eða aegir@rikiskaup.is.
BORGARTÚNI 7, 105 REYKJAVÍK SÍMI 552-6844,
B r ó fa s í m i 562-6739-Netíang: rikiskaup@rikiskaup.is
W RÍKISKAUP
úrboð s k i I a á r a n g r i I
Frá grunnskólum
Hafnarfjarðar
Innritun
Innritun nýrra nemenda
Innritun nýrra nemenda í grunnskóla Hafnar-
fjarðar fyrir næsta skólaár fer fram á skrifstof-
um skólanna dagana 23.- 27. mars nk.
Innrita skal:
Börn sem eiga að hefja nám í 1. bekk (fædd
1992)
Nemendur sem vegna aðsetursskipta koma
til með að eiga skólasókn í Hafnarfirði haustið
1998.
Flutningur milli skóla
Eigi nemendur að flytjast á milli skóla innan
Hafnarfjarðar ber að tilkynna það viðkomandi
skólum fyrir 27. mars nk.
Athugið að mjög áríðandi er að allar ný- •
skráningar ásamt tilkynningum og óskum
um flutning milli skóla þurfa að berast
fyrir ofangreind tímamörk þar sem undir-
búningur næsta skólaárs er hafinn.
Nánari uppýsingarfást á Skólaskrifstofu Hafn-
arfjarðar í síma 555 2340.
Skólafulltrúinn 1
í Hafnarfirði.