Morgunblaðið - 08.04.1998, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 08.04.1998, Qupperneq 8
8 MIÐVIKÚDAGUR 8. APRÍL 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Viðskiptaráðherra fékk rangar upplýsingar um kostnað Landsbankana vegna kaupa á laxveiðileyfug/ ' Kostnaður var 41,7 millj-1 ónir en ekki 18,3 milljónir t‘lí1II1 *M'i ll" i ‘ ‘I •! Mll! Arðsemi Nesjavallavirkjunar hækkar ur 7,6% í 9% Kostnaður verulega lægri en ráðgert var KOSTNAÐUR við Nesjavallavirkj- un verður um 800 milljónum króna minni en upphafleg áætlun gerði ráð fyrir eða um 4,2 milljarðar króna í stað 5 milljarða. Alfreð Þor- steinsson, borgarfulltrúi Reykja- víkuristans, gerði grein fyrir þessu á síðasta fundi borgarstjómar. Laugardaginn 2. maí næstkom- andi verður lagður homsteinn að virkjuninni og verður stöðvarhúsið almenningi til sýnis þann dag. Alfreð kynnti tilboð í lagningu 145 kílóvolta rafstrengs neðanjarð- ar í Nesjavallalínu sem samþykkt hefur verið að taka og er að upphæð 27 milljónir króna eða helmingur af kostnaðaráætlun. Sagði hann þetta hagstæða tilboð dæmigert fyrir þau tilboð sem borist hafa í fram- kvæmdirnar að Nesjavöllum, bæði raforkuverið sjálft og í línulögnina. Alfreð sagði ljóst nú, þegar búið væri að bjóða út alla stærstu verk- þættina, að kostnaðurinn yrði ekki hærri en 4,2 milljarðar króna sem væri 800 milljónir undir áætlun. „Þetta eru að sjálfsögðu gleðileg tíðindi ekki síst vegna þess að þetta verk er unnið undir mikilli tíma- pressu en þá vill kostnaður gjarnan rjúka upp. En undirbúningur hefur allur verið mjög vandaður af verk- fræðingum Hitaveitu Reykjavíkur og sérfræðingum hennar, sömuleið- is af hendi verkfræðinga Rafmagns- veitunnar og sérfræðinga hennar. Þá hefur Innkaupastofnun Reykja- víkur staðið mjög faglega að öllum útboðum og haft eftirlit með fram- gangi mála,“ sagði Alfreð. Hverfílsamstæðan ódýrari Verkþættir sem kosta minna en áætlanir gerðu ráð fyrir sagði Al- freð að væru hverfilsamstæðan, sem væri 400 milljónum króna und- ir áætlun, bygging rafstöðvarhúss- ins væri 100 milljónum ódýrari, raf- línan frá Nesjavöllum að Korpu sömuleiðis og spennar og ýmis verkefni væru alls 100 milljónum undir áætlun. Þá sagði hann vexti af langtímalánum vera 100 milljónum króna lægri en upphaflegar áætlan- ir. Gert er ráð fyrir að fyrri véla- samstæðan verði gangsett 1. októ- ber næstkomandi og sú síðari mán- uði seinna. Er það fyrr en ráðgert var því sú síðari átti ekki að komast í gagnið fyrr en í janúar 1999. AJ- freð sagði að þessi lækkun á fram- kvæmdakostnaði þýddi að arðsemi Nesjavallavirkjunar væri 9% en ekki 7,6% eins og fyrst var haldið. Hvítlauksbrauö. 1 ís franskar, 750 gr. Fromage, ananas og sírtrónu, Ólífuolía, 500 ml 115-’1* 209 un 59- AHir dagar eru tilbodsdagar hjá okkur LAND ALLT U M Nýtt verrkefni Barnaheilla Fræðsla gegn kynferðisofbeldi á börnum Sveinbjörg Pálsdóttir * SÍÐASTA ári hófu /\ samtökin Barna- JL JLheill að undirbúa fræðslu- og forvarnastarf á sviði kynferðislegs of- beldis gegn bömum. Sveinbjörg Pálsdóttir er verkefnisstjóri hjá Bama- heillum. - Hvers vegna var ákveðið að fara út í fræðslu- og forvarnastarf? „Samtökin Barnaheill voru stofnuð á degi Sa- meinuðu þjóðanna 24. október árið 1989. Mark- mið þeirra er að vinna að bættum hag bama á öllum sviðum. I Bamasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem samtökin hafa að leiðar- ljósi í störfum sínum er í 34. grein kveðið á um að vernda beri böm gegn kynferð- islegu ofbeldi sem og öðm of- beldi og gegn þátttöku í vændi og klámiðnaði. Þetta eitt er næg ástæða til að hefja fræðslu og forvarnastarfið en helsta ástæðan fyrir því að samtökin fara út í það einmitt nú er hvatning frá systursamtökum Bamaheilla á hinum Norður- löndunum og þá sérstaklega í Svíþjóð og Noregi en þau hafa unnið ötullega að þessu málefni undanfarin ár. Þar hefur verið unnið að meðferðarmálum sem og forvarna- og fræðslustarfi. Samtökin á Norðurlöndunum búa því yfír mikilli þekkingu og reynslu á þessu sviði sem á eftir að koma okkur til góða.“ Sveinbjörg segir að þátttaka Kristínar Jónasdóttur, fram- kvæmdastjóra samtakanna, á fyrstu heimsráðstefnunni um „Kynferðislegt ofbeldi gagnvart börnum í verslunarskyni" sem haldin var í Stokkhólmi árið 1996 hafi varpað enn skýrara ljósi á málefnið og hversu knýj- andi það væri að vinna að fræðslu- og forvarnastarfi til að reyna að koma í veg fyrir verkn- aði af þessu tagi. Þá segir Sveinbjörg að nokkur systursamtök Bamaheilla í Evr- ópu hafi á síðasta ári fengið styrk frá Evrópusambandinu til að vinna sameiginlega að tveggja ára verkefni um þetta málefni. „Ein megináherslan verður á fræðslu- og forvarna- starf. Þetta verkefni er tvíþætt, það verða haldin námskeið fyrir fagfólk í viðkomandi löndum og útbúið safn gagna fyrir fræðslu- og forvarnastarf." Hún segir að samtökin hér á landi taki þátt í samstarfsverkefninu að hluta. - Hversu mörg mál sem snerta kynferð- islegt ofbeldi á börn- um koma upp hér á landi ár hvert? „Það hefur ekki enn verið gerð ýtarleg rannsókn á tíðni eða umfangi kynferðis- legs ofbeldis á börnum hér á landi. Samkvæmt athugun Barnavemdarstofu á fjölda þeirra mála sem barnaverndar- nefndir fengu til meðferðar á ár- unum 1992-1996 kom í ljós að þær höfðu afskipti af um hund- rað málum ár hvert sem talið er að sé þó aðeins toppurinn á ís- jakanum. „ - Hvernig er aðbúnaður barna ►Sveinbjörg Pálsdóttir er fædd í Reykjavík árið 1961. Hún út- skrifaðist sem guðfræðingur frá Háskóla fslands árið 1988. Hún stundaði framhaldsnám í kennimannlegri guðfræði og sálgæslu við Otto-Friedrich Uni- versitat í Bamberg í Þýskalandi. Sveinbjörg tók við starfi verk- efnisstjóra hjá Barnaheillum í lok síðasta árs. Eiginmaður hennar er Hró- bjartur Árnason og eiga þau tvo syni. hérlendis sem hafa þurft að þola kynferðislegt ofbeldi? „Samtökin Stígamót hafa unn- ið mikilvægt brautryðjendastarf á þessu sviði og veitt þolendum kynferðislegs ofbeldis ómetan- lega hjálp. A næstunni verður opnað Barnahús á vegum Barnavérndarstofu sem verður miðstöð fyrir rannsóknir ein- stakra kynferðisafbrotamála sem og sérhæfðrar meðferðar og áfallahjálpar fyrir þolendur og aðstandendur þeirra. Það er afar mikilvægt að hlúa vel að börnum sem orðið hafa að þola kynferð- islegt ofbeldi en auðvitað óskum við þess öll að geta komið í veg fyrir það.“ - Með hvaða hætti hyggist þið sinna fræðslu- og forvarna- starfí? „Allt forvarnastarf verður að byggjast á góðri þekkingu á málefninu. Hvað okkur varðar erum við að afla okkur hennar m.a. með því að tengjast þeim samtökum og stofnunum sem að þessum mál koma hér á landi. Þá komum við til með að efla samstarfið við samtökin í Nor- egi og Svíþjóð eins og ég kom inn á áður. Aðgerðir sem almenningur verður væntanlega var við er fyrst og fremst útgáfa bæklings sem ætlaður er foreldrum forskólabama. Markmiðið með honum er að hreyfa við foreldr- um og vekja þá til umhugsunar um hlutverk sitt í fræðslu- og forvarnastarfi. Við hyggjumst koma á fót safni fræðsluefnis og vera þannig farvegur fyrir upplýsing- ar og þá þekkingu sem er til á hverjum tíma. Að auki er stefnt að því að halda málþing þar sem fræðslu- og forvarnastarf verð- ur í brennidepli.“ Forvarnastarf byggist á þekkingu
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.