Morgunblaðið - 08.04.1998, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 08.04.1998, Blaðsíða 29
MORGUNB L AÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 1998 29 LISTIR Fjögur ungmenni deila með sér verðlaunum SUS Morgunblaðið/Þorkell VBRÐLAUNAHAFAR í ritgerðarsamkeppni SUS: Andrés Jónsson, Eygló S. Arnarsdóttir, Guðmundur Rúnar Svansson og Eydís Hulda Helgadóttir. Parsifal á föstudag- inn langa RICHARD Wagner félagið á íslandi mun sýna óperuna Parsifal af myndbandi á fóstudaginn langa kl. 13. Sýn- ingin verður í Safnaðarheimili Dómkirkjunnar, Lækjargötu 14a, 3. hæð. Það hefur verið árviss við- burður hjá Wagner félaginu undanfarin þrjú ár að sýna Parsifal á þessum degi, enda á efni og boðskapur óperunn- ar vel við á fóstudaginn langa. Að þessu sinni verður sýnd upptaka frá Wagnerhátíðinni í Bayreuth árið 1981. Hljóm- sveitarstjóri er Horst Stein, en leikstjóri og leikmynda- hönnuður Wolfgang Wagner. í helstu hlutverkum eru Sieg- fried Jerusalem, Eva Randova, Bernd Weikl, Hans Sotin, Leif Roar og Matti Sal- minen. Parsifal var frumsýnd í Ba- yreuth 26. júlí 1882 og er eina ópera Wagners sem skrifuð er sérstaklega fyrir Festspi- elhaus eftir að það var byggt, og jafnframt síðasta stórvirki tónskáldsins. Hátíðleikur til vígslu leikhúss Wagner kallaði Parsifal ekki óperu heldur Biihnenweihfestspiel, sem út- leggja má sem hátíðleik til vígslu leikhúss. Það var upp- haflega ásetningur hans að verkið yrði einungis flutt í eitt skipti og aðeins fyrir útvalda áheyrendur, en hugmyndir hans þróuðust á þann veg að Parsifal skyldi endurílutt á þriggja ára fresti, en ein- göngu í Bayreuth. Bann Wagners við að flytja Parsifal utan Bayreuth var fljótt virt að vettugi og reið Metropolitan óperan í New York á vaðið með sýningu sinni árið 1903 og var frum- sýningin þar á aðfangadag. Þetta vakti mikla reiði Cosimu Wagner, en upp frá þessu var farið að, sýna Parsifal víðar og varð það m.a. venja margra óperuhúsa að sýna hann árlega á föstu- daginn langa. Aðgangur er ókeypis. Lestur Passíusálma í Hjarðar- holtskirkju BJÖRN Guðmundsson, kennari, les Passíusálma Hallgn'ms í Hjarðarholts- kirkju í Dölum á fóstudaginn langa. Lesturinn hefst kl. 14 og tekur um 5 klukkustundir. Einnig verður leikin tónlist. Þetta er í fyrsta sinn í presta- kallinu sem sálmarnir eru lesnir í heild á þennan hátt. Síðustu sýningar SÍÐASTI sýningardagur tveggja sýninga sem nú standa yfir á Kjarvalsstöðum er 13. apríl. Þetta ei-u sýningarnar Paradís? - Hvenær - um- hverfisverk eftir Rúrí og Hinn samsíða garður - verk eftir Ólaf Elíasson. Opið er alla páskadagana frá kl. 10-18. Leiðsögn verður um sýningarnar á annan í páskum kl. 16. ÚRSLIT í ritgerðarsamkeppni Sambands ungi-a sjálfstæðismanna (SUS) voru gerð heyrinkunn í Val- höll í gær. Keppnin var fyrir ung- menni, 20 ára og yngri, og var við- fangsefnið frelsi. I umsögn dóm- nefndar kemur fram að verkin sem báru af voru það sambærileg að gæðum að ekki var unnt að ákveða að eitt þeirra fengi fyrstu verðlaun. Því var afráðið að veita fern verð- laun til einstaklinga sem skiluðu inn frambærilegustu verkunum, hvert á sínu sviði. Verðlaunin hlutu: Eydís Hulda Helgadóttir frá Sandgerði fyrir bestu ritgerðina, Frelsi; Guð- mundur Rúnar Svansson frá Dals- mynni á Snæfellsnesi fyrir besta ljóðið, sem nefnist Vegurinn; Eygló S. Arnarsdóttir frá Akureyri fyrir bestu smásöguna, Fangi frelsisins, og Andrés Jónsson úr Reykjavík, fyrir útvarpsþátt, sem reyndar var sá eini sinnar tegundar sem sendur var í keppnina. Öll fengu þau 25 þúsund krónur í sinn hlut. Matthías Johannessen ritstjóri, formaður dómnefndar, afhenti verð- launin. Lét hann þess getið að áhugi á keppninni hefði verið mikill og að markmið SUS, að fá ungt fólk til að hugsa um mikilvægi frelsisins fyiir einstaklinga og samfélagið allt, hefði náðst. Reyndar sagði Matthías það hafa vakið athygli dómnefndar hve lítinn áhuga þátttakendur hefðu haft á frelsi og lýðræði í þjóðfélaginu sem heild - höfuðáhersla hefði verið lögð á frelsi einstaklingsins. Sagði hann þetta tákn um breytta tíma enda kalda stríðið minningin ein. „Þið eruð til marks um það, sem kristnin kennir, að forsjónin hefur áhuga á hverjum og einurn," sagði hann við verðlaunahafana. „Við sem eldri er- um höfðum ekki eins mikil efni á að hugsa um hvern einstakan, heldur frelsi í miklu víðtækari skilningi." Frumleg hugsun Alls bárust 60 ritgerðir, ljóð og smásögur, auk útvarpsþáttar Andrésar. Dreifing þátttakenda var jöfn yfir landið en nokkru fleiri stúlkur en drengir tóku þátt. Var það mat dómnefndar að inn- sent efni væri að meðaltali betra en að jafnaði í sambærilegum keppn- um. Frumleg hugsun hefði verið áberandi og textinn oft einkennst af mikilli tilfmninganæmi. Þá segir í niðurstöðum nefndarinnar að um- fjöllun um fíkniefnavandann og dauða hafi hvílt eins og skuggi yfir mörgu af því sem barst. Þá vakti það athygli dómnefndar að allt ritað mál sem hlýtur viður- kenningu kemur frá nemendum sem stunda nám við Menntaskólann á Akureyin, Eydísi Huldu, Guð- mundi Rúnari og Eygló. Sagði Matthías þetta sýna að vel væri unnið í MA og að menn legðu metn- að í það sem þeir gerðu þar á bæ. Óskaði hann skólanum til hamingju með verðlaunahafana. Verðlaunahafarnir fjórir voru á einu máli um að í verðlaununum væri fólgin mikil viðurkenning og hvatning til frekari verka á sviði rit- starfa og þáttagerðar. „Þetta er í fyrsta sinn sem ég skrifa eitthvað án þess að bera skylda til,“ sagði Guðmundur Rúnar og bætti við að viðurkenningin kæmi sér ekki síst vel þar sem hann stæði á tímamótum - lyki stúdents- prófi í vor. „Þetta hvetur mann tví- mæialaust til dáða. Eygló kvaðst jafnframt gera ráð fyrir að viðurkenningin myndi örva sig til áframhaldandi verka á sviði ritlistar. „Mér fínnst eins og dyr hafi opnast. Það vil ég færa mér í nyt.“ Eydís Hulda ber nú öðru sinni sigur úr býtum í keppni sem þess- ari. Að hennar mati er það alltaf mikil áskorun að hella sér út i verk- efni af þessu tagi. „Ritstörf eru krefjandi meðan á þeim stendur en þegar verkefninu er lokið fer alltaf sama sælutilfinningin um mann.“ í máli þeirra kom fram að áhugi á ritlist væri umtalsverður meðal nemenda í MA en árangur sinn þakka þau ekki síst öflugri bók- menntakennslu og einvalaliði kenn- ara þar nyrðra. „Ég hafði engan áhuga á bókmenntum áður en ég settist á skólabekk í MA,“ sagði Guðmundur. Nú stendur hann uppi sem verðlaunahafi í ritgerðarsam- keppni. Andrés, sem starfar við þáttagerð á Rás 2, sagði frelsið verðugt við- fangsefni. Það væri skylda okkar Vesturlandabúa að nýta það vel enda væri frelsi, eins og við þekkt- um það, síður en svo sjálfsagður hlutur alls staðar í heiminum. „Þeg- ar öllu er á botninn hvolft getum við öll gert það sem við viljum. Nýtum okkur frelsið sem er fyrir hendi!“ I dómnefnd, auk Matthíasar, sátu: Asdís Halla Bragadóttir for- maður SUS, Súsanna Svavarsdóttir blaðamaður, Tómas Ingi Olrich al- þingismaður og Þór Whitehead pró- fessor. H O N D A 5 d y r a 2.0 i 12 8 h e s t ö fl Fjórhjóladrifinn fjölskyldubíll - hannaður fyrir íslenskar aðstæður nnifalið í verði.......MIiIm s 2.01 4 strokka 16 ventla léttmátmsvél V Loftpúðar fyrir ökumann og farþega s Rafdrifnar rúður og speglar s ABS bremsukerfi s Veghæð: 20,5 cm v Fjórhjóladrif / 15" dekk v' Samlæsingar s Ryðvörn og skráning v" Útvarp og segulband S Hjólhaf: 2.62 m ■/ Lengd: 4.52m, Breidd: 1.75m, Hæö: 1.675m samanburð Verð á götuna: 2.285.000 með ABS Sjálfskipting kostar 80.000,- (0 HONDA Slml: 520 1100
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.