Morgunblaðið - 08.04.1998, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 08.04.1998, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 1998 53 C"r í DAG Hlutavelta /AÁRA afmæli. í dag, v/miðvikudagirm 8. apríl, verður níræður Jónas B. Jónsson, fyrrverandi fræðslustjóri. Hann og kona hans, Guðrún O. Stephensen, taka á móti gestum í Oddfellowhúsinu við Tjörnina í dag á milli klukkan 17 og 19. ÞESSIR duglegu strákar söfnuðu með tombólu 2.175 kr. til styrktar Rauða Krossi íslands. Þeir heita Arnar Gísli Hin- riksson, Andri Snær Njarðarson og Guðjón Þór Egilsson. Með morgunkaffinu BRIDS IJm.vjón (iuðinuiidiir l‘áll Arnar.son JÓN BALDURSSON og Magnús Magnússon stóðu sig vel á vorleikum banda- ríska bridssambandsins í Reno, sem nú er nýlokið. Þeir urðu í þriðja til fjórða sæti í Vanderbiltsveita- keppninni, sem þeir spiluðu í liði hins 83 ára gamla Ge- orge Rapee, ásamt Eisen- berg, Arnold og Solodar. Síðan tóku þeir þátt í tveggja daga sveitakeppni með Hollendingunum Westra og Leufkens, og urðu þai’ í öðru sæti. Austur gefur; NS á hættu. Vestur ♦ D109 V5 ♦ Á10942 *ÁG82 Norður ♦ G432 VD7 ♦ G87 ♦ K1063 Austur ♦ - VÁG109643 ♦ D6 4.9754 Suður AÁK8765 VK82 ♦ K53 4*D ÞAÐ er gamall siður að feður bjóði upp á vindil þegar þeir eignast barn og ég vil ekki móðga hann. OG Sigurður tekur vítaspyrnu ... Hvað ætlar þú að gera í sambandi við hann, Elsa? . .. og hann fær gula spjaldið ... Elskar þú hann ennþá? . . . Leikmaður nr. 10 gengur út af ... COSPER ER útsýnið fallegt? Mér er alveg sama, ég gleymdi myndavélinni. Þetta er síðasta spilið í undanúrslitaleik Rapee og Cayne í Vanderbiltkeppn- inni og staðan í leiknum var 121-120, Rapee í vil! Andstæðingar Jóns og Magnúsar voru Berkowitz og Cohen. Jón var í austur og opnaði á þremur hjört- um. Berkowitz í suður sagði þrjá spaða, sem varð lokasögnin. Magnús kom út með hjarta upp á ás Jóns, sem spilaði meira hjarta. Magnús trompaði og lagði niður laufásinn, áður en hann spilaði hlut- laust trompi. Sagnhafi komst þá ekki hjá því að gefa tvo slagi á tígul og fór einn niður. A hinu borðinu vakti Passel á fjórum hjörtum og suður sagði fjóra spaða, sem voru doblaðir. Þar fór vörnin eins af stað, hjarta upp á ás og hjarta stungið og laufás. En þá skildu leiðir. Sion hafði ekki taugar til að bíða með „dáninn á hendinni“, og tók tígulásinn. Einn niður, 200, og 3 IMPar til Cayne, svo endanleg úrslit urðu: 121-123. „Ég varð að dobla þrjá spaða,“ sagði Magnús eftir leikinn. MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira lesendum sínum að kostnaðarlausu. Tilkynn- ingar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnudags- blað. Samþykki afmælis- barns þarf að fylgja af- mælistilkynningum og/eða nafn ábyrgðar- manns og símanúmer. Fólk getur hringt í síma 569-1100, Sent í bréfsíma 569-1329, sent á netfangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa: Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. STJ ÖRNUSPA cftir Franccs llrakc HRIJTUR Afmælisbarn dagsins: Þú ert viljasterkur og duglegur að berjast fyrir skoðunum þínum. Þú ert vinum þínum gott fordæmi. Hrútur (21. mars -19. apríl) Þú nýtur þín vel í góðra vina hópi en ættir að varast að einhver misnoti vináttu þína. Sinntu stai’fi þínu. Naut (20. aprfl - 20. maí) Láttu brigslyrði um góðan vin sem vind um eyru þjóta og leggðu þig fram um að sýna honum skilning. Tvíburar (21. maí - 20. júní) Það getur verið erfitt að vinna úr góðum fréttum en það ætti að hafast með hjálp vina og vandamanna. Krabbi (21. júní - 22. júlí) Það er svo sem ágætt að eiga ýmsa hluti, en lífsham- ingjan felst nú í öðru sem þú skalt frekar sækjast eft- ir. Ljón (23. júlí - 22. ágúst) Sýndu einbeitni í starfi þínu og varastu umfram allt að láta sjálfsmeðaumkvun ná tökum á þér. Meyja (23. ágúst - 22. september) (DÍL Nýir starfsmöguleikar eru þér umhugsunarefni en farðu þér hægt þvi tækifær- in hverfa ekki á braut. Vog (23. sept. - 22. október) Þú ert vinum þínum góður drengur og þarft engin láta- læti til þess að ganga í aug- un á þeim. Sýndu hagsýni. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóvember) '“tR Það er hægt að gleðjast án þess að það þurfi að kosta mikla fyrirhöfn eða fjár- muni. Taktu á hlutunum. Bogmaður (22. nóv. - 21. desember) Hugur þinn stendur til ferðalaga og þú ættir að kanna vandlega hvort ekki getur orðið af einhverju í þá áttina. Steingeit (22. des. -19. janúar) Það er í lagi að gefa öðrum gjafir þegar mann langar til en ekki af tilbúnum tilefn- um eða tilætlunarsemi ann- Vatnsberi (20. janúar -18. febrúar) Eftir annasaman dag í við- urvist margra er þér nauð- synlegt að eiga rólega stund með sjálfum þér. Fiskar (19. febrúar - 20. mars) >%■» Þú ert á réttri leið í starfi þínu en ættir að varast að flýta þér um of. Gættu vel að heilsufari þínu. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. Yfírlýsing frá hreppsnefnd Hraungerðishrepps MORGUNBLAÐINU hefur borist eftii’farandi yfirlýsing frá hrepps- nefnd Hraungerðishrepp: „Vegna þehTar umræðu sem hefur átt sér stað í fjölmiðlum að undan- fömu um skólasókn drengs úr Reykjavík og er í vist í Villingaholts- hreppi, sendir hreppsnefnd Hraun- gerðishrepps frá sér efth’farandi: Hreppsnefnd Hraungerðishrepps hefur hingað til kosið að tjá sig sem minnst um mál það er varðar skóla- vist drengs sem dvelst í Villingaholts- hreppi, þar sem fyrri umræða hefur síst orðið til þess að leysa hans vanda- mál, auk þess sem grannur vandans varðar einkamál drengsins, sem opin- bei-ir aðilar hafa ekki rétt til að fjalla um. Sú umfjöllun sem átt hefur sér stað að undanfornu, með missögnum og villandi upplýsingum, knýr okkur nú til að skýra ýmis atriði sem horft hefui’ verið framhjá í umræðunni um þetta mál. Umræddur drengur er með lög- heimili í Reykjavík. Hann er í vist í Villingaholtshreppi. Þingborgarskóli er í Hraungerðishreppi og þjónar Hraungerðisskólahverfi. A vordögum 1996 kom fram munn- leg beiðni frá fræðslu- og félagsmála- yfirvöldum í Reykjavík til skólastjóra Þingborgarskóla og skólanefndar Hraungerðisskólahverfis um að reynt yrði með skólavist fyrir drenginn í Þingborgarskóla til reynslu, en hann hafði verið án almenm’ar skólavistar í Reykjavík þann vetur. Þá var sagt að allur kostnaðui’ vegna drengsins yrði greiddm’ vegna hugsanlegrar skóla- göngu hans. Þessir aðilar féllust á að gerð yrði tilraun með skólagöngu drengsins. Drengurinn kom í heim- sóknir í skólann til reynslu í nokkra daga þá um vorið, ásamt fagaðilum úr Reykjavík, en aldrei var haft beint samband við oddvita eða hreppsnefnd vegna þessa máls á þeim tíma. Hinn 1. ágúst 1996 fluttist rekstur grunnskólans frá ríki til sveitarfélaga. I ágústmánuði reyndi oddviti Hraun- gerðishrepps ítrekað að ná sambandi við skólayfirvöld í Reykjavík, til að gengið yrði frá málum varðandi drenginn, fyrir skólabyrjun, með tak- mörkuðum ái’angi’i. Hinn 6. septem- ber, en þá var skóli í Þingborg byrj- aður og drengurinn farinn að sækja hann, ritaði oddviti bréf til skólayfir- valda í Reykjavík þar sem þess var krafist að þegar í stað yrði gengið frá samningum og áskilinn fullur réttur til að innheimta raunkostnað vegna skólavistar drengsins á komandi skólaári, þar sem rekstur fámennra skóla sé mun dýrari á hvem nem- anda, auk sérkostnaður sem fyrirsjá- anlegur var vegna drengsins. Þegar yfirvöld í Reykjavík svara loks, kemur í ljós að útreikningar þeirra era miðaðir við 75% af meðal- skólakostnaði á landsvísu, þ.e. kr. 14.800 á skólamánuði, alls kr. 133.200 fyrir skólaárið, og að auki yrðu greiddir 10 sérkennslutímar. I sam- ræmi við áður sent bréf Hraungerðis- hrepps vai’ litið á þetta sem upp- ígreiðslu í raunkostnaði við skóla- Það besta í þí HuJosií handkrem, ávöxtur þrotlausra rannsókna. Sigríður Erlingsdóttir, hjúkrunarfræðingur: Hudosií ^ er frábært á sjúkrahúsinu og y enn betra heima! J Hafðu hönd á Hudosilprufu í: Lyfju Rvík-Hafnaf., Apóteki Austurbæjar, -Engihjalla, -Laugavegs, -Garðabæjar, -Grafarvogs, -Ingólfs, Apótekið Skeifan, Akranesapóteki. Dreifing T.H. Arason, fax/sími 554 5748. göngu drengsins. Einn af meginkostunum við að drenguiTnn sækti Þingborgarskóla var talinn að þar var starfandi kenn- ari með sérkennsluréttindi. Þessum kennara voru greiddir 9,25 tímai- vegna sérkennslu drengsins þennan vetur. Meðalskólakostnaður á nem- anda í Þingborgarskóla fyrir þennan vetui’ er um kr. 400.000. Þar að auki ná greiðslur Jöfnunarsjóðs sveitarfé- laga ekki til drengsins, þai’ sem hann ’ á ekki lögheimili í sveitarfélaginu, og hækkar því hlutfallslegui- skólakostn- aður hans umtalsvert. Þá varð að gera ýmsar breytingar á skipulagi skólans vegna drengsins og greiða fyi’ir talsverða aukagæslu. Undirrit- uðum er ómögulegt að skilja hvemig áðurgreind framlög Reykjavíkur- borgar eiga að gi’eiða fyrir allan kostanð við skólavist drengsins, þó svo að Félagsmálastofnun Reykjavík- ur hafi boðist til að greiða 0,5 til 1,0 tíma vegna gæslu á dag. Allt bendir nú til þess að úrskurðar verði leitað hjá nýstofnaðri úrskurðarnefnd Sam- bands íslenskra sveitarfélaga um grunnskólakostnað vegna þessara at- riða. * Um mánaðamótin júní-júlí 1997 bai-st umsókn frá Reykjavíkui’borg um skólavist fyrir drenginn fyrir næsta skólaár. I bréfi frá Hraungerð- ishreppi, dags. 7. júlí 1997, var ítrek- að að enn hefði ekki verið gengið frá uppgjöri vegna skólakostnaðar nýlið- ins skólaárs, sem hreppsnefnd liti á sem grundvallar forsendu fyrir því að afstaða yrði tekin til umsóknar um frekari skólavist. Svör Reykjavíkur- borgar voru móttekin hinn 27. ágúst, sem voru þau að áður uppgefnar tölur þeirra skyldu standa. Þar með varð ljóst að grundvöllur fyrir afgreiðslu umsóknarinnar var brostinn. Þar fyrir utan var kominn upp sú staða að sérkennari sem áður kenndi við skólann hafði hætt störfum, auk þess að þá um sumarið og haustið fluttu tvö böm inn í hreppinn, þannig að óhægt var um vik að bæta nem- endum við bekkinn. Þá átti einnig eft- ir að leysa ákveðin vandamál sem ekki er hægt að rekja hér nánar, en ljóst að til þess þyrfti aukið fjármagn. Hraungerðishreppur hefur þrátt fyrir þetta komið að viðræðum til að finna lausn á málum drengsins. M.a. var skoðaðui’ möguleiki á að drengur- inn sækti nokkra tíma í viku í Þing- borgarskóla, þar til önnur lausn fynd- ist til framtíðar, gegn greiðslu raun- kostnaðar. Skilyrði þess var m.a. sett að allir hlutaðeigandi aðilar sættu sig við slíkt fyrirkomulag. Það náðist ekki. Þá hefur Reykjavíkurborg at>- hugað með skólavist drengsins í öðr- um skólum víðsvegai’, án mikils ár- angui’s til þessa. Hraungerðishreppur mun ekki tjá sig frekar um mál þetta á opinberum vettvangi, en vonar að þeir aðilar sem hugsanlega eiga eftir að gera það, vandi sig betur í málflutningi og um- fjöllun sinni en til þessa og haidi sig við staðreyndir en ekki afbakanir og mistúlkanir.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.